Dagur - 18.12.1980, Blaðsíða 21

Dagur - 18.12.1980, Blaðsíða 21
dDsktm lanöömönnum KJARTAN ÓLAFSSON: #leöilegra Jfóla og farsæls Hl|^ feomanöi árö ÍWnaðarbanki ÍSLANDS 'Akureyri • EHHEBBHHaSBSEEESHEBHHSEHHEEHSSHBEEEHEEESE® E E E H E H E E B H H B E H B E H H E H E B H H H H E E E B B B E H H B E E H E E E E E H H E E H E E B E Útvegsbanki Islands ÚTIBÚIÐ Á AKUREYRI þakkar viðskiptin á liðnu ári og óskar öllum GLEÐILEGRA JÓLA E H E H H H H E E H H H H B E H H H H E H H E H E H H E E E E H E E E E E E B H H E H E E H H E H HHHHHHHHBHHHHHHEHHHHHHHHHHHHHHHHHHHHEHHHHH Óskilafé í Öxnadalshreppi haustið 1980 Hvítt kollótt gimbrarlamb. Mark: Sneiðrifað framan hægra, stýft hálft af framan vinstra. Réttur eigandi gefi sig fram við undirritaðan, sem veitir nánari upplýsingar. Steinn Snorrason, Syðri-Bægisá. Frá Vistheimilinu Sólborg Eftirtaldar stöður eru lausar til umsóknar: 1. Staða bílstjóra. 2. Staða aðstoðarmanns á vinnustofum. Báðar þessar stöður veitast frá 1. jan. n.k. Fastur vinnutími frá kl. 8.00-17.00 mánudaga - föstudaga. Upplýsingar um stöður þessar verða veittar á skrifstofu Sólborgar milli kl. 10.00-12.00 f.h. n.k. föstudag 19. des. og mánudag 22. des. Fyrir- spurnum ekki svarað í síma. Forstöðumaður Frá Vistheimilinu Sólborg Þeir viðskiptaaðilar stofnunarinnar sem eiga eftir að framvísa reikningum sínum vegna viðskipta á árinu 1980 eru vinsamlegast beðnir að gera það mánudaginn 22. des. og þriðjudaginn 23. des. n.k. Reikningarnir verða síðan greiddir á skrifstofu heimilisins milli kl. 13.00 og 15.00 mánudaginn 29. des. og þriðjudaginn 30. des. n.k. Reikningar, sem ekki berast fyrir þennan tíma, fást ekki greiddir fyrr en eftir 10. jan. 1980. Forstöðumaður Endurminning frá stríðsárunum Það var á því herrans ári að ég man best 1940; að ég komst í tæri við breska heimsveldið og hef senni- lega skotið því skelk í bringu. En þetta atvikaðist þannig, að vinur minn einn sem ég heimsótti annað slagið og hafði verið í Þýskalandi nokkru fyrir seinni heimsstyrjöldina og orðið mjög hrifinn af þýsku þjóðinni; af dugn- aði hennar og einnig af aðgerðum líðandi stundar. Og er ég heimsötti hann þá hlustuðum við oft mikið á útvarp frá Þýskalandi, því þaðan var alltaf hægt að heyra góða hljómlist frá einhverri útvarpsstöðinni, alþekkt öndvegisverk, og svo var þjóðinni haldið í ættjarðarlögunum, en sum laganna voru þekkt hér við okkar ættjarðarkvæði. Enski herinn var þá þegar orðinn allfjölmennur hér á Akureyri, og í nærsveitunum voru komnar þó nokkuð margar herbúðir með ýmsum deildum innan hersins, svo sem flugmenn og svo æfingabúðir fyrir almenna hermenn sem voru æfðir í vopnaburði, látnir grafa skotgrafir og hlaða allskonar byrgi, reisa iveruhús, bragga og koma upp loftvarnarbyssum, til varnar ef á þá yrði ráðist úr lofti og fleira og fleira, og enn ein deildin var svo leyni- þjónustan sem ég komst lítillega í kast við. Skal ég nú greina frá því hvernig það atvikaðist. Það hagaði svo til þegar ég kom út frá fyrrnefndum vini mínum, að þá kom ég út í breiðan gang yfirbyggðan, svolítið port, sem við kölluðum svona í gamni — The Golden Gate — Gullna hliðið. Að vísu var annar útgangur en hann kölluðum við Pólska hliðið. Það var vitanlega miklu fínna að fara út um Gullna hliðið, enda var þar komið út á götuna. Nú þegar ég fer að hugsa um það, þá er ég ekki grunlaus um að á þessum árum hafi menn snúið mörgu upp á enska tungu, sem sagt, orðið fyrir áhrifum frá enskunni, og slegið um sig með þejrri ensku- kunnáttu sem fyrir hendi vár, en aldrei fannst mér nein ástæða til að óttast að þjóðinni förlaðist í sínu móðurmáli eins og sumir speking- arnir virtust vera hálfhræddir um, að mér fannst. Unglingarnir sem kynntust her- mönnunum lærðu af þeih ensku, sumir talsvert og það furðu fljótt, en ekki var það nema til góðs fyrir þá. Já — en svo er það nú áfram- haldið — það var svo eitt sinn er ég kom út úr Gullna hliðinu, það var komið eitthvað fram á haustið, ég man að það var blíðskaparveður, farið að skyggja, enda dimmt upp- yfir, að þegar ég kom út á götuna, þá heyrði ég að tvö mótorhjól voru sett í gang í hinum enda götunnar. Það var orðið áliðið, umferðin hljóðnuð svo hávaðinn drundi og bergmálaði milli húsanna í kpöld- kyrrðinni. Ég veit ekki hvernig það var en mér fannst þetta eitthvað undarlegt og dokaði við, því í þann tíma áttu hér fáir mótorhjól, en aftur á móti voru ensku hermennirnir talsvert á mótorhjólum. Ætlaði ég að lofa þeim að fara fram hjá mér hverjir svo sem þeir væru áður en ég legði af stað. Nei, þeir hreifðu sig ekki svo ég nennti ekki að bíða og gekk af stað, en ég var ekki búinn að ganga nema nokkurn spöl þá drunuðu mótorhjólamennirnir líka af stað. Mér fannst nú enn undar- legra framferði þeirra, engu Hkara en þeir væru eitthvað að hugsa um mig, og þepar þeir fóru fram hjá mér, sá ég tð þetta voru tveir her- menn. Ég gekk nú mina leið inn Hafnarstræti og alltaf voru mótor- hjólagarparnir einhversstaðar i námd við mig. Til þess að komast heim þurfti ég að fara upp á brekkuna, og fór þá vanalega inn allt Hafnarstrætið og upp á brekkuna að sunnan, upp Spítalaveginn, en nú kom upp í mér strákurinn, ef mótorhjóla- garparnir mógráir á að lrta væru nú eitthvað að hugsa um mig, væri nú best að gera þeim svolítinn grikk. Svo einu sinni, þegar þeir náðu mér, hægði ég á göngunni og þegar þeir voru komnir strætið, nærri á enda, þá skaust ég þvert upp brekkuna, upp sýslumanns- hvamminn sem við kölluðum svo, og var fljótur að hverfa þeim ensku sjónum, og þegar ég var nærri kominn upp á brekkubrúnina þá heyrði ég hvar mótorhjólagarparn- ir komu sunnan Hafnarstrætið og fóru þeir nú þeysireið, það drundi í vélum hjólanna í þessum átökum, en ég komst óséður heim og sofnaði fljótt og vært, sem sagt slapp frá þeim ensku, hafi þeir eitthvað verið að hugsa um mig. En svo bar það við að ég heim- sótti þennan sama vin minn nokkrum kvöldum seinna, og var orðið áliðið kvölds, þegar ég hélt heim á leið, en nú skeði það und- arlega að þegar ég kom út úr Gullna hliðinu"og gekk út á gang- stéttina þá fóru tvö mótorhjól í gang útí enda götunnar alveg eins og hið fyrra skiptið. Ég var nú nærri viss um að þeir hugsuðu meir en lítið um mig, ég dokaði við eins og áður, en það var það sama. Þeir mótorhjólamenn hreyfðu sig ekki fyrr en ég hafði gengið þó nokkurn spöl. Og eins og í fyrra skiptið fylgdu þeir mér inn Hafnarstrætið, og bamalegt fannst mér nú atferli þeirra, þeir voru ýmist talsvert, á undan mér eða á eftir. Eitt sinn er þeir mættu mér, sa ég að þetta voru einkar góðlegir drengir á að líta og ekki fannst mér til mikilla stórræða í átökunum sem voru byrjuð í heiminum. En hvað um það, svo einu sinni þegar mótorhjóladreng- imir voru komnir nógu langt suður í strætið, en ég fór nú svolítið lengra en í fyrra skiptið, þá sá ég mér færi að sleppa, og eins og áður hentist ég upp hvamminn og ætlaði mér að komast óséður heim, en þá komu þeirensku á þeysireið innan strætið en snéru við hjá Samkomuhúsinu, sem er svona í miðju strætinu, inn- eftir aftur á enn meiri ferð, engu líkara en að þeir væru í hörku kappakstri. Mér var nú ekki farið að lítast á blikuna, auðvitað væru þeir vopnaðir og orðnir argir i sinni svo ég flýtti mér sem rnest ég mátti upp brekkuna orðinn móður og másandi, og var að komast upp á brekkubrúnina þegar ég heyrði í mótorhjólunum rétt fyrir sunnan mig. Þeir höfðu þá farið inn strætið og upp á brekkuna að sunnan og komu þarna beint í fangið á mér, ég fölnaði upp en var til allrar ham- ingju ekki kominn alveg upp á brekkubrúnina svo ég henti mér niður í grasið og lá þar meðan þeir garpar drunuðu áfrafn norður veg- inn og hurfu út hjá Menntaskólan- unt. Og þegar ég heyrði að þeir héldu norður af brekkunni, beið ég ekki boðanna, hentist heim og slapp inn án þess að þeir sæju mig, og eins og áður sofnaði ég saklaus í anda og gerðum gagnvart breska heimsveldinu. Ég var nú orðinn nokkurn veg- inn viss um að þeir hugsuðu meir en lítið um mig, og svo fór ég að athuga málið og komast að þeirri niðurstöðu að ekki væri ráðlegt að erta enska ljónið meira, hver veit nema ég yrði tekinn fastur og settur í varðhald á eynni Mön í Irlands- hafi sem njósnari, eða svo fannst mér að minnsta kosti, að þeir héldu að ég væri. En sagan endurtók sig, ég heim- sótti vin minn eitt góðviðriskvöld og dvaldist eitthvað hjá honum. Eins og vant var leið tíminn fljótt við spjall og músik, og að hlusta á stríðsfréttir frá báðum aðilum. Svo kvaddi ég, og eins og vana- lega fór ég út um Gullna hliðið, en þegar ég kom út á götuna lét ég sem ekkert væri. nú gekk ég rakleitt af stað eins og ég væri einn í heimin- um, en eins og hin fyrri skiptin þá fóru tvö mótorhjól í gang og mér fannst að nú væru garparnir ekki aðeins með skammbyssur við belt- in heldur væru þeir komnir með hríðskotabyssur að auki. En sem sagt nú gekk ég eins og friðsamasti borgari þessa bæjar rólega og ákveðið inn Hafnarstræti og upp Spítalaveginn og beina leið heim, en mótorhjólagarparnir fylgdust með mér ýmist á undan eða eftir eins og áður og þegar ég gekk heim að húsinu og var að fara inn þá fóru garparnir áðmnefndu einmitt framhjá og sáu því hvar ég átti heima,- En eftir þetta heyrði ég aldrei til mótorhjólamannanna að kvöldi til. Ég get að vísu upplýst það áð ég hafði nokkur sambönd við út- varpsstöðvar út um heim og þar á meðal frá Austur-Evrópu og fékk þaðan bæklinga um útvarpssend- ingar og áróðursrit og einn góðan veðurdag fékk ég óumbeðið mán- aðarlega bækling frá London með mínu númeri og nokkru seinna frá Stokkhólmi líka óumbeðið með sama númeri og í sama anda. Þetta hafa þeir ensku líklega vitað og sett mig á svarta listann hjá sér, en sem betur fór slapp ég útúr þessu án þess að fá skrámu á mitt skinn. Þessi vinur minn sem ég hef áður unt getið kynntist yfirmanni leyni- þjónustunnar hér á Akureyri. Þeir urðu góðir kunningjar, og ég var með þeim stöku sinnum, svo þetta endaði eins og best var á kosið. Ég kynntist þrem enskum her- mönnum sem allir voru sunnan af Comwallskaga, einn frá borginni Truru en hinir frá Trouay. Allir voru þetta hæglátir menn og virtust njóta þess að koma í annað um- hverfi sem minnti þá ekki á þetta brjálæði sem kontið var á stað. Ég sagði þeim frá þessum skiptum mínum við leyniþjónustuna og höfðu þeir allir gaman af. Ég man að þeir komu heim um jólin og drukkum við þá kaffi við kertaljós. Það fannst þeim dásam- legt og minntust á það síðar hvað þeir hefðu notið þeirrar stundar. En svo fóru þeir í hildarleikinn og ég heyrði aldrei frá þeim framar. Jólatónleikar Blásarasveit Tónlistarskólans á Akureyri ásamt blokkflautusveituni og einleikurum halda jólatónleika í Akureyrarkirkju sunnudaginn 28. desember kl. 17. Efnisskráin verður hin fjöl- breyttasta, m.a. útsetningar á inn- lendum og erlendum jólalögum eftir stjórnanda blásarasveitar skólans Roar Kvam, en hann hefur nýverið gefið út hefti með jólalög- um. DAGUR ;21

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.