Dagur - 18.12.1980, Síða 12
Ég rétti könnuna í gegn um litla
lúgu á járnhurðinni og fæ könn-
una fyllta af kaffi. „Góðan dag“
heyri ég að fangavörðurinn segir
og ég svara hinu sama. „Góðan
dag“ hugsa ég og velti fyrir mér
hvað þessi dagur beri í skauti sér
fyrir okkur. Ég segi „fyrir okkur“
því ég á líka við Egil, en hann er
klefafélagi minn.
Egill er stór og sterkur mið-
aldra maður, og kemur frá litlum
bæ við sjávarsíðuna. Við erum
raunar mjög ólíkir, sérstaklega
hvað snertir fortíð okkar, og erum
klefafélagar þrátt fyrir mjög ólík
afbrot.
Þrátt fyrir það kemur okkur vel
saman. Við tölum saman, borð-
um saman og sofum í sitt hvorri
kojunni. Öðru hvoru hlægjum við
meira að segja, en hvers vegna
veit ég ekki.
Þessi vist skal sko ekki brjóta
mig niður. Ekki karlmann fædd-
an í Vatnsmerkinu. Ég er að vísu
svolítið hjátrúarfullur. En ekki
það þó ólöglegt.
Ég spyr sjálfan mig aftur og
aftur hvers vegna ég hafnaði hér.
Ég sem geri yfirleitt aldrei nokk-
uð af mér, ekki einu sinni þó ég
hafi fengið mér aðeins neðan í
því. En i þetta sinn gerði ég víst
nokkuð i fylliríi. Ég verð því að
kenna áfenginu um hvernig nú er
komið fyrir mér. ...
• • •
Egill stöðvar allt í einu hugs-
anir mínar, og segir að við verð-
um að laga til í klefanum. Þetta
verður að vana. Búa um rúmin.
þvo gólfið, þurrka ryk og ýmislegt
svoleiðis smávegis. Við Egill er-
um í þessu fangelsi fyrir mis-
munandi sakir, en reglur ríkis-
fangelsins gera engan mun á
okkur.
Þetta er í fyrsta sinn sem ég er í
fangelsi. Er ég virkilega orðinn
afbrotamaður?
„Gangster" heitir það víst líka.
Félagar mínir hér í fangelsinu
segja að vísu að ég þurfi ekki að
vera að kvarta. Ég hef þó verið
hér í einn mánuð og á að vera í
þrjá til viðbótar. Get ég verið hér
mér að meinalausu í þennan
tíma? Verð ég kannske betri
maður þegar ég kem út? Nei, ég
býst ekki við því. Ef til vill læri ég
eitthvað, en það er líklegast að ég
verði bitur og sár út í allt og alla.
Auðvitað gæti þetta verið
ennþá verra. Margir félagar mínir
hér þurfa að vera hér í mörg ár.
Ungur piltur þarf að afplána
fimmtán ár, og margir aðrir hafa
æfilangan dóm. Ég finn til með
þeim öllum.
Morguntónleikar eru í útvarp-
inu frammi á gangi.
„Hamingjan kemur og ham-
ingjan fer“ heyri ég að verið er að
syngja. Já, það er víst alveg
ábyggilegt, hugsa ég og brosi út í
annað munnvikið.
Klukkan er ellefu, og nú fáum
við að fara út í garð í eina
klukkustund. Að fá frískt loft er
vel þegið, þrátt fyrir að umhverfis
garðinn séu múrar með gadda-
vírsgirðingu ofan á. Við fáum að
ráða okkur sjálfir í garðinum, fá
okkur reyk, tala saman, liggja í
sólbaði ef svo viðrar, hlaupa,
hoppa og gera hvað sem okkur
dettur í hug. Þetta verður hins
vegar að vana því á hverjum degi
gerum við það sama, alltaf á
ákveðnum tímum.
• • •
Allt frá því í apríl hefur allt
gengið á afturfótunum fyrir mér.
Það byrjaði með því að kærastan
mín hljóp frá mér. Hvers vegna?
Ja, það veit ég raunar ekki. Það
virðist ótrúlegt en satt, að ég hef
mjög góða menntun og hafði
ágætis starf. Allt gekk mér í hag-
inn. Nú sit ég hins vggar hér
innilokaður.
Svo fljótt hélt ég að lífið gæti
ekki breyst.
Skyndilega langar mig í bjór-
glas. Nei, það er alveg satt, hér fæ
ég bara vatn.
Þegar ég slepp út héðan skal ég
svo sannarlega breyta mínum
lífnaðarháttum. Ég má þó ekki
lofa of miklu Ég hugsa til þess
dags sem ég slepp úr þessu víti.
Vonandi hitti ég einhverja
góða og þolinmóða stúlku, sem
getur hugsað sér að gerast minn
lífsförunautur.
• • •
Nú er klukkan tólf og kominn
hádegismatur. Fangavörður opn-
ar klefann og einn strákurinn á
ganginum lætur okkur fá matinn.
Sláturkássa með kartöflum og
sætsúpa í eftirmat. Maturinn hér
er ekki til að hrópa húrra fyrir
honum og margir kvarta. En hvað
þýðir það? Við erum bara fangar.
Skrifblokkin mín og penninn
eru eitt það nauðsynlegasta sem
ég hef hér. Ég skrifa mikið. Til
vina minna, fjölskyldu og yfirleitt
til allra sem ég þekki.
Það dreifir huganum að skrifa
og um leið og ég skrifa bréf, lifir
vonin um að sá hinn sami muni
svara bréfinu mínu. Því miður
verð ég oft fyrir vonbrigðum.
Hvernig verður það þegar ég
kem út? Verð ég ávallt stimplaður
„gangster“ eða geng ég hvítþveg-
inn héðan út. Ég get hins vegar
vel skilið fólkið sem stimplar mig
þegar ég kem út. Ég gerði það víst
sjálfur hér áður fyrr þegar ég var í
þess sporum.
Egill spyr mig hvort við eigum
að taka eitt jatzy. Auðvitað vil ég
það. Hann hefði líka getað spurt
mig hvort við ættum ekki að
drepa tímann. Það er það sem við
erum að gera hér í fangelsinu.
Hvað við gerum skiptir ekki máli,
heldur aðeins að drepa tímann.
Enn hugsa ég um framtíðina.
Ég verð að fá mér góða vinnu
þegar ég kem út. Ég hef þegar
nokkur störf í huga, sem ég ætla
að sækja um. Skyldu þeir vilja
mig í vinnu?
Ég má ekki segja þeim að ég
hafi verið hér.
Jú, ég varð. Þeir fá hvort sem er
alltaf einhverntímann að vita
það. Það verða mörg vandamál
að glíma við þegar ég kem út.
Flaskan hjálpar alltaf svo lengi
sem eitthvað er í henni. Nei,
svona má ég ekki hugsa.
Hversvegna ekki. Það er henni
að kenna að ég er hér núna. Ég
verð reiður og sár þegar ég hugsa
um það.
Egill var að þvo föt af sér og
þurrkar þau á snúrunni sem
strengd er fyrir gluggann hjá
okkur.
Þar hengir hann skyrtu, sokka
og einar buxur.
Það skiptir engu máli þó hann
hengi föt fyrir gluggann. Því það
eru grindur fyrir honum að utan-
verðu.
Hljóðin utanfrá heyrast hins
vegar til okkar. Ég heyri í bílum
og fólki. Það kemur og fer.
Kvöldmaturinn kemur inn í
gegn um lúguna á hurðinni.
Það er kaffi og brauð, og einnig
klína af margaríni.
Ofanálegg fengum við fyrir
þremur dögum og það átti að
nægja fyrir alla vikuna. Krukka
með marmelaði, ein dós af
sardínum í olíu, og einn tómatur.
Við sveltum sko ekki hér.
Við tölum saman á meðan við
borðum. Ómar frá útvarpinu
berast inn til okkar. Þetta eru ró-
legog falleglög, og við komumst í
betra skap.
Ég tek til eftir matinn, Bursta
tennurnar, skrifa og les svolítið.
Þá er að hátta sig og hverfa á vit
draumanna. Einn dagur er liðinn
ogannar kemur á morgun.
• • •
Þormóður þjálf-
ar hjá Magna
Ungmennafélagið Magni á Greni-
vík hefur nú gengið frá ráðningu
þjálfara fyrir næsta keppnistímabil.
Þormóður Einarsson var ráðinn
en hann þjálfaði Magna fyrir
nokkrum árum, þegar þeir unnu
þriðju deildina og komust í aðra
deild. Vera þeirra þar var að vísu
ekki löng en það afrek þeirra, og
áhugi vakti landsathygli. Ásamt
meistaraflokki mun Þormóður
þjálfa tvo yngri flokka, en þeir hafa
hug á að taka þátt í íslandsmóti
yngri flokkanna. Önnur þriðju
deildar lið á Eyjafjarðarsvæðinu
eru nú að huga að þjálfurum og
verður skýrt frá því jafn óðum og
fréttir af því berast.
Fjögur í
starfi æsku-
lýðsfulltrúa á
Siglifirði
Þrjár umsóknir bárust um starf
æskulýðsfulltrúa á Siglufirði.
Æskulýðsráð ákvað að ráða þau
hjónin Guðna Sveinsson og
Helgu Sigurbjörnsdóttur og
Hreiðar Jóhannsson og Mar-
gréti Jónsdóttur i starfið, sem er
eitt launað starf samkv. 13.
launaflokki B.S.R.B.
Færeyingafélag
á Norðurlandi
f lok nóvember komu saman
Færeyingar búsettir á Akureyri
og nágrannabyggðum, til að
kanna áhugann fyrir stofnun
Færeyingafélags á Norðurlandi.
<,Á íslandi eru starfandi tvö Fær-
eyingafélög, annað í Reykjavík
en hitt á suðurnesjum. Á Akur-
eyri var árið 1947 stofnað félag
Færeyinga búsettra á Akureyri,
en félagið starfaði aðeins stuttan
tíma. Við nánari athugun og
eftirgrennslan hafðist upp á bók-
um félagsins frá 1947. Var því
ákveðið að endurreisa hið gamla
félag, með smábreytingum á fé-
lagssamþykktum þess, sem í stór-
um dráttum ganga út á að við-
halda móðurmáli þess fólks, sem
hefur tekið sér búsetu hér á landi,
auðvelda fólki, sem áhuga hafa á
færeyskum málefnum að gerast fé-
stuðla að vinsamlegum samskipt-
um milli íslands og Færeyja, og á
allan hátt vinna að hverju því
máli er kann að verða íslensku og
færeysku þjóðinni að sem gagni.
Það eru því eindregin tilmæli
Færeyinga á Norðurlandi, fólks
af færeysku bergi, svo og þeirra
Islendinga, sem áhuga hafa á
færeyskum málefnum að hittast,
lagar.
Nafn félagsins er Föringafelag
á Norðurlandinum og geta þeir
sem vilja gerst félagar snúið sér til
einhvers af undirrituðum úr
stjóminni.
Niels J. Erlingsson fornt., sími
22843,
Jastrid Pétursdóttir ritari, sími
21278, Hans M. Jensen gjaldkeri,
sími 24679, Ragna Fossadal
meðstj., sími 21964, Erhard Joen-
sen meðstj., sími 33141.
^^mmm^^m^^mmmmmmmm^mmmmmm
Kaþólska kirkjan,
Eyrarlandsvegi 26,
Akureyri.
Messa aófangadags-
kvöld kl. 12 e.h. og jóla-
dag og annan í jólum kl.
11 f.h.
Allir velkomnir.
12.DAGUR