Alþýðublaðið - 16.06.1968, Síða 14
Opna
Framhald úr opnu.
á'rs gamall einn af yngstu kenn-
urum skólans — og kenndi hag-
fræði. Árið eftir komst hann í
kynni við hinn nafnkunna Wil-
liam Henry Beveridge, lávarð,
manninn sem öðrum fremur átti
þátt í uppbyggingu Englands
sem velferðarríkís og lærði
margt gagnlegt af honum. Það
var fyrir tilstilli Beveridge, að
Wilson hlauí svonefndan „rann-
sóknarstyrk," mjög eftirsótta
fjárupphæð, er gera skyldi ung-
um' og efnilegum kandidötum
kleift að leggja stund á fram-
haldsrannsóknir í sínu fagi.
Og loks var bæði námi og
framhaldsnámi Wilsons lokið og
þau Mary gátu með góðri sam-
vizku gengið í það heilaga. Sú
athöfn átti sér stað 1. janúar
1940. Mary var því heima hjá
foreldrum sínum og vann að
hjúskapnrstofnun og heim'ijjist
undirbúningi, er heimsstyrjöldin
síðari brauzt út í september ár-
ið 1939. Varð styrjöldin til þess,
að Harold gekk í herþjónustu,
en vegna þess mikla orðs, sem
fór af honum sem hagfræðingi
var hann settur til slíkra starfa
hjá hernum.
Hveitibrauðsdögum sínum
eyddu Wilson-hjónin á hóteli
einu í Costwolds. Heimili reistu
þau hins vegar til að byrja með
í Oxford, en þegar Wilson var
skipaður í ábyrgðarstöðu í
birgðamálaráðuneytinu í Lond-
on, fluttu þau bráðlega þangað.
Wilson var þó mjög á faralds-
fæti utanlands og innan stöðu
sinnar vegna og loftárásirnar á
London færðust stöðugt í auk-
ana. Mary, kona hans flutti þvi
aftur til Oxford, en þar sem
hún kaus að axla byrðar styrj-
ladarinnar með öðrum löndum
sínum, fluttist hún enn einu
sinni til London, þar sem hún
starfaði við loftvarnabyrgin sem
aðstoðarkona.
Fyrsta barnið,
framtíðin.
ELDRI SONUR þéirra Wil-
son-hjónanna, Robin, fæddist í
desember 1943. Þá voru sann-
kölluð „stríðsjól“ í Bretlandi.
Móðir og sonur hörfuðu undan
æðisgengnu sprengiregni Þjóð-
verja til foreldra Mary í Cam-
bridgeshire. í lok ársins 1944
var þeim aftur unnt að halda
heim til London. En það var
ekki fýrr en um páskanna 1945,
að reglubundið fjölskyldulíf
hófst, er Harojd tók við kennara-
stöðu þar. En friðurinn stóð
ekki lengi, eins og frúin þó hafði
vonað. Hringiða stjórnmálanna
svalg menn hennar til sín,* er
hann var kjörinn á þing í júlí-
máhuði árið 1945.
Árið 1945 var því tímamótaár
í lífi Wilson-hjónanna. Þá hófst
hinn langi og annaríki ferill
Harold Wilson í enskum stjórn-
málum, — ferill, sem óslitinn
er til þessa dags. og hámarki
náði, svo sem áður um getur, í
Downing Street 10. Þessi rúm-
lega tuttugu ár hafa verið ham-
ingjuár en einnig oft á tíðum
hörð ár. Líf stjórnmálamanns-
X4 16. júní 1968 — ALÞÝÐUBLAÐIÐ
ORÐSENDING
til útgerðarmanna
síldveiðiskipa
Þeír útgerðarmenn, sem ætla að salta síld um
borð í veiðiskipum eða sérstökum móðurskipum
á komandi síldarvertíð, þurfa samkvæmt lögum
að sækja um söllunarleyfi til Síldarútvegs-
nefndar.
Umsækjendur þurfa að upplýsa eftirfarandi-
1. Nafn skips og skráningarstað.
2. Nafn og heimilisfang síldareftirlitsmanns,
sem stjórna á söltuninni um borð.
3. Hvort ráðgert er að láta skipið sigla sjálft
til lands með síld þá, sem söltuð kann að
verða um borð eða hvort óskað er eftir að
sérstök flutningaskip taki við síldinni á I
miðunum.
Umsóknir sendist skrifstofu Síldarútvegsnefnd-
ar í Reykjavík sem allra fyrst og eigi síðar en
20. þ.m. Sjávarútvegsmálaráðuneytið hefur með
bréfi dags. 10. f.m. falið Síldarútvegsnfend að
framkvæma flutninga á sjósaltaðri síld svo og
framkvæmd annarra þeirra málefna er greinir
í bráðabirgðalögum frá 10. f.rm og áliti 5 manna
nefndar þeirrar, er skipuð var 20. febrúar s.I.
til að gera tillögur um hagnýtingu síldar á
fjarlægum miðum. Er lagt fyrir Síldarútvegs-
nefnd 'að fylgja að öllu leyti ákvæðum laganna
og tillögum 5 manna nefndaririnar við fram-
kvæmd málsins. Með tilliti til þessa, vill Síldar-
útvegsnefnd vekja athygli útgerðarmanna og
annarra hlutaðeigandi aðila á því, að ógerlegt
er að hefja undirbúning varðandi flutninga þá,
sem gert ep ráð fyrir í bráðabirgðalögunum og
tillögum 5 manna nefndarinnar, fyrr en fyrir
liggja upplýsingar frá útgerðarmönnum síld-
veiðiskipa um væntanlega þátttöku í söitun um
borð í skipum, ásamt upplýsingum um áætlaða
flutningaþörf vegna þeirra veiðiskipa, sem
ráðgert er að afhend: saltaða síld á fjarlægum
miðum um borð í flutningaskip.
Þá vill Síldarútvegsnefnd vekja athygli út-
gerðarmanna og annarra hlutaðeigandi aðila á
þvf að skv. bráðabirgðalögunum er gert ráð
fyrir, að útgerðarmönnum, sem kunna að flytja
sjósaltaða síld frá fjarlægum veiðisvæðum til
íslenzkrar hafnar í veiðiskipum eða sérstökum
móðurskipum, verði greiddur flutningastyrkur,
er nemi sömu upphæð fyrir hverja tunnu og
Síldarútvegsnefnd áætlar að kostnaður verði
við flutning sjósaltaðrar síldar á vegum nefnd-
arinnar, enda verði síldin viðurkennd sem
markaðshæf vara við skoðun og yfirtöku í landi.
SÍLDARÚTVEGSNEFND.
ins er ekk; tekið út með sitj-
andi sældinni og á því hefur
frú Mary Wilson óspart mátí
kenna. . En . hún hefur staðið
ótrauð við hlið manns síns, hvað
sem á hefur bjátað. Hún er
hviklaus kona — en kann þó
hversdagslífinu bezt.
Og nú er hún, skrifstofustúlk-
an fyrrverandi, orðin forsætis-
ráðherrafrú. Mary Wilson er
þess mínnug, að vandi fylgir
vegsemd hverri. Hún hræðist
ekki ráðherratign manns síns,
—■ hann varð fyrst ráðherra árið
1947, þá 31 árs gamall, og gegndi
embætti viðskiptamálaráðherra,
— en gerir sér þó grein fyrir
þeirri byrði sem lögð er á herð-
ar honum. Um það hvernig
kona stjórnmálamanns skuli
vera, segir hún:
— „Kona, sem gift er stjórn-
málamanni, verður að vera
diplómat. Það þýðir ekki fyrir
hana að reyna að hafa töglin
og hagldirnar . .
Ung hjón.
Framhaltl af 5. síðu.
koma fram í læknisfræðinni er
tilhneiging til að bæta við náms
efnið og þannig eykst J'Vð smám
saman án þess að nokkuð sé skor
ið af eða kennsluaðferðum
breytt. Það segir sig sjálft að
fyrr éða síðar verður að skera af
því eða hagræða kennslunni og
gera námsfólki kleift að byrja há
skólanám fyrr.“
„Hvað tekur nú við hjá þér?“
„Meiningin er að leysa af í
Keflavík í nokkra mánuði í sum
ar. Síðan fer ég á spítala í haust
og tek kandídatsárið, sem er 13
mánuðir. Að því loknu þarf ég
að taka 3 mánuði í héraði áður
en ég fæ almenn læknaréttindi.
Hvað ég gerj siðan er alveg ó-
ráðið. Það vantar mikið heimilis
lækna og það mætti ætla að það
væri hvað fjölbreyttasta læknis-
starfið. Fyrir nokkrum árum var
lítið um að ungir læknar færu út
í heimilislækningar — þeir fóru
svo að setgja allir í sérnám. En
nú er andinn að færast í þá átt
að æ fleiri ungir læknar fara í
heimilislækningar. En eins og
ég sagði þá er alveg óráðið hvað
ég geri.“
Að svo komnu kveðjum við
þessi ungu hjón og óskum þeim
allra heilla. Þ.
Eþróttir 1
Framhald á bls. 11.
ert varð úr, ?annig lauk Ieiknuu*
4 gegn 2 fyrir Fram. LK. j
Leikurinn var jafnari en mörk ;
in gefa til kynna og hefði ef til -
vill verið réttlátustu úrslit jafa
tefli, því bæði liðin áttu sína
kafla þar sem þau máttu sín
meira en hinn aðilinn á vellinum.
Og í heild var leikurinn hrað-
ur skemmtilegur og hart barizt
þó hann yrði aldrei grófur.
Dómari var Guðmundur Har
aldsson og dæmdi hann vel, línu
verðir Sveinn Gunnarsson og
Guðmundur Sveinsson.
Lið Fram. Það sem fyrst og
fremst gerði út um leikinn voru
útherjar Fram,- sem voru mjög
góðir báðir, þeir Einar Árnason
og Elmar Geirsson, þó sérstalc
lega Elmar með geysilegan
hraða, sem erfitt var að ráða við,
vörnin var einnig mjög traust
og markvörðurinn stóð sig vel
ÍBV liðið: Sterkustu menn ÍB
V voru Viktor, sem ávallt er
klettur sem aldrei bregst. Páll
markv. varði mjög skemmti-
lega og mætti landsliðsnefnd
taka hann undir sína smásjá,
Valur alltaf sívinnandi með geysi
lega yfirferð, Sigmar hraður og
fylginn sér Qg getur gefið mjög
góða bolta. Annars virtist vanta
'útthvað í framlínuna, eitthvað
afgerandi afl, því tækifæri voru
mörg. Og Vm geta örugglega
fengið meira út úr leik sínum
og munu fá með sama krafti og
leikgleði og þeir hafa sýnt í
þeim tveim leikjum er þeir þeg
ar hafa leikið í 1. deild. Karl
Guðmundsson þjálfari Fram
sagði um þennan leik. „Einhver
bezíi leikur í mótinu.“ JK.
SVEINN H.
VALDIMARSSON
hæstaréttarlögmaður.
Sölvhólsgata 4 (Sambandshús,
Símar: 23338 — 12343.
3. hæð).
Móðir okkar
GUÐRÚN ERLENDSDÓTTIR
Arnbjargarlæk *
andaðist að Grund í Skorradal föstudaginn 14. júní.
Guðrún Davíðsdóttir,
Andrea Davíðsdóttir,
Aðalsteinn Davíðsson.
„Faðir okkar. , .|
STURLAUGUR JÓNSSON,
stórkaupmaður,
lézt að Hvítabandinu hinn 13. júní 1968 eftir skamma legu.
Jarðarförin verður ákvéðin síðar”.
Jón Sturlaugsson, jw|j; ,
Þórður Sturlaugsson,