Dagur - 28.01.1953, Page 5
Miðvikudaginn 28. janiiar 1953
D A G U R
5
Kvenfélagið IÐUNN í Hrafnagils
hreppi tuttugu ára
Hörð viðureign á Skákþingi Norð-
lendinga, sem stendur yfir hér í
bænum þessa dagana
Guðjón M. Sigurðsson skákmeistari í Reykjavík tefiir
sem gestur - Akureyri stendur ve! að vígi í bréfskáka-
keppninni við vinabæina á Norðurlöndum
Laugardaginn þann 17. þ. m.
minntist kvenfélagiS Iðunn í
Hrafnagilshreppi tuttugu ára af-
mælis síns með veglegu hófi í
samkomuhúsi hreppsins að
Hrafnagili. Var þar saman komið
um hálft annað hundrað manns,
kvenfélagskonur og boðsgestir
þeirraúr framhreppum sýslunnar
og Akureyri. ,
ForrAaður félagsins, Hólmfríð-
ur Þorsteinsdóttir í Möðrufelli,
setfi samkomuna með ræðu. Bauð
hún gésti velkomna og kynnti
skemmtiatriði þau, er fram ættu
að fara.
Hófst þá kórsöngur undir stjórn
Sigríðar Schiöth í Hólshúsum.
Hafði frúin æft kór þennan í til-
efni samkomunnar og stjórnaði
honum af mikilli smekkvísi.
Var nú sezt að kaffidrykkju.
Foru borð hlaðin gnægð girni-
fegra vista og blómum skreytt.
Undir borðum fóru fram ræðu-
höld, söngur og fleiri skemmti-
atriði.
Rósa Einarsdóttir frá Stokka-
hlöðum, sem er ein af stofnend-
um féfag^ins.og.ljengst af í stjórn
þess, sagði sögu félagsins allt frá
Stöfnúh' þösá- fil' þessa dags.
Fyi'stu atriði á stefnuskrá fé-
lagsins er hvérs konar hjálpar-
og likhárst'a’rfsémi. Menningar-
mál sveitarinnar hefur það og lát-í
ið til sín taka. Bágstöddum heim-
ilum ,vegna veikinda, hefur það
veitt hjálp og fjárhagsaðstoð. Þá
hefur féláglð lágt fram fé til rúm-
fatakauþa nýja sjúkrahússins á
Akureyri. Einnig styrkt Slysa-
varnaféíag sýslunnar. Félagið
hefur lagt fé fram til endurbóta á
samkomuhúsi sveitarinnar og
keypt Í það „píanó“. Þá hafa
félagskonur haldið uppi nám-
skeiðum í saumum, vefnaði o. fl.,
og eiga þaðan marga eigulega
rhuni. Fjármuni þá, sem til alls
þessa hefur þurft, hafa félagskon-
ur aflað með samkomum og eigin
framlögum og fórnum. Fyrsti for-
maður Iðunnar var Helga Hann-
ésdóttir á Dvergsstöðum, nú til
heimilis á Akureyri. Minnast
félagskonur hennar með hlýhug
og þakklæti.
Að lokum gat Rósa Einarsdótt-
ir þess, að félagsstarfið hefði eflt
félagskonur að andlegum þroska
og félagshæfni. Auk þess hefði
sámstarfið veitt þeim fjölmargar
yndisstundir og megnað að breyta
hversdagsleika heimilisstarfanna
í bjartan og glaðan dag.
Að ræðunni var gerður hinn
bezti rómur.
Næst tók til máls Hólmgeir
Þorstéinsson. Minntist hann
Hjúkrunai-félags Grundarþinga,
sem hann taldi að verið hefði
fyrirrennari og að- ýmsu fyrir-
mynd kvenfélaga þeirra, sem
síðar voru stofnuð hér um
slóðir. Væri því vel við eigandi
að minnast þess félags hér, í stór-
um dráttum. Hjúkrunarfélag
Grundarþinga var stofnað 8. júní
1913, að tilhlutun þáverandi
prests Grundarþ., sr. Þorsteins
Briem á Hrafnagili. Hafði það á
stefnuskrá sinni hjúkrun sjúkra á
félagssvæðinu.
Félagið réði til sín hjúkrunar-
konur, er störfuðu á vegum
félagsins óslitið til ársins 1925, en
þá sagði síðasta hjúkrunarkona
þess upp starfi. Eftir það fékkst
engin kona til hjúkrunarstarfa
fyrir félagið, að staðaldri.
Lagðist þá starf félagsins smátt
og smátt niður. En á sama tíma
fóru félög kvenna að rísa af
grunni í héraðinu. Höfðu þau öll,
meðal annars, hjúkrun sjúk'ra á
stefnuskrá sinni, og hófu þannig
merki Hjúkrunarfélagsins til nýs
vegsauka.
Þegar hér var komið, þótti
meðlimum Hjúkrunarfél. Grund-
arþinga rétt að leggja félagið nið-
ur og ráðstafa sjóðeign þess í
hendur kvenfélaga á félagssvæð-
inu, sem hefðu hjúkrun sjúkra á
stefnuskrá sinni.
Þannig, kvað ræðumaður, kven-
félagið Iðunni vei’a einn af arf-
tökum Hjúkrunarfélags Grund-
arþinga, en þó ekki aðeins þeirra
600 króna, sem í hlut Iðunnar
komu af sjóði félágsins, héldur —
og miklu fremur — þeirra hug-
sjónar sr. 'Þorstéfns Briem, sem
var grunnurinn undir stefnu og
starfi Hjúkr.fél. Grundárþ., sem
var að líkna þjáðum og þurfandi
'og hjúkra sjúkúm.1 Ræðumaðúr
kvað það ósk síná og vón að þess-
ar hugsjónir mættu sífellt lifa í
kvenfélaginu Iðunn og streyma
síkvikar í aéðurn þéss, að hverri
göfugri athöfn, er að þessu marki
miðuðu.
Þá talaði Hreiðar Eiríksson. —
Mælti hann í snjöllu máli fyrir
minni húsmæðranna, sem jafnan
ynnu nauðsynjaverk heimilanna
fórnfúsar og hljcðlátar til ómet-
anlegs stuðnings við menningu
samfélagsins.
Því næst . lét Pétur Jónssön
samkomugesti, fyrir sinn munn,
heyra raddir og ræður ýmsra
þekktra stórmenna.
Þá flutti Baldur Eiríkssori
nokkur bráðsmellin gamankvæði,
frumsamin. Þá söng enn söng-
flokkur frú Sigríðar.
Að því loknu voru borð upp
tekin. Voru gestir þá orðnir vel
saddir og sælir, og óskuðu nú'
helzt hreyfingar. — Var svo dans
stiginn langt á nótt fram.
Var hóf þetta allt hið myndar-
legasta og skemmtu menn sér
forkunnarvel.
Þótt starfssaga Kvenfélagsins
Iðunn sé enn ekki nema fimmt-
ungur aldar að árum, hefur það
þó þegar markað spor i menning-
arsögu sveitarinnar, og munu þó
væntanlega enn gleggri verða í
framtíðinni, með auknum félags-
þroska og víðsýni.
Megi Kvenfélaginu Iðunn jafn-
an vel vegna á komandi ái'um.
H. Þ.
Bíll til sölu
Nýupptekinn Dodge, Karí-
ol, er til sölu nú’.þegar, á:
nýjum gúmmíum. — Vara-
hlutir iylgja. Drif á öllum
lijólum. — Skipti á vörubíl
eða jeppa koma til greina.
F.r til sýnis á Bifreiðaverk-
stccð.inu Vikingi, og þar
gefnar upplýsingar frá kl.
1 til 7 e. h. næstu daga.
Celluloselakk
og þynnir
nýkomið
Byggingavörudeild KEA.
Höfum fengið
Asfaltlakk
Byggingavörudeild KEA.
Saumur
alskonar
fyrirliggjandi
Byggingavörudeild KEA.
Nýreyktur lax
Eitt af því, sem setur sannar-
lega menningarbrag á þetta bæj-
arfélag, er Lúðrasveit Akureyrar.
-— Oft hefur hún veitt oss
ánægjustundir. — Hún á þakkir
skildar frá Akureyringum.
í fersku minni eru tíu ára af-
mælistónleikar hennar í Sam-
komuhúsinu. Aldrei hef eg haft
meiri unun af að hlusta á lúðra-
sveit en þá. Leikur hennar var
glæsilegur og hreif hvern, sem í
húsinu var. — Og við mörg önn-
ur tækifæri hefur það berlega
komið í ljós, að Lúðrasveit Akur-
eyrar er framúrskarandi góð.
Seinustu opinberir tónleikar
hennar voru í kirkjunni annan
jóladag. Það var unun að hlýða á
þá. Þegar hún lék pílagrímskór-
inn, sá eg, að fólk reis úr sætum
sínum til þess að geta með því
móti þakkað og lofað frábæran
leik, — en í kirkjunni þykir það
ekki tilhlýðilegt að klappa. —
Lúðrasveitin lék einnig fögur
sálmalög eins og við átti á hinni
miklu HStíð. Eg vil láta í ljósi
sérstaka þakklæti mitt til sveit-
arinnar og stjórnandans fyrir
þessa jólatónleika. Eg þakka
Skákþing Norðlendinga hófst
hér í bænum sl. föstudag og
lteppa þar, auk bæjarskákmanna,
Jón Jónsson frá Húsavík og svo
Guðjón M. Sigurðsson skák-
meistari úr Reykjavík, sem teflir
sem gestur.
Keppendur á Skákþinginu eru
alls 25 að þessu sinni.
I meistaraflokkí keppa þessir:
Guðjón M. Sigurðsson, Margeir
Steingrímsson, Jón Ingimarsson,
Steinþór Hélgason, Júlíus Bogason,
Jön Þorsteinsson, Haraldur Boga-
son, Albert Sigurðsson, Kristiim
Jónsson og Guðmundur Eiðsson,
alls 10 manns.
í fyrsta flokki keppa:
Jón Jónsson, Tryggvi Kristjáns-
son, 'Aðólf Ingimarsson, Haraldur
Olafsson. og.Anton Magnússon.
í'öðTum flokki képpá:
Helgi Valdemarssqn, Ingimar
Jónsson, Jónas Elíasson, Rpgpvald-
ur Rögn.valdsson, Stefán O. Stefáns-
son, Sigurður Jónsson, Snorri Sig-
fússdií, Kristiiín Óskársson, Karles
Tryggvason og Hermaiin Ingiriiars-
son. *.<b tn tit "...
1. umferð í nieistaraflokki fór
■ þannig: Guðjón vann Jón Ingi-
marsson, Guðmundur vann Mar-
geir, Júlíus vann Albért, Steinþór
og Kristinn gerðu jafntefli, Har-
aldur og Jón Þorsteinsson biðskák.
2. ■ umferð: Guðjón vann Stein-
þór, Jiilíus vann Krispn, Jón Þor-
stetnsson vann Albert, Guðinundur
varin Harakl, Jón Ingimarsson
variri Margéir.
sömuleiðis starfið á almennu
æskulýðsfundunum, sem oss er
svo kærkomið.
Þess ber að minnast, að fágaðir
tónleikar eru ekki fyrirhafnar-
lausir. Að baki þeirra liggur mik-
il vinna, mikið verk. Á mánu-
dags- og fimmtudagskvöldum
leggja félagar lúðrasveitarinnar
leið sína í kapelluna til æfinga.
Þar hafa þeir varið mörgum tóm-
stundum, lagt á sig mikið auka-
starf. Mættu þeir finna starf sitt
endurgoldið í þakklæti voru. —
Mest hefur að sjálfsögðu mætt á
stjórnandanum, Jakobi Tryggva-
syni orgelleikara. Og árangurinn
ei' líka honum að þákka manna
mest. Hefur hann lagt sérstaka
alúð við starf sitt og aldrei spar-
að aukasporin til æfinganna.
f stjórn Lúðrasveitarinnar eru
nú: Formaður Sigtryggur Helga-
son gullsmiður, ritari Jakob V.
Emilsson prentari og gjaldkeri
Finnbogi Jónasson aðalbókari.
um og Jakobi innilegustu þakkir
Fæi'i eg stjórninni og félögun-
fyrir tónleikana á jólunum og
alltaf endranær.
Pétur Sigurgeirsson.
3. umferð: Jón Þorsteinsson vann
Kristin, Margeir vann Steinþór,
Guðmundiir vann Jón Ingimarsson,
biðskák varð hjá Guðjóni og Júlí-
usi og sömuleiðis hjá Albert og
Haraldi.
Biðskákirnar í meistaraflokki
fóru þannig: Jón Þorsteinsson vann
Harald, en skákir Alberts og Har-
alds og Guðjóns og Júlíusar urðu
jafntefli.
Eftir þrjár umferðir hafa þeir
Jón Þorsteinsson og Guðmundur
Eiðsson 3 vinningar hvor. Næstir
eru Guðjón og Júlíus, með 2(4
vinning hvor.
í fyrsta flokki cr hæstur Anton
Magnússon með 3 vinninga.
I öðrum flokki eru hæstir Ingi-
mar Jónsson, Stefán O. Stefánsson
og Jónas Elíasson, með þrjá vinn-
inga hver.
Næsta timfcrð hefst kl. 8 í kvöld
í Verkalýðshúsinu. Þá tefla þeir
saman, Guðjón M. Sigurðsson og
Jón Þorsteinsson.
Vinabæjaskákirnar.
Eins og menn ef tií viíl rekur
iriinrii til, hófust á síðástliðrium
vetri bréfaskákir milli Akureyrar
og vinabæja hennar á Norðurlönd-
um, Álasunds í Noregi, Randers í
Danmörku, Vesturá§s í Svíþjóð og
Lahti í Finnlandi.
Af Akureyrar liálfu tefla:
Við Álasund: Guðbrandur Hlíð-
ar og Jóhann Snorrason. Við Ran-
ders: Guðmundur Eiðsson og Stein-
þór I-Ielgason. Við Vesturás: Júlíus
Bogason og Jón Ingimarsson. Við
Lahti: Bjiirn Halldórsson og Jón
Þorsteinsson.
Nokkrum skákum er nú lokið, og
liafa þær farið þannig:
Við Lalui: Björn Halldórsson
vann.
Við Vesturás: Jón Ingimarsson
gcrði jafntefli.
Við Randers: Guðmundur Eiðs-
son gerði jafntefli.
Við Álasund: Jóhann Snorrason
vann, Guðbrandur Hlíðar gerði
jafntefli.
Verði öllum skákunum ekki' lokið
fyrir 30. apríl n.k., skulu þær lagð-
ar í dóm.
Hér fer á eftir ein bréfskákin:
P. Nysteen, Randers. (Hvítt.)
Guðm. Eiðsson, Ak. (Svart.
1. c2—c4 e7—e5
2. g2—g3 Rg8-f6
3. Bfl—g2 c7—c6
4. Rbl—c3 d7—d5
5. c4xd5 c6xb5
6. Ddl—b3 Bc8-e6
7. Db3xb7 Rb8-d7
8. Rc3xd5 Rf6 x d5
9. Bg2 X d5 Ha8-b8
10. Db7—c6 Hb8—c8
11. Dc6-b7 Hc8-b8
12. Db7—c6 Hb8—c8
13. Dc6—b7 ....
Samið jafntefli.
Nýja kjötbúðin
Lúðrasveit Akureyrar