Alþýðublaðið - 14.06.1968, Qupperneq 14
Málverk
Framhald af bls. T
leg og litameðferð og samræmi
framúrskarándi. Þar er einnig
gott listaverk, frá Þingvöllum,
um aðra mynd að ræða, mjög
sem svipar sterklega hvað málun
og litameðferð snertir til hins
gamla meistara Césanne.
Skal annars ekki fjölyrt um
einstakar myndir hér, en,da ekki
hægt að gera þeim öllum viðhlít
andi skil í svo stuttri grein, en
sýningunni í heild heldur lýst í
fáum orðum.
Málverkasýning Péturs Frið-
riks ber vott um, að enn lifir í
gömlum glæðum. Tízka mun
aldrei geta útrýmt sönnum list
um, listaverkum eða listamönn-
um. Að vísu eru alltaf að koma
tímabil þar sem hlutunum er snú
ið við. Röngu er haldið á lofti
en hið sanna troðið niður, lygin
sögð sannleikur, viðursíyggð feg
urð. En slíkur skollaleikur er
ekki vænlegur til varanlegs ár-
angurs, því að hið Ijóta leiðir hið
fagra aðeins betur í Ijós.
Guðmundur Karl Ásbjörnsson.
Ferðamál
Framhald 2.. síðu.
það hafi verið hápunktur
þeirra ferða sem ég hefi verið
þátttakandi í. Landið er svo
þrautræktað og öll búmennska
með þeím ágætum að til þes er
jafnað um allan heim við hlið
Danmerkur
Þá kem ég að annar ferð sem
- ég ætlaði að minnast á, en hún
er á vegum Útsýnar og er um
Danmörku - Rínarlönd - Sviss
og París. Þessi ferð er dýr í
, krónum, en kannski ekki þeg-
ar tekið er tillít til þess að hún
býður upp á lauslega yfirsýn
fjögurra þjóðlanda. Farið er
um hjarta Þýzkalands og skoð
aðar stóriðnaðarborgir og það
af landslagi sem fegurst er í
því landi. Rínardalur á engan
sinn líka og ferð Heidelberg
er mjög skemmtileg enda
stendur borgin í miðju fögru
héraði. Síðan liggur leiðin til
Sviss. Þar er meiri náttúru-
fegurð en annarsstaðar í Vest-
ur - Evrópu. Himingnæfandi,
snæviþakin fjöll sem speglast
í fagurmótuðum stöðuvötnum,
umgirtum friðsælum sveitum
og borgum, sem byggðar eru
af þ'eirri smekkvísi, sem fagurt
landslag hlýtur að laða fram
úr penna arkitektanna.
Um París ætla ég ekki að
fjöryrða. Um hana hefur verið
svo marg rætt og ritað að það
væri ða bera í bakkafullan
lækinn að bæta þar nokkru
við. París er annáluð fyrir feg-
urð og eru þá oft nefndar til
við hlið hennar Helsinki og
Washington. í París eru ó-
þrjótandi staðir sem skoðunar
verðir eru þó við stutta heim-
sókn gefist ekki tími til nema
að líta á fátt eitt. Ég vona
bara að friður verði komin á í
þessari ágætu borg þegar
væntanlegir ferðamenn koma
þangað. Þá verður engin fyrir
vonbrigðum. Þessi ferð verður
sannkölluð „lúxusferð”
egar ég var að hripa niður
þessar línur kom sú spurning
upp í huga minn hvort hrað-
minkandi gjaldeyrissjóðir
leyfðu slíka eyðslu. Ef til þes
kemur að skorinn verði við
nögl ferðagjaldeyrir, þá ' er
einmitt nauðsynlegt að nota
sér hópferðafyrirkomulagið.
Með því nýtast ferðapening-
arnir bezt. Við skulum bara
vona að ekki komi til frekari
skerðingar ferðafiár. Því það
snertir aftur flugfélögin sem
nú eru undir það búin, að flyt-
ia stærri hóp ferðamanna milli
landa en nokkru sinni fyrr.
Nýloknir aðalfundir beggja fél
aganna, þar sem gerð var
grein fyrir stórfelldum halla-
rekstri, leiðir hugann að því
að ekki má skerða ferðalög
þegar af þeirri ástæðu að
þjóðin öll á mikið undir því að
vel takíst um rekstur flugsins.
Ferðalög hvort heldur er
innanlands eða utan, horfa til
menntunar og menninga því
skulum við vona að sem flestir
geti verið þátttakendur. í
næstu grein mun ég ræða um
skipulagðar ferðir verkafólks
og að hvern þátt samtök þess,
gætu átt í slíkum ferðum.
Þorleifur Guðmundsson.
Wýjsr vosilr
í'ramhald af 4. s!77u.
sem þjást af hrörnunarsjúkdóm-
um á háu stigi. „Við verðum að
finna meinið áður en í óefni
er komið,” sagði hann.
Til sölu
Hoover þvottavél, stök þeyti-
vinda, þvottapottur. Upplýsingar
í síma 21647, milli kl. 7-8 e.h.
Samvinnan
Framhald af G. síðu.
fund í tilefni þess, að eitt ár
er liðið síðan hann tók við
ritstjórn Samvinnunnar.
Sagði hann, að á þessu ári
hefði áskrifendum fjölgað
jafnt og þétt og lausasala auk
izt. En sökum þess, hve út-
gáfukostnaður væri hár, yrði
enn að herða róðurinn. og
því hefði verið ákveðið að
stofna til áskrifendahapp-
drættis. Þátttakendur í happ
drætli þeásu verða allir þeir,
sem greitt hafa þennan ár-
gang blaðsins fyrir 7. júlí.
Gildir þetta jafnt um gamla
sem nýja áskrifendur. Vinning
ur er 17 daga ferð fyrir tvo
til Mallorca og Lundúna síð
ar í sumar.
Eins og fyrr getur, er þetta
hefti Samvinnunnar helgað
samvinnuhreyfingunn, en auk
þess eru í blaðinu fjölmargar
aðrar greinar að venju. í
næstu tveimur heftum
verða teknir fyrir málafiokk
ar, sem bera yfirskriftina
Drykkjumenning á íslandi og
Þjóðareinkenni íslendinga.
Samvinnan er nú gefin út
í 7000 eintökum, og þess má
geta, að fyrsta heftið, sem
Sigurður ritstýrði og fjallaði
um skólamálin, er nú upp-
selt.
14 14. júní 1968 -« ALÞÝÐUBLAÐIÐ
Kosningahátíð
Framhald af 3. síðu
klukkunni; Þórunn Thors flytur
ávarp; Ó. Þ. Jónsson syngur yið
undirleik Ólafs Vignis Alberts-
sonar; Gunnar Eyjólfsson les
upp; Hjörtur Pálsson stud. mag.
flytur ávarp; Baldvin Halldórs-
son flytur Ijóð og að lokum
ávarpar dr. Kristján Eldjárn
viðstadda.
★ SJÓNVARPAÐ í FOR-
SAL.
Á fundi með fréttamönnum í
gær sögðu forráðamenn þessa
fundar, að liann myndi taka
eina og hálfa til tvær klukku-
stundir því hvert atriði væri
mjög stutt. í forsalnum verður
komið fyrir sjónvarpi og gjall-
arhornum til að sem flestir gætu
fylgzt með því sem fram færi.
Þá var frá því skýrt að ungir
stuðningsmenn dr. Kristjáns
Eldjárns myndu á næstunni
lileypa af stokkunum nýju blaði
sem heitir Ný kynslóð.
★ KOSTAR 2 MILL.TÓNIR.
Aðspurður kvaðst Ragnar
ar Jónsson í Smára ætla að
kosningabarátta þeirra myndi
kosta allt að 2 milljónum
króna, en þó væri mjög mikið
starf unnið í sjálfboðaliðsvinnu.
Nú starfa að jafnaði milli 20—
30 manns á aðalkosningaskrif-
stofunum í Reykjavík. Nýtt
hefti af 30. júní verður næstu
daga borið í hvert einasta hús
í Reykjavík og víða úti um land.
Þrjú hefti eru nú í undirbúningi.
Aðgangur að fundinum er ó-
keypis og öllum heimill.
íþróttir
Framhald a* 11. síðu.
sem Ellert Schram skoraði úr
og félögin skiptu stigunum.
Staðan í I. deild er nú þessi:
Akureyri 4 stig, Valur og Fram
3, Vestmannaeyjar 2, KR 2
og Keflavík ekkert. Valur og
KR hafa leikið 3 leiki, en hin
félögin tvö hvert. — Nánar á
morgun.
Ræða um
framsal
James Earl
BREZKA ríkisstjórnin hefur
fallizt á að hafizt verði handa á
rannsókn lögfræðilegra atriða
er snerta framsal Jamos Earl
Ray, meintum morðingja dr.
Martin Luthers Kings, til
Bandaríkjanna.
Kekkonen
til Moskvu
KEKKONEN, Finnlandsfor-
seti, flaug í gærmorgun til
Moskva í 2 vikna óopinbera
heimsókn. Búizt er við að Kekk-
onen ræði við sovézka ráða-
menn um almenn stjórnmála-
efni, og fara væntanlega fram
viðræður milli Kekkonens og
Podgorni, forseta Sovétríkjanna.
ORÐSENDING
til útgerðarmanna
sildveiðiskipa
Þeir útvegsmenin sem ætla að salt-a síld um borð í veiðiskip-
um eða sérstökum móðurskipum á komainidi síldarvertíð,
þurfa samkvæmt lögum tað sækja um söltunarleyfi til Sildar-
útvegsnefndar.
Umsækjendur þurfa að upplýsa eftirfarandi:
1. Nafn skips og skráningarstað.
2. Nafn og heimilisfang síldareftirlitsmanns, sem
stjórna á söltuninni um borð.
3. Hvort ráðgert er að láta skipið sigla sjálft !til lands
með síld þá, sem söltuð kann að verða um borð
'eða ‘hvort óskað er eftir að sérstök flutningaskip
taki við síldinni á miðunum.
Umsóknir sendist skrifstofu Síldarútvegsnefndar í Reykja-
vík sem allra fyrst og eigi síðar en 20. þ.m. Sjávarútvegs-
málaráðuneytið hefur með bréfi dags. 10. f.m. falið Síldar-
útvegsnefnd að framkvæma flutninga á sjósaltaðri síld svo
og framkvæmd annarra iþeirra málefna er greinir í bráða-
birgðialögum frá 10. f.m. og áliti 5 manna nefndar þeirrar,
er skipuð var 20. febrúar s.l. til að gera tillögur um hag-
nýtingu síldar á fjarlægum miðum. 'Er lagt fyrir Síldar-
útvegsnefnd að fylgja að öllu leyti ákvæðum laganna og
tillögum 5 manna nefndarinnar við framkvæmd málsins.
Með tilliti til þessa, vill Síldarútvegsnefnd vekja athygli
útgerðarmanna og aninarra hlutaðeigandi aðila á því, að ó-
gerlegt er að hefja undirbúning varðandi flutniiraga þá, sem
gert er ráð fyrir í bráðabirgðalögunum og tillögum 5 manna
nefndarinnar, fyrr en fyrir liggja upplýsingar frá útgerðar-
mönnum síldveiðiskipa um væntanlega þátttöku í söltun
um borð í skipum, ásamt upplýsingum um áætlaða flutn-
ingaþörf vegna iþeirra veiðiskipa, sem ráðgert er að afhendi
saltsíld á fjarlægum miðum um borð í flutningaskip.
Þá vill Síldarútvegsnefnd vekja -athygli útgerðarmanna og
lannarra hlutaðeigandi aðila á því, að skv. bráðabirgðalög-
unium er gert ráð fyrir, að útgerðarmönnum, sem kunna að
að flytja sjósaltaða síld frá fjarlægum veiðisvæðum til ís-
lenzkrar hafnar í veiðiskipumi eða sérstökum móður-
skipum, verði greiddur flutningastyrkur, er nemi sömu
upphæð fyrir hverja tunnu og Síldarútvegsnefnd áætlar
að kostnaður verði við flutning sjósaltaði'ar síldar á vegum
nefndarininar, enda verði síldin viðurkennd sem mark-
aðshæf1 vara við skoðun og yfirtöku í landi.
SÍLDARÚTVEGSNEFND.
SMURT BRAUÐ SNITTUR EIRRÖR
BRAUÐTERTUR Kranar,
fittings, einangrun o. fl. til
'\W/ hita- og vatnslagna.
BRAÚÐHUSIP Burstafell
SNACK BAR byggingavöruverzlun
Laugavegi 126, Réttarholfsvegi 3, Sími 38840.