Dagur - 06.01.1984, Qupperneq 7
„Eg ffla
Akureyri
í botn“
- Hver er á línunni?
- Ragnheiður Steindórs-
dóttir.
- Eða Elísa Doolittle?
- Já, þær eru hérna báðar
í einni og sömu manneskj-
unni.
- Hvor þeirra er sterkari?
- Já, það fer nú að verða
spursmál, ég kann alltaf bet-
ur og betur við Elísu með
hverri sýningunni.
- En hvernig gengur með
Higgins, er hann alltaf jafn
erfiður við Elísu?
- Já, já, hann fer alltaf í
sama farið sýningu eftir sýn-
ingu. Hann er erfiður til að
byrja með, en lagast svo
smátt og smátt og er orðinn
þolanlegur í lokin. En svo fer
allt í sama farið á næstu sýn-
ingu. Hann virðist ekkert
læra af reynslunni. Ég skil
þetta bara ekki!
- Já, karlmenn geta verið
svolítið þrjóskir og íhalds-
samir og svona hefur þetta
gengið í yfir 30 sýningar, en
er sýningin ekkert orðin
þreytt?
- Nei, síður en svo, ég
held hún hafi tekið framför-
um og sé enn að taka fram-
förum. Við erum farin að
þekkja hvert annað betur,
þannig að sýningin er farin
að renna í gegn eins og vel
smurð vél.
- Nú er áætlað að sýna
May fair Lady fram í miðjan
febrúar og jafnvel lengur, ef
aðsókn verður góð. Hvernig
tilhugsun er það?
- Mér finnst stórkostlegt
að þetta skuli hafa gengið
Ragnheiður.
svona vel. En ég á að byrja
æfingar hjá Þjóðleikhúsinu
um miðjan febrúar, þannig
að ef sýningar ganga lengur
verð ég að fljúga á milli. Þá
verður maður bara að vona,
að veðurguðirnir verði
manni hliðhollir.
- Hvað tekur við?
- Það er annar söngleikur,
sem heitir Gays and dolls á
enskunni. Flosi Ólafsson er
þýðandi og ég hef grun um
að íslenska nafnið verði
„Gaurar og píur“ án þess að
ég vilji ábyrgjast það.
- Verður þú líka með
aðalhlutverk þar?
- Já ég leik eitt aðalhlut-
verkið, en þetta er ansi
fjölmenn sýning og vonandi
verður mikið „fútt“ í henni.
Ég leik unga stúlku sem er í
Hjálpræðishernum og ætli
hún tæli ekki einhvern „gaur-
inn“ í herinn.
- Þú varst byrjuð að æfa
Steinunni í Galdra-Lofti, en
nú hefur þeirri sýningu verið
frestað til næsta veturs. Eiga
Akureyringar von á því að
sjá þig þá á fjölunum í gamla
Samkomuhúsinu aftur?
- Ég vona það svo inni-
lega, en þar á ég undir ráða-
menn Þjóðleikhússins að
sækja og þeir geta ekki sagt
um það strax, hvort það get-
ur gengið. En mér þætti það
ansi skítt að vera búin að
kynnast Steinunni svona vel,
en fá síðan ekki að leika
hana. Þetta er svo skemmti-
legt hlutverk.
- Snúum okkur aftur að
My fair Lady, hvað gerir
Elísa, nei fyrirgefðu, ég
4ÉP?
; v..
meina Ragnheiður, á milli
sýninga?
- Það hefur verið í nógu
að snúast, því við vorum að
æfa Galdra-Loft og svo hef
ég verið að kenna leiklist í
Menntaskólanum sem val-
grein. Það hefur verið ein-
staklega skemmtileg reynsla,
því krakkarnir eru svo
áhugasamir og skemmtilegir
félagar.
- Nú ert þú búin að vera
á Akureyri síðan í ágúst,
hvernig „fílar“ þú Akureyri?
- Ég „fíla“ Akureyri alveg
í botn. Þetta er búinn að vera
mjög góður tími. Það er
meiriháttar „kikk“ hvað það
er fallegt hérna. Auk þess
hefur verið svo stillt og fal-
legt veður lengst af í vetur.
Ég hef fengið mikið út úr
því. Því miður hef ég ekki
komist á skíði enn, en ég
vona að úr því rætist. Mér
hefur því liðið mjög vel á
Akureyri.
- Að lokum, hvernig
endar þetta með Elísu og
Higgins, hefja þau búskap?
- Ég þori nú ekkert að
fullyrða um það, en ég veit
að Bernard Shaw hafði ekki
slíkt í huga þegar hann samdi
leikritið „Pygmalion". En
þessi söngleikur er miklu
rómantískari og fólk má al-
veg lesa inn í hann róman-
tískan endi, ef það er þannig
stemmt. Það er mér að
meinalausu, því hann Arnar
minn er heilmikill „sjarmör“.
- Þá höfum við það. Ég
þakka þér fyrir spjallið og
vona að ykkur gangi vel í
kvöld.
- Sömuleiðis, þakka þér
fyrir, og hafðu það gott.
EL
WL
Harmonikuunnendur
við Eyjafjörð
Fjölskylduskemmtun verður á sunnudaginn 8
janúar í Sjallanum kl. 3 e.h.
Kaffi, kökur og gosdrykkir.
Félagar, takið með ykkur nikkuna og munn■
hörpuna.
.... 1 <
Tilboð óskast
í Citroen GS árg. 77 sem er skemmdur eftir um-
ferðaróhapp.
Upplýsingar gefur Svanlaugur á B.S.A. verkstæð-
inu.
Tilboð berist fyrir 10. jan. næstkomandi.
Almennar tryggingar h.f.
......... I I I ■■■, , 4
Konur!
Námskeið í
vaxtarrækt hefst í
íþróttahöllinni
9. janúar.
Kennt verður tvisvar
í viku, mánudaga og
fimmtudaga.
Námskeiðsgjald 500 kr.
Einnig minnum við
á almennan
opnunartíma
17.00-22.00 virka daga.
Nú er rétti
tíminn
Stofnfundur félags áhugamanna um vaxtar-
rækt og lyftingar verður haldinn í H-100
laugardaginn 7. janúar kl. 16.00.
Tilkynning
Það tilkynnist hér með, að Skjaldborg hf. Akureyri
hefur selt prentsmiðju sína, Prentsmiðju Björns
Jónssonar, og hættir rekstri hennar nú um ára-
mótin.
Um leið og við færum hinum fjölmörgu viðskipta-
vinum okkar bestu þakkir fyrir góð viðskipti í 151/2
ár, beinum við vinsamlega þeim tilmælum til
þeirra, að þeir láti hina nýju eigendur, Ragnar
Ragnarsson og Halldór Hauksson, njóta viðskipt-
anna áfram.
Þá viljum við geta þess, að Bókaútgáfan Skjald-
borg hefur flutt starfsemi sína í Hafnarstræti 75
(áður Kassagerð KEA) og verður símanúmer
Skjaldborgar áfram 24024 en, Prentsmiðja Björns
Jónssonar er með nýtt símanúmer 26511.
Virðingarfyllst,
Skjaldborg hf.
SSQfV urrr PRENTSMIÐJA BJÖRNS JðNSSONAR
I IwWl r HAFNARSTHÆTI 67 • POSTHOLF 3T3 • 602 AKUREVRI