Dagur - 18.12.1980, Page 15
Orðsending
frá Jóni til Óla
Á er runninn ýmsra kurr
yfir þunnum blöðum.
Er nú brunnur orðinn þurr
Óla á Gunnarsstöðum?
Enn má kraka úrvals frétt
undan þaki mjalla.
Enn mun vaka stöku-stétt
stælt að baki fjalla.
Hvamms af heiði, heim í átt
hjarða-breiður streyma.
Af þeim seiði miðla mátt
mér, sem leiðist heima.
Setjist lokkasól hjá þér.
Seidd úr flokki snóta.
Alls er þokka lífi lér
láttu okkur njóta.
Þurka-nota þankabrot,
þræsings-lotur veðra,
afla-hrotur, ásta-skot.
Allt má krotast héðra.
Pírðu í fréttir pólitík.
Prýdda glettum þínum.
Enn er létt í lyndi slík.
Laus á prettum sínum.
Svo af kúa og sauða-mergð
— sæll á búmanns vegi,
sendu nú með fyrstu ferð
frétta-grúa Degi.
FLYTUR FÉIAGSMÖNNUM SÍNUM, FJÖLSKYLDUM
— - ÞEIRRA, SVO OG HINUM MÖRGU
VIÐSKIPTAVINUM SÍNUM UM LAND ALLT,
«* ' ‘
Wí beztu þakkir* fyrir viðskiptin
* liðna árinu, og óskar öllum
llf ij I !• í J
DAGUR 15