Dagur - 12.11.1981, Qupperneq 5
Bílaleiga Akureyrar
„FLUGLEIÐIR UNDIR-
BYÐUR BILALEIGUR“
* og lofar hærri umboðslaunum til erlendra söluaðila en tíðkast hefur
Eigendur Bílaleigu Akureyrar
hafa ritað Steingrími Her-
mannssyni, samgönguráðherra
bréf, en í því vilja þeir vekja at-
hygli á því að á sama tíma og
Flugleiðir sækjast eftir fjár-
hagslegum stuðningi „undirbýð-
ur fyrirtækið bflaleigur hér á
landi og lofar einnig umboðs-
launum til erlendra söluaðila
sem eru mun hærri en tíðkast
hafa hér á landi a.m.k. um
háferðamannatímann, en það er
á tímabilinu frá júni fram yfir
miðjan ágúst.
Til staðfestingar á því að hér
er ekki um fyllyrðingar úr lausu
lofti gripnar leggjum við fram
hér með fylgirit sem staðfesta
þetta. Hér er um að ræða ljósrit
af telexskeytum sem farið hafa
á milli tiltekinna aðila erlendis
og Flugleiða“ segir í bréfinu.
„Með þeirri tilhögun að undir-
bjóða þjónustu sem sanngjamt er
að selja fullu verði til útlendinga
um háferðamannatímann kemur
flugleiðir þeim aðilum sem hafa
bílaleigu að aðalatvinnurekstri í
opna skjöldu og gera þeim alla
samkeppni með öllu óvinnandi.
Ekki þarf að benda á þá staðreynd
að auk þess hafa Flugleiðir lykil-
aðstöðu um alla sölu á þjónustu
hvað ísland snertir bæði varðandi
bílaleigu, hótelrekstur og fleira."
„Þykir okkur næsta óréttmætt að
slík framkoma skuli fá áheyrn og
undirtektir því að um leið og farið
er fram á styrk til Flugleiða grefur
fyrirtækið undan öðrum atvinnu-
rekstri á Islandi."
„Enn fremur hefir það heyrst að
Flugleiðir hyggist nú enn ætla að
gera alvöru úr því að stofan til
rekstrar á bílaleigu frá afgreiðslu
sinni við Akureyrarflugvöll um n.k.
áramót. Við sem stundum slíkan
rekstur í dreifbýlinu teljum slíkt
með öllu óviðunandi að svo stóru
félagi verði leyft að eyðileggja lífs-
afkomu okkar og starfsmanna
okkar, þar eð félag þetta flytur
flugleiðis flesta þá viðskiptavini
sem við veitum þjónustu. Og eru
Flugleiðum hæg heimatök að
bjóða viðskiptavinum sínum bíla-
leigubíla við flugafgreiðsluborð á
hinum ýmsu flugvöllum landsins.
Fyrirtækið Flugleiðir hlýtur að
geta vel við unað að hafa nær alla
aðkomuferðalanga til íslands, flest
hótel og öfluga og vel rekna bíla-
leigu í Reykjavík og þess má geta
hér og nú að við greiddum Flug-
leiðunt umboðslaun fyrir s.l. ár sem
nema lauslega áætlað um 32.000,00
íslenskum krónum af þeim bilum
sem söludeildir félagsins pöntuðu
hjá okkur."
Á mánudaginn opnaði verslunin Pedromyndir aftur eftir breytingar, hefur m.a.
stækkað nokkuð. Verslunarstjóri er Friðrik Vestmann. Pedromyndir er nú orðin
eina Ijósmyndavöruverslunin á landinu, sem býður upp á framköllun og kópier-
ingu á svarthvitum myndum. (Ljósm. KGA.)
„Sterkasti
maður
heims“
— sýnd í
Borgarbíói
Klukkan 15 á laugardag verður
kvikmyndin „Sterka ;ti maður
heims“ sýnd í Borgarbíói. Myndin
er um Reyni Leósson, sem á sínum
tíma sýndi ótrúlega krafta m.a. með
því að brjótast út úr rammgerðum
fangaklefa á Keflavíkurflugvelli og
lyfta vörubílum, slíta keðjur sem
þola yfir 6 tonna átak o.s.frv.
Einnig er í myndinni greint frá
uppfinningum Reynis. Myndin er
40 mínútna löng, en auk þess verða
sýndar myndir af lífshættulegum
akstri á fólksbíl sem Reynir fram-
kvæmdi, m.a. til að sýna hvernig
bregðast ætti við óvæntum
uppákomum á vegum. T.d. sýnir
Reynir þar útafakstur á miklum
hraða til að komast hjá árekstri,
með væntanlega mun alvarlegri
afleiðingum.
Reynir Leósson.
Nýtt
heildar-
skipulag
Unnið er að nýju heildarskipu-
lagi fyrir Raufarhöfn hjá skipu-
lagsstjóra ríkisins. Fyrsta verk-
efnið er að skipuleggja svæðið
neðan Aðalbrautar frá Hafnar-
götu suður að tjörn.
Víkurbraut liggur þar samhliða
Áðalbraut og hefur nú þegar verið
úthlutað einni lóð við þá götu til
Guðmundar Lúðvíkssonar, segir í
fréttabréfi frá Raufarhafnarhreppi.
Ennfremur kernur frant að unnið
hefur verið við breytingar á skipu-
lagi við Tjarnarholt ,og Melás.
Fiskvinnslustöð KEA
í nýja viðbyggingu
Gunnlaugur Ingvarsson lét í
haust af starfi frystihússtjóra
hjá Fiskvinnslustöð KFA í
Hrísey, og mun Jóhann Þ.
Halldórsson hafa það starf með
höndum framvegis ásamt starfi
útibússtjóra. í framtíðinni verð-
ur allt skrifstofuhald félagsins í
eyjunni til húsa í nýrri viðbygg-
ingu sem verið er að reisa við
frystihúsið og mun Jóhann hafa
þaðan umsjón með allri starf-
semi félagsins I Hrísey.
Hin nýja viðbygging er urn 400
fermetrar að stærð og mun bæta
mjög alla aðstöðu Fiskvinnslu-
stöðvarinnar. Á neðri hæðinni
verður fiskmóttökunni komið fyrir
og við það skapast svigrúm til að
hagræða allri vinnslunni frá því
sem nú er. Á efri hæð verða skrif-
stofur og starfsmannaaðstaða, sem
mjög brýn þörf var að bæta frá því
sem nú er, en starfsmannaaðstaða
Fiskvinnslustöðvarinnar hefur til
þessa verið mjög ófullnægjandi.
Rekstur Fiskvinnslustöðvarinnar
hefur gengið vel miðað við það sem
almennt gerist í landinu.
Almannavarnir á Akureyri:
Meira unnið
en víða á
öðrum stöðum
„Ég get ekki sagt annað en að
ég sé þokkalega ánægður með
ástandið eins og það er í dag,
því það verður að segjast eins
og er að Almannavarnanefndin
á Akureyri hefur starfað vel og
gert meira en margar aðrar
nefndir í Iandinu“ sagði Guð-
jón Petersen framkvæmda-
stjóri Almannavarnarnefndar
ríkisins í samtali við DAG.
Guðjón var á Akureyri um
helgina og átti þá fundi með
Almannavarnarnefnd Akur-
eyrar.
,',Neyðarskipulagið sem starfað
er eftir er mjög gott og stjórn-
stöðin í kjallara Lögreglustöðv-
arinnar á Akureyri er með þvi
besta sem þekkkist í þeim efnum
hér á landi. Það sem hins vegar er
brýnast að vinna að á Akureyri er
að koma upp viðvörunarkerfi og
ekki hefur verið unnin könnun á
skýlishæfu rými.“
Gísli Ólafsson er fram-
kvæmdastjóri Almannavarnar-
nefndar Akureyrar. Hann sagði í
viðtali við DAG að unnið væri að
því að koma á fót viðvörunar-
kerfi. Tilboð hefur borist í slíkt
kerfi erlendis frá, en það var mjög
hátt. Er nú unnið að athugun á
því hvort ekki fæst hagstæðara
tilboð frá innlendum aðilum. Þá
sagði Gísli að könnun á neyðar-
skýlum í bænum stæði yfir, og
væru þetta þau tvö verkefni sem
aðallega væri unnið að um þessar
mundir.
Ljós er að yfir höfuð eru mál í
góðu lagi hjá Almannavarnar-
nefnd Akureyrar, og að nefndin
hefur unnið vel og markvisst.
Helgi Bergs bæjarstjóri er
formaður nefndarinnar.
Þórhallur
sækir um
Þórhallur Höskuldsson. prestur á
Möðruvöllum, hefur sótt unt Ak-
ureyrarprestakall. Áður var Jón
Baldvinsson, prestur á Staðarfelli
búinn að sækja um brauðið. Um-
sóknarfrestur um Glerárhverfis- og
Akureyrarprestakall rennur út um
helgina.
Blásarar á
Norðurlandi
Trómet blásarasveitin, sern
skipuð er blásurum í framhalds-
skólum í Reykjavík er á tón-
leikaferð fyrir norðan um næstu
helgi.
Blásarasveitin leikur á Húsavik
12. nóvember og síðan í „Möðru-
vallakjallara" Menntaskólans á
Akureyri, sunnudaginn 15. nóvem-
ber og hefjast tónleikarnir kl. 5.
í hljómsveitinni eru 20 blásarar,
en stjórnandi þeirra er Þórir Þóris-.
son.
Efnisskráin er fjölbreytt, lög eftir
Bach, Gabrielli. Handel, Mozart.
Jón Ásgeirsson og að lokunt svíta
með lögunum úr túnskildingsóper-
unni eftir Kurt Weil. Aðgangur að
tónleikunum er ókeypis.
Kirkju-
dagur
á Akur-
eyri
Hinn 17. þ.m. eru liðin 41 ár frá
vígslu Akureyrarkirkju. Af-
mælisins verður minnst n.k.
sunnudag 15. nóv. Prófasturinn
séra Stefán V. Snævarr mun
prédika í messunni.
Safnaðarfólk hefir jafnan fjöl-
mennt í afmælismessurnar í þakk-
lætisskyni fyrir athvarfið í
kirkjunni og helgar stundir.
Kvenfélag kirkjunnar, sem unn-
ið hefir ómetanlegt starf fyrir
kirkjuna og lagt mikið fram til fegr-
unar henni, verður með fjáröfluo
þcnnan dag að Hótel K.E.A. Á
basarnum verður margt eigulegrij
muna, og kaffið þeirra félags-
kvenna og veislubrauðið hefir allt-
af verið rómað. Vonandi verður
þarna margt um manninn að venju.
Fréttatifkynnihg.
12. nóyember 1981 - DAGUR - 5