Dagur - 06.01.1984, Síða 5
6. janúar 1984 - DAGUR - 5
The Rolling Stones
- Under Cover
Rás 4 - Ýmsir
/SPOR
Sjáið Stones
og deyið...
Eitthvað á þessa leið hljóðar
slagorðið sem endurómar um
heimsbyggðina í hvert sinn sem
The Rolling Stones taka sig til og
halda hljómleika. Stones eru lif-
andi goðsögn og hinir fertugu og
hálffimmtugu karlar í hljómsveit-
inni hafa sennilega aldrei verið
betri en um þessar mundir.
Undirritaður sá The Rolling
Stones á hljómleikum í Gauta-
borg í júní 1982 og dó ekki, en ég
. verð sennilega aldrei samur á
eftir. Stones eru ævintýri, Stones
eru lífsmáti og Stones eru líklega
besta rokkhljómsveit sem heim-
urinn hefur alið - með fullri virð-
ingu fyrir AC/DC.
Fjórar síðustu plötur Stones -
live platan undanskilin, hafa ver-
ið hver annarri betri. Some Girls
markaði tímamót á ferli Stones á
sínum tíma. Þar sýndu The
Glimmer Twins og félagar svo
ekki varð um villst að þeir gátu
spilað og samið fleira en bara
gamla Rolling Stones rokkið.
Hinir hárfínu „diskó-taktar“
lagsins „Miss You“ skutu Stones
upp á toppinn en þessa nýju tón-
listarstefnu fínpússuðu Jagger og
félagar á Emotinonal Rescue.
Þar brugðu þeir m.a. fyrir sig fals-
ettu-söng á listilegan hátt en
undir niðri drundi gamla góða
Rolling Stones rokkið á fullum
krafti. Tattoo You dró dám af
dauðri diskóbylgju og hinn nýi
Rolling Stones-stíll sem þar birt-
ist sló strax í gegn og það var
þessi stíll sem Stones settu á
oddinn á hljómleikaferðinni
1982. 125 þúsund manns á tvenn-
um hljómleikum í Gautaborg
urðu vitni að þessari
mestu rokk sýningu
heims - svo og
aðrar milljónir
víðs vegar um
heiminn.
Til að halda
dampi á liðinu
gáfu
Stones svo út hljómleikaplötu
vorið 1982 og hún hefur fram að
þessu dugað til að halda hita á
aðdáendum hljómsveitarinnar.
Og þá er komið að nýju plöt-
unni Under Cover. Öll lýsingar-
orð eru í raun óþörf utan eitt.
Under Cover er í orðsins fyllstu
merkingu frábær plata og líkt og
Emotional Rescue var punktur-
inn yfir Some Girls, þá er þessi
plata tvípunkturinn yfir Tattoo
You. Lagið „Undercover of the
night“ eitt nægir til að framkalla
fjóra á teningnum hér að ofan og
hin lögin fara létt með að .bæta
þeim tveim við sem á vantar.
„Undercover of the night“ er lag
af sama kalíber og „Satisfaction"
og sennilega eitt það allra besta
sem The Glimmer Twins - Jagger
og Richards hafa samið fram að
þessu. Mér er til efs að The Roll-
ing Stones geti mikið betur en
þetta. cse
Góðar umbúðir
Fyrst var það gamla Gufuradí-
óið, svo var það Rás 2, síðan Rás
3 og nú loks Rás 4. Um Gufu-
radíóið þarf ekki að fjölyrða -
það þekkja allir. Hér norðan
heiða fáum við ekki að hlýða á
Rás 2 en Rás 3 er líklega ein
besta safnplata sem út hefur
komið lengi. Rás 4 virkar þess
vegna eins og hálfgerður „antikli-
max“ svo notuð séu lærð erlend
orð en á íslensku útleggst þetta
þannig að þessi nýja safnplata sé
sár vonbrigði. Jafn slöpp og
þriðja rásin var góð.
Rás 4 ber þess reyndar öll
merki að þar fer jólasöluplata.
Það var snjallræði af útgefandan-
um að senda hana í fótspor Rásar
3 og árangurinn lét
heldur ekki á sér
standa. I könnun
sem Dagur gerði
fyrir jólin var Rás
4 söluhæsta
jólaplatan á
Akureyri og
Þessi vika
Superman ......................... Laddi
It’s A Jungle Out There . Bone Symphony
Only For Love ................... Limahl
Love Will Tear Us Apart ......... Chuzpe
Superstar ............... Lydia Murdock
So Long ................. Baraflokkurinn
Why Me ...................... Irene Cara
Love Reaction ................... Divine
Love How You Feel ........ Sharon Redd
This Is Not A Love Song ............ PIL
Síðasta vika 1
H
Á milli
tveggja elda -
Ýmsir/Fálkinn
vinsældir hennar hafa því a.m.k.
dugað fram á aðfangadagskvöld.
Það eru fjögur lög á Rás 4 sem
standa vel fyrir sínu en önnur lög
eru léleg eða tímaskekkjur af
verstu gerð.
í stjörnuflokkinn kómast
„Sunshine Reggae“ með Laid
Back, „Miðnætursól" með
Mezzoforte, „Hey you (the rock-
steady crew) með The Rock-
steady Crew og „Come back and
stay“ með Paul Young. Jóhann
Helgason leynir líka á sér með
laginu „Celia“ en hvað í ósköp-
unum BARA-Flokkurinn er að
gera með „I don’t like your style“
á þesari plötu er mér hulin ráð-
gáta. Þeir gáfu út splunkunýja og
firnagóða plötu á dögunum og
það hefði verið nær að leita í þá
smiðju.
Umslag Sveinbjarnar Gunn-
arssonar er líklega það besta sem
sést hefur utan um íslenska plötu
fram að þessu. Stílhreint, upplýs-
andi og fallegt og það hreinlega
biður fólk um að kaupa plötuna.
Gott hjá Sveinbirni hann hefur
svo sannarlega unnið fyrir kaup-
inu sínu að þessu sinni. ese
Eðli safnplötunnar?
Fálkinn gaf líka út safnplötu fyrir
jólin og nefnist hún Á milli
tveggja elda, eftir samnefndu lagi
Gunnars Þórðarsonar. Þessi
plata hefur orðið tilefni umræðna
um það hvernig safnplötur eiga
að vera og sýnist sitt hverjum.
Sú skoðun hefur orðið ofan á í
safnplötubisnessnum á íslandi að
safnplötur eigi að innihalda ný og
vinsæl lög og fylla með því móti
upp í tómarúmið sem lítil sem
engin sala og lítill sem enginn
innflutningur á litlum plötum
hefur skapað. Þegar litið er á
málin frá þessum sjónarhóli þá er
það auðvitað rétt stefna að safn-
plötur skuli vera eins konar „Top
of the pops-plötur“. En á það
má líka benda með jafn miklum
sanni að þær erlendu safnplötur
sem við höfðum fyrir tíð íslensku
safnplatnanna, s.s. K-Tel plöt-
urnar og ýmiss konar „nýbylgju-
safnplötur" voru ekki síður gefn-
ar út til þess að kynna nýja lista-
menn. Þessa leið hefur Fálkinn
valið að þessu sinni og það eina
sem þeir þurfa að kvíða er dómur
þeirra sem kaupa plötuna.
Ég fyrir mína parta er ekkert
yfir mig hrifinn af þessari plötu
og titillagið finnst mér heldur
klént. En inn á milli eru ágæt lög
s.s. „Union og the snake“ með
Duran Duran. Önnur renna
svona meira saman, sem ekki er
óeðlilegt á 14 laga plötu sem tek-
ur rúmar 53 mínútur í flutningi.
Það má því segja að á Milli
tveggja elda fái maður bæði
mikið og lítið fyrir peningana,
allt eftir því hvernig er á málin
litið. Stóra spurningin er bara sú
hvort þessi auglýsing verður til
þess að stóru plöturnar með við-
komandi listamönnum seljist
betur. Ef sú verður raunin þá
hafa Fálkar unnið sigur. ese
Akureyri - Nærsveitir
Ódýri JMJ markaðurinn
opnar aftur
föstudaginn 6. janúar
Allt yfirfullt af
vörum á gjafverði
ód íri
Gránufélagsgötu 4
^KKBIít^ 2. hæð
Svéudíud
SAMDANDSINS
Ármúla 3 Reykjavík S. 38 900
ELTEX lambamerkin eru gerö úr þunnri álplötu, meö
bognum járnpinna, sem stungiö er i eyraö og lokað.
ELTEX merkin fást áletruð (2X4 stafir) meö tölustöfum
og/eða bókstöfum.
Viö höfum selt þessi merki við góöan oröstýr í mörg
undanfarin ár, og veröum meö á lager merkjaraöir
1—1000. FÁST I LIT
Ef óskaö er eftir sérstimpluðum merkjum, vinsamlega
leggiö inn pantanir á varahlutalager okkar sem fyrst, og
ekki seinna en 15. janúar n.k.