Dagur - 18.12.1981, Page 15
PLÖTUR - PLÖTUR - PLÖTUR - PLÖTUR * - «»-
■s:Fr^r>rir
*■' 'ÍpJ $
... en hún snýst nú
samt
Flyt: Start
Stjórn upptöku: Jónas R.
Jónsson og Start
Nú hefur Steinar hf. gefið út
fyrstu stóru plötuna með rokk-
hljómsveitinni Start. Start hafði
áður gefið út eina tveggja laga
plötu sem fengið hafði nokkuð
góðar viðtökur. Liðsmenn Start
hafa lýst því yfir oftar en einu
sinni að þeir leggi áherslu á þungt
rokk. Það virðist þeim líka takast
bara vel á þessari plötu, sem nær
því að vera ansi heilsteypt út í
gegn. Hljóðfæraleikur er bæði
frísklegur og markviss og ber þar
mest á hljómborðsleikaranum
Nikulási Róbertssyni sem stund-
um fer hreint á kostum. Eiríkur
Hauksson er þó sá sem mest ber á,
á þessari plötu. Söngur hans er
mjög góður og lög hans á þessari
plötu eru með þeim bestu ís-
lensku rokklögum sem heyrst
hafa síðustu árin. Textar plöt-
unnar eru yfirleitt nokkuð góðir
því flestir þeirra eru meira en
innihaldslaust rugl sem alltof
margir íslenskir textar eru.
Sem sagt: Góð rokkplata með
góðri hljómsveit þar sem liðs-
menn hennar hafa greinilega lagt
sig fram við að gera hlutina sem
allra besta.
☆
Eins og þú ert
Flyt: Björgvin H., Róbert A.,
Gísii Rúnar, Jóhann H.,
Ragnhildur G. og Laddi
Útsetn. og stjórn upptöku:
Björgvin Halldórsson
Lög: T. Hall., Björgvin Hall-
dórsson o.fl.
Textar: Kristján frá Djúpalæk
Fálkinn hefur gefið út hljómplötu
sem er eins og þeir segja „fyrir
börn á öllum aldri. Það er hinn
þekkti hljómlistarmaður Björgvin
Halldórsson sem á stærstan hlut í
þessari plötu, því hann bæði út-
setur lögin og stjórnar upptöku
auk þess sem hann semur nokkur
laganna og syngur. Textana við
lögin héfur norðlendingurinn
Kristján frá Djúpalæk samið af
sinni alkunnu snilld og þeir ættu
ekki að valda neinum vonbrigð-
um. Það kæmi mér ekki á óvart
að þessi hljómplata ætti eftir að fá
þrumuviðtökur. Og hún ætti það
alveg skilið, því hún er mjög vel
gerð og er þannig unnin að hún
ætti að ná vel til hlustanda. Lögin
eru góð, og útsetningar Björgvins
eru góðar. Hljóðfæraleikur er
vandaður og sterkur en skyggir
þó aldrei á fjölbreytilegan söng
sem framreiddur er af sex úrvals-
söngvurum.
Bestu lög plötunnar eru „Öll
við skulum gleðjast“ sem er fall-
egt jólalag og „Það búa ýmis öfl í
þér“ sem Björgvin syngur, gott
lag við gullfallegan texta Kristj-
áns.
Sem sagt: Góð plata þar sem
tvinnast saman, góð lög og góðir
textar, góður hljóðfæraleikur og
góður söngur. Platan ætti því að
standa vel undir nafninu „stjörn-
ur jólanna“.
☆
BESSIBJARNASON
segir sögur og syngur fyrir börnin
Með töfraboga
Flyt: Graham Smith
Lög: Vmsir íslenskir höfundar
Útsetningar og stjórn upp-
töku: Ólafur Gaukur
S.G.-hljómplötur hafa gefið út
plötu með enska fiðlusnillingnum
Graham Smith.
Graham varð ungur þekktur
fiðluleikari í heimalandi sínu
bæði í klassískri tónlist og
popp-tónlist. Hann réðst til
Sinfóníuhljómsveitar íslands árið
1979 og leikur nú með henni.
Graham hefur áður leikið á
nokkrum íslenskum hljómplötum
en þetta er hans fyrsta einleiks-
plata. Með þessari plötu er farið
inná nýjar brautir í íslenskri
plötugerð. Það hefur lítið tíðkast
hér á landi að íslensk dægurlög
væru útsett fyrir og leikin af
hljóðfæraleikurum sem nær ein-
göngu stunda klassíska tónlist.
En þetta á vonandi eftir að
verða meira í framtíðinni því
platan er úrvalsgóð. Graham
Smith er greinilega mjög góður
tónlistarmaður og skilar hann
hljóðfæraleik sínum að mínu
mati frábærlega vel.
Útsetningar Ólafs Gauks eru
góðar, en það sem helst mætti
setja út á plötuna er að aðrir
hljóðfæraleikarar virðast sumir
hverjir standa Graham töluvert
að baki.
Bestu lög plötunnar eru „Jarð-
arfaradagur“ eftir Þóri Baldurs-
son og „Hrafninn“ eftir Gunnar
Þórðarson.
Sem sagt: Vönduð plata sem
mun verða sígild eign.
☆
Bessi Bjarnason
segir sögur og syngur
fyrir börnin
Lög: Magnús Pétursson
Ljóð: Kristján frá Djúpalæk
Aðstoð: Barnakór úr Mela-
skóla
Fálkinn hefur gefið út plötu með
Bessa Bjarnasyni þar sem hann
segir yngstu bömunum sögur og
syngur fyrir þau lög, sem tengjast
þessum sögum. Þessi plata er með
mjög svipuðu sniði og plata sem
kom út með Bessa fyrir um ári
síðan, og náði talsverðum vin-
sældum meðal bama.
Bessi les á þessari plötu nokkr-
ar smellnar sögur af sinni al-
kunnu snilld og með sínu
skemmtilega látbragði. Þar kenn-
ir margra grasa en þó eru þær
flestar um einhverja furðufugla
sem framkvæma ýmsa vitleysu.
Síðan syngur Bessi fyrir börnin
nokkur lög. Textana við þessi lög
hefur Kristján frá Djúpalæk
samið og tekst honum þar vel upp
sem endranær, og nær örugglega
vel til barnanna með þeim.
Magnús Pétursson píanóleikari
hefur samið lögin á plötunni og
eru þau einföld og létt fyrir alla
sem vilja raula með. Barnakór
Magnúsar úr Melaskóla aðstoðar
Bessa við sönginn.
Sem sagt: Einföld og skemmti-
leg plata fyrir yngstu hlustend-
urnar og örugglega góð barnapía.
augsson
Við jólatréð
Flyt: Gunnar Þórðarson, Þor-
geir Ástvaldsson, Magnús
Ólafsson, Björgvin Halldórs-
son, Helga Möller, Páll Ó.
Hjálmtýsson, börn og jóla-
sveinar.
Stjórn upptöku og útsetn.:
Gunnar Þórðarson
Hugmynd og lagaval: Þorgeir
Ástvaldsson
Fálkinn hefur gefið út sína jóla-
plötu í ár. Þar hefur hann fengið
til liðs við sig fremstu tónlistar-
mennina í dag, með Gunnar
Þórðarson í broddi fylkingar.
Jólaboð
Flyt: Haukur Morthens
Upptökustjórn og útsetning-
ar: Eyþór Gunnarsson
Hljómplötuútgáfan Steinar hf.
hefur gefið út jólaplötu með hin-
um síunga Hauki Morthens.
Haukur mun vera elsti dægur-
lagasöngvari landsins sem enn er
að og hefur hann sungið óteljandi
lög á tugum platna. Þetta mun til
dæmis aldeilis ekki vera í fyrsta
skipti sem hann syngur inná jóla-
plötu. Þær eru orðnar nokkrar.
Á þessari plötu hefur Haukur
fengið til liðs við sig nokkra unga
hljómlistarmenn, sem flestir eru í
hljómsveitinni Mezzoforte. Auk
þess sem þeir sjá um allan hljóð-
færaleik hefur einn þeirra, Eyþór
Gunnarsson, séð um allar útsetn-
ingar. Óhætt er að fullyrða að
Eyþór er að verða með allra
fremstu hljómlistarmönnum
landsins og útsetningar hans á
þessari plötu eru mjög góðar.
Hljóðfæraleikurinn er einnig frá-
bær enda varla við öðru að búast
þegar liðsmenn Mezzoforte eru
annars vegar.
Og þá er það Haukur sjálfur.
Hann stendur alltaf fyrir sínu og
nýtur sín e.t.v. aldrei betur en
einmitt á svona jólaplötu. Hann
skilar textunum vel og setur á
allan hátt skemmtilegan jólasvip
á plötuna með fjölbreytilegum
söng.
Sem sagt: Skemmtileg og
vönduð jólaplata fyrir unga sem
aldna.
☆
Gunnar sendi einnig frá sér jóla-
plötu fyrir síðustu jól, svo að
margir hafa eflaust talið að nú
kæmi einhverskonar framhald.
Það er þó ekki, því þessi plata er
með talsvert öðrum tón. Á henni
er að finna nær allar gerðir jóla-
laga, flutt á mismunandi vegu af
ýmsum söngvurum. Þó virðist
Gunnar vera farinn að halla sér
töluvert í átt að hinum vinsælu
syrpum. En það kemur samt sem
áður bara vel út, þar sem sungin
eru gömul og vinsæl barnalög í
nýstárlegum útsetningum.
Annars eru önnur lög á plötunni,
allt frá hrjúfum jólasveinalögum
uppí róleg og hugljúf lög. Eins og
til dæmis „Jóladraumur“ eftir
Þorgeir Ástvaldsson. Og Gunnari
farast útsetningar einkar vel úr
hendi eins og fyrri daginn.
Hljóðfæraleikur er einfaldur og
stílhreinn og þar er Gunnar
einnig í aðalhlutverki. Söngvarar
eru góðir, Helga stendur alltaf
fyrir sínu og þeir Magnús og Þor-
geir eru hinir efnilegustu jóla-
sveinar. En einnig kemur Þorgeir
skemmtilega á óvart með ágætum
lögum sem hann hefur samið á
þessari plötu.
Sem sagt: Frískleg og fjöl-
breytileg jólaplata, sem enginn
ætti að vera svikinn af.
☆
Með helgum hljóm
Flyt: Karlakórinn Fóstbræður
Stjórnandi: Ragnar Björnsson
Umsjón með útsetningum:
Jón Þórarinsson
Stjórn upptöku: Sigurður
Rúnar Jónsson
Karlakórinn Fóstbræður hefur
gefið út hljómplötuna „Með
helgum hljóm" þar sem kórinn
flytur jólasálma af ýmsu tagi.
Það er ekki algengur hlutur nú
til dags í íslenskri hljómplötuút-
gáfu að kórar ráðist í að gefa út
slíka plötu. Hvað það er sem
veldur er ekki gott að gera sér
grein fyrir, en éflaust hefur það
eitthvað að segja, að jólalög eru
sifellt að færast í nýstárlegri bún-
ing og skyggja sífellt meira á þá
tónlist sem eldri er.
Það er því fagnaðarefni að
Fóstbræðramenn hafa ekki látið
hræðast heldur hellt sér í útgáfu
slíkrar plötu.
„Með helgum hljóm" er einkar
hátíðleg og hugljúf plata sem ætti
að koma hverjum manni í jóla-
skap og í nánari snertingu við
hátíðleika jólanna. Sálmarnir eru
fallegir og einkar vel fluttir af
þessum ágæta kór, sem svo oft
hefur heillað landsmenn.
Sem sagt: Hátíðleg og til-
komumikil jólaplata.
☆
srí*»*nii'
löo OATTAKPS
Skemmtilegustu lög
Gáttaþefs
Flyt: Ómar Ragnarsson
Útsetningar og stjórn undir-
leiks: Magnús Ingimarsson og
Jón Sigurðsson
Textar: Ómar Ragnarsson og
fleiri
S.G.-hljómplötur hafa nú endur-
útgefið nokkur af skemmtileg-
ustu lögunum, sem Ómar Ragn-
arsson söng inná nokkrar jóla-
plötur fyrir um áratug, í gervi
jólasveinsins Gáttaþefs. Þetta er
vel til fundið því mörg þeirra
barna sem nú hlakka hvað mest
til jólanna og bíða með eftir-
væntingu eftir jólasveininum
höfðu ekki tækifæri til að hlusta á
þennan bráðskemmtilega karl
sem alltaf er í góðu skapi. Gátta-
þefur fær til liðs við sig nokkur
börn sem hann talar við og syngur
fyrir, en einnig taka þau lagið
með honum. Gáttaþef karlinum
dettur ýmislegt í hug, svo út úr
þessu verður hin besta skemmt-
un. Þeir Magnús Ingimarsson og
Jón Sigurðsson útsettu lögin og
stjórnuðu hljóðfæraleik á sinum
tíma fyrir Gáttaþef og gera það
hér enn.
Það væri því vel til fundið hjá
foreldrum að stytta nú óþolin-
móðum börnunum sínum biðina
eftir jólunum og leyfa þeim að
skemmta sér með Gáttaþef ekki
síst ef það er haft í huga að plötur
eru nú hlutfallslega ódýrari en oft
áður og eru til að mynda mun
ódýrari núorðið en bækur.
Sem sagt: Skemmtileg jóla-
sveinaplata sem bömin ættu að
kunna vel að meta.
☆
ALLAR ÞESSAR HLJÓMPLÖTUR FÁST í VÖRUHÚSI KEA
ia. desember 1981- DAOUR - 15