Dagur - 12.11.1981, Page 1
Grenvík-
ingar í
nýtt
skólahús
Sjá bls. 8
Brtlatón-
leikar á
Akureyri
Sjá bls. 6-7
Prentvél
DAGSá
ferðalagi
Sjá bls. 4
TRÚLOFUNAR-
HRINGAR
AFGREIDDIR
SAMDÆGURS
GULLSMIÐIR
, SIGTRYGGUR & PÉTUR
1 AKUREYRI
AUGLVSINGAR OG ÁSKRIFT: 24167 - RITSTJORN: 24166 OG 21180
64. árgangur
Akureyri, fimmtudagur 12. nóvember 1981
88. tölublað
— segír Sveinberg Laxdal formaður Félags kartöflubænda f Eyjafirði
Nefnd um starfsemi útvarpsins á Norðurlandi:
Leggur til að ráðinn verði
frétta- og dagskrárfulltrúi
„Ég hef sent Ríkisútvarpinu,
útvarpsstjóra og útvarpsráði,
þessa tillögu til kynningar með
ósk um að hún verði fram-
kvæmd svo fljótt sem verða
má,“ sagði Ingvar Gíslason,
menntamálaráðherra, í við-
tali við Dag, en nefnd sem
hann skipaði til að kanna efn-
islegan og fjárhagslegan
grundvöll þess, að Ríkis-
útvarpið reki fréttastofu með
föstu starfsliði á Norðurlandi,
hefur nú skilað áliti. Nefndin
lagði til að ráðin verði frétta-
og dagskrárfulltrúi, auk
tæknimanns, fyrir Norður-
land, með aðsetur á Akureyri.
í nefndarálitinu segir m.a. á
þessa leið: „Nefndin telur að efn-
islegur, fjárhagslegur og tækni-
legur grundvöllur sé fyrir aukinni
þátttöku norðlendinga í frétta- og
dagskrárgerð Ríkisútvarpsins.
Nefndin leggur til, að ráðinn
verði frétta- og dagskrárfulltrúi,
auk tæknimanns, fyrir Norður-
land, með aðsetur á Akureyri,
þar sem aðstaða er til upptöku og
sendingarefnis.
Nefndinni er Ijóst, að Ríkis-
útvarpinu er þröngur stakkur
skorinn fjárhagslega, en þar sem
nefndin telur að útvarpið hefði
full not af þeirri starfsemi, sem
hér um ræðir, og að hún muni
auka fjölbreytni í dagskrá út-
varpsins, þá leggur ncfndin til að
nú þegar vcrði hafist handa á
þeim grundvelli, sem að framan
greinir.1'
I nefndinni voru Andrés
Björnsson, útvarpsstjóri, Vil-
hjálmur Hjálmarsson, formaður
útvarpsráðs, Hermann Svein-
björnsson, ritstjóri, Kristinn
G. Jóhannsson, kcnnari, og
Knútur Hallsson, skrifstofustjóri
í menntamálaráðuneytinu.
að það séu um 100 manns við
Eyjafjörð sem hafa stundað kart-
fölurækt í einhverjum mæli, og
staðan er orðin ákaflega slæm hjá
mörgum og er þetta fljótt að
vefja upp á sig, enda lætur nærri að
tjón hvers bónda sé um 120 þúsund
krónur til jafnaðar" sagði Svein-
björn.
Jómfrúin
fær
frábæra
dóma
Sýningar Leikfélags Akureyrar
á „Jómfrú Ragnheiði“ hafa
gengið alveg sérstaklega vel og
undirtektir áhorfenda verið
frábærar, eftir því sem Dagur
hefur fregnað.
Svo til fullt hús hefur verið á nær
hverri sýningu og t.d. var uppselt
s.l. sunnudag. Gagnrýnendur hafa
undantekningalaust farið mjög lof-
samlegum orðum um þessa
sýningu L.A. Nokkuð hefur verið
um það, að áhugafólk uni lcikhús
hafi komið að sunnan til að sjá
verkið.
Á þriðjudag var sérstök skóla-
sýning, en s.l. sunnudag var hópur
menntaskólancma á sýningunni og
ætla nemendurnir að skrifa ritgerð
um efni leikverksins. Næstu sýn-
ingar verða á fimmtudagskvöld,
föstudagskvöld og sunnudags-
kvöld, en leikritið hefur nú verið
sýnt9sinnum.
Æfingar eru þegar hafnar á
næsta verkefni, sem verður barna-
leikritið „Dýrin í Hálsaskógi".
„Það hefur komið í Ijós að það
magn af kartöflum sem ekki var
hægt að ná upp hér á Eyjafjarð-
arsvæðinu var síst ofreiknað hjá
okkur. Við töldum það vera um
500 tonn, en eftir könnun sem
ráðunautar Búnaðarsambands
Eyjafjarðar hafa framkvæmt á
svæðinu kemur í Ijós að hér er
um 700 tonn að ræða“ sagði
Sveinberg Laxdal formaður
félags kartöflubænda við Eyja-
fjörð í samtali við DAG.
Sveinberg tjáði DEGI að erfitt
væri að segja nákvæmlega fyrir um
tjónið sem bændurnir hefðu orðið
fyrir, en ætla mætti að það væri
12-13 milljónir króna. Félag kart-
öflubænda við Eyjafjörð hefur sent
ríkisstjórninni ályktun sem gerð var
í félaginu, og bíða félagsmenn nú
eftir því að heyra um hvaða fyrir-
greiðslu hið opinbera gæti veitt
þeim og aðstoð.
„Þetta verður vafalaust til þess
að einhverjir munu hætta kartöflu-
ræktinni“.sagði Sveinberg. „Ég tel
Iðnaöarmenn hafa unnið af kappi i nýbyggingu Dags við I nýju húsakynnum og um áramót verður öll starfsemi Dags
Strandgötu að undanfömu. Blaðið i dag er prentað f hinum | komin i Strandgötuna. Ljósm. H.Sv.
|pm.
„Ég átti
ekki að
verða
rakari“
Sjá bls. 11
Um 700 tonn af kartöflum eftir í jörðu í Eyjafirði:
KodaK
FILMUhÚSIÐ AKUREVRl
„Meðaltjón á bónda er
um 120 þúsund krónur‘ ‘