Dagur


Dagur - 18.12.1980, Qupperneq 31

Dagur - 18.12.1980, Qupperneq 31
Kauptu miða handa Stjána lfka, elskan. Ég gleymdi að bjóða honum i brúðkaupið, svo ég bauð honum bara i brúðkaupsferðina. Fylgist nú vel með — og ef þið verðið ekki ánægð með sýninguna fáið þið peningana aftur. Já, þú hlærð, en í gamla daga voru allir í brynjum. Auk þess sem kött- urínn braut í sér tvær tennur áðan. Prentað í Prentsmiðju Jóns Jóns- sonar, Hamravík. Þetta er þó tilbreyting frt gömlu Hlaðir í Hörgárdal — norðtenskt svsitahehnlll f byrjun 20. aldar eftir Steindór Stelndórsson fyrrv. skólamelstara Hlaðir í Hörgárdal er þjóðháttalýs- ing frá fyrstu áratugum þessarar aldar. Höfundurinn, Steindór Steindórsson fyrrv. skólameistari, rekur þar daglegt líf á norðlensku sveitaheimili, þar sem mætast hættir og viðhorf tveggja alda, annarsvegar stendur heimilið föst- um fótum i viðhorfum 19. aldar- innar, en hinsvegar er þar tekið feginshendi vinnubrögðum og við- brögðum þeirrar framfaraöldu, sem barst islenskum landbúnaði og sveitalífi í upphafi aldarinnar. Þannig verður hér til einskonar brú milli gamals og nýs tíma. Umhverfi og húsaskipan er lýst, svo og lifi fólksins við störf og hvild, vinnu- brögðum, klæðnaði, mataræði, menntun o.s.frv. Þetta er tvímæla- laust bók sem allir unnendur þjóð- legs fróðleiks munu hafa mikla ánægju af. Bókin er 142 blaðsíður, prentuð og bundin í Prentverki Odds Bjömssonar og útgefandi er Bóka- forlag Odds Bjömssonar á Akur- eyri. Skuggi úlfsins eftir James Barwick Að kvöldi hins 10. maí 1941 stökk annar valdamesti maður Hitlers- Þýskalands, Rudolf Hess, í fallhlíf úr flugvél yfir Skotlandi. 1 þessari bók er reynt að geta sér til um ástæður þessa ferðalags, en Hess var handtekinn í Bretlandi og er enn á lífi í Spandau-kastalanum í Vestur Berlín. Þar er hann fangi og vilja Bandamenn ógjaman gefa honum frelsi, þó oft hafi það komið til greina. Að öllum líkindum óttast þeir að vitneskja hans um einstakl- inga og pólitíska atburði gæti orðið hættuleg ef hún yrði gerð opinber. í bókinni er sagt frá öðmm manni sem var með Hess í flugvélinni og varð það hlutskipti hans að af- henda mönnum í Bandaríkjunum upplýsingar frá Hess. Þessi maður hét Alfred Hom og hin stórkostlegu ævintýri hans í Bretlandi og Bandaríkjunum fá lesandann til að standa á öndinni af spenningi. Þetta er hrollvekjandi saga af mannaveiðum og stórkostlegum áhættum. Frá sögulegu sjónarmiði em getgátur bókarinnar jafn furðulegar og ægilegar eins og raunvemleikinn. Skuggi úlfsins er 224 blaðsíður, prcntuð og bundin i Prentverki Odds Bjömssonar á Akureyri og úlgcfandi er Bókaforlag Odds Bjömssonar. Þýðandi er Hersteinn Pálsson. * DAGTJR Á bókamarkaði Verndarenglar eftir Sidney Sheldon í þessari bók segir frá Jennifer Parker, sem er gáfuð, glæsileg og einörð. I fyrsta réttarhaldinu sem hún vann að sem laganemi verður hún til þess að saksóknarinn sem hún vinnur með tapar málinu, sem snerist gegn Mafíunni. Leggur hann hatur á hana fyrir vikið og gerir allt sem í hans valdi stendur til að útiloka framtíð hennar sem lög- fræðings. En allt kemur fyrir ekki. Jennifer Parker vinnur sig upp með þrautseigju, með því að taka að sér mál alls kyns hópa, sem enginn lögfræðingur vill láta bendla sig við. Árangurinn lætur ekki á sér standa, hún verður einhver mest hrífandi og eftirsóttasti lögfræðings Bandaríkjanna. Jennifer Parker er stórbrotnasta persóna sem Sidney SQheldon hefur skapað — kona, sem með því einu að vera til, hvetur tvo menn til ásta og ástðna ... og annan þeirra til óhæfuverka. Áður hafa komið út eftir sama höfund bækumar Fram yfir miðnætti, Andlit í speglinum og Blóðbönd, sem allar hafa verið kvikmyndaðar og sýndar hér á landi. Bókin er 280 blaðsíður, prentuð og bundin í Prentverki Odds Bjömssonar og útgefandi er Bóka- foflag Odds Björnssonar. Þýðandi er Hersteinn Pálsson. Kvæðið festist mér í minni Sigríður Helgadóttir, fyrrum á Kálfborgará í Bárðardal, lærði eftirfarandi kvæði mjög ung af móður sinni, Þuríði Sigurgeirsdóttur á Kálfborg- ará. Ekki veit hún um höf- undinn, en telur að hann hafi verið á förum til útlanda og kvatt land sitt og unnustu á þennan hátt. Sigríður segist hvergi hafa séð kvæði þetta á prenti og efast um að það sé til annars staðar en í huga sér því hún hafi aldrei sett það á blað. Af einhverjum ástæðum hafi hún aldrei gleymt kvæði þessu þótt margt annað, sem hún lærði á sama tíma eða fyrir 70 árum, sé fyrir löngu horfið sér úr minni. E.t.v. geta einhverjir veitt upplýsingar um höfundinn og væru þær kærkomnar. E.D. Hlýt ég nú nauðugur héðan að hverfa hjartkærum vinum og ættjörðu frá. Grimmar að brjóstinu sorgimar sverfa sár em forlög er stríða mig á. Sárt er að hljóta að sigla frá löndum svífa á fjarlægum ógnbylgjusjá þar sem að hjartað í blíðunnar böndum bundið er kærasta vininum hjá. Kveð ég nú ættjarðar ískrýndu tinda iðgrænar hlíðar og rennslétta grund kveð ég nú hjalla-kveð ég nú rinda kveð ég nú skógarins blómgaða lund. Kveð ég nú lindina og lækina bláu liljumar björtu og fjólurnar smá. Kveð ég nú fossinn í fjallgljúfrum háu fjörðinn minn tæra og straumharða á. Kveð ég þig ástmey og aldrei þér gleymi okkar þó skilji nú samverutíð, mína í hjartanu mynd þína geymi minningin lifir æ, fögur og blíð. Verði þín ævi í aldanna heimi indæl og fögur sem blómaríkt vor. Alvaldur drottinn þig annist og geymi öll svo til farsældar liggi þín spor. KAUPFÉLAG SKAGFIRÐINGA SENDIR FÉLAGSMÖNNUM SfNUM, STARFSFÓLKI, SVO OG ÖÐRUM VIÐSKIPTAVINUM, beztu óskir um gleðirík jól og farsœld á komandi ári SAUÐÁRKROKI - HOFSÓSI - VARMAHLÍÐ - FLJÓTUM DAGUR . 31

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.