Dagur - 24.12.1949, Blaðsíða 17

Dagur - 24.12.1949, Blaðsíða 17
JÓLABLAÐ DAGS 17 I'arþegar ganga á lancL úr flugfarinu heim til flugvallarhólelsins. strá. Hcr sé aðeins grjót og aftur grjót, hraun og eldfjöll. Landkynn- ing er líka á byrjunarstigi af hálfu íslendinga í flugvallarbyggingunni og það tækifæri, sem þarna gelst til að kynna landið mánaðarlega fyrir þúsundum ferðalanga, er því að mestu látið' ónotað erin. Gömul einangfun rojin. Flugstöðin í Keflavík er sönnun þess, að einangrun íslands sé lokið. Fjarlægðirnar horfnar. Einbúinn í Atlantzhafinu orðinn hvíldarsker risavaxinna, gljáandi fugla, sém tylla þar niður fætinum rétt sem snöggvast á leið sinni ylir Atlantz- lrafrð. Leið, sem einu sinni var ]()ng, en er nú orðin stutt. Flugvélar koma og fara á öllum tímum sólarhringsins en þó mest á næturna. Það er gestkvæmt á stór- býlinu í Heiðinni og mörgu að sinna utanhúss og innan. Á einum stað eru menn sem fylgj- ast með ferðum flugvélanna yfir úthöfin og hafa samband við þær með stuttu millibili. Merkja stað- setningar jafnóðum inn á risavaxin kort á veggjum jarðíiýsisins, þar sem jtessi störf eru unnin. Þegar flugvélar er von. Maður á blárri skvrtu kemur hlaupandi að sínta með blað í hend- inni. Hann tilkynnir, að eftir 12 mínútur lendi kanadísk flugvél á leið til Montreal frá Prestvík með 40 farþega, franskrar flugvélar á leið til New Yöfk 'frá París sé Von. eftir röskan hálftíma og tvær aðrar, holienz kog.brezk, s,én ennfremur á austurleið, og Itafi tilkynnt lend- ingu í Keflavík á pæstu tveimur stundum. ,. y 1 sívöjúm turni er lendingum flugvélanna stjórnað. Þar eru inerin á verði \ ið stóra glugga og tala við flugmennina jregar þeir nálgast völlinn. Það glampar á risavaxna bolina upp í loftinu er þeir koma inn yfir völlinn í sólskini og drun- urnar láta í eyrum eins og þungúr niður í fjarska. Stundum verður ein að bíða í loftinu meðan öpnur lendir. Umferðarstjórnin vcrður að vera i lagi. Kanada-flugvélin er látin lenda á annarri flugbrautinni, þar sem vindurinn er í fangið. Kldglæringar sjást í hreyflunum, rauðglóandi af hita, á hliðarbrautinni, en flugvél á innanlandsflugi lendir strax á eftir á brautinni, sem nú'er í vindátinni. Þannig lenda flugvélar og hefja sig til flugs á hinum löngu stein- steyptu flugbrautum i heiðinni, öðru hvoru.allan sólarhringinn. Flugfar kernur í hlað. Heima í hlaðvarpanum er numið staðar. Hreyflarnir stöðvaðir og fer- líkið þagnar. Starfsmenn flugstöðv- arinnar eru viðbúnir til að taka á rnóti gestum. Stóruxu göngubrúm er ekið að afturhluta vélarinnar og hurð opnast, þar sem áður sýndist heill og gljáandi bolurinn. Þar fyrsta, sem heimamenn sjá til gestanna, er broshýrt andlit flug- freyjunnar, sem gægist varlega fram í gættina, svona rétt eins og hún sé að átta sig á því, hvort vogandi sé að hleypa farþegunum sínum út á land með svona köldu nafni. Svo koma farþegarnir liver af öðrum niður stigann og ganga til bæjar heim tröðina að hótelbyggingunni, Flugfurið tilhúiö að liahla riftur nf stnð. V

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.