Dagur - 12.11.1981, Síða 15
Barnastúkan Sakleysið
95 ára á þessu ári
Á Akureyri starfa nú þrjár
barnastúkur og á ein þeirra,
Sakleysið nr. 3, 95 ára afmæli á
þessu ári. Gæslumenn stúkunn-
ar eru þau Sveinn Kristjánsson
og Sigurlaug Jónsdóttir. Mikið
verður um að vera í tilefni af
afmælinu og m.a. mun foreldr-
um og umráðamönnum þeirra
barna sem í stúkunni eru verða
boðið á heilmikla afmælishátíð.
Hinar tvær stúkurnar eru Von
og Samúð. Alls starfa um og yfir
100 börn í hverri stúku. Dagur
ræddi við Svein Kristjánsson í
tilefni af afmælinu.
Stofnuð 10. júlí 1886
„Starfssvæði barnastúkunnar
Samúð er á brekkunni, börn af eyr-
inni eru í barnastúkunni Sakleysið
og í Glerárþorpi starfar stúkan
Von. Barnastúkan Sakleysið var
stofnuð 10. júlí 1886 af Friðbirni
Steinssyni, en hann var aðalhvata-
maður að stofnun fyrstu stúkunnar
Sveinn Kristjánsson.
hér á landi. það var stúkan ísafold,
sem var stofnuð 10. jánúar 1884 í
Friðbjarnarhúsi, en það hús á nú
góðtemplarareglan á Akureyri og
er það minjasafn hennar. Ákveðið
hefur verið í tilefni af 95 ára afmæli
barnastúkunnar Sakleysið að halda
mikla afmælisveislu og þangað
verður foreldrum barnanna boðið
og fleirum. Pessi veisla verður í
þessum mánuði. Þar sjá krakkarnir
sjálf um skemmtiatriði, seinna
verður farið með krakkana í ferða-
lag, haldið verður dikótek og
stórbingó svo eitthvað sé nefnt.“
Samfélag barna
ogunglinga
Hvert er markmiðið með starfi
barnastúku? Það kom fram hjá
Sveini að barnastúka er samfélag
barna og unglinga undir leiðsögn
eins eða fleiri gæslumanna. Starfi
barnastúka er ætlað að miða að því
að hjálpa félögum til að forðast
áfengis- og tóbaksnautn, innræta
þeim góðvild í garð alls sem lifir,
venja þá á að vinna saman að góð-
um og gagnlegum málum, æfa þá í
fundastjórn og fundasköpum og
veita þeim holla og þroskandi
skemmtunog tómstundaiðju.
Á fundum sjá félagsmenn sjálfir
um atriði til fróðleiks og skemmt-
unar. Gæslumenn eru þeim til að-
stoðar og leggja stundum til efni.
Hver barnastúka er sjálfráð um
starf. Á fundum eru t.d. fluttir
leikþættir, farið í leiki eða glímt við
þrautir, spilað bingó eða félagsvist.
Dansæfingar hafa farið fram á veg-
um barnastúkna. Efnt hefur verið
til skemmtunar til styrktar líknar-
félögum og fleiri leiðir til fjáröflun-
ar í því skyni hafa verið farnar.
Fengnir hafa verið menn til að
kynna störf sín, félög éða stofnan-
ir. Vetrarstarf er gjarnan endað
meðferðalagi.
Böm og unglingar á aldrinurn 13
til 14 ára aldurs kunna vel við hið
sérstaka fundarform og þátttaka í
starfi er góð. Hins vegar er erfitt að
fá gæslumenn og háir það starfi.
Vormót fyrir norðan
Efnt hefur verið til vormóta á
vegum Unglingareglunnar undan-
farin ár norðanlands og sunnan.
Nyrðra hafa verið eins dags sam-
komur og m.a. hefur þar verið
kepptííþróttum.
Unglingareglan, sem er sam-
band barnastúkna Góðtemplara-
reglunnar er elsta starfandi félag
fyrir börn og unglinga hér á landi,
var stofnað í maí 1886 í Reykjavík,
átt frumkvæði að Viku gegn vímu-
efnum á barnaári 1979.
Þrjár stúkur fyrir
fullorðna
Sveinn var einnig beðinn um að
gera nokkra grein fyrirstúkum full-
orðinna á Akureyri. Hann sagði að
þær væru þrjár talsins, stúkan ísa-
fold nr. 1, stúkan Brynja nr. 99 og
Akurliljan nr. 275. Þær hafa nú
hafið vetrarstarf og eru með fundi
á mánudögum og fimmtudögum.
Fyrirhugaður er stór útbreiðslu-
fundur í vetur, en Góðtemplara-
reglan hefur samstarf við mörg fé-
lagasamtök. „Svo verða áfram hin
vinsælu I.O.G.T. bingó í Varðborg
í vetur,“ sagði Sveinn.
©NESTIN
Heitt kakó m/rjóma.
Milkshake um helgar.
GRILL
Hamborgarar á bakka með osti,
ananas, sósum, lauk, frönskum
kartöflum og hrásalati.
Hamborgarar í brauði með sósum
og lauk.
sþ Kaldar samlokur. Heitar samlokur.
íj: Is og Milkshake um helgar.
ÁTTU TÖMSTUNDIR?
Sænskar trévörur
Vorum að taka upp mikið úrval af
trévörum s.s. hillur, kertastjaka,
lampa og margs konar smávörur,
einnig mikið úrval af jólaskreytinga-
efni.
Gerið svo vel að líta inn.
IHANDVERKI Strandgötu 23,
--s,mi 25020.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 73., 76. og 79. tbl. Lögbirtingablaðs 1981 á
fasteigninni Tjarnarlundi 10B, Akureyri, þinglesin eign Birgis
Eiríkssonar, fer fram eftir kröfu Kristjáns Eiríkssonar hrl. og
Jónasar A. Aðalsteinssonar hrl. á eigninni sjálfri mánudaginn
16. nóvember 1981 kl. 16,30.
BÆJARFÓGETINN A AKUREYRI.
Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri óskar að ráða
LÆKNARITARA
á bæklunarlækningadeild, Vá starf.
Umsóknir skulu hafa borist framkvæmdastjóra í
síðasta lagi 19. nóvember 1981.
Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri.
Atvinna
Stýrimann og annan vélstjóra vantar á 150 tonna
bát sem fer á línuveiðar frá Ólafsfirði.
Upplýsingar í síma 62347 Ólafsfirði.
Atvinna
Matreiðslumaður óskast til starfa á Akureyri.
Áhugasamir leggi inn upplýsingar um fyrri störf á
afgreiðslu Dags fyrir 20. nóv. 1981 merkt A-81.
AKUREYRARBÆR
Starfskraft vantar
fyrir þroskaheft barn fyrir hádegi í Leikskólann Ár-
holt, æskilegt væri að umsækjandi væri þroska-
þjálfi.
Upplýsingar gefur forstöðumaður Árholts f. 26.
þ.m.
Dagvistarfulltrúi.
AKUREYRARBÆR
Húsvörður óskast
til umsjónar með leiguíþúðum í eigu Akureyrar-
þæjar.
Starfið felst í eftirliti með húseigunum, minni háttar
lagfæringum.
Hér er um fullt starf að ræða.
Uþþlýsingar um starf þetta veitir undirritaóur
Félagsmálastjóri Akureyrar, Strandgötu 19b sími
25880.
Félagsmálastjóri.
Afgreiðslustarf
í sérverslun
Óskum að ráða fyrir einn af viðskiþtavinum Vorum
starfsstúlku til afgreiðslustarfa.
Möguleiki er á tveim hálfsdags störfum.
Umsóknareyðublöð liggja frammi á skrifstofu vorri.
7I
■nnniraM
wwv, 'íi.ia
Ldl
Reikningsskil og
rekstrarráðgjöf
Kaupvangsstræti 4,
Akureyri
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 108. og 113. tbl. Lögbirtingablaðs 1980 og 3.
tbl. 1981 á fasteigninni Birkilundur 18, Akureyri, þingl. eign Frí-
manns Gunnlaugssonar, fer fram eftir kröfu innheimtumanns
ríkissjóðs og Iðnaðarbanka fslands h.f. á eigninni sjálfri þriöju-
daginn 17. nóvember kl. 17.00.
BÆJARFÓGETINN A AKUREYRI.
12. nóvember 1981 - DAGUR -15