Dagur - 25.05.1984, Síða 17
25. maí 1984 - DAGUR - 17
,Jríöfum hug á
3 stigum
íí
— KA : Víkingur kl. 17 á morgun
Vegna sjónvarpsútsendingar
á leik Stuttgart og Ham-
burger á morgun hefur
leikur KA og Víkings verið
færður til og verður hann á
KA-velIi kl. 17.
„Við vonumst til þess að geta
sýnt áhangendum okkar betri
knattspyrnu en við gerðum á
vinsson þjálfari KA er við rædd-
um við hann um leikinn. Við
höfum fullan hug á því að ná
okkur í 3 stig í þessum leik.“
KA ætti að hafa góða sigur-
möguleika í þessari viðureign ef
liðið nær sér á strik. Liðið hefur
aðeins náð einu stigi í tveimur
fyrstu umferðunum og þarf því
að lappa upp á stöðu sína í deild-
inni. Víkingar hófu mótið með
jafntefli gegn KR og síðan sigri
gegn Val þannig að þeir eru sýnd
veiði en ekki gefin og KA-menn
þurfa að taka á öllu sínu til að
knýja fram sigur.
yy
sagði Þorsteinn Ólafsson
Mark Duffield.
Mark í
leikbann
Mark Duffield verður í leikbanni
er KA mætir Víkingi á KA-velli á
morgun. Mark var með nokkur
refsistig fyrir íslandsmótið og
gula spjaldið sem hann fékk gegn
Þór gerði það að verkum að hann
fór í 10 stigin sem þýðir eins leiks
bann.
Fleiri leikmenn KA eru tæpir
hvað þetta varðar og verða að
gæta sín. Þannig er Njáll Eiðsson
með 9 refsistig á bakinu og fær
því leikbann við eitt stig til við-
bótar. Þá er Erlingur Kristjáns-
son með 8 refsistig.
Nói líka
Nói Björnsson verður ekki
með Þór er liðið leikur gegn
Þrótti á sunnudagskvöld. Hann
fékk rautt spjald gegn KA um
síðustu helgi og því eins leiks
bann sjálfkrafa.
Þá er óvíst hvort Bjarni Svein-
björnsson getur leikið með, hann
hefur átt við meiðsli í hæl að stríða
og varð t.d. að fara af velli gegn
Skagamönnum í fyrrakvöld.
Sóknarmenn Þórs verða að
teljast „aðalsökudólgarnir“ í
leiknum gegn Skagamönnum
á Þórsvelli í fyrrakvöld. Meiri
grimmd þeirra upp við mark
Skagamanna hefði hæglega
getað fært Þór sigur en í stað
þess héldu Skagamenn heim
með 3:0 sigur.
„Það var sorglegt að gera ekki
út um leikinn í fyrri hálfleik"
sagði Þorsteinn Olafsson eftir
leikinn. „Við óðum í færum allan
fyrri hálfleikinn en það vantaði
alltaf að reka endahnútinn á
sóknirnar."
- Það er óhætt að taka undir
með Þorsteini. Ekki skipti máli
hversu góð marktækifæri Þórsar-
ar fengu, þeim virtist fyrirmunað
að skora. Skagamenn skoruðu
hins vegar úr eina færi sínu í fyrri
hálfleik, Guðbjörn Tryggvason
á 37. mínútu fremur ódýrt mark
þó vel væri að því staðið.
í síðari hálfleik var leikurinn
jafnari, en Skagamenn bættu
tveimur mörkum við, Sigurður
Halldórsson og Sveinbjörn Há-
konarson. Þá brotnaði Þórsliðið
og hefði reyndar getað fengið á
sig fleiri mörk.
Þórsarar verða að vera grimm-
ari í sóknarleik sínum, sýna meiri
vilja til að skora, skjóta meira í
stað þess að spila sig alla leið í
gegn. Það hefði reyndar ekki þurft
mikla heppni til þess að þeir
hefðu gert út um þenrian leik í
fyrri hálfleik eins og Þorsteinn
gat um hér að framan. 13 horn-
spyrnur Þórs í leiknum gegn 2
Skagamanna segja líka sína sögu.
Besti maður Þórs í þessum leik
var Óskar Gunnarsson. Hann
hefur riú verið færður í miðvarð-
arstöðuna og hefur komið geysi-
lega á óvart í leikjunum tveimur
sem búnir eru í íslandsmótinu.
Þá var Jónas mjög þokkalegur en
aðrir leikmenn Þórs eiga að geta
betur.
, ,Þetta var gjöf‘
- sagði Gústaf Baldvinsson um vítaspyrnuna
sem færði ÍBK jafntefli gegn KA
„Ég er svekktur út af þessum
úrslitum í Keflavík enda var
stolið af okkur tveimur stigum
þegar fimm mínútur voru
eftir,“ sagði Gústaf Baldvins-
son þjálfari KA eftir leikinn í
Keflavík í fyrrakvöld, en þá
gerðu KA og ÍBK jafntefli 1:1.
Golf - Golf - Golf - Golf - Golf - Golf
Tvö mót hjá GA
Tvö golfmót verða á Akureyri
um helgina. í fyrramálið kl. 9
hefst „four ball-best ball“
keppni og verða leiknar 18 hoi-
ur með fullri forgjöf.
Fyrsta drengjamót sumarsins
hjá GA hefst kl. 13 á sunnudag
og má búast við góðri þátttöku
þar. Fjölmargir ungir piltar eru
nú að stíga sín fyrstu spor á golf-
vellinum og er ekki að efa að
margir þeirra eiga eftir að ná
langt ef þeir sýna golfinu áhuga.
Piltarnir hafa verið mjög virkir í
þeim mótum sem búin eru hjá
klúbbnum og virðist framtíðin
vera björt hjá GA.
Þess má geta að nú í vikunni
var farið að spila á sumarflöt-
unum að Jaðri og völlurinn er
óðum að komast í sumarskrúða.
Völsungar heppnir
Völsungar áttu í miklu basli
með Leiftur frá Ólafsfírði í leik
liðanna í 1. umferð Bikar-
keppninnar á Húsavík í fyrra-
kvöld.
Leiftur hafði yfir 1:0 þar til
nokkrar sek. voru eftir af
leiknum er Völsungur jafnaði og
f framlengingu tryggðu heima-
menn sér sigur.
Þá sigraði Tindastóll lið Magna
1:0. Þriðji leikurinn í N.landsriðli
1. umferðar verður á KA-velli kl.
20 í kvöld og leika þá Vaskur og
Vorboðinn.
„Dómarinn gaf þeim víta-
spyrnu og það var einhver mesta
gjöf sem ég hef séð. Maðurinn
var búinn að missa boltann út af
en lét sig detta og dómarinn beit
á agnið.
„Við lékum undan vindi í fyrri
hálfleik og áttum þá allan leik-
inn,“ sagði Gústaf. „Steingrímur
Birgisson skoraði þá gott mark
eftir samspil en Njáll gaf á hann
síðustu sendingu. Við áttum bara
að skora meira í fyrri hálf-
leiknum.
Þeir sóttu nokkuð í síðari hálf-
leik undan vindi en áttu ekki
nema eitt umtalsvert færi en Þor-
valdur varði þá vel. Það var því
slæmt að láta stela frá sér 2
stigum þarna í lokin,“ bætti
Gústaf við.
Próttur: Þór
„Ég vona bara að menn læri
eitthvað af leiknum við Skaga-
menn, þeim mistökum sem þar
voru gerð, og að mínir menn
komi tvíefldir til leiksins gegn
Þrótti á sunnudagskvöld,“ sagði
Þorsteinn Ólafsson er við rædd-
um við hann um leik Þróttar og
Þórs í Laugardal á sunnudags-
kvöld.
„Ég hef trú á að mínir menn
verði grimmir og leiki til sigurs,
ekki veitir af eftir leikinn í fyrra-
kvöld,“ sagði Þorsteinn.
AKUREYRARBÆR
Skemmtun fyrir aldraða
verður haldin í Sjallanum sunnudaginn 27. maí
nk. kl. 15.00 á vegum Félags aldraðra, Lions-
klúbbsins Hængs og Félagsmálastofnunar Akur-
eyrar.
Gestur samkomunnar verður Halldór Laxness,
leikarar frá Leikfélagi Akureyrar munu flytja stutta
dagskrá úr verkum skáldsins.
Allir aldraðir velkomnir meðan húsrúm leyfir. Að-
gangur ókeypis. Þeir sem óska eftir að verða flutt-
ir heiman og heim eru beðnir að hringja í síma
22770 kl. 13-14 sunnud. 27. maí.
Skrifstofiiyélar hf.
og
Bókval sf.
sýna helstu nýjungar í skrifstofutækjum á
Hótel KEA dagana 25. og 26. maí.
Sýningin verður opin frá kl. 10 til kl. 18 báða
dagana.
©
Umboð Akureyri
k. ■
val
7?s
ST
Hverfitgötu 35, Rvk
Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri
Staða sérfræðings
í handlækningum
við Handlækningadeild sjúkrahússins (131/3 eykt)
er laus til umsóknar.
Upplýsingar um stöðuna veitir Gauti Arnþórsson
yfirlæknir deildarinnar í síma 96-22100.
Umsóknir sendist til framkvæmdastjóra sjúkra-
hússins fyrir 25. júní ’84.
Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri.
Útboð
Hreppsnefnd Hvammstangahrepps óskar eftir
tiiboðum í þriðja hluta fyrsta áfanga viðbygg-
ingar við Grunnskóla Hvammstanga.
Verkið felst í því að reisa þak á húsið og einangra
það, klæða húsið að utan og ganga frá þak-
köntum útihurðum, gluggum og glerjun ásamt
öðru tréverki úti samkvæmt teikningum og verk-
lýsingu Fjarhitunar hf. og Teiknistofunnar Lauga-
vegi 42.
Gert er ráð fyrir að framkvæmdir hefjist 20. júní
nk. og verði lokið 1. okt. 1984.
Útboðsgögn liggja frammi og verða afhent gegn
5.000 kr. skilatryggingu á skrifstofu Hvamms-
tangahrepps og verkfræðistofunni Fjarhitun hf.
Borgartúni 17, Reykjavík.
Tilboðum skal skila á sömu staði fyrir kl. 11 föstu-
daginn 8. júní nk. en þá verða tilboð opnuð að
viðstöddum bjóðendum.
Sveitarstjóri Hvammstangahrepps.