Alþýðublaðið - 16.06.1968, Page 1
Sunnudagur 16. júní 1968 — 49. árg. 110. tbl-
UM 5 MILLJÓNIR
Lokið er styrkveitingum úr Vísindasjóði fyrir 1968.
í hlut raunvísindadeildar féllu kr. 3.237.000 er skipt
ist á 42 umsækjendur. Hæsta styrkveiting var 160
þúsund krónur og fengu 6 menn þá upphæð. Alls bár
ust 53 umsóknir en veittir voru 42 styrkir.
Til hugvísinda var veitt kr. 1.650.000. Þar voru um
sækjendur 38 en ekki voru veittir nema 19 styrkir.
Hæsta styrkveitmg var 125 þúsund krónur og hlutu
f jórir menn þá upphæð.
Formaður stjórnar Raunvís-
indadeildar er dr. Sigurður Þór
arinsson jarðfræðingur. Aðrir í
stjórninni eru Davíð Davíðsson
prófessor, dr. Gunnar Böðvars-
son, dr. Leifur Ásgeirsson pró
fessor og dr. Sturla Friðriksson
efnafræðingur. Að þessu sinni
dveljast þeir dr. Gunnar Böðvars
son og varamaður hans dr. Guð
mundur E. Sigvaldason báðir er
lendis og tóku því eigi þátt í
þessari úthlutun. Ritari deildar-
stjórnar er Guðmundur Arnlaugs
son rektor.
Formaður stjómar Hugvísinda
deildar er dr. Jóhannes Nordal
seðlabankastjóri. Aðrir í stjórn
eru dr. Broddi Jóhannesson skóla
stjóri, dr. Hreinn Benediktssön
prófessor, dr. Kristján Eldjárn
þjóðminjavörður og Magnús Þ.
Torfason prófessor. Dr. Hreinn
Benediktsson tók ekki þátt í
störfum stjórnarinnar við veit
ingu styrkja að þessu sinni, en
í stað hans kom varamaður hans
í stjórninni, dr. Matthias Jónas
son prófessor. Ricari deildar
stjórnar er Bjarni Viíhjálmsson
skjalavörður.
Úr Vísindasjóði hafa því að
þessu sinni verið veittir samtals
62 styrkir að heildarfjárhæð kr.
4.887.000.000 krónur.
■ itiiiiiifiMMiiiMiiiiiiiiiiaiaiiiiiiiiiivtftiiiffiiitiiiiitiitoativ
117. JÚNI
Þjóðhátíðin í Reykjavík
I hefst kl. 10 á morgun, 17.
i júní með samhljóm kirkju-
§ kiukkna í Reykjavík. Kl.
= 13.15 hefjast skrúðgöngur,
i en dagskráin á, Laugardals-
] velli kl. 13.50. Kl. 22.00
i verður byrjað að dansa á
I þremur stöðum í miðbæn-
i um.
Sjá nánar auglýsingu á
i 10. síðu.
Vestmanneyingar eru liarðsnúnir á flestum sviðum. Nú sækja
þeir fast á í knattspyrnunni, svo fast, að beztu lið meginlandsins
mega þakka fyrir að fá vinning gegn þeim. Myndimar sem fylgja
þessum lírnun sýna annarsvegar marksæknasta manninn í liði Vtst-
mannatyinganna, Harald Júliusson, sem hefur svo góðan „skalla“
að hann er nefndm- guilskállinn! Hinsvegar sjáum við svo ungar
blómarósir í Éyjum, sem taka þátt í leiknum af líf og sál og hvetja
piltana sína ákaft t'il dáða. í gær áttu Vestmannaeyingar að leika
við Keflvíkinga, en úrslit voru ekki kunn þegar blaðið fór í
prentun. Bjarnleifur tók þessar myndír, þegar Fram og Vestmanna
eyingar kepptu fyrr í vikunni.
Fior i Eyium
■
;• •' .'•
■
Á myndinni sést hvar Pallas-Aþena mun standa, en ekki var búið
að afhjúpa styttuna er blaðið fór í prentun. (Ljósm. Bjarnieifur).
436 stúdentar
brautskráðir
Menntaskólanum í Reykjavík
var slitið við hátíðlega athöfn
í gær. 231 nýstúdent var út-
skrifaður frá skólanum að
þessu sinni. Sökum þéss hve
snemma blaðið fór í prentun
reynist ekki unnt að skýra ítar
Iega frá skólaslitunum. Við
skólaslitaathöfnina í gær af-
hentu <ijúbílantar“, afmælis-
stúdentar, skólanum að gjöf
gríska stýttu af Pallas —
Aþenu. Að því tilefni tóku, til
máls pröfessor Einar Ólafur
Sveinsson fyrir hönd 50 ára
stúdenta og dr. Jóhannes Norð-
dal fyrir hönd 25 ára stúdenta.
-O-
í fyrradag brautskráðust
26 stúdentar frá menntaskólan
um á Laugarvatni. Viðstaddif
athöfnina voru 10 ára stúdent-
ar er færðu skólanum að gjöf
vandaða smásjá, og bókagjöf
barst frá 5 ára stúdentum.
Jóhann, skólameistari, Hannes
son bjóst við að á næsta ári
myndu útskrifast um 35 stúd-
entar.
-O-
Menntaskólanum á Akureyr*
verður slitið á mórgun, og
setja þá 122 nýstúdentar upp
hvíta kolla. Úr stærðfræðideild
brautskráðust 49, en 73 úr
máladeild.
-O-
Frá Verzlunarskóla íslands
brautskráðust í gær 31 stúdent,
Framhald á bls. 15.
STÖÐUVEITINGU MÓTMÆLT
I gær barst Alþýðublaðinu
yfirlýsing frá 10 starfsmönn-
um við fréttadeild Ríkis-
útvarpsins, þar sem mótmælt
er að gengið skyldi ve'ra fram-
hjá Margréti Indriðadóttur við
veitingu stöðu fréttastjóra
Ríkisútvarpsins. Vegna þess
hve yfirlýsing barst seint var
ekki unnt að birta hana í
þessu blaði.
I