Dagur - 28.01.1953, Page 2
2
D A G U R
Miðvikudaginn 28.; janúar 1953
Sjálfstæðisflokkurinn
og sparnaður rlkissjóðs
Dagskrármál landbúnaðarins:
Frá haustfundi danskra búfjár
ræktarmanna
-SEINNI HLUTI-
Kosningafruinvörp.
Af ýmsum frumvörpum, sem
yngri Sjálfstæðisþingmenn hafa
boriö fram á Albingi, er ljóst að
kcsningar eru á næsta leiti. Sést
það bezt af því, að þótt stjórnar-
flokkarnir hafi komið sér saman
um að framlengja tekjustofna
ríkissjóðs af sköttum og tollum,
bera nú tveir þingmenn Sjálf-
stæðisflokksins fram breytingar-
frumvörp á núgildandi löggjöf. í
sjálfu sér er vitað og viðurkennt,
að breytinga sé þöt'f, enda hefur
stjórnskipuð nefnd málið til með-
ferðar. Þá eru og ýms önnur
frumvörp, sem krefjast fjárútláta
fyrir ríkissjóð. En sameiginlegt er
þessum frumvörpum, að ganga
gegn þegar gerðu samkomulagi
og engum þeirra hefur verið
tryggður framgangur. Eru þau
því nefnd — kosningafrumvörp
— og enginn tekur þau því al-
varlega.
Áratugs fjármálastjóm
Sjálfstæðisfloklisins.
Morgunblaðið og sum önnur
blöð Sjáífstæðisfl. hafa verið að
klifa á því undanfarið, að það
ætti nú svo sem að vera hægur-
inn hjá að spara eitthvað af öllum
þeim milljónaútgjöldum, sem
ríkissjóður verður að standa und-
’ir. Það er ' engu líkara en áð
Sjálfstæðisflökkurinn hafi aldrei
haft nein afskipti af fjármála-
stjórninni. En menn athugi, að
flokkurinn sá fór með stjórn á
fjármálum landsins heilan áratug,
áður en núverandi stjórn tók við
völdum, að undanteknum árum
utanþingsstjórnarinnar. Senni-
lega eru flestir íslendingar sam-
mála urn að aldrei hafi óstjórn,
sukk og eyðslusemi verið meiri
en á nýsköpunarárunum. Rekst-
urskostnaður þjóðarbúsins óx
gífurlega. Ný launalöggjöf var
sett, sem stórhækkaði laun opin-
berra starfsmanna. Störfum var
fjölgað með ýmsum hætti, bæði
innanlands og utan. Alls stofnaði
nýsköpunarstjórnin hvorki meira
né minna en 50 nefndir, með nær
200 mönnum. Lántökuheimildir
og ríkisábyrgðir voru gefnar út,
svo að nam mörgum hundruðum
milljóna, en lánsmöguleikar
þrotnir. Fullkomið skipulagsleysi
ríkti um allar framkvæmdir, bæði
ríkis og einstaklinga. Tryggingar-
löggjöfin var hespuð af, án þess
að málið væri nægilega undir-
búið. Ollum er kunnugt fjársukk-
ið í sambandi við byggingar síld-
arverksmiðjanna á Siglufirði og
Skagaströnd. Fleira mætti nefna
til stuðnings þeirri skoðun, að
aldrei hefur viðgengist meiri
óreiða og sukk en einmitt á þess-
um árum, þegar Sjálfstæðis-
flokkurinn fór með fjármálin. En
hvernig varð svo viðskilnaður-
inn?
Þegar Sjálfstæðisflokkurinn
hafði farið með fjármálin um
áratug höfðu myndast ýmsar
óeðlilegar venjur • um meðferð
fjárlagafrumvarpa á þingi. Fjár-
lagafrumvörp voru ekki lögð
fram í þingbyrjun eins og stjórn-
arskráin kveður á um. Þá var
frumvarpið oft svo illa undirbúið,
að fjárlög voru stundum ekki
samþykkt fyrr en langt var kom-
ið fram á það ár, sem þau áttu uð
gilda fyrir. Þá var og ríkissjóður
rekinn með vaxandi tekjuhalla óg
skuldasöfnun. Var komið í algert
óefni, þegar Sjálfstæðisflokkur-
inn skilaði af sér stjórn fjórmál-
anna.
Fjárlagafrumvarpið og
sparnaður.
Og nú óskapast Morgunblaðið
og heimtar sparnað á rekstri rík-
issjóðs á annarri siðunni, en hin-
um megin blasa vð frásagnir af
kosningfrumvörpum Sjálfstæð-
ismanna. Það strandar sízt á
Framsóknarflokknum að standa
að sparnaði. En hvernig og hvar á
að spara? Fjármálaráðherra gerði
þessari spurningu góð skil í eld-
húsdagsumræðunum fyrir jólin.
Taldi hann upp helztu útgjalda-
liðina eins og þeir efu áætláðir: í
fjárlagafrumvarpinu.
Kr.
Til vaxtagreiðslna 3.638:000
Alþingiskostnaður- -3:744.000
Dómgæzla og lög-
rcglustjprn 25.000.000
Læknaskipun og- hei'l-
brigðismál 28.000.000
Samgöngumál 60.000.000
Kirkjumál: - 6.000.000
Rárinsókn í þágu hins opinbera, svo sem
veðurþjónsta, til bók
mennta- og lista-
starfsemi 11.000.000
Til kennslumála 56.000.000
Til félagsmála 45.000.000
Til atvinnuveganna 53.000.000
Niðurgreiðsla á vörum
innanlands 28.000.000
Eftirlaun, styrktarfé,
óviss útgjöld 13.000.000
Afborganii' lána og greiðslur vegna rík-
isábyrgða 22.500.000
Framlög til verklegra framkv., sem taldar taldar eru varanleg
eign 18.000.000
Samtals 375.000.000
Þessi gjöld ,sem nú hafa verið
talin; nema 93.5% af ríkisútgjöld-
unum. Allir eru þessir liðir þann-
ig, að þeir eru annað hvort
ákveðnir með lögum, eða að
stjórnarandstaðan og ekki síður
kosningaveiðar ar S j álfstæðisf 1.
hafa uppi háværar raddir um
hækkun á þeim. Nær öll þjóðin
myndi og æskja hækkunar
margra þessara liða, ef nægilegt
fé væri fyrir hendi.
En auk þessa eru ótaldar 25
millj. kr. Er bað kostnaður við
ríkisstarfræksluna í þrengri
merkingu. Utanríkisþjónustan,
skatta- og tollainnheimtan og
sameiginlegur embættiskostnað-
ur yfirleitt. Þessi kostnaður nem-
ur um 6.5% af útgjöldum ríkisins.
„Þetta er ekki hægt“
Eitt Kaupmannahafnarblað-
anna flutti eftirfarandi grein
skömmu fyrir jólin, í tilefni af
framkomu íslenzku verkfalls-
stjórnarinnar gagnvart póst-
sendingum: „Af danskri hólfu
er ekki almennt hægt að skipta
sér af því, hvort verkföll eru
háð á íslandi eða í öðrum lönd-
um, en þó er ein hlið málsins,
sem ekki er aðeins saniigjarnt
að kalli á gagnaðgerðir heldur
beinlínis er þörf á því.
fslendingar hafa gengið feti
framar en góðu hófi gegnir
þegar þcir hafa svo lítinn aga
og reglu í landi sínu, að kaup-
gjaldsdeila getur leitt til þess
að hvorki er tekið á móti pósti
né hehiur er hann sendur, það
er að segja, samhandið við um-
heiininn er rofið að vcrulegu
leyti. Það var upplýst í gær (16.
des.) að 520 póstpokar, sem
danska ísiandsskipið flutti til
Reykjavíkur, verði í dag sendir
til baka með því að verkfalls-
menn eru þeir einir, sem mega
losa skipið og neita að gera það.
f öðrum löndum gæti slíkt
ekki hafa komið fyrir og það er
sorglegt að horfa upp á það, að
íslenzk stjórnarvöld hafa ekki
kraft og vald til þess að hindra
að slíkt sé aðhafst gagnvart öll-
um almemiingi.“
1450 kassar af fiski ftrað-
frystir um borð í r Jörundi”
Togarinn Jörundur hefur nú lagt
upp 618 Iestir af fiski til söltunar
og hraðfrystingar á Dalvík,. en. togý
arinn hefur lagt þar upp síðan
um ípiðjan desember. — y\uk þess
hefur togárinn lagt á land 1450
kassn af hraðfrystum fiski, en sá
fiskur cr liraðfrvstur um borð í
togaranum s'Jálfum, scm er búinn
nýtfzku hraðfrystitækjum. i’r slík
framleiðsia nýung hér á landi, sem
vert er að gela gaum. Er fiskurinn
úr Jörundi sagður sérstaklega fall-
egur, enda unninn glænýr, beint
úr vörpunni.
Togarinn er nú í síðustu veiði-
förinni fyrir Dalvíkinga, en að því
búnu nnm skipið væntanlega taka
að leggja afla upp hér á Akureyri
til herzlu, en Guðmundur Jörunds-
son útgerðarmaður er einn þeirra,
sem vinna að því að koma hér upp
herzluhjölium, og er það verk nú
langt komið.
Verður áreiðanlega ekki hægt
með neinni sanngirni að bera
fjármálaráðherra það á brýn, að
hann reyni ekki með öllum ráð-
um að lækka kostnaðinn við
starfrækslu ríkissjóðs. Hefur
hann sérstaklega óskað eftir, að
meðráðherrar hans hlutuðust til
um, að gætt væri ýtrasta sparn-
aðar á opinberum vinnustöðum.
En fyrst Sjálfstæðismenn eru að
fjasa um sparnað og hálfgert að
drótta því að Framsóknarflokkn-
um, að víst ætti nú að vera hægt
að spara af útgjaldaliðum fjár-
laganna, og láta þannig í það
skína; að það kunni að stranda á
þessum aðilum, þá ættu þéir að
stinga upp á hvað á að spara og
hvernig. Mun allra sízt standa á
núverandi fjármálaráðherra í
þeim efnum. En hann hefur unn-
ið sér virðingu allra ábyrgra
landsmanna með festulegri fjár-
málastjórn og breyttum vinnu-
brögðum um alla fjárstjórn rík-
isins.
N autgriparæktin.
Danir gera mikinn fjölda til-
rauna í nautgriparæktinni, bæði
með fjárframlögum þess opinbera
og einnig kostað af einstakling-
um.
Á tilraunabúinu Hellerup á
Fjóni er tilraun í gangi með 2
flokka af mjólkurkúm. Er annar
flokkurinn í venjulegu fjósi, með
venjulegum fjóshita. Hinn flokk-
urinn er hafður í rúmgóðri hlöðu
og eru kýrnar látnar ganga þar
lausar, og er jafnan. séð fyrir
nægum undirburði, aðallega
hálmi. Helmingur hlöðunnar er
hreinsaður daglega og í þeim
enda hlöðunnar eru kýrnar
mjólkaðar og þeim gefið.
Kýrnar, sem voru í venjulcgu
fjósi tilraunaíímann, mjólkuðu
um 2 kg. meira að meðaltali á
dag, heldur en hinar, sem gengu
lausar í hlöðunni. Var það álit
Deirra, sem ræddu um þessi mál,
að góð fjós þuríi handa góðum
kúm. (Eftir veturinn var komið
1 meters lag af áburði í þann
hluta hlöðunnar; sem kýrnar
gengu lausar).
Fitunarefni.
Tilraunum er haldið áfram með
fitunarefni hánda gcldum kúm,
sem ala á til slátrunar. Árangur
þeirra er nokkuð misjafn. Reynd-
ir hafa verið í misstórir skammtar
af fóðuréfnum og hafa þeir allir
,sýnt nokkurn áéangúf, én ‘sá'
minnsti hlutfallslcga mest.
Um notkun þessara fitunar-
efna eða vaxtarefna eru nokkuð
deildar meiningar fræðimanna,
en þeir, sem mæla með notkun
þessara efna, telja sig hafa til-
raunir sér til stuðnings og varð-
andi kýr, sem aldar eru ,til slátr-
unar, í-ökstyðja þeir mál sitt á
eftirgreindan hátt:. '
1. Kýrnar þyngjast meira af sama
fóðri, ef þær fá fitunarefni (t.
d. Veveron).
2. Slátrarinn eða sláturhúsið fær
hlutfallslega sama sláturþunga.
3. Neytendurnir fá engu lakara
kjöt, þrátt fyrir notkun þessara
efna, hvorki hvað snertir bragð
né önnur efnagæði.
Gróffóður.
í Danmörk er ríkjandi mikill
áhugi fyrir því að auka notkun á
hvers konar gróffóðri, svo sem
heyi, hálmi, rófum o. fl.
Á haustmótinu var getið til—
rauna, sem gerðar hafa verið með
það fyrir augum að upplýsa hvers
konar fóðrun borgaði sig bezt —
hvaða fóðurnotkun reyndist
ódýrust og gæti þannig haft áhrif
á framleiðslukostnaðinn.
Tilraunir, sem eru í gangi í
sambandi við þetta spursmál,
benda eindregið í þá átt, að þær
kýr þorgi sig bezt að öðru jöfnu,
sem eta mest af gróffóðri.
Á það mætti benda í þessu
sambandi, að ekki væri vanþörf á
að forráðamenn búfjárræktarinn-
ar hér á landi kæmu á fót tilraun-
um varðandi þetta spursmál. Má
telja að hér sé enn meiri þörf á
því að fá tilraunir u.m þetta atriði
heldur en í Danmörk, því að hér
þurfum við að flytja inn allt
kjarnfóður, en Danir þurfa þó
ekki að flytja inn nema nokkurn
hluta þess, sem þeir gefa t. d. sín-
um mjólkurpeningi.
Afkvæmarannsóknir nautgripa.
Mjög veigamikill liður í bú-
fjárrækt Dana eru afkvæma-
rannsóknir nautgripa. Er það
einn veigamesti þátturinn í öllum
nautgripakynbótum. ■
Á síðastliðnu án voru til rann-
sóknar 35 flokkar, eða dætrahóp-
ar 35 nauta. Þessum déetráhópum
er komið fyrir víðs vegar iim
landið og í hverjum flokki eru £rá
11—20 kvígur, en í flestum flokk-
unum eru 16—18 kvígur. Þcss er
gætt að sem flest at-riði, sem máli
skipta, séu eins fyrir alla ein-
staklinga hvers flokks, svo og
einnig að öllum fiokkunum séu
búin hliðstæð ytri skilyrði, sVo
sem fjósin, fóðrunin, hirðingin o.
fl. Þá er þess gætt, áð kvígurnar í
hverjum flokki séu á sem líkust-
um aldri og að burðartími þeirfa
sé líkur. Sé ‘fyllstu tilrauna-
mennsku gætt í sambandi við
þessar afkvæmarannsóknir, er af
þeim að vænta 'mikils árangurs,
enda leggja Danir mikið upp úr
þessum tilraunum.
Hér í þessum þáttum hefur áð-
ur nokkuð verið rætt um þýðingu
. slíkra afkvæmarannsókna hév-: á
landi. Bjarni Arason ráounautur
hefur hér í blaðinu gert þessum
málum nokkur skil og verður því
ekki að þessu sinni rætt nánar
um þau, enda þótt að ástæða sé
til að hreyfa þessu máli oftar óg
víðar, því afkvæmarannsóknir
verða að komast á fót fyrr ón
síðar, bæði hér í Eyjafirði og ann-
ars staðar, tiþþéss'að flýta fyrir
ræktun mj ólkiy'kú&síófnáins,! scm
er mjög sundprlpitur hvað. ,ýmáa
verðmséfa' ejginleíka "snertir og
ekki sízt' végíiá’ þess' áð ékki má
nefna á nafn innflutning erlendra
búfjárfjárkynja til reynslu og
kynblöndunar ef slíkt reyndist
hagkvæmt. Annars get eg ekki
stillt mig urn • aAdrerrdrrfrT þ'císu
sambandi, að_þessLafsiað.a..ráða-
manna hér á landi er einstæð, og
eg efast um að nokkurt sjálfstaett
ríki á jarðarki'iýgiunni 'girði sig
þeim varnarmúfúm varðáhdi
innflutning búfjái’ sem við fslend
ingar. Meira að segja eru græn-
lenzkir Eskimóar frjálslyndari í
þessum efnum ' eh Íslendingar,
því að eg man ekki betur en að
þeir væru að flytja inn hreindýr
frá Noregi í fyrravetur. — Á. J.
MOLASYKUR
grófur
¥
STRÁSYKUR
finn
¥
HRÍSGRJÓN
a kr. 5.70 kg.
¥
BLÓDÁPPEL5ÍNUR
*
GRÁFÍKJ UR
í l. vigt, á kr. 10.00 kg.
¥
DÖDLUR
i l. vigt.
¥
SVESKJUR
stórar og smáar.
HAFNARBÚÐIN H. F.