Dagur - 06.01.1984, Page 11
6. janúar 1984 - DAGUR -11
Veröi það úr, að hér verði tek-
ið upp kvótakerfi, þá er fáránlegt
að miða kvótann undantekningar-
laust við afla skipsins undanfarin
þrjú ár. Við getum tekið Þorstein
Vilhelmsson frænda minn sem
dæmi. Á hann að gjalda þess að
hann er kominn með vel búið og
endurbætt skip í hendurnar. A
hann einungis að fá að veiða ein-
hverja hungurlús, af því að skipið
hefur lítið verið að veiðum þessi
þrjú ár, þrátt fyrir að hann hafi
verið einn af aflahæstu skipstjór-
um landsins á sama tíma, en á
öðru skipi? Hvaða réttlæti er í
slíku?“
- En þorskunum hefur fækkað
í sjónum; hvernig á þá að tak-
marka veiðina?
„Pað má gera það með allt öðr-
um og áhrifaríkari hætti heldur
en kvóta. Til að byrja með mætti
binda skipin við bryggjur í fimm
vikur í sumar, á meðan áhafnirn-
ar fara í sumarfrí. Það má einnig
lengja frí um jól og áramót, enda
veður þá oft verst og úthald
dýrast. Það má einnig lengja
landlegur á milli túra. Petta er
mun einfaldari og sanngjarnari
leið til að minnka sóknina í
fiskinn," sagði Porsteinn Már
Baldvinsson.
$ Gott sjóskip
„við fengum slæmt veður í
túrnum, en Akureyrin reyndist
gott sjóskip og við gátum unnið
af fullum krafti við fiskvinnsluna,
þrátt fyrir haugasjó,“ sagði
Oddur Arnason, háseti á Akur-
eyrinni, eftir fyrsta túrinn. Þá
kom skipið að landi með um 80
tonn, þar af um 60 tonn af flök-
uðum þorski og ýsu, en afgangur-
inn var mest heilfryst grálúða.
Oddur var áður á Kaldbak, en
hann og fleiri skipsfélagar hans
þar fylgdu Þorsteini yfir á Akur-
eyrina. Oddur var spurður hvern-
ig honum líkaði við ný vinnu-
brögð, þar sem aflinn væri nú
fullunninn um borð.
„Við höfum verið að læra á
þetta vinnslukerfi í fyrsta túrnum
og það sem af er líkar mér þetta
bara mjög vel. Þetta er eins og
hver önnur frystihúsavinna,
nema hvað frystihúsið er á floti
og er því á misjafnlega mikilli
hreyfingu. Við blóðgum fiskinn
til að byrja með, en síðan þarf
hann að blóðrenna í um það bil
hálfan tíma. Síðan er hann haus-
aður, flakaður, snyrtur, pakk-
aður og frystur. Með því að vinna
aflann beint úr sjónum fæst topp-
verð fyrir hann. Það er ekki hægt
að fá hann nýrri til vinnslu. Petta
kemur okkur skipverjunum til
góða í auknu aflaverðmæti.“
- Höfðuð þið vel undan í
vinnslunni?
„Já, það mátti heita svo, enda
getum við svolítið hagað seglum
eftir vindi í því sambandi. Ef
hann er tregur, þá vinnum við
þorskinn fyrir Bandaríkjamark-
að, því það er seinlegra, sérstak-
lega vegna þess að það þarf að
ná hverjum einasta ormi úr flök-
unum ef mögulegt er. En sé fiski-
ríið gott verkum við þorskinn
fyrir Evrópumarkað, vegna þess
að það er fljótlegra, því þá þarf
ekki annað en roðdraga flökin og
snyrta þau til. Ormarnir mega
fara með.“
- Hvernig er „kallinn“?!
„Ég kann vel við Steina, enda
hefð ég ekki farið með honum
annars yfir á Akureyrina. Hann
er röggsamur strákurinn og hefur
áhuga á því sem hann er að gera.
Og hann hefur alla tíð verið fisk-
inn og ég er viss um að sú lukka
fylgir okkur á Akureyrinni,“
sagði Oddur Árnason í lok sam-
talsins. gs
Arngrímur Brynjólfsson merkir umbúðirnar.
Hér er Knútur Eiðsson með fiskinn frágenginn og pakkaðan.
Heiðar vigtar flökin.
fHtlffllílflfllill f!HiminilTTmm»w
c
LLUILIUI^
Sindrafell hf.
Draupnisgötu 1 - Símar (96)25700 og 25701 - P.O. Box 649 - 602 Akureyri.
Til leigu eða sölu
Iðnaðarhúsnæði Sindrafells hf. að Draupnis-
götu 1, Akureyri er til leigu eða sölu.
Húsnæðið leigist eða selst í heilu lagi eða í
smærri einingum. Einnig kemur til greina að
skipta á húseigninni og minna húsnæði (400-500
m2).
Húsnæðið er samtals 1.201 m2, 6.596 m3. Lóðin
er 4.580 rrT. Heimilt er að byggja til viðbótar á lóð-
inni 500 m2 húsnæði.
Húsnæðið skiptist í þrjár aðaleiningar:
1. Skrifstofuhúsnæði ásamt snyrtingu og að-
stöðu starfsfólks samtals 138 m2.
2. Skáli I samtals 469 m2. Mesta lofthæð 4,6 m.
3. Skáli II samtals 594 m2. Mesta lofthæð 6,4 m.
í skála II er 3ja tonna hlaupaköttur og vörulest-
unargryfja.
Upplýsingar veitir Þorsteinn Þorsteinsson í
síma 25701.
IL / ramsóknarmen ikureyri n
Framsóknarfélag Akureyrar Bæjarmálafundur verður haldinn í Strandgötu 31 mánudaginn 9. jan. kl. 20.30. Fulltrúar í nefndum eru sérstaklega hvattir til að mæta.
NÚ ER
FROST OG SNJÓR
Á FRÓNI...
EKKERT
SNJÓSLEÐAR
ÞEYSAST UM LANDIÐ
VÉIADEILD SAMBANDSINS
Ármúla 3 Reykjavík Sími38900