Alþýðublaðið - 16.06.1968, Page 11
Fram-liffið: Þorbergur
Atlason, Jóhannes Atlason,
Ólafur Ólafsson, Baldur Schev-
ing, Anton Bjarnason, Sigurð-
ur Friðriksson, Einar Árnason,
Ásgeir Elíasson, Helgi Núma-
son, Arnar Guðlaugsson, Elm-
ar Geirsson.
ÍBV-liffiff: Páll Pálmason,
Bragi Steingrímsson, Þorkell
Húnbogason, Guðmundur Þór-
arinsson, Viktor Helgason,
Sævar Tryggvason, Sigmar
Pálmason, Geir Ólafsson, Har-
aldur Júlíusson, Valur Andar-
sen, Aðalsteinn Sigurjónsson.
Á fimmtudagskvöld fór fram
í Vm. leikur ÍBV — Fram í 1.
deild, leikur, sem miklum blaða
skrifum og umtali hafði vald-
ið. Vart var um annað talað
manna á milli í Vm, og hver
spurði annan í gær: Eru þeir
k'omnir og þá vissu allir við
hverja var átt. Var því mikil
spenna fyrir þessum leik og
sjálfsagt haft áhrif á leikmenn,
ekki síður en hinn venjulega
áhorfanda. Er leikur hófst kl.
19,30 var yndislegt sumarveð-
ur sól og aðeins gola af suð-
vestri.
ÍBV byrjar með knöttinn, en
Framarar ná honum fljótlega
og eiga npphláup á 2. mínútu
leiksins, sem endar með skoti
frá Arnari, ÍBV er síðan í sókn
og Geir á skot á mark Fram
á 5. mín. Framarar í sókn og
Einar Árnason á skot á mark
ÍBV á 7. mín. á 8. mín eru
ÍBV-menn í mjög harðri sókn,
Valur til Geirs og síðan Sæv-
ars, geysileg hætta við Fram
markið, pressa og skot, aftur
mikil hætta og skot á 9. mín.
við Frammarkið. Á 10. mín er
ÍBV í sókn — 11, mín er dæmd
hornspyrna á ÍBV, sem ekkert
verður úr á 12. mín er horn aft
ur á ÍBV, sem Einar Árnason tók,
en ekkert varð úr. Á 14 mín. eru
ÍBV í sókn og á 16 mín. er dæmd
hornspyrna á Fram og á 17 mín.
kemst Aðalsteinn ÍBV með bolt
ann inn fyrir en er dæmdur
réttilega rangstæður, og á sömu
mín. eiga Framarar skot á mark
ÍBV. 20 mín. skot enn á mark
ÍBV 21 mín. fríspark á ÍBV. 22
mín. hornspyrna á ÍBV frá
vinsri. 24 mín. skot. á mark ÍBV
frá hægri, Páll ver. 27 mín. ó-
bein vítaspyrna, Páll ver mjög
skemmíilega skot frá Elmari
Geirssyni. Á 29 mín. er hætta hjá
Fram markinu. Á 29 mín. er
hætfa við Fram markið en ekk
grt verður úr. ,Á 35' mín. gerðu
Framarar sitt fyrsta mark, Am
ar Guðlaugsson skallaði mjög
glæsilega inn, eitt núll fyrir
Fram. Á 37 mín. ver markvörður
Fram mjög vel. Á 39 mín. er
Einar Árnason með knöttinn og
leikur vel upp kantinn hægra
megin, en ekkert verður úr, á
sömu mínútu verður mikil hætta
við Fram markið sem ekkert
varð úr eftir skot frá' Haraldi
sem markvörður varði mjög vel
með réttu úthlaupi. Á 41 mín. er
dæmd aukaspyrna á Pál fyrir að
hann hljóp út fyrir markteig og
úr því fá Framarar hornspyrnu.
Á 42 mín. ver Páll skot glæsi-
lega. Á 43. mín. ná ÍBV sókn
upp hægri vallarhelming, sem
endar með glæsilegum skalla frá
Haraldi og jafnt 1-1, og þannig
endaði fyrri hálfleikur
★ SÍÐARI HÁLFLEIKUR.
Fram byrjar með knöttinn í
seinni hálfleik. Á 4. mín. ver
Páll vel. Á 5 mín. lá við að yrði
sjálfsmark hjá Fram, er bak-
vörður ætlaði að gefa mark-
manni knöttinn, en úr því varð
misskilningur þannig að mark-
vörður missti af knettinum og
allir biðu með öndina í hálsinum
að úr yrði sjálfsmark, og mun-
aði sannarlega ekki miklu. Á 6.
m. ver Páll vel skot frá Fram,
á 7. mín. gerir Helgi Númasön
annað mark Fram, mjög skemmti
lega að unnið og óverjandi fyrir
Pál markvörð ÍBV. Á 10 mín.
geysileg hætta við Fram markið
og á 17. mín hefur verið sem
sagt stanzlaus sókn á Fram mark
ið. Á 21 mín. hleypur Sigmar
upp hægri kant gefur mjög vel
fyrir Fram markið og Haraldur
skallar enn í mark Fram 2-2. Á
25 mín. fær Elmar knöttinn á
miðjum vallarþelming ÍBV ein
leikur á 3 leikmenn ÍBV og sið
an á markvörð og rennir boltan
um síðan í netið, mjög glæsi-
lega að unnið, 3-2 fyrir Fram.
Næsíu mínútur er hart barist á
báða bóga og á 29 mín. á Helgi
Númason skot á mark af 25 m.
færi, sem hafnar örugglega <■ í
marki ÍBV 4-2. Síðan hefja Vm.
leikinn, Sævar á skot á mark
á 30. mín. 33 mín. eiga Vm. gott
skot á Fram markið stanzlaus
sókn á Fram og pressa. Á 35 m.
á Haraldur skot á’ Fram markið,
— og enn heldur sóknin áfram. Á
44 mín. á Geir mjög góðan
skalla að marki Fram^ en ekk
Framhald á bls. 14.
Ricky Bruch: 20 m. í
kúluvarpi og 67 m.
í kringlukasti
SVÍINN Ricky Bruch hefur
vakið mesta athygli frjáls-
íþróttamanna á Norðurlöndum
á þessu sumri. Hann hefur sett
Norðurlandamet bæði í kúlu-
varpi og kringlukasti. Bruch
er aðeins 22 ára gamall, vegur
122 kíló og eitt er víst, hann
skortir ekki sjálfstraust, sum-
ir vilja jafnvel kalla hann
„Cassius Clay“ frjálsíþrótt-
anna.
---------------------------$
Ilaraldur Júlíusson lengst t.v. skallar i mark Fram, ftlynd: bh.
’u Tékkinn Ludvig Danek átti
heimsmet í kringlukasti, þar
til Jay Silvester, USA bætti
það fyrir nokkrum vikum.
Nýlega tók Bruch þátt í móti
í Prag, þar sem Danek var
skráður keppandi. Þegar til
kom mætti Tékkinn ekki og
Bruch hélt því ákaft fram, að
hann hefði ekki þorað. Danek
mætti aftur á móti til keppni
í Stokkhólmi nokkru síðar og
þá vann Bruch 60,58 gegn
59,98 m. Bruch segist hafa
kastað 67,50 m. á æfingu og
segist muni kasta yfir 70 m.,
þegar hann verði heppinn með
vindinn.
Bezti árangur Bruch í sum-
ar: kúluvarp 19,30 m. og
kringlukast 61,77 m.
Takmark í sumar: 20 m. í
kúluvarpi og 67 m. í kringlu-
kasti.
ÍÞRÓITAFRETTIR
í STUTTU MÁLI
Ungur sovézkur spretthlaup
ari, Sapeya jafnaffi landsmet
sitt í 100 m. hlaupi í fjórffa
sinn á föstudag, er hann hljóp
á 10,2 selt. á Lenin leikvangin-
um. — í 100 m. hlaupi kvenna
sigraöi Bukharina á 11,4 sek.,
en Popkova varff fyrst í 200
hlaupi á 23,8 sek.
Sovézki hástökkvarinn Mos-
panov, sem er 22ja ára, stökk
2,10 m. í liástökki í vikunni.
Ambarjan stökk sömu liæff.
ritstj. öRN ÍKI pHStt "IP
bðsson-Ik Kwl 1 IK
Jafn leikur Fram og
Vestmannaeyinga
»júinL
11