Dagur - 18.12.1980, Blaðsíða 13
Tölvuvinnsla
Bókhald
Launabókhald
F j árhagsbókhald
Viðskiptamannabókhald
Birgðabókhald
Félagaskrár o.fl.
Sjáum um skipulagningu, færslu og
uppgjör bókhaldsins, ef óskað er.
Getum bætt við nokkrum fyrirtækjum
vegna nýrra, afkastamikilla tækja, sem
tekin verða í notkun um n.k. áramót.
Nánari upplýsingar í síma 23404.
TÖIVANGUR hf.
GLERÁRGATA 36. AKUREYRI
SÍMI23404 • PÓSTHÓLF 804 • 602 AKUREYRI
Gjaldskrá
fyrir heimilisþjónustu
Frá og með 1. jan. n.k. breytist gjaldskrá fyrir
heimilisþjónustu á vegum Félagsmálastofnunar
Akureyrar.
Frekari uppl. veitir forstöðumaður heimilisþjónustu
í síma 25880 þriðjudaga og fimmtudaga kl. 10-12.
Félagsmálastjóri.
Jólagjafaúrvalið
Akurvík
Aðventuljós. Mikið úrval.
Lýsið upp skammdegið
með aðventuljósi.
Útvarps- og kassettutæki
stórkostlegu úrvali. 12 teg-
undir.
Rakvélar og hársnyrtitæki í
miklu úrvali.
Bosch borvélar og fylgi-
hlutir. Jólagjöf húsbónd-
ans.
Nýi krulluburstinn
frá Philips
Jólagjöf til allrar fjölskyld-
unnar: Litasjónvarpstæki
eða myndsegulband frá
Philips eða Sanyo.
Greiðsluskilmálar.
GLERÁRGÖTU 20 — 600 AKUREYRI - gÍMI 22233
Smá heimilistæki
frá Philips, Rowenta og
Husqvarna:
Brauðristar, kaffivélar,
handþeytarar, teina- og
borðgrill, vöfflujárn, strau-
járn, eggjaþeytarar og m.fl.
Skíðaútbúnaður: Rossignol
skíði, Kerma stafir, Koflach
skór, Salomon og Geze
bindingar.
KOTASÆLA:
Óþrjótandi
möguleikar
„Hvernig á að borða Kota-
sælu, nýja ostinn frá Mjólkur-
samlagi KEA? Þessari spurn-
ingu er ekki auðsvarað, því
möguleikarnir eru nánast
óteljandi, en við nefnum
nokkur dæmi:
Borða hann beint úr dósinni,
e.t.v. með ávaxtasafa eða sultu og
þeyttum rjóma.
Setja hann saman við blandaða
ávexti og hafa þeyttan rjóma með
og borða hann sem eftirrétt.
Setja hann ofan á ýmsar kex-
tegundir og hafa t.d. kavíar með.
Nota hann í hrásalöt, kjöthakk
og annan mat, baka úr honum
lummur, pönnukökur eða vöffl-
ur, eða hafa hann jafnvel í tertur
og gerbakstur.
Hér á eftir koma nokkrar
uppskriftir:
Appelsínusæla:
(Iskammtar)
200 g Kotasæla
l dl rjómi
'h tsk. sykur
1 tsk. vanillusykur
2 appelsínur
Setjið sykurinn út í rjómann og þeyt-
ið. Afhýðið appelsínurnar og skerið í
bita, blandið þeim og ostinum saman
við rjómann. Berið kalt á borð.
Sælusósa:
(4 skammtar)
200 g Kotasæla
'k tsk. papríkuduft
l dl. tómatsafi
'h msk. edik
l'h dl. grófrifin seljurót
salt eftir smekk.
Hrærið ostinn smátt og smátt út með
tómatsafanum. Bragðbætið með salt-
inu, paprikuduftinu og edikinu.
Blandið síðan seljurótinni saman við.
Berið fram með köldum kjúkling.
Apríkósur undir
Kotasælu:
(4 skammtar)
1 hálfds. apríkósur, (450 g)
200 g Kotasæla
'h dl sykur
3A msk. kakó
legg
2 msk. rjómi
Leggið apríkósurnar i eldfast form,
(með kúptu hliðina upp). Blandið
saman Kotasælunni. sykrinum og
kakóinu. Þeytið eggið smávegis.
Blandið siðan egginu og rjómanum
saman við Kotasæluna, sykurinn og
kakóið. Breiðið massann síðan yfir
apríkósurnar. Bakið i ofni við 200°C i
um 40 mín.
Sælubrauð:
Smyrjið kex eða brauð með smjöri.
Leggið lag af Kotasælu ofan á. Síðan
má setja tómata. agúrku, kívíar,
krækiberjasultu, gaffalbita eða eitt-
hvað allt annað ofan á Kotasæluna.
Sælufars:
(4skammtar)
400 g Kotasæla
l gulrót
l laukur
300 g kjötfars
1 tsk. salt
pipar eftir smekk
Skrælið og rífið gulrótina og laukinn.
Blandið pipar og salti vel saman við
kjötfarsið. Bætið út í Kotasælunni,
gulrótinni og lauknum. Smyrjið ofn-
fast fat með smjöri og setjið deigið i.
Bakið í ofni við 200°C í um 45 mín.
Af þessu sést að möguleikarnir
eru ótalmargir, svo nú er bara að
gefa hugmyndafluginu lausan
tauminn.
S.I. sunnudag stóð Leikfangamarkaðurinn fyrir Matchbox rally á Hótel Varðborg.
Þátttakendur voru 70. Sigurvegari varð Páll Jónsson, 12 ára gamall, er ók bíl nr. 23.
Myndin sýnir þá fjóra er kcpptu til úrslita. Mynd: áþ.
Tuttugu þúsund tenings-
metrar af ódýru timbri
Innflutningsdeild Sambandsins
flytur sem kunnugt er árlega inn
mikið af timbri. Á næsta ári gerir
deildin ráð fyrir að flytja til
landsins 17-18.000 tenings-
metra, sem er heldur minna en
venjulega vegna þess að reiknað
er með samdrætti i húsabygg-
ingum.
Af þessu magni er deildin nú
búin að festa kaup á um 7.000 ten-
ingsmetrum í Kanada. Er það nýj-
ung, því að til þessa hafa timbur-
kaup landsmanna nær eingöngu
verið gerð í Rússlandi og á Norð-
urlöndum. Kanadíska timbrið
kemur frá skóglendum i norðaust-
urhéruðum landsins, og er það
heldur grófara en það timbur sem
menn eiga að venjast hér. Samt sem
áður sýnist það henta mjög vel til
notkunar í húsabyggingum hér-
lendis, t.d. við mótauppslátt, og það
er vel þurrkað og kvistalítið.
Nokkrar reynslusendingar, sem
keyptar hafa verið fyrr á þessu ári,
hafa líka gefið góða raun. Það sem
mesta athygli athygli vekur í þessu
sambandi er þó verðið, en kana-
díska timbrið er nú um helmingi
ódýrara fob, en rússneska timbrið,
sem væntanlega á eftir að koma
húsabyggjendum til góða.
Þetta timbur er væntanlegt til
landsins með vorinu. Það er Skipa-
deild Sambandsins sem sér um
flutningana á því heim frá Kanada.
DAGUR.13