Dagur - 12.11.1981, Blaðsíða 12
Kristján og Dorriet
syngja í Skemmunni
Kristján Jóhannsson og Dorriet
Kavanna syngja í íþrótta-
skemmunni á Akureyri laugar-
daginn 14. nóv. kl. 17 við píanó-
leik Ólafs Vignis Albertssonar.
Þetta eru fyrstu sameiginlegu
tónleikar þeirra á Akureyri, en
þau hafa áður sungið fyrir
Tónlistarféiagið í Reykjavík og
með Sinfóníuhljómsveitinni, og
hafa tónleikar þeirra vakið
mikla hrifningu og verið fjöl-
sóttir.
Á efnisskránni eru aríur frá eldri
tímum eftir Monteverdi, Handel
o.fl. Konsertaría eftir Mozart og
ljóðasöngvar eftir Beethoven og
Hugo Wolf. Einnig aríur og dúettar
eftir Donizetti, Bellini og Verdi.
Dorriet er fædd í Barcelona á
Spáni, en lauk leiklistarnámi í New
York. Eftir átta ára feril, sem leik-
kona í leikhúsum, sjónvarpi og
kvikmyndunt ákvað hún að leggja
stund á sönginn sem aðallistgrein.
Hún lærði hjá þekktum söngkenn-
urum s.s. Capella á Spáni, Carolina
Segrera í New York og Ettore
Campogalliani á Ítalíu. Fyrsta
stóra óperuhlutverk sitt söng hún
við La Fenice leikhúsið á s.l. ári.
Hún hefur sungið með R.A.I. sin-
fóníunni í Mílano bæði fyrir sjón-
varp og útvarp. Hennar sérstæða og
fagra rödd (sopra acúti) hefur vak-
ið mikla athygli, og mun hún á
næstu árum syngja í óperum í
Frakklandi, Italíu og í Þýskalandi.
Kristján Jóhannsson er Akur-
eyringur, sonur hins landsþekkta
söngvara Jóhanns Konráðssonar.
Hann hóf söngnám við Tónlistar-
skólann á Akureyri hjá Sigurði
Demetz Franzsyni árið 1974, en fór
síðar til Ítalíu, og hefur lært hjá
söngkennurunum Giami Poggi,
Ettore Campogalliani og Ferruccio
Tagliavini. Kristján hefur þegar
sungið á tónleikum og í óperum
víða um Evrópu, og er eini íslend-
ingurinn, sem sungið hefur í Scala í
Mílanó, bæði í Verdi söngkeppn-
inni 1980 og einnig nú fyrir nokkr-
um vikum. Á söngnámskeiði í
Salzburg var Kristján valin úr hópi
á fjórðahundrað einsöngvara til að
syngja á lokatónleikum þar. Kristj-
án söng í óperunum II tabarro og
Giami Schicchi eftir Puccini á síð-
asta ári, sem var stjónvarpað að
hluta. FrammisTaða Kristjáns í
óperunni La Bohéme í Þjóðleik-
húsinu á s.l. vori vakti mikla hrifn-
ingu.
Tónlistarfélag Akureyrar hefur
annast undirbúning tónleikanna á
Akureyri, og fá áskriftarfélagar
miða með 25% afslætti, sem af-
greiddir eru miðvikudagskvöldið
11. nóv. kl. 20-22 í húsi Tónlistar-
skólans Hafnarstræti 81 3. hæð, en
þeir sem ekki hafa komist þangað
geta fengið miðana afgreidda við
innganginn. Almenn miðasala er í
Bókabúðinni Huld og við inngang-
inn.
Framsóknarfélag Akureyrar:
Jóhann Sigurðsson
kosinn formaður
Aðalfundur Framsóknarfélags
Akureyrar var haldinn 5. nóv-
ember s.l. í upphafi fundarins
minntist formaður féiagsins,
Jóhannes Sigvaldason, látinna
félaga, þeirra Eiríks Sigurðs-
sonar og Sigmundar Björns-
sonar
Fundarstjóri var kjörinn Sigurð-
ur Óli Brynjólfsson og fundarritari
Svavar Ottesen. Að lokinni inn-
töku nýrra félaga flutti Jóhannes
Sigvaldason skýrslu formanns,
Guðmundur Gunnarsson flutti
skýrslu gjaldkera og Jóhann Karl
Sigurðsson skýrslu blaðstjórnar
Dags.
Að loknum lagabreytingum fóru
frant kosningar og urðu niðurstöð-
Jóhann Sigurðsson.
ur þær, að Jóhann Sigurðsson var
kjörinn formaður félagsins og aðrir
í stjórn Inginiar Eydal, Sigrún
Höskuldsdóttir, Páll Jónsson og
Fjóla Gunnarsdóttir. Jóhannes
Sigvaldason og Guðmundur Gunn-
arsson gáfu ekki kost á sér til
endurkjörs. Þrír varamenn í stjórn
voru kosnir Þóra Hjaltadóttir,
Gísli Lórenzon og Jóhann Karl Sig-
urðsson. Þá voru einnig kosnir full-
trúar í fulltrúaráð og á kjördæmis-
þing framsóknrmanna í Norður-
landskjördæmi eystra, sem haldið
verður 13. ogl4. nóvember.
Að loknum kosningum voru um-
ræður um starfið framundan og
þau málefni sem líklegt er að verði
efst á baugi í komandi sveitar-
stjórnarkosningum.
HORSMA
snjóblásarar
til tengingar
á dráttarvélar
fyrirliggjandi
„Engum dyrum
verið lokað‘ ‘
„Það hefur ekki verið lokað nein- þess efnis að það telji ekki tímabært
um dyrum. Við töldum rétt að að stofna til nýs útibús frá Amts-
hreyfa við málinu og það verður bókasafninu í Glerárhverfi. Lárus
tekið upp síðar,“ sagði Lárus sagði að það væri brýnt að koma
Zophoníasson, amtsbókasafns- upp útibúi í Glerárhverfi, enda vex
vörður, um samþykkt bæjarráðs fólksfjöldi stöðugt í hvetfinu.
Vetrarfagnaður
í tengslum við kjördæmisþing
mun Framsóknarfélag Akureyrar
halda vetrarfagnað að Hótel
KEA laugardaginn 14. nóvem-
ber.
Fagnaðurinn hefst með borðhaldi kl. 20.00.
Halldór Ásgrímsson alþingism. og varaform.
Framsóknarflokksins flytur ræðu kvöldsins. Auk
þess söngur, grín og gaman. Dansað til kl. 02,00.
Miðar verða seldir á skrifstofu félagsins að Hafnar-
stræti 90, kl. 9-17 næstu daga.
Framsóknarfólk fjölmennið og skemmtið ykkur í
góðum félagsskap kjördæmisþingsfulltrúa.
HÖFUM ÚRVAL
VARAHLUTAí
LAND-ROVER
RANGE-ROVE
BIFREIÐAR
*
PÓSTSENDUM
SAMDÆGURS
Varahlutir, aukahlutir,
heildsala, smásala.
Þekking og reynsla tryggir þjónustuna.
IMHöldur
Varahlutaverslun Fjölnisgötu 1B, Akureyri
Sími 96-21365
--.
Ji
\
• Innifalið: „
Flug Akur.-Reykjav.-Akur.
Flugfar Keflav.-Gla.-Keflav.
Gisting í Reykjavík
Flugvallaskattur
FERÐASKRIFSTOFA AKUREYRAR HF
EDINBORG — GLASGOW
Ráöhústorg 3, Akureyrl Tel.: 25000
12- DAGUR - 12. nówember; 1,981