Dagur - 12.11.1981, Blaðsíða 4
Vélarhlutunum var rennt fram að dyrum P.O.B. þar sem lyftari tók við og sfðan krani,, sem hffði stykki fyrir stykkí
upp á vörubflspall.
Myndir: K.G.A.
Prentvel
Dags flutt
Á laugardag var prentvél Dags
flutt úr Prentverki Odds
Björnssonar, þar sem hún hef-
ur verið til húsa frá því hún var
keypt, í hið nýja húsnæði Dags
við Strandgötu, en þar mun
Dagur eftirleiðis verða prent-
aður. Setning, umbrot og
filmugerð verður áfram í
P.O.B. þangað til öll starfsemi
Dags og Dagsprents flyst í
Strandgötu um áramótin.
Á föstudag var hafist handa við
að hluta prentvélina í sundur og
önnuðust það Ársæll Ellertsson,
sem sjá mun um prentun blaðsins
á nýja staðnum, og Ken Morgan,
sérfræðingur frá bandaríska fyr-
irtækinu sem framleiddi vélina.
Lyftari, krani og þungaflutninga-
bíll voru notaðir við flutning á
vélinni.
Strax á laugardag var svo hafist
handa við að setja vélina saman á
ný og unnið hefur verið við að
leggja rafmagn og annað tilheyr-
andi að henni. Vélin hefur nú
verið reynd eftir flutningana og
þetta er fyrsta blaðið sem prentað
er á nýja staðnum.
Prentsalurinn er á neðri hæð
hússins að Strandgötu 31, en um
áramótin flytur ritstjórn Dags og
önnur starfsemi blaðsins á efri
hæðina, svo og setning, umbrot
og filmugerð. Verður þá öll starf-
semi Dags og Dagsprents h.f.
undir einu þaki.
öll stykkin komin inn á gólf og þá voru ekki liðnir nema fimm stundarfjórðungar frá þvi sfðasti hlutinn var fluttur út
úr P.O.B.
Eftir tengingu var vélin prufukeyrð og þetta blað er það fyrsta sem prentað er f henni eftir flutninginn.
W- Wjjk
4 - DAGUR - 12. nóvember 1981