Alþýðublaðið - 22.09.1968, Side 3
Hver verður
dómur sögunnar?
Hvað munu sagnfræðingar
framtíðarinnar segja um
fyrsta aldarfjórðung hins end
urreista lýðveldis? Hver verð
ur dómur þeirra um tímabilið
1944 til 1969, þegar þeir líta á
það úr fjarlægð?
Sennilega munu þeir leggja
megináherzlu á, að þjóðinni
fjölgaði á þesu tímabili úr
125.000 í 200,000, og ísland var
igert að nútíma tækniþjóðfé
lagi, sem veitti þegnum sínum
einhver beztu lífskjör, sem
þekktust á jörðinni. Þeir
rnunu benda á ótrúlega upp
byggingu á öllum sviðum,
borgir og bæi, samgöngur, at
vinnutæki. Þeir munu telja
menningarlíf hafa verið blóm
legt, enda hlaut íslendingur
Nóbelsverðlaun.
Hins vegar mun hin al
menna saga lítið geta um verð
bólgu og efnahagsvandræði,
sem hrjáðu landsfólkið og for
ustumenn þess á tímabilinu.
Þó kann að vera, að sagnfræð
ingar taki eftir því, að þessi
gleymdu dægurmál réðu
myndun og falli flestra ríkis
stjórna allt tímabilið. Og þeir
kunna að taka eftir nálega
reglubundnum sveiflum ára
tug eftir áratug.
Tökum áratuginn 1940 til 50.
Á stríðsárunum safnaðist þjóð
inni mikill gróði. Nýsköpunar
stjórnin var mynduð, og hún
hóf hraða uppbyggingu at
v.nnuvega. Brátt þraut stríðs
gróðann, og miklir erfiðleikar
sóttu á. Mynduð var ný ríkis
stjórn á breiðum grundvelli
undir forustu Stefáns Jóhanns
og gerði hún óvinsælar en
óhjákvæm.legar ráðstafanir.
Skeið þeirrar stjórnar var til
1949, en þá tók við millibils
ástand með minnihlutastjórn
Ólafs Thors.
Síðan kemur áratugurinn
1950 til 60. Hann hófst með
stjórn Sjálfstæðisflokksins og
Framsóknarflokksins, sem
gerði stórfellda gengislækkun
og aðrar ráðstafanir. Eftir það
kom góðæri um sinn, en brátt
varð að grípa til uppbótakerf
is á nýjan lelk. Þessi stjórn
gliðnaði sundur 1956, og tók
þá við vinstri stjórnin. Hún
■hélt uppbótarkerfinu áfram,
en gat ekki komið sér saman
:um varanlegri ráð. Þegar
hennar ske.ð var á enda, tók
aftur við millibilsástand —
minnihlutastjórn Emils Jóns
sonar.
Þá er þriðji áratugurinn,
1960 til 1910. Hann hófst með
Vjðreisnarstjórninni, sem
lækkaði gengið og gerði víð
tækar ráðstafanir. Eftir það
kom góðæri um sán og urðu
lífskjör þjóðarinnar betri en
nokkru sinni. Erfiðleika bar
að höndum 1966, en nú átti
þjóðin varasjóði og gat beð ð
átekta, þannig að ekki þurfti
að gera alvarlegar gangráðstaf
anir fyrr en 1968. Þá um haust
ið hófust viðræður allra stjórn
málaflokkanna, m. a. til að
kanna möguleika á myndun
þjóðstjórnar- Slík stjórn getur
ef hún verður mynduð, aldrei
orðið langlíf, og hlýtur því að
verða millibilsástand — eins
og 1959 og 1949.
Ávarp vegna Kirkjudagsins
Undirritaður, prestur Óháða
safnaðarins í Reykjavík, leyf
ir sér að vekja athygli á því,
að hinn árlegi Kirkjudagur
safnaðarins er í dag, og að
Kvenfélag Óháða safnaðarjis
hefur kaffisölu í Kirkjubæ að
lokinni messu, sem hefst kl.2.
í þetta skipti ætla ég ekki að
rekja hið margþætta, ómetan
lega starf, sem félagið hef.r
unnið til gangs og prýði fyrir
kirkjuna, og vinnur ennþá af
óþreytandi ósérplægni og á
huga. Ég leyfi mér aðeins fyrir
hönd kirkjunnar að þakka
það af heilum hug.
En eins vil ég minnast, sem
Kvenfélag Óháða safnaðarins
gerði í sumar, hvorki til gangs
né prýði fyrir kirkjuhúsið
sjálft, en þó flestu öðru frem
ur í anda höfundar kristins
dómsins. Hér er átt við að fé
lagið gaf 20 þúsund krónur í
Biafra söfnunina. Sízt af öllu
munu konurnar hafa lagt
þetta af mörkum, til þess að
vekja athygli á sínu starfj
enda mun þess ekki hafa ver
ið getið opinberlega fyrr en
nú. Ástæðulaust er þó að láta
þessa ógetið, vegna þess, að oft
er gert lítið úr því sem kirkj
uleg félög vinna, nema þá fyr
ir kjrkjuhúsin, en sannarlega
líknarmálum
vinna þau mörg að mannúðar
og líknarmálum.
Eg vil með þessum línum
leyfa mér að hvetja öll sóknar
börn mín til að muna eftir
kirkjudegi safnaðarins í dag,
\
30 farast
í járnbrautaslysi
Djakarta, 21. sept. (NTB
Reuter).
Þrjátíu létu lífið og yfir 150
særðust, er hraðlest og venju
leg farþegalest rákust á við
borgina Depok, se'm er í 40
km. fjarlægð frá Djakarta. Um
fimmtíu hinna særðu eru í lífs
hættu.
Enn er óvíst, hvað slysinu
olli.
Trúnaðarráðs-
fundur í Rvík
Fundur verður 1131010 í trúnaðarmannaráði Alþýðuflokksfélags
Reykjavikur mánudaginn, 23. september kl. 8.30 e.h. í Iðnó uppi.
Á fundinum verður leitað eftir tillögum trúnaðarmanna um
fulltrúa á flokksþing Alþýðuflokksins Auk þess verða umræður
um stjórnmálaástandið. Örstuttar ræður um það mál flytja Albert
Jenssen Sjgurður Helgason, Sigurður Jónsson, Sighvatur Björgvins.
son og Sigvaldi Hjálmarsson.
Kaffiveitingar verða á fundinum. Eru trúnaðarmenn hvattir
til að fjölmenna og sýna skírteini við innganginn.
ATHUGIÐ
Geri gamlar hurðir scm nýjar, skef upp, olíubcr og lakka.
Olíuber e'innig nýjar hurðir og viðarklæðningar utanhúss.
Fjarlægi málningu af útiliurðum og harðviðarlita þær.
SÍMI 36857.
GUÐMUNDUR DAVÍÐSSON.
BENEDIKT GRÖNDAL
UM HELGINA
Það er ótrúlegt, hve sveifl
ur efnahagslífsins — og þar
með stjórnmálanna — hafa
verið líkar þessa þrjá áratugi,
hvern á fætur öðrum. Ef íhug
að er, hvað þessu valdi, kunna
að koma í ljós ýms lærdóms
rík sannindi.
Vangaveltur sem þessar
sækja á, þegar rót er í efna
hagslífi og stjórnmálum. Með
því að rekja sveiflur þriggja
áratuga er ekki verið að spá,
að þeim muni halda áfram.
Viðreisnarstj órnin hefur þegar
reynzt langlífar: og að ýmsu
leyti gerólík fyrri ríkisstjórn
um. Þess vegna getur gangur
mála nú orðið allt annar en
hann var 1949 til 50 og 1958
til 59. Við sjáum hvað setur.
að koma í kirkjuna og Kirkju
bæ, en þar munu kvenfélags
konur hafa á boðstólum höfð
inglegar ve'tingar að vanda.
Með því að þiggja þær gefst
öllum kostur á að leggja eitt
af mörkum, til að efla kirkju
legt starf og mannúðarstarf
kvennanna.
Emil Björnsson.
»VWWWWWWMWW>WWWW
IErlendar
fréttir í
stuttu máli li
Montevideo, 21. september
(NTB Reuter).
Óeirðirnar, sem hófust á
miðvikudag í Montevideo,
höfuðborg Uruguay, halda á
fram. Uögreglan og her eru
við öllu bú n, þar eð ástandið
í borginni verður að teljast
mjög alvarlegt eftir óeirðirn
ar síðustu nætur.
London, (NTB Reute'r).
Forsæt:sráðherra Rhodesíu
Ian Smith, lýsi því yfir í sjón
varpsviðtali, að hann fyrir sitt
leyti væri reiðubúinn að hefja
aftur samn:ngaumleitanir við
Breta, en þó t'kki á þeim grund
velli, að hinn hvíti minnihluti
í Rhodesíu léti völdin í hend
ur afríkönsku ibúanna þar.
Belgrad (NTB — AFP)
Enn eykst spennan milli Júgó,
slavíu og Sovétríkjanna. B0rba,
aðalleiðtog; kommúnistaflokks-
ins, réðist í gær harkalega á
Sovétmenn fyrir ummæli þeirra
um Tito forseta. Jafnframt lýsti
hann því yfir, að Júgóslavar
styddu Tékka í einu og öllu í
baráttu þeirra fyrir sjálfstjórn.
Hssabon, (NTB Reuter).
Líflæknir SaIazars skýrði
frá því í nótt, að ástand hins
79 ára gamla forsætisráðherra
væri enn óbreytt-
VIRZLlNARSIARf
VERZLUNARST JÓRI
Verzílunarstjóra vantar út á 'land.
Upplýsingar gefur
Starfsmannahald SÍS
STARFSMANIMAHALO
Kvenfélag Alþýðuflokksins
í Hafnarfirði
heldur fund mánudaginn 23. sept. kl. 8.30
s.d, í Aiþýðuhúsinu.
Fundarefni: Kosning fulltrúa á flokksþingið.
— Rætt um vetrarstarfið. —
Kvikmyndasýning — Ka-ffidrykkja.
Stjórnin.
22. sept. 1968
ALÞÝÐUBLAÐIÐ 3