Dagur - 25.05.1984, Qupperneq 3
25. maí 1984 - DAGUR - 3
Veiðileyfi
hérogþar
Sem betur fer eru alltaf til menn, sem
leyfa sér hugmyndaflug og byggingu
skýjaborga á góðum stundum. Slíkar
hugmyndir verða sjaldnast að veru-
leika, en þó kemur það fyrir, a.m.k.
reyna hugmyndasmiðirnir að koma
hugmyndum sínum í framkvæmd, þótt
óraunhæfar séu. Ég frétti til dæmis af
einum, sem seldi útlendingum veiði-
leyfi í Polli Akureyringa fyrir væna
fúlgu af dollurum. Síðan komu út-
lendingarnir norður um mitt sumar og
hugðust taka hvern stórfiskinn á eftir
öðrum á stöng úr Pollinum, enda sagði
sá er seldi veiðileyfin, að græðgin væri
slík í fiskinum, að ástæðulaust væri að
hafa fyrir agni á öngulinn. Þessu trúðu
útlendingarnir og veiðileyfin seldust
grimmt. Þetta heitir að koma hug-
myndum sínum í verð. Það skemmdi
heldur ekki fyrir, að veiðileyfin voru
prentuð á fínan karton með gulli. En
þó þessi ágæti maður hafi lofað fiski
sem ekki var til staðar, hvað þá að
hann hefði nokkurn veiðirétt á um-
ræddum stað, þá er ekki að vita nema
hann hafi slysast til að vera nokkuð
framsýnn. Hver veit nema Pollurinn og
Eyjafjarðará búi yfir ónýttum fiski-
ræktarmöguleikum, sem eigi eftir að
færa heimamönnum björg í bú. Eflaust
yrði það líka til að efla Akureyri sem
ferðamannabæ, ef hægt yrði að gera
Pollinn - eða lón og tjarnir tengdar
honum - að paradís fyrir stangaveiði-
menn.
Eingöngu
fyrir konur
Alltaf sækja konur á. Skemmst er að
minnast „krúttmagakvöldsins“ í
Sjallanum, en í Bandaríkjunum eru
þær enn stórtækari. Pað nýjasta þar
í landi eru sérstök bifreiðaverkstæði
fyrir konur, þ.e.a.s. bílana þeirra,
samkvæmt frétt í „Ökuþór". Á þess-
um verkstæðum fá karlmenn alls
ekki aðgang með sína bíla og kon-
urnar eru harðánægðar, segja
„kvennaverkstæðin“ mun betri og
þar að auki ódýrari en almennu verk-
stæðin. í dag eru komin um 1.300
verkstæði af þessu tagi í Bandaríkj-
unum og í hverjum mánuði bætast
ný við. Pessi verkstæði hafa eflaust
nóg að gera, því 33 milljónir kvenna
eru skráðir bifreiðaeigendur í
Bandaríkjunum að sögn „Moderna
transport".
Mikú barátta
um nwma-golf
Einn af boðberum einkaframtaksins,
Hreiðar vinur minn Jónsson, sótti um
heimild til að setja upp mini-golfvöll á
túninu fyrir sunnan sundlaugina á Ak-
ureyri. Iþróttaráð samþykkti það fyrir
sitt leyti og litlu munaði að bæjarstjórn
gerði það sama. En þá reis upp boðberi
félagshyggjunnar, Jón Sigurðarson,
morgunsundmaður með meiru, og vildi
að bæjarráð fjallaði nánar um málið.
Lét hann þess getið í leiðinni, að sér
þætti eðlilegra að sundlaugin setti upp
mini-golf á sundlaugarsvæðinu, enda
hefðu starfsmenn hennar lýst yfir vilja
til þess, en ekki fengið framkvæmda-
leyfi bæjarstjórnar. Nú, það var svo
fjasað eitthvað um málið í bæjarráði á
nokkrum fundum, svona ekki ósvipað
því er leiktækjamálið var þar til um-
ræðu forðum. Loks fékkst sú niður-
staða, að Hreiðari skuli ekki heimilt að
setja upp mini-golf á sundlaugarsvæð-
inu. Það er hins vegar ekki óhugsandi,
að Sundlaug Akureyrar verði heimiluð
slík starfsemi. Umsókn Hreiðars hefur
því verið til einhvers. Pess er því ef til
vill ekki langt að bíða, að morgunsund-
menn geti fengið sér einn mini-golf-
hring með sundinu. Pegar þar að kem-
ur skora ég á Jón Sigurðarson í einn
hring. Við komum okkur saman um
verðlaunin.
Ráðtil
þeirra sem
em þyrsúr
sí og œ
Þeim fjölgar stöðugt þessum „þorsta-
heftu“, eins og Flosi Ólafsson nefnir
þá sem á fínu máli eru kallaðir „óvirkir
alkohólistar". En sumir láta sér nægja
að halda í við sig - fyrir nú utan þá sem
aldrei láta það eftir sér að bragða
áfengi. Svo eru þeirlíka til, sem aldrei
langar í’ða, eftir því sem þeir sjálfir
segja. Einn ágætur vinur minn drakk
oftast viskí þegar hann bragðaði vín.
Ég hélt. að hann væri sælkeri og hefði
löngun í viskíbragðið. En það var nú
öðru nær. - Ég passa mig með að
drekka viskí vegna þess að mér finnst
það virkilega vont; þannig drekk ég
minna, sagði þessi ágæti vinur minn.
Þetta var hans ráð til að hefta þorstann
og eflaust ekki verra en önnur. En svo
má illu venjast að gott þyki!
Uppörvandi
starfsheiti
Ég fékk að sitja aftan á „kartöflunið-
ursetningarvél“ hjá góðum granna á
dögunum. Tvo þarf á slíka vél og
sessunautur minn var ung stúlka,
sem á ættir að rekja til höfðingja í
Öngulsstaða- og Saurbæjarhreppi og
hefur þar að auki gengið í skóla í
Hrafnagilshreppi. Horfir því vel með
framtíð stúlkunnar. Við ræddum um
starfsheiti okkar þennan dag. Ég
stakk upp á nöfnunum „kartöflu-
tæknir“, „sæðir“, eða jafnvel „útsæð-
ir“. En stúlkan mátaði mig alveg þeg-
ar hún benti á að eðlilegast væri að
nefna okkur „niðursetninga“, sem
væri eftirtektarvert starfsheiti í síma-
skrá, en um uppskerutímann í haust
fengjum við eflaust starfsheitið „upp-
takarar“ ef við héldum okkur við
kartöfluræktina áfram.
Fyrir daga
tanka-
vœðingarinnar
Þessi mynd er ekki svo ýkja gömul, en
þó sýnir hún starfshætti sem eru nær
horfnir. Það er Jóhannes Pálsson sem
er að hella mjólk úr mjaltavélakút í
brúsa um trekt með síu. Síðan var farið
með brúsann á brúsapallinn, en þangað
kom Bjössi á mjólkurbílnum og fór
með brúsann í samlagið, þar sem hann
var losaður. Svo kom Bjössi með brús-
ann til baka aftur, gjarnan með skyr-
slatta í og stundum fylgdi GT (Gamli
Tíminn) líka. Þetta er liðin tíð. Nútím-
inn er tekinn við. Mjólkin fer úr kúnum
um mjaltakerfin beint í kælitank. Síðan
ekur „Bjössi" á tankbílnum sínum
heim að fjósi og sækir mjólkina. Brúsa-
streðið tilheyrir liðinni tíð, sem betur
fer.
Sala á trjám og
runnum er hafin
Fjölbreytt úrval, hagstætt verð.
Plöntusalan er opin frá kl. 13—18 mánudag-föstudags og
kl. 14-16 laugardag og sunnudag.
Plöntur eru sendar ókeypis á Bögglageymslu KEA.
Heimsending gegn vægu gjaldi.
Skógrækt ríkisins Vöglum
Sími 23100. Símatimi kl. 10-12 daglega.
Aburðarkaupendur
Þar sem áburðarafhendingu lýkur 30. maí
nk. eru þeir sem eiga ótekinn pantaðan
áburð, vinsamlegast beðnir að sækja hann
fyrir lok mánaðarins.
Kaupfélag Eyfirðinga.
Héraðsskólinn Laugum
Námsframboð 1984-85.
9. bekkur.
Framhaldsskóli:
Fomám almenn iðnbraut.
Verknám tréiðna (2 ár).
íþróttabraut (2 ár).
Matvælatæknibraut (2 ár).
Málabraut (2 ár).
Náttúrufræðibraut (2 ár).
Uppeldisbraut (2 ár).
Viðskiptabraut (2 ár).
Símar skólastjóra: Skrifstofa: 96-43112.
Heima: 96-43113.
Umsóknarfrestur til 10. júní.
Héraðsskólinn Laugum, 650 Laugum.
Sóló-húsgögn
Sterk og stílhrein
Eldhúsgögn, borð, stólar, kollar
Einnig tilvaliö í kaffistofur, veitinga- og samkomuhús
Borð og stólar í öllum stærðum og gerðum
Alls kyns litir
og áferð
Allt eftir eigin vali
Hrísalundi 5