Dagur - 12.11.1981, Side 6
Nafnleysingjar og Johnny. Þessi hljómsveit var stofnuð 7. október 1965. F.v.
Kristján Gunnarsson lék á píanó. Hann kom fyrst fram með skólahljómsveit 1962.
Vilhelm V. Steindórsson lék á rythmagítar. Hann kom fyrst fram með skólahljóm-
sveit 1962. Vilhelm V. Steindórsson lék á rythmagítar. Hann kom fyrst fram með
Bössum 1964. Sitjandi er sjálfur Johnny — Jén Stefánsson — söngvari hljóm-
sveitarinnar. Þetta var f fyrsta skipti sem Jón kom fram á sviðið með hljómsveit.
I dagskrá hljómleikanna er stór auglýsing, en í henni stendur: „NAFNLEYS-
INGJAR OG JOHNNY ERU f FÖTUM FRÁ JMJ“.
Árni Þorvaldsson.
Þorvaldur
skírði
„Það var alltaf viss aðdáenda-
hópur sem fylgdi hljómsveitinni.
Gúi Kalli var fastur hjá okkur
sem nokkurskonar rótari. Launin
hans voru víst þau að hann fékk
að syngja á æfingum.“
Ámi fékk sér sæti og Kristján
hellti kaffi í bollann sinn. Sá síð-
arnefndi vinnur nú í mjólkur-
samlagi KEA, en hann spilaði á
orgel og Ámi sló á gítarstrengi
meðan þeir voru í poppinu. Eftir
nokkra sykurmola og góðan
skammt af Braga kaffi (það er
ekki boðið upp á annað en það
besta á ritstjórn Dags) kom í ljós
að Kristján hóf sinn tónlistarferil
í skólahljómsveit Gagnfræða-
skólans rétt eftir 1960. Árni byrj-
aði í Bössum sem var heilmikið
band, en það var ekki fyrr en
nokkrum árum síðar að hann
stofnaði Nafnleysingjana ásamt
þeim Vilhelm Steindórssyni, nú-
verandi heitaveitustjóra, Haraldi
Tómassyni, Sigurði Ringsted
(Sigurðar, bankastjóra), verk-
fræðingi hjá Slippstöðinni, Reyni
Adólfssyni, ferðaskrifstofueig-
andi á ísafirði og Jóni Stefáns-
syni, bifvélavirkja á Akranesi.
Kristján kom til sögunnar síðla
árs 1965 og um svipað leyti yfir-
gáfu skútuna þeir Reynir, Har-
aldur og Sigurður. Ásamt Krist-
jáni kom Sigurður Ringsted
(Baldvins tannlæknis). Að sjálf-
sögðu átti nafngiftin sér vissan
aðdraganda — hljómsveitin spil-
aði eitt sinn í pásu hjá Ingimar
Eydal og í hléi, þegar átti að
kynna þá pilta, spurði Þorvaldur
Halldórsson, söngvari, strákana
að því hvað hljómsveitin héti.
Þeim var stirt um svar og Þor-
valdur skírði krógann með það
sama: Nafnleysingjar.
Fengu gítara
að láni
Þeir félagar voru strax sam-
mála um að bítlatónleikarnir í
Nýja bíói þann 3. desember 1965
hefði verið hámarkið á þeirra
tónlistarferli. Þessir tónleikar
voru reyndar ekki þeir einu sinn-
ar tegundar því næsta vetur voru
aðrir sem ekki voru síðri á sinn
hátt.
Ekki virðist Dagur hafa haft
mikinn áhuga á þessu skralli
þann 3. desember 1965 því ekki er
hægt að sjá neitt um það í blað-
inu. Alls komu fimm hljómsveitir
fram, Comet, Treflar, Engir,
Geislar og Nafnleysingjar. Salur-
inn í Nýja bíói var fullur af
Kristján Gunnarsson.
skrækjandi ungmennum, sem
flest eru nú virðuleg foreldri sem
ekki mega vamm sitt vita. Um-
sjónarmaður tónleikanna, Har-
aldur Sigurðsson, kennari, reyndi
að sussa á liðið, sem „fílaði stað-
inn í botn“ eins og það heitir á
nútímamáli. Þessir tónleikar voru
ekkert einkaframtak Haraldar,
hann hélt þá fyrir K.A., og
hljómsveitirnar fengu bara
ánægjuna fyrir að koma fram.
Hver hljómsveit fékk einar 20
mínútur til umráða og það var
eins mikið pínt út úr hljóðfærun-
um og þau gátu látið í té.
„Ætli maður hafi ekki verið 17
ára þegar þetta gerðist og við
vorum afskaplega spenntir. Það
var ekki á hverjum degi sem við
gátum spilað á tónleikum. Húsið
var troðfullt. Þegar við byrjuðum
að spila var hávaðinn geysilegur
og það hefur sjálfsagt verið lítið
vit í fyrstu mínútunum. Ég var
ekki með mitt eigið hljóðfæri, það
var ekki hægt að hver hljómsveit
kæmi með sitt úthald og því fékk
ég orgelið hans Egils Eðvards-
sonar," sagði Kristján um upphaf
tónleikanna og Árni bætti því við
að hann og Vilhelm hefðu komist
að þeirri niðurstöðu að gítararnir
væru „ekki nógu fínir,“ og því var
gripið til þess ráðs að fá fallegri
gítara að láni. „Ég held að það
hafi ekki haft góð áhrif á þetta
heldur.“
Johnny syngur af mikilli tilfinningu.
Bítlatónleikar
í Nýja bíói þriðja desember 1965:
Engir hét hljómsveit. Hún var stofnuð veturinn 1960-61 og fram til 1965 hafði
hún heitið fjórum nöfnum: E.E., Echo, Lubbar og Engir. Tólf menn höfðu kom-
ið við sögu, en aðeins einn þeirra, Haukur, hafði verið með frá upphafi. í hljóm-
sveitinni voru: Júlíus Fossberg, Reynir Adólfsson, Egill Eðvarðsson og Haukur
Ingibergsson. Þetta voru miklir tónlistarmenn. Haukur iærði fyrstu gítargripin
4ra ára, Egill var 7 ára þegar hann byrjaði á píanó, en Reynir tók fyrstu gripin
með Nafnleysingjum.
Havaðim var geysi-
legur og lítið vit
í fyrstu mmutunum
r
r
Hljómsveitin Comet var stofnuð í júní 1965. Hún var þannig skipuð: Brynleifur
Hallsson, Theodór Hallsson, Óskar Kristjánsson og Bjarki Jóhannesson. Til
fróðleiks má geta þess að Bjarki hafði ieikið með Rúbín, Mánum og Comet,
Óskar aðeins með Comet, Theodór með Mánum og Comet og Brynleifur sömu-
leiðis.
6 - DAGUR - 12. nóvember198l