Dagur - 28.01.1953, Side 15
MiSvikudaginn 28. janúar 1953
D A G U R
15
- Fjárlagafrumvarp og
áfengismál,
(Framhald af 13. síðu).
leyti ,og þess vegna er borin fram
tillaga um það. Væri þannig að
farið þyrfti slík lokun ekkiaðhafa
óeðlilega truflun í för með sér
fyrir á afkomu ríkissjóðs, þar sem
ríkisstjórn og Alþingi hefði ráð-
rúm til uppsagnar starfsfólks og
húsnæðis og gæti einnig notað
frestinn til að afla tekna á móti
eða lækka ríkisútgjöld, ef til þess
þyrfti að koma.
Skynsamlcg framkvæmd
laganna.
Þess væri því að vænta, sagði
ráðherrann, að um þessa skyn-
samlega framkvæmd laganna,
gæti órðið samkomulag, og
þeir, sem áliuga hafa á lokun
útsala ættu að styðja þessa
framkvæmd, einmitt fyrir það,
að hér er leið til þess að koma
lokuninni á, án þess að sú rök
semd verði á móti því fundin,
ef þannig er að farið, að lokun
útsölu tefli í nokkra tvísýnu
afkomu ríkissjóðs.
Væri þessi aðferð ekki við-
höfð, gæti svo farið, að Alþingi
yrði að kalla saman aftur
næstu mánuðum til ráðstafana
í fjárhagsmálum, eða þá að
menn ættu á hættu hallahú-
skap, og væri hvorugt gott.
MÓÐIR, KONA, MEYJA.
(Framhald af 8. síðu).
ÚR B Æ O G BYGGÐ
ur úr henni birtist í nóv.hefti
Reader’s Digest. Segir þar enn
ítarlegar frá þessari þrælkun, er
konur þar eiga nú við að búa.
Staða kvenna í þjóðfélaginu
hefur jafnan verið talin mæli-
kvarði á menningarstig hverrar
njóðar; með hliðsjón af þessum
frásögnum og öðrum þeim líkum,
naumast hægt að tala um
menningu í Sovétríkjunum."
í síaitu máli
VIÐ 3r umíaéðú fjárlaganna
sl. mánudag,- gerði fjármála-
ráðherra Eysteinn Jónsson
grein iyrir breytíngartill
þeim, sém hann leggur fram
vegna hinna nýju viðhorfa eft-
ir verkfallslausnina. Er gert
ráð fyrir hallalátisum ríkisbú-
skap, enda þótt hækka verði
tekjuáætlunina vcrulega til að
mæta nýjiun útgjöldum. Nið-
urstöður fjárlagafrv. eru tekju
megin 423,1 millj. kr., en
gjahlamegin 421, 9millj. Ráð
herrann skýrði frá því, að á
sl. ári hefði rekstur ríkisins
verið hallalaus, en hins vegar
yrði enginn tekjuafgangur til
sérstakrar ráðstöfunar. Þó
mundi hægt að láta 2,5 millj
kr. ,sem ætlaðar hefðu verið
bætur til dragnóta- og tog
báta, koma á reikning sl. árs.
★
RÓSTUR miklar urðu á
danslcik í Iðnó í Reykjavík sl.
laugardagskvöld, vegna ölv-
unar. Varð lögreglan að ryðja
salinn. Nokkrir mcnn hlutu
meiðsli, þ. á. m. lögreglumenn,
og nokkrir menn voru hand-
teknir í sambandi við óspektir
þessar.
-k
BÚIZT er við því, að fyrir
næsta fund bæjarstjórnar Ak-
ureyrar, verði lögð tillaga um
að almenn atkvæðagreiðsla
fari fram um, hvort áfengisút-
sala hér skuli vera opin eða
ekki framvegis.
Frá Hrisey
(Framhald af 1. síðu).
möguleika á því að hreppurinn
kaupi landið. Er vaxandi áhugi
fyrir landbúskap jafnframt sjó-
sókninni, enda töluverðir rækt
unarmöguleikar í eyjunni. Er
dví sambandi rætt um fram-
ræzlu, einkum til að auka beiti
land og eru horfur á því taldar
álitlegar. Ef afli glæðist má gera
ráð fyrir að fólki fari fjölgandi í
Hrísey og útgerð þaðan fari vax-
andi. Með þeim jarðvinnslufram-
kvæmdum, sem um er talað,
væri tryggður grundvöllur fyrir
aukningu búfjárstofns og nægi-
legt beitiland þótt kúm fjölgaði
mikið frá því sém nú er. RæÍctað
land og matjurtagarðar eru taldir
vera um 31 hekt. og töðufall um
1800 hestar eins óg nú er.
Kirkjan. Messað í Akureyrar-
kirkju kl. 5 é. h. næstk. sunnud.
F. J. R.
Möðruvallaklaustursprestakall.
Messað í Glæsibæ sunnudaginn
1. febr. og að Bægisá sunnudag-
inn 8. febr. kl. 2 e. h.
Áheit á Dalvíkurkirkju 1952. —
S. H. kr. 100. — P. J. kr. 100. —
H. J. kr. 50. — S. F. kr. 100. —
Ónefndur kr. 100. — Beztu þakk-
ir. Söfnunarnefndin.
Garðeigendur á Akureyri þurfa
I að skili áburðarpönl unum sínum
til Finns Árnasonar, ráðunauts
I fyrir 12. febrúar næstk.
Akureyri og nágrenni! Munið
samkomu Kvennadeildar Slysa-
várnafélagsins, í tilefni af 25 ára
afmæli Slysavarnafél. íslands, kl.
8.30 e. h. í kvöld. Einnig kaffisöl-
una og bazar og merkjasöluna á
sunnudaginn að Hótel KEA. All-
ágóði rennur til björgunar-
skútu Norðurlands.
Hjónaefni. Nýlega hafa opin-
berað trúlofun sína ungfrú
Viktoría Gestsdóttir, starfsstúlka
á Sjúkrahúsi Akureyrar, og
Friðjón Eyþórsson Tómassonar,
Akureyri. — Ungfrú Ingibjörg
Helgadóttir frá Ólafsfirði og Hall
dór Jónsson, Jarðbrú, Svarfaðar
dal. — Ungfrú Ingibjörg Björns-
dóttir, Grenivík, og Reimar Sig-
urpálsson, Steindyrum, Svarf-
aðardal.
□ Rún 59531287 — 1. Atg.:
I. O. O. F. — Rbst. 2 —
1011288V2.
I. O. O. F. = 13413081/2 — 0 =
Sjónarhæð. Miðvikudag kl.
8.30: Samkoma og saumafundur
kvenna. Fimmtudag kl. 6: Sam-
koma og saumafundur ungra
stúlkna. Sunnudag kl. 1: Sunnu-
daga skóli fyrir böm og ungl-
inga. Kl. 5: Almenn samkoma.
Sæmundur G. Jóhannesson talar.
Æskulýðs-
félag Akureyr-
kirkju. Sam-
eiginlegur fund
ur í kapelluni
kl. 5 e. h. á sunnudaginn kemur.
Leiðrétting. Prentvilla varð
3.
M u n i ð
tvöföldu periufesíarnar
sem á útsölunni kosta
aðeins kr. 54.00.
TiIvalin fermingargjöf!
Verzl. B. Laxdal.
Httáveita fyrir kaupíúnið —
sundlaugarbygging.
í Hrísey eru 2 heitar lindir og
u taldir góðir möguleikar að
kcma þar upp hitaveitu. Mundu
slíkar framkvæmdir hafa mikla
þýðingu fyrir afkomu íbúanna
og er mikill .áhugi fyrir að ljúka
verkinu senr fyrst, en fjárskortur
hamlar. íþrp.ttafélag er starfandi
í eyjunni og mun aðstað þess
mjög batna þegar sundlaugin er
fullgerð. Leikfimihús er enn
ekki til, én gert er ráð fyrir því í
sambandi við barnaskólahús
hreppsins sem er nýleg bygging
og vönduð.
Nauðsyn talstöðvar.
Síldarstöðvamar og sveitar
félagið hafa rekið talstöð undan-
farandi sumur. En símasamband
við Hrísey er ekki lengur en til
kl. 7 á kvöldin. Þessi talstöð hef-
ur komið í góðar þarfir og bjarg
að mannslífum, þar sem hægt er
þá er ná sambandi við lækni eft-
ir símatíma. — Verður það að
teljast mjög bagalegt, að eyjali
skuli svipt möguleikum á að hafa
samband við land þegar sími er
lokaður.
Einmuna tíðarfar.
Eins og annars staðar hér um
byggðir hefur tíðarfar í Hrísey
verið með eindæmum gott í vet-
ur og gæftir góðar. Afli í þessum
mánuði hefur verið allgóður, allt
að 2 lestum í róðri og eru menn
vongóðir að vorvertíðin verði |
hagstæð, en ennþá róa fáir bátar.
Verið er að undirbúa frystihúsið |
fyrir vorvertíðina.
í Hrísey búa nú um 330 manns.
síðasta tbl. Dags í „Lofsöng",
erindi, 2. línu. Rétt er línan
þannig: frá dunum hafs, er brimið
gnýr við strönd.
Áheit á Strandarkirkju. — Kr.
30.00 frá B. G. F.' — Gjöf frá
ónefndum kr. 25.00. — Mótt. á af-
gr. Dags.
Frá starfinu í kristniboðshii.-inu
Zíon. Á hverjum sunnudegi kl.
10.30 f. h.: Sunnudagaskóli. Kl. 1
e h. fundur í K. F. U. M., Y. D.
K1 2 U. D. Kl. 8.30: Almenn sam-
koma (Næsta surmudag, 1. febr.,
fórnarsamkoma). A þriðjudögum
kl. 5.30: Fundir í K. F. U. k", Y.
D. Kl. 8 U. D.
Áheit á Strandarkirkju Kr. 10
frá konu í Ólafsfirði. Mótt. L afgr.
Dags.
Hjónaefni. Nýlega opinberuðu
trúlofun sína ungfrú Herdís Þor-
grímsdóttir frá Hofsós og Halldór
Sigurgeirsson, Amarstapa, Ljósa
/atnsskarði.
Munið eftir eldspýtustokkun-
um, sem seldir eru til ágóða fj’rir
Styrktarfélag fatlaðra og lam-
aðra. Engan munar um 10 aura
en kornið fyllir mælirinn.
Barnastúkumar Sakleysð og
Samúð minnast hátíðisdags
Unglingareglunnar með barna-
skemmtun í Samkomuhúsinu
sunnudaginn 1. febrúar næstk. kl.
3 e. h. Til skemmtunar verður:
Upplestur, samtal, smáleilcur,
söngur, einleikur á klarinet
(Finnur Eydal) og kvikmynd. —
Aðgangur kr. 5.00. Húsið opnað
hálftíma áður.
Frámsóknarmenn! Vinnið að
því að útbreiða DAG. Ef þið
vitið um einhverja, sem ekki
kaupa blaðið. þá bendið þeim á
að Dagur er langstærsta og
fjölbreyttasta blað landsins ut-
an Reykjavíkur og nauðsynlegt
er að lesa Dag til þess að fylgj-
ast með héraðs- og bæjarmál-
um og landsmálum. Hægt er að
fá blaðið til reynslu nokkrmn
sinnum, án endurgjalds. Hring-
ið til afgreiðslunnar í síina
1166, skrifið. Utanáskrift: Dag
ur, Hafnarstræti 88, Akureyri.
Brúðkaup. Þann 25. jan. voru
gefin saman í Akureyrarkirkju
brúðhjónin Guðríður Björnsdótt-
ir og Jónas Kristjánsson vélstjóri.
Heimili þeirra verður fyrst um
sinn að Hafnarstræti 98.
Stúkan Brynja nr. 99 heldur
fund í Skjaldborg mánudaginn
2. febrúar kl. 8.30 e. h. Dagskrá:
Inntaka nýliða. — Upplestur.
— Ávarp o .fl. Þess er vænzt að
allir templarar mæti.
Stúkurnar ísafold og Brynja
halda sameiginlegan fund í
Skjaldborg næstk. fimmtudag,
29. jan. Rætt verður um áfengis-
löggjöfina og hiðnýja viðhorf,sem
skapazt hefur á áfengismálum.
Skorað er á alla templara að
mæta.
Verzlunarfólk! Munið að gefa
viðskiptamönnum kost ■ á að
kaupa eldspýtustokkana, sem
auðkenndir eru „Hjálpið íömuð-
um“. Ef þið gerið það að jafnaði,
íéttið þið Styrktarfélaginu hjálp-
arhönd í hinu þýðingarmikla
hjálparstarfi þéss.
Hjónaefni. Nýlega opinberuðu
trúlofun sína ungfrú Dagbjört
Halldórsdóttir frá Hlöðum í
Hörgárdal og Hilmar Guðjónsson
búfræðingur frá Kópavogi.
Á kvöldum má sjá héðan loga
ljós hátt uppi á Vaðlaheiði,
skammt þaðan, sem þjóðvegur-
inn liggur yfir heiðina. Menn
halda að þarna sé bíll á ferð, en
ljósið er kyrrt og logar skært á
sama stað. Þetta er öryggis-
lampi, sem hafður er við
spennibreytistöð Svalbarðs-
strandarrafveitu, sem er
skamint frá þjóðveginum í
heiðinni. Ef ljósið slokknar,
hefur einhver bilun orðið þar
og kallar það þannig á viðgerð-
armenn.
Til nýja sjiikrahússins á Akur-
eyri. Frá Verkalýðsfélagi Hrís-
eyjar kr. 1000.00. — Frá Magnúsi
Gunnlaugssyni ki. 300.00. — Með
bökkum móttekið. Guðm. K. Pét-
Kvenfélag Hríseyjar hafði
myndarlegt og skemmtilegt
þorrablót í samkomuhúsi kaup-
túnsins sl. laugardagskvöld. Var
þar fjölmenni saman komið, bæði
innansveitarfólk og aðkomu-
menn. Gestir lögðu á borð með
sér hangikjöt og aðrar kræsingar,
en síðan var sameiginlegt borð-
hald. Undir borðum voru ýmis
skemmtiatriði, en síðan var dans-
að. Þessi samkoma var öll hin
menningarlegasta og félaginu og
öllum samkomugestum til sóma.
Dánardægur. Nýlátin er Hólm-
fríður Helgadóttir, fyrrum hús-
freyja að Litla-Dal í Lýtings-
staðahreppi í Skagafirði. Dvaldi
hún síðustu árin hjá dóttur sinni
og tengdasyni að Klauf í Önguls-
staðahreppi og andaðist þar. —
Hólmfríður heitin var mesta
myndarkona og vinsæl af öllum
er hana þekktu. Hún verður jarð-
sett að Munkaþverá á morgun
eins og auglýst er á öðrum stað í
blaðinu.
Fíladelfía,. Lundargötu 12. A1
menn samkoma á fimmtudag kl.
8.30 síðd. Daniel og Marianne
Glad frá Finnlandi tala. Síðasta
samkoman sem þau taka þátt
hér að sinni. Allir velkomnir.
Hlutavelta í sal Hjálpræðishers-
ins laugardaginn 31. jan. n.k.
(Mörg hundruð munir). Dráttur-
inn 2 kr. Engin núll. Opnað kl. 4.
Kaffisala.
Frá Leikfélagi Akureyrar,
Sökum mikillar aðsóknar verður
„Aumingja Hanna“ sýnd ennþá
einu sinni n.k. sunnudagskvöld.
Vinmrstofusjóði Kristneshælis
hefur borizt 150.00 kr. gjöf frá
„óþekkta hermanninum". Beztu
þakkir. Jónas Rafnar.
Frá Bridgefélaginu. í annarri
umferð í meistarakeppninni fóru
leikar þannig, að sveit Þórðar
vann sveit Adams með 24 stig-
um, sveit Friðriks vann sveit
Halldórs með 19 stigum, en sveit-
ir Baldvins og Mikaels gerðu
jafntefli. — í þriðju umferð, sem
spiluð var á sunnudaginn vann
sveit Mikaels sveit Halldórs með
46 stigum, sveit Baldvins vann
sveit Þórðar með 21 stigi og sveit
Adams vann sveit Friðriks með
6 stigum. — Eftir þrjár umferðir
standa vinningsstig þannig, að
sveitir Baldvins og Mikaels hafa
2% vinning hvor, en sveitir
Adams, Halldórs, Friðriks og
Þórðar hafp 1 vinning hver. -rrr
Fjórða umferð var spiluð í gær-
kvöldi. — Fimmta og síðasta um-
ferð verður spiluð næstk. þriðju-
dag ,en þá spila saman sveitir
Baldvins og Friðriks, Mikaels
og Þórðar og Adams og Halldórs.
Alþm. í gær gafst upp við að
svara fyrirspurn þeirri, sem
beint var til blaðsins um það,
hvort Alþ.fl. ætli að gefa Ey-
firðingum kost á áð kjósa Stef-
án Jóhann í sumar, enda verði
honum ráðað efstum á lands-
lista flokksins eins og síðast, til
öryggis gegn byltu. Er Braga
eitthvað tregt tungu að hræra
um þetta efni og er það vork-
unnamiál.
Dánardægur. Nýlátinn er á
Sjúkrahúsi Akureyrar Snorri
Jóhannesson verzlunarmaður hér
í bæ, frá Fellsspli í Kaldakinn. —
Síðastl. laugardag andaðist hér í
bæ Hermundur Jóhannesson,
smiður, Gránufélagsgötu 23. —
Sama dag andaðist að Glei-árgötu
2 hér í bæ Eiríkur Sigurðsson,
tengdafaðir Stefáns Stefánssonar
járnsmiðs. — Þá er og nýlátinn
hér í bænum Hallgrímur Helga-
son, bátasmiður.
Hjúskapur. Sl. laugardag, 24.
janúar, voru gefn saman í hjóna-
band hjá bæjarfógetanum hér
ungfrú Irmgard Gropp og dr.
Rolf Hackenkamp tannlæknir,
bæði frá Hamborg, til heimilis í
Idelga-magra-stræti 23.
„Haukur“, hið nýja heimilis-
blað, janúarheftið, hefur borizt
blaðinu. Þetta rit er vel úr garði
gert og fjölbreytt að efni. f þessu
hefti er m. a. grein um félags-
þroska barna frá fæðingu til
kynþroska eftir dr. Símon
Jóh. Ágústsson, í heimsókn hjá
Hagalín, framh. á listamannaþátt-
um ritsins, auk þess fjölmargar
þýddar greinar um margvísleg
efni, skemmtisögur og margt
annað efni til fróðleiks og
skemmtunar.