Dagur - 28.01.1953, Page 16
16
'BAGTUK
Miðvikudaginn 28. janúar 1953
Snjóbíll keyptur ti! Akureyrar -
skapar aukið öryggi í samgöngu-
málum, til dæmis í sambandi
við sjúkraflutninga
Vafasamt að rekstursgrúnclvölliir sé fyrir slíkt
tæki án utanaðkomandi aðstoðar
Fyrsti snjóbíliinn, sem keypitur
hefur verið hingað til bæjarins,
kom hingað með „Goðafossi“ nú
fyrir skömmu og eru eigendur
hans bræðurnir Garðar og Þor-
steinn Svanlaugssynir bifreiða-
stjórar hér í bæ.
Hafa þeir af miklum dugnaði
brotizt í því að útvega tæki þetta
hingað í þeirri trú, að það geti
skapað aukið öryggi í samgöngu-
málum og verið nytsamlegt til
ýmiss konar ferða, einkum í
snjóavetrum. Er og skemmst að
minnast þess, að mikil þægindi
hefðu verið að svo ágætum snjó-
bíl hér í snjóavetrunum síðustu,
t. d. í samband við sjúkraflutn-
inga, aðdrætti til afskekktra
bæja o. s. frv.
Endurbætt gerð.
Snjóbíll þeirra bræðra er af
Bombardier-gerð, frá Kanada,
eins og snjóbíll Guðmundar Jón-
assonar, sem svo vel hefur reynzt.
Þetta eru dýr tæki, kosta hingað
komin hartnær 100 þús. kr. Þetta
er nýjasta gerð af þessum bílum
óg rúmar 15 farþega. Er á ýmsan
hátt auðveldara að aka þessum
bíl á snjólausum vegi en fyrsta
Bombardier-bílnum, sem kom
hingað til lands.
Laxárvirkjunin aðstoðaði.
Þeir bræður útveguðu leyfið til
að kaupa bílinn og lögðu fram
féð, en Laxárvirkjunin útvegaði
þeim 50 þús. kr. lán til þess, enda
fær virkjunin afnol af bílnum til
eftirlits á línunni og viðgerða, ef
með þarf. Er augsýnilega mikið
öryggi að því, er rafmagnstrufl-
anir ber að höndum á vetrardegi,
að hafa afnot af slíkum bíl. En
aðra aðstoð hafa þeir ekki fengið
til þessa fyrirtækis. Hins vegar er
augljóst, að þeim muni verða um
megn að standa undir stofnkostn-
aði og rekstri nema með einhverri
utanaðkomandi aðstoð, sem sann-
gjarna og eðlilega má telja. Er t.
d. verulegt hagsmunamál fyrir
byggðirnar hér ,að hafa slíkt tæki
til að grípa til og ekki nema eðli-
legt að stuðlað verði að því af
þeirra hálfu, að ekki þurfi að
selja tækið burt úr byggðarlag-
inu. Er þarna málefni, sem félög
og opinberir aðilar þurfa að gefa
gætui*að. Þá er verulegur fengur
að því fyrir skíðafólk að hafa
slíkan farkost hér til taks, bæði
fyrir bæjarmenn sjálfa, og ferða-
menn, er hingað kynnu að sækja.
Bíllinn reynist vel.
Á sunudaginn buðu eigendur
bílsins fréttamönnum og nokkr-
um öðrum gestum í ökuferð í
Hlíðarfjalli á nýja bflnum. Mjög
snjólétt er þar sem annars staðar
hér um slóðir og bíllinn því ekki
„í sínu elementi“ nema að litlu
leyti. En sú reynsla, sem fengist
hefur, bendir til þess, að þarna sé
ágætt tæki í alla staði. Hefur
bíllinn einnig flutt skíðafólk að
Ásgarði í Hlíðarfjalli með skjót-
um og öruggum hætti.
Á síðastliðnu ári mun yfir 4090
sinnum hafa orðið tjón á bifreið-
um eða af völdum þeirra hér á
landi, að því er bráðabirgðarann-
sókn hjá bifreiðadeild Samvinnu-
trygginga hefur leitt í Ijós.
Samtals munu tryggingafélögin
hafa greitt 5—6 milljónir króna
vegna þessara bifreiða, og mun
aldrei á einu ári hafa orðið svo
mikið tjón á bifreiðum eða af
völdum þeirra hér á landi.
Hjá Samvinnutryggingum voru
1500 sinnum tilkynnt tjón á bif-
reiðum eða af þeirra völdum á
þessu ári, og munu bótagreiðslur
þessarar deildar félagsins fyrir
árið nema um tveim milljónum
króna. Mun nú meira en þriðj-
ungur allra bifreiða í landinu
vera tryggður hjá félaginu.
Þrátt fyrir þann mikla fjölda
bifreiða, sem hafa orðið fyrir
tjóni eða valdið því á árinu, er
mikill fjöldi ökumanna, sem sýnt
hafa árvekni og öryggi í akstri.
Samvinnutryggingar byrjuðu á
því í maímánuði í fyrra að veita
mönnum sérstakt öryggismerki,
sem óku bifreiðum síiium í |iipm
ár án þess að véröa fyrir eða
valda tjóni. Var þetta öryggis- Þama mætast forustMlnenn
merki nýlega sent 182 ökumönn- ^ Sameinuðu þjóðaiuia í Nevv
um, og, hafa þá sámtals 304 menn , fulltrúinn Khrisna Menon, t.
hlotið það á tæplega einu ári. I lierra Kanada,
Framsóknarvist á föstu-
dagskvöldið
Framsóknarfélag Akureyrar
ætlar að efna til skemmti-
kvölds að Hótel KEA næstk.
föstudagskvöid kl. 8.30i Vérður
spiluð Framsóknarvist, er það
þriðja Framsóknarvistin í vet-
ur á vegum félagsins. Menn eru
minntir á, að auk vænjuiegra
verðlauna, verða í vctrarlok
veitt sérstök verðlaun þeim,
sem flesta slagi liefur fengið á
öllum spilakvöldum féiagsins.
Að lokinni vistinni á föstudags-
kvöldið verður dansað og leik-
ur hin vinsæla liljómsveit Jó-
hanns Gunnars fyrir dansinum.
Póstbáfurinn „Drangur"
enn stöðvaður vegna .
sjómannaverkfallsins
Sjómannaverkfallið í Reykja-
vík og Hafnarfirði leystist í sl.
viku, en Sjómannafélagið hér á
enn í verkfalli, Sem þó nær ekki
til annarra skipa en póstbátsins
Drangs, sem liggur bundinn hér
við hafnargarðinn og kemst ekki
í áætlunarferðir sínar.
Viðræður munu hafa staðið
undanfarna daga í milli fulltrúa
sjómanna og Utgerðarmannafé-
lagsins, en samkomulag hefur
ekki náðst. Hefur blaðið frétt, að
útgerðarmenn hafi boðið upp á
sömu samninga og nú gilda í
Reykjavík, en forvígismenn sjó-
mannafélagsins hafnað því boði.
Sáttasemjari hefur enn ekki ver-
ið kallaður til að vinna að lausn
deilunnar.
óna - 283 þús. kr.
an
Eins og lauslega var greint frá
í síðasta tbl., var fjárhag áæíiun
bæjarins endanlega afgreidd ó
bæjarstjórnarfundi sl. þiiðju-
dagskvöld og varð niðurstaðan að
útsvörin voru áætluð kr.
7.812.850.00, cn voru við af-
greiðsluna í fyrra kr. 7.529.000.00,
og nemur hækkunin því 283 þús.
kr. eða fæplega 4%.
Hefur bæjarstjórnin því stung-
ið við fótum nú og reynt að halda
útgjöldunum niðri með tilliti til'
óvissrar afkomu bæjarmanna og
erfiðs fjárhagsástands yfirleitt. Á
þessum bæjarstjórnarfundi voru
nokkrar breytingar gerðar - frá
því, sem samþykkt var á bæjar-
ráðsfundi þeim hinum síðastá, er
gekk frá áætluninni. Lántaka
vegna Laxárvirkjunar og Krossa-
ness var áætluð 700 þús., en ekki
800 þús., me§ því að ekki lá fyrir
loforð lánsstofnana um meira en
200 þús. kr. lán til Krossaness af
þeim 300 þús., sem verksmiðjan
þarf á að halda vegna taprekst-
ursins á sl. sumri. Er því ráðgert
að jafna niður 100 þús. kr. til þess
að verksmiðjan standi í skilum,
hins vegar var bæjarráði falið að
ráðstafa þessum 100 þús. kr., ef
svo fer, sem ekki er vonlaust, að
verksmiðjan fái 100 þús. kr. við-
bótarlán. Þá voru samþykktar
tillögur bæjarráðs um 150 þús. kr.
hækkun til almannatrygging-.
anna vegna aukinna bóta-
Austrið og vestrið mætast
greiðslna, 110 þús. kr. til útrým-
ingar heilsuspillandi húsnæðis, 3
þús. kr. til byg'gðaSafnsins og nýr
liður, 50 þús. kr., til skrifstofu-
byggingar bæjarins og er það
framlag samkvæmt fyrri ákvörð-
un bæjarstjórnar. Þá var lækkað
framlagið til byggingalánasjóðs
bæjarins um 50 þús. með tilliti til
fiamlagsins til útrýmingar heilsu
spillandi húsnæðis og einnig með
hliðsjón af því, að byggingalána-
sjóðurinn hefur nú orðið talsvert
eigið fé til ráðstöfunar af vöxtum
og afborgunum af fyrri lánum.
Þegar allar þessar breytingar
höfðu veiið gerðar, urðu útsvörin
kr. 7.812.850.00, sem fyrr segir,
en vð þá upphæð bætist að venju
m
10% í meðförum. niðurjöfnunar-
nefndar og ér; svo >á ári hverju,
svo að samanburður sá í milli ára,
sem er gerður 'hér á undan rask-
ast ekki þar fyrir. Nokkrir bæj-
arfulltrúar fluttu bréýtingartil-
lögur við fjárhágsáætlunina, að-
allega til aukinna útgjalda og
framkvæmda, en þær voru ekki
í samræmi við raunverulega
tekjuöflunarmöguleika bæjarins,
hvorki möguleika til útsvars-
álögu né lántöku, og voru því
ekki tcknar til greina af meiri-
hluta bæjarstjórnar. Ber nú
meira á því en áður í bæjarstjórn,
að sumir flokkar eru farnir að sjá
hylla undir bæjarstjórnarkosn-
ingar að ári.
úr austri og vcstri, á allsherjarþingi
York á sl. hausti. T. v. er indverski.
h. cr Lester B. Pearson, utanríkisráð-
forseti allsherjarþingsins. •
16. og síðasla sýningin á
„Aumingja Hönnu” á
sunnudagskvöld
Leikfélag Akureyrar hefur nú
sýnt „Aumingja Hönnu“ 15 sinn-
um við mikla aðsókn. Urðu t. d.
margir að hverfa frá 15. sýning-
unni, svo var aðsóknin-mikil. —
Verður 16. og síðasta sýning
leiksins n.k. ,sunnudagskvöld. —■
Fyrir nokkru eru hafnar æfingar
hjá félaginu á sjónleiknum
„Dómar“ eftir Andi'és Þormar, Er
Jón Norðfjörð leikstjóri.
Arnarfetí flytur efni í fisk-
hjalla á Auslurlandi
Mikill áhugi er fyrir fiskherzlu
víða- um land, enda munu sölu-
horfur á harðfiski vænlegri nú en
á saltfiski og hraðfrystum fiski.
M.s. Arnarfell er nú á leið til
Jandsins frá Finnlandi og flytur
r--):mikið .at :e£ni f fiskhjalla, sem
mun aðallega fara í land á Aust-
urlandi.v Hafa Fáskrúðsfirðingai-
og Norðfirðingar t. d. viðbúnað
að taka upp þessa verkunárað-
ferð í stórum stfl.