Dagur - 30.03.1984, Qupperneq 7
30. mars 1984-DAGUR-7
r
, ySópran-
söngkonur
eru í kippum
Katrín Sigurðardóttir, sópransöngkona,
er á „línunni“, en hún heldur konsert
á Húsavík á sunnudaginn
- Katrín Sigurðardóttir?
- Já, það er hún.
- Sópransöngkona?
- Já, það er rétt.
- Ætlaðir þú ekki að verða
píanóleikari?
- Jú, ég byrjaði að læra píanó-
leik þegar ég var 8 ára heima á
Húsavík og lauk síðan námi sem
tónmenntakennari frá Tónlistar-
skólanum í Reykjavík.
- Fór þá að hallast yfir í
sönginn?
- Já, það má segja að þá hafi
söngurinn tekið við. Ég fór í
Söngskólann í Reykjavík. Að
vísu var ég við kennslu heima á
Húsavík í millitíðinni, en sótti allt-
af tíma suður. Loks flutti ég al-
farið þangað og tók söngkennara-
próf frá Söngskólanum árið 1980.
Síðan hef ég verið um skeið við
framhaldsnám, bæði í Svíþjóð og
í Bandaríkjunum.
- Þú komst fyrst fram á sviði í
Meyjarskemmunni hjá Þjóð-
leikhúsinu fyrir tveim árum eða
svo, er það ekki rétt munað hjá
mér?
- Jú, raunar, og síðan hef ég
verið með þrjú hlutverk hjá ís-
lensku óperunni, í Töfraflaut-
unni, Nikkadó og Miðlinum í
vetur. En mitt aðalstarf núna er
söngkennsla við Söngskólann og
þar er ég einnig undirleikari.
- Það er sem sé ekki hægt að
lifa af söngnum?
- Nei, því miður.
- En það er draumurinn?
- Já, vissulega er það draumur-
inn.
- Sérðu fram á að hann rætist?
- Ja, ég bara vona að hann
rætist.
- Þá í íslensku óperunni?
- Það veit ég ekki, ég er hrædd
um að það verði ekki hægt að lifa
af söng við íslensku óperuna
næstu 10 árin. En kannski verður
það síðar, maður vonar það að
minnsta kosti og trúir raunar ekki
öðru.
- Ertu ánægð með þá þróun
sem orðið hefur í íslensku söng-
lífi undanfarín ár?
- Já, því undanfarin ár hafa ís-
lendingar sýnt vaxandi áhuga á
sönglist, sem má ekki síst þakka
tilkomu íslensku óperunnar. Þar
opnaðist grundvöllur fyrir því að
sýna meira, því áður hafði í mesta
lagi verið ein óperusýning á ári í
Þjóðleikhúsinu. Nú, það er stans-
laust eitthvað um að vera hér í
sönglistinni, það er aldrei dauður
tími.
- Nú er kominn nokkur reynsla
á íslensku óperuna, sem nú er á
sínu þriðja starfsári. Hefur starf-
semin verið eins og þig dreymdi
um þegar ýtt var úr vör?
- Já, ég held að hún hafi starf-
að eins og við var að búast af slíku
ungviði. Hún á náttúrlega enn við
ýmsa erfiðleika að etja, t.d. er öll
aðstaða fyrir söngvara og aðra
starfsmenn við sýningar mjög
ófullnægjandi. En ég held að hún
hafi farið mjög vel af stað.
- Nú eigum við marga söngv-
ara, ekki síst sópransöngkonur, er
hart barist um hituna?
- Já, það eru margir um hit-
una, það er alveg rétt, og það
komast ekki allir að í einu. Og
það úir og grúir af sópransöng-
konum, þær eru framleiddar í
kippum. Auðvitað er samkeppni
á milli okkar, en ég vil ekki kalla
það harðan bardaga; það væri nær
að kalla það skemmtilegan bar-
daga, þvf vissulega er þetta bar-
átta.
- Ég frétti að þú værir að koma
norður með tónleika ?
- Já, ég ætla að syngja í Sam-
komuhúsinu á Húsavík á mánu-
daginn og að Ýdölum á þriðju-
daginn. Það fer svo eftir því
hvernig gengur hvort við förum
víðar. Þessir tónleikar verða ekki
með hefðbundnu formi, þannig
að ég á eftir að sjá í hvaða jarðveg
efnisskráin fellur.
- Hvernig eru þeir óvenjuleg-
ir?
- Þeir verða að því leytinu
óvenjulegir, að við ætlum að taka
þarna atriði úr Miðlinum, eins og
það kom fyrir á sviðinu í Gamla
bíói og þar nýt ég aðstoðar Viðars
Eggertssonar, leikara. Þar að auki
verð ég með íslensk og ítölsk lög
ásamt óperuaríum. Auk þess mun
undirleikarinn minn, Þorsteinn
Gauti Sigurðsson, leika einleik á
píanó. Efnisskráin verður því
fjölbreytt.
- Þú ert Húsvíkingur, það er
ekki rúm fyrir söngkonu þar?
- Nei, því miður.
- Færðu heimþrá?
- Já, mig langar oft heim í vík-
ina, því þar á ég rætur.
- Þú ert dóttir Sigurðar Hall-
marssonar og Herdísar Birgis-
dóttur, sem bæði eru kunn fyrir
leiklist á Húsavík. Þar að auki
áttu Hallmar Sigurðsson fyrir
bróður, sem hefur atvinnu af
leiklist. Er þetta eitthvað sem er í
blóðinu?
- Já, ég hugsa það, það er eng-
in leið til að losna við þetta; ég
held að það sé engin von til að
berja þetta niður, enda vona ég
bara að áframhald verði á. Það
var mikið sungið og spilað á mínu
æskuheimili og þegar fjölskyldan
hittist er um fátt annað rætt en
söng og leiklist.
- Hefur þú ef til vill unnið leik-
sigra á sviðinu í Samkomuhúsinu
á Húsavík?
- Nei, það get ég ekki sagt. Ég
komst þar einu sinni á svið sem
lítið barn og sagði eina setningu.
Því til viðbótar lék ég undir á
píanó þegar Fiðlarinn á þakinu
var sýndur á Húsavík. Þar
eru afrek mín með Leikfélagi
Húsavíkur upptalin.
- Manstu þessa setningu?
- Ha, ha, já það held ég, hún
var eitthvað á þessa leið: „Við
viljum vera kjurr, herra Puntila.
Það var nú ekki stórkostlegra en
það.
- Hvernig er að koma heim og
syngja?
- Ég hef einu sinni áður verið
með tónleika á Húsavík og það
var afskaplega erfitt; ég held að
ég hafi sjaldan verið eins nervus
eins og þá. Maður þekkir öll and-
litin sem maður sér í salnum;
þarna er Gunna og þarna er Jón
og þarna er fólkið hinumegin við
götuna og handan við hornið.
Maður er búinn að alast upp með
þessu fólki og maður heldur
kannsi að það líti enn á mann sem
Kötu litlu. En það er gaman að
koma heim og sigrast á þessu og
finna hlýhug og þakklæti fólksins
í víkinni heima. En konsertar þar
eru persónulegri en endranær og
þess vegna erfiðari.
- Ég vona aðykkur gangi vel á
sunnudaginn, þakka þér fyrir
spjallið Katrín. Bless.
- Þakka þér sömuleiðis. Bless.
- GS
Blómabúðm
Laufás auglýsii
111 fermingargjafa:
Meðal annars, skartgripaskrín, gullhringir, men, rúnaletur
lampar, styttur, málsháttaplattar og margt fleira. ^
★ ☆ ★ ^
Sænskar trévörur nvkomnar
★ ☆ ★
Vegna hagstæðra innkaupa getum við boðið úrvals
gróðurmold á 16 krónur pokann. -
Biðjið um KAMBAMOLD, það tryggir gæðin.
Gerið verðsamanburð.
Verslið þar sem er hagstæðast
Aukin þjónusta næsta mánuð (fermingarmánuður).
Opið í Hafnarstræti laugardaga 9-16 og 9-12 sunnudaga.
Næg bflastæði.
Blómabúðin Laufás
Bantam krani
Tilboð óskast í Bantam vírakrana.
Kraninn er mikið yfirfarinn og í góðu lagi.
Nánari upplýsingar veitir lagerstjóri í síma
96-21300.
Tilboð sendist til:
Slippstöðvarinnar hf.
c/o fjármálastjóri
Pósthólf 437, 602 Akureyri.
íbúðir til sölu:
Erum að hefja sölu á 10 íbúðum í
fjölbýlishúsi við Meiasíðu 2.
3ja og 4ra herbergja íbúðum fylgir bílskúrsréttur.
íbúðirnar seljast tilbúnar undir
tréverk, sameign frágengin.
Verð þ. 1. apríl 1984:
2ja herb. kr. 767.700,00
3ja herb. kr. 1.013.750,00
4ra herb. kr. 1.068.925,00
ATH:
Lán Húsnæðismálast. ríkisins þ. 1. jan. 1984.
Einhleypingar
2-4ra manna fjölskylda
5-6 manna fjölskylda
7 og fleiri
kr. 502.000,00
kr. 639.000,00
kr. 748.000,00
kr. 864.000,00
Draupnisgötu 7m
■'ö 96-23248 - Pósthólf 535 - 602 Akureyri.
Þökkum öllum þeim er sýndu samúð og hlýhug við andlát og
útför eiginkonu minnar, móður okkar, tengdamóður og ömmu
GUNNAR JÚLÍUSDÓTTUR
Grænugötu 12, Akureyri
Árni Stefánsson,
Júlíus Kristjánsson,
Stefán Árnason, Vaka Jónsdóttir,
Gunnlaugur Árnason, Bergþóra Guðmundsdóttir,
Ingibjörg Ösp, Gunnur Ýr og Elva.