Dagur - 12.11.1981, Page 14
Akureyrarprestakall: Sunnu-
dagaskóli Akureyrarkirkju
verður n.k. sunnudag kl. 11 f.h.
Öll börn velkomin. Afmælis-
messa verður i Akureyrarkirkju
n.k. sunnudag kl. 2 e.h. Prófast-
ur Eyjafjarðarprófastsdæmis
séra Stefán V. Snævarr predik-
ar. Sálmar: 218, 300, 287, 286,
288. Kvenfélagið verður með
basar og kaffisölu að Hótel
KEA eftir messu. Messað verð-
ur á Fjórðungssjúkrahúsinu á
Akureyri n.k. sunnudag kl. 5
e.h. Sóknarprestur.
Laugalandsprestakall. Messað
verður að Grund, sunnudaginn
15. nóv. kl. 13.30 í Saurbæ 22.
nóv. kl. 14.00. Sóknarprestur.
Stórutjarnarskóli. Guðsþjón-
usta verður í Stórutjarnarskóla
sunnudaginn 15. nóv. kl. 14.00.
í lok æskulýðsmóts. Unglingar
syngja og tala og flytja helgi-
leiki. Fólk á skólasvæðinu hvatt
til að fjölmenna. Messukaffi í
boði unglinganna. Sóknar-
prestar.
Hjálpræðisherinn. Sunnudag kl.
17 er almenn samkoma að
Hvannavöllum 10. Mánudag
16. nóv. kl. 16 er heimilasam-
band fyrir konur. Verið vel-
komin. Fyrir börn er á sunnu-
dögum sunnudagaskóli kl.
13.30 (Hvannavöllum) og á
fimmtudögum fundur kl. 17.
(Strandgötu 21). Öll börn vel-
komin.
Kristniboðshúsið Síon sunnu-
daginn 15. nóv. sunnudagaskóli
kl. 11. Öll börn velkomin. Sam-
koma kl. 20.30. Anna María
Reinholtsen talar. Allir hjart-
anlega velkomnir.
Fíladelfía Lundargötu 12.
Fimmtudaginn 12. nóv. biblíu-
lestur kl. 8.30. Sunnudgur 15.
nóv. Sunnudagaskóli kl. 11 f.h.
Öll börn velkomin. Almenn
samkoma kl. 17. Allir velkomn-
ir.
I.O.O.F. 2 —16211138 Vi
I.O.O.F. Rb. 2 = 13111118 Vi =
9III
□ RtJN 598111117— 1
□ RÚN 598111138 = 2
I.O.G.T. Stúkan ísafold —
Fjallkonan nr. 1 fundur
fimmtudaginn 12. þ.m.kl. 9e.h.
í félagsheimili templara Varð-
borg. Fundarefni Vígsla nýliða,
vetrarstarfið. Eftir fund félags-
vist, kaffi. Æ.t.
Kvenfélagið Aldan heldur
muna- og köku- og laufa-
brauðsbasar í Freyvangi
sunnudaginn 15. nóv. kl. 3 e.h.
Kaffisala, hlaðborð. Allur ágóði
rennur til Systraselssöfnunar-
innar.
Kvenfélag Akureyrarkirkju
heldur basar og kaffisölu að
hótel K.E.A. sunnudaginn 15.
nóv. kl. 15.15. Kvenfélagskonur
eru beðnar að skila basarmun-
unum í kapelluna laugardaginn
14. nóv. kl. 14-16.
I.O.G.T. Bingo í hótel Varðborg
föstudaginn 13. þ.m. kl. 8.30
e.h. Stórglæsilegir vinningar.
I.O.G.T. bingo.
Félagsvist í kvöld. Spilum
félagsvist að Bjargi fimmtudag-
inn 12. nóv. kl. 20.30 í kvöld.
Mætum vel og stundvíslega og
tökum með okkur gesti. Allir
velkomnir. Spilavist Sjálfs-
bjargar.
I515| U.M.S.E.
mVfáfcj Blaðabingó.Nýjar tölur:
Basar og kaffisala verður í Dal-
bæ, heimili aldraðra á Dalvík,
sunnudaginn 15. nóvember og
hefst kl. 14. Á boðstólunum
verður handavinna heimafólks
og verður hún seld á föstu verði.
Einnig verða seldar kaffiveit-
ingar, sem undirbúnar eru af
starfsfólki og heimafólki í sam-
einingu. Ágóði af kaffisölunni
rennur í handavinnusjóð.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð við andlát og jarðarför
móður okkar og tengdamóður
RÓSU SIGURÐARDÓTTUR
Svalbarði Dalvík
Börn og tengdabörn.
Þökkum innilega auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og
útför
RÓSU JÓNSDÓTTUR
Þverá
Ari B. Hilmarsson
og aðrir vandamenn.
Faðir okkar \
JÓN HALLGRÍMSSON
lést á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri laugardaginr
31. október.
Jarðarförin hefur farið fram í kyrrþey.
Þökkum auðsýnda samúð.
Auður og Heiður Jónsdætur.
Faðir okkar
JÓN ÓLAFSSON
frá Ytri-Bakka
andaðist í Landsspítalanum 3. nóv.
Útförin fer fram frá Fossvogskirkju föstudaginn 13. nóv. kl.
13.30.
Steinunn J. Steinsen,
Gíslína Jónsdóttir.
Sveinbjörg Sigurðardóttir
Minningarorð
Fædd 16. nóvember 1905 - Dáin 3. október 1981
Þegar ég frétti lát Sveinbjargar að
morgni 3. október brá mér við, því
svo snöggt fannst mér þetta bera
að, því aldrei kvartaði hún þó lasin
væri.
Á þesnnan hátt hefði hún ör-
ugglega viljað fara hefði hún mátt
ráða, snögglega og hljóðlega, og
þurfa ekki að verða neinum til
byrði.
Hennar líf snerist fyrst og fremst
um að hjálpa öðrum og þegar hún
veiktist var hún stödd hjá systur
sinni norður í landi til að veita
henni liðsinni.
Okkar kynni hófust, þegar ég 11
ára gömul þurfti að fara að heiman
til að ljúka minni barnaskólagöngu
og vorum við samtímis á heimili
systur minnar sem gift er Friðbirni
syni Sveinbjargar.
Hún var ekki sú manneskja sem
lét auðveldlega tilfinningar sínar í
ljós, en sem barn fann ég fljótt að
hjá henni átti ég tryggan vin og
hefur sú vinátta haldist í 27 ár og
eigum ég og mín fjölskylda henni
margt að þakka.
Sveinbjörg var sérstæður per-
sónuleiki, hún var greind kona og
hafði lifandi áhuga á atvinnu- og
þjóðfélagsmálum.
Jafnréttismál voru henni afar
hugleikin, og finnst mér að hún sé
fyrsta og sannasta jafnréttis-
manneskjan sem ég kynntist, enda
gat hún talað af eigin reynslu, kom
sínum tveim börnum til manns og
mennta að mestu stuðningslaust,
þrátt fyrir heilsuleysi á sínum yngri
árum, og hefur það örugglega oft
verið erfitt.
Barnabörnin hafa misst mikið,
svo sterk ítök hefur hún átt í þeirra
uppeldi og umönnun.
Hún var heimilisföst hjá systur
minni og mági og sá um heimili
þeirra, þannig að sín uppvaxtarár
þurftu börnin ekki að líða fyrir
flæking og ókunnar hendur, þó
foreldrarnir ynnu báðir úti, enda
eru þau ömmu sinni til sóma, og á
hún þar ekki svo lítið lífsstarf að
baki.
Barnabarnabörnin fengu einnig
að njóta hennar, og voru þeir ófáir
dagarnir sem hún fóstraði þau og
var það ekki talið eftir.
Ég vil þakka fyrir að hafa kynnst
henni og fyrir allar góðu stundirnar
sem við áttum saman, fyrir öll
heilræðin sem hún gaf mér, þegar
ég stofnaði heimili, þau hafa komið
sér vel og að síðustu þakka ég fyrir
umhyggjuna sem hún veitti mér
sem barni fjarri mínum foreldrum.
Bjössi minn og Sissa,. Elsa og
Óskar, ég votta ykkur og börnun-
um mínar innilegustu samúðar-
kveðjur.
Sjana.
Kveðjuljóð Sigurður Geirfinnsson, Landamóti
Jarðsunginn 2. maí frá Ljósavatni,
Mörg eru lífsins Landamót Ehnþá hljómar í huga manns
lágirgarðar og háir. sú heiðbjarta söngrödd hann hafði
Af vinsemd kennir um vegamót og hlýða á meitlað málfar hans
afvarúð í merki spáir meðan við stétt hans tafði.
löggœslumaður við leiðamót, Aldreiskoðun tilskiptarans
sem löngum að umferð gáir. ískrúðfellda dulúðhann vafði.
Afgóðvild við sérhver gleðimót
til gœfublóma oft sáir. Úrdálitlu hverfi við deilum þér þökk
því dvölinni er lokið að sinni.
Fósturjörð öllum faðmslengd Ijær. Sorgin erfjarri. Aðeins kynleg klökk
Fer þar að gömlum lögum erum knúin af þakklátssemi.
- hvortsemhannheiðurskrossafœr - Og brúnin á fjallinu er blá, engin dökk
eða kynnist afhljóðlátum brögum. blika úr fjarlœgðinni.
En hvar sem að stendur bóndabœr,
byggður afhug órögum, Það bjarmar afvori yfir Köldukinn.
með tún sem um morgna glitrar oggrœr Klakinn svitnar um rinda.
- þaðgeymistílandnámssögum. Ihljóði er biðjandi hugurinn
til himinsins œðstu linda
Nágrannakvöð ber þér lítið Ijóð. að vorbláminn þíði veturinn
Það var líknsemd afgóðum kynnum. svo víkki til efstu tinda
Hversem á vöxtum á svo góðan sjóð og segl gefi nýtt og sigur þinn
með sólgullfrá drukknum minnum fyrirsumarsins kátu vinda.
hann vermist við minning, sem gefursvo góð,
og gleður hann mörgum sinnum. JónJónsson, Fremstafelli.
- ámnn uein.1. ' 1
Brúðhjón: Hinn 7. nóvember
voru gefin saman í Hjónaband á
Akureyri Harpa Jónsdóttir
verkakona og Guðjón Eiríksson
verkamaður. Heimili þeirra
verður að Búrfelli í Miðfirði.
ER LOKIÐ
75 ára varð laugardaginn 7. nóv.
Kári Baldursson skipasmiður
Laxagötu 4. Kári er fæddur á
Lómatjörn í Grýtubakkahreppi,
7. nóv. 1906. Hann er einn af
eigendum að skipasmíðastöð-
inni Vör h.f. og er enn í fullu
starfi.
Sé tekið tillit til stöðvunar um
jólin, þá er lokið svokölluðum
skrapdögum togara á Dalvík.
Togarinn Björgvin kom inn til
löndunar s.l. mánudag með 162
tonn af blönduðum afla, mest
ýsu. Frá áramótum hefur Björg-
vin komið með að landi 2252
tonn miðað við 3239 tonn á
sama tíma í fyrra. En eins og
flestir vita þá var togarinn frá
veiðum í um fjóra mánuði á
þessu ári vegna vélarbilunar.
Togarinn Björgúlfur hefur kom-
ið með að landi í ár 3184 tonn
miðað við 3311 tonn á sama tíma i
fyrra. Einnig hjá honum hefur vél-
arbilun valdið frátöfum frá veiðum
í þrjár vikur s.l. vetur.
Meðalafli togaranna Björgvins
og Björgúlfs í veiðiferð er um 125
tonn og er það heldur minni afli en
í fyrra. Hlutdeild þorsks er einnig
minni eða um 60% af heildarafla.
Því veldur aukin tilskipuð skrap-
veiði sem gerir bæði afkomu skip-
anna og vinnslunni erfiðara fyrir og
veldur aukinni birgðasöfnun.
Togarinn Dalborg er einnig bú-
inn með allt sitt skrap, en Dalborg
er einnig búin að veiða um 75 tonn
af rækju í ár og um 1300 tonn af
bolfiski. Að auki fór Dalborg í
söluferð erlendis og seldi um 70
tonn af óunnum afla fyrir viðun-
andi meðalverð eða um 9 krónur
hvert kg.
Framundan er því þorskveiði hjá
togurunum og aukin verðmæta-
sköpun. Mikill munur er á verð-
mæti þorsktúra og skraptrúa, bæði
varðandi verðmæti afla og afurða
eftir vinnslu.
14-DAGUR- 12, iióveihbér H 981