Dagur - 12.11.1981, Side 16
DAGILJR
RAFGEYHAR
[ BlLINN, BÁTINN, VINNUVÉUNA
VEUIÐ RÉTT
MERKI
Björguðu
kindum
úr
sjálfheldu
Nú í sumar, eins og undanfarin
sumur, hafa verið taisverð brögð
að því að kindur hafi lent í
ógöngum að norðanverðu í
Tindastóli í snarbröttum giljum
og klettum þar sem illmögulegt
hefur verið að ná þeim úr sjálf-
heldunni.
í haust varð vart við margar
kindur í sjálfheldu þarna, og s.l.
sunnudag fóru félagar úr Björgun-
arsveitinni á Sauðárkróki ásamt
bændum á trillu að klettunum þar
sem kindurnar voru. Tókst þeim að
ná 18 kindum úr sjálfheldunni og
þrjár skutu þeir, þar sem ómögu-
legt var að komast að þeim og þær
voru bjargarlausar í sjálfheldunni.
Eftir voru 13 kindur sem engin leið
reyndist að ná eða skjóta.
Eins og fyrr sagði, komu menn
sjóleiðina að Tindastóli og fóru í
land í gúmbát. Tókst þeim að klífa
upp í klettana og gátu síðan komið
styggð að kindunum með því að
skjóta nálægt þeim þannig að þær
bröltu upp á klettabrúnina þar sem
aðrir menn voru fyrir og handsöm-
uðu þær. G.Ó.
Síðasta
blað fyrir
verkfall?
Fari svo sem horfir og verkfall
bókagerðarmanna skelli á um
helgina, er þetta tölublað
síðasta blað Dags fyrir það
verkfall.
Dagur kemur því ekki út n.k.
þriðjudag komi verkfallið til fram-
kvæmda, en sáralitlar líkur eru
taldar á að samninganefndamenn í
deilu bókagerðarmanna og við-
semjanda þeirra nái að afstýra
verkfallinu.
Steingrímur Hermannsson sjávarútvegsráðherra:
Ríkisstjórnin hefur samþykkt
tillögurnar um raðsmíði báta
— sem gerir Slippstöðínní á Akureyri kleift að vera með tvo
báta í smíðum í senn án þess að kaupendur séu fyrir hendi
„Mér list náttúrlega mjög vel á
þessar hugmyndir. Þær þýða að
þó að samdráttur verði i smíði
skuttogara á næstu árum þarf
ekki að koma til samdráttar í
innlendri skipasmíði,“ sagði
Gunnar Ragnars, framkvæmda-
stjóri Slippstöðvarinnar i viðtali
við Dag um fyrirhugaða rað-
smíði fiskibáta.
„Það komst verulegur skriður á
þetta mál þegar sjávrútvegsráð-
herra, Steingrímur Hermannsson,
kallaði mig á sinn fund í ágúst, en í
framhaldi af því myndaði hann
starfshóp, sem í voru Magnús
Ólafsson frá sjávarútvegsráðuneyt-
inu og Jafet Ólafsson frá Iðnaðar-
ráðuneytinu, auk mín sem fulltrúa
skipasmíðastöðvanna,“ sagði
Gunnar Ragnars ennfremur.
„Jú, það er rétt, ég kom á fót
þessum starfshópi eftir fund með
Gunnari Ragnars, þar sem ég
ræddi það við hann hvort hann
væri ekki tilbúinn til að setjast nið-
ur og reyna að móta ákveðnar
hugmyndir sem bæði skipasmíða-
stöðvar og útgerðaraðilar gætu sæst
á. Ég fól síðan Magnúsi Ólafssyni
að móta ákveðnar hugmyndir sem
bæði skipasmíðastöðvar og útgerð-
araðilar gætu sæst á. Ég fól síðan
Magnúsi Ólafssyni að leiða þetta
starf og við höfðum samband við
iðnaðarráðuneytið og buðum þeim
að vera með í þessum starfshópi,“
sagði Steingrímur Hermannsson, er
Dagur innti hann eftir aðdraganda
málsins.
Kjördæmisþing Framsóknarmanna i
Norðurlandskjördæmi eystra:
ATVINNUMÁL
VERÐA í
BRENNIDEPLI
Kjördæmisþing Framsóknar-
manna í Norðurlandskjördæmi
eystra verður haldið á Akureyri
um helgina, og er reiknað með
að á milli 70-80 fulltrúar muni
sækja þingið.
„Helstu mál þingsins verða ef-
laust tengd atvinnumálunum í
kjördæminu og í því sambandi mun
Þorsteinn Ólafsson viðskiptafræð-
ingur flytja framsöguræðu um orku
og iðnaðarmál“ sagði Snorri Finn-
laugsson, framkvæmdastjóri Kjör-
dæmisráðs Framsóknarmanna í
Norðuriandskjördæmi eystra.
„Þá verður rætt um það hvernig
standa skuli að framboðsmálum
fyrir Alþingiskosningar í fram-
tíðinni í kjördæminu.Fram mun
koma tillaga um að viðhafa próf-
kjör. Þá mun þingið eflaust fjalla
um tillögu S.-Þingeyinga um að
skipta kjördæminu í tvennt“ sagði
Snorri.
Allir þingmenn Framsóknar-
flokksins í kjördæminu munu sitja
þingið, og auk þeirra Halldór Ás-
grímsson varaformaður flokksins.
Þingstaður verður Hótel KEA og
fer þingið fram föstudag og laugar-
dag.
Sr. Birgir Snæbjörnsson sr^narprestur á Akureyri:
,Óskapleg'ar annir1
„Það er óhætt að segja að það
hafi verið óvenjulegar annir hjá
mér að undanförnu, enda má
segja að það sé fullt starf fyrir
þrjá menn, sem ég hef þurft að
inna af hendi“ sagði sr. Birgir
Snæbjörnsson sóknarprestur á
Akureyri í sanitali við DAG, en
Birgir hefur undanfarið verið
eini starfandi presturinn á
Akureyri.
„Það var feykilegt álag í okt-
óber. Þá skírði ég 18 börn, gifti 5
hjón og jarðaði 13 einstaklinga,
auk þess sem ég var með 10 mess-
ur. Það þurfti því að skrifa margar
ræðurnar og oft hófst það verk þeg-
ar aðrir voru að fara að sofa. Þá
reyndi ég . að vera búinn þegar
morgna tók.“
Sr. Birgir Snæbjömsson.
Birgir hefur einnig kallað saman
og hafið undirúning fermingar með
260-270 börnum, sem eiga að
fermast á Akureyri í vor. Það eru
öll fermingarbörnin sem prestarnir
þrír, sem verða starfandi hér eftir
áramótin, eiga að ferma, nema
fjögur börn úr Grímsey sem hrein-
lega hefur ekki verið hægt að ná til
ennþá sökum tímaskorts.
Birgir tjáði Degi að vonast væri
til að hægt yrði að halda prestkosn-
ingar á Akureyri fyrstu helgina í
desember. Þá yrði hægt að telja at-
kvæði 10. desember og svo yrði að
sjá til hvort hinir nýju prestar gætu
hafið hér störf um jólin. „Það
verða óskaplegar annir um jólin og
ef ég verð einn sé ég ekki betúr en
að það geti orðið um miðnæturgift-
ingar að ræða“ sagði séra Birgir.
„Ég er nú að senda þessar tillög-
ur til Fiskveiðasjóðs til umsagnar,
en ríkisstjórnin er búin að sam-
þykkja þær fyrir sitt leyti. Ég mun
einnig ræða þær á L.Í.Ú.-þingi í
næstu viku. Meginefni þessara til-
lagna er það, að reynt er að gera
íslenskum skipasmíðastöðvum
kleyft að keppa við erlendar, fyrst
og fremst með meiri lánafyrir-
greiðslu ef smíðað er innanlands.
Um er að ræða lán frá Fiskveiða-
sjóði, en einnig heimild til að taka
hagkvæm útflutningslán erlendis
vegna véla- og búnaðar og auk þess
lán úr Byggðasjóði, þannig að
heildarlánið gæti numið 90% af
smíðaverði. Jafnframt er ekki lok-
að fyrir smíði erlendis, en út á slík
lán er aðeins veitt hámark 61% lán.
Samþykkt var að veita ríkisábyrgð
fyrir fjórum skipum í senn. Hug-
myndin er sú að leyfð verði smíði
innanlands á 5-7 fiskiskipum á ári
næstu 3-4 árin, undir 39 metrum að
lengd og með vélarstærð undir
1000 hestöflum. Sem dæmi má
nefna, að Slippstöðin á Akureyri
getur haft tvö skip í smíðum án þess
að kaupandi sé fyrir hendi, sam-
kvæmt ríkisábyrgð,“ sagði' Stein-
grímur Hermannsson að lokum.
f Sérfræðingar
og launa-
viðræður
Nú eru hafnar viðræður laun-
þega og atvinnuveitenda. Ef að
líkum lætur verða samningar
þessara aðila gerðir enn
flóknari, illskiljanlegri. Innan
verkalýðshreyfingarinnar, svo
og hjá atvinnurekendum, er
rlsin upp stétt manna sem hef-
ur það eltt verkefni að skilja og
túlka samninga, sem eru orðn-
Ir svo flóknir að það er ekki á
færi nema lærðra manna að
vita um hvað þeir fjalla.
Flokkaskipting og skipting
innan flokka og prósenta hér
og prósenta þar, ásamt flókn-
um klausum á sérfræðinga-
máli fæðfr af sér enn flóknari
grelnar og svo koll af kolli. Sá
maður sem stingur upp á ein-
földun þessara hluta yrði án
efa hrópaður niður af báðum
aðilum, enda er atvinna sér-
fræðinganna í stórhættu ef fer
að rofa tll í samningaheimin-
um.
O Sprengja
í póstinum
Starfsmenn Bögglapóststof-
unnar á Akureyri hrukku illi-
lega við á dögunum er þeir
voru að ganga frá póstsend-
ingu austur á land. Þeir heyrðu
„tikk“ í einum bögglinum og
var engu Ifkara en að sprengja
væri i sendingunni. j örvænt-
ingu sinni opnuðu þeir pakk-
ann titrandi höndum, en þeir
gátu andað léttar þegar út úr
honum kom klukka sem Jón
Bjarnason úrsmiður á Akureyri
var að senda austur á land eftir
að hafa gert við hana.
£ Prestkosn-
ingar og aðrar
kosningar
Eins og kunnugt er verða
prestkosningar á Akureyri í
byrjun desember. Frambjóð-
endur eru þegar farnir að
kynna sig og sína, og einn
þeirra a.m.k. hefur sent kynn-
ingarbækling i hús í öðru
prestakallinu. Löngum hafa
verið um það skiptar skoðanlr
hvort prestkosnlngar ættu rétt
á sér og verður ekki tekin af-
staða til þess hér, en hitt er svo
aftur annað mál að það gætir
töiuverðs ósamræmis milli
ráðnlngarmáia presta og
flestra annarra opinberra
starfsmanna. Því þurfa t.d.
starfsmenn bæjarfógetaem-
bættisins ekki að bjóða sig
fram ef þeir hafa hug á starfi
hjá embættinu? Kennarar
þurfa ekki að bjóða sig fram og
ganga í gegnum þann hreins-
unareld sem kosningar af
þessu tagi munu vera, en þeir
og aðrir opinberir starfsmenn
ættu e.t.v. að gera það. Ef þetta
fyrirkomulag yrði tekið upp
ættu áhugamenn um kosning-
ar Ifka að fá næg verkefni við
hæfi.