Dagur - 25.05.1984, Síða 19
25. maí 1984-DAGUR-19
Bylting í
skrifstofubúnaði
Stórkostleg bylting hefur átt
sér stað nú á síðustu árum í
tækjabúnaði til skrifstofuvinnu
og stjórnunar fyrirtækja með
örtölvubúnaði og nýjungum í
ritvinnslu og Ijósritun.
í dag og á morgun (föstudag
og laugardag) kl. 10.00 til
18.00 sýna Skrifstofuvélar hf.
og Bóícval sf. í Gildaskála
Hótels KEA helstu nýjungar á
þessu sviði.
Þar verður kynnt meðal
annars nýja IBM PC tölvan
ásamt forritum en tölva þessi
er mest selda tölva í heiminum
í dag.
Einnig verður kynnt þarna
ódýra heimilistölvan LYNX
ásamt forritum. Þarna verður
meðal annars það nýjasta í
Ijósritunarvélum, stimpil-
kössum fyrir verslanir; ritvél-
ar, reiknivélar, stimpilklukkur
o.m.fl. af nýjungum fyrir þess-
ar starfsgreinar.
Sérfræðingar frá Skrifstofu-
vélum hf. sem er innflytjandi
þessara tækja verða þarna til
leiðbeininga og ráðgjafar.
Allir þeir sem hugsa til nýj-
tunga á þessu víðfeðma starfs-
sviði eru hvattir til að notfæra
sér þetta tækifæri.
„Lífmyndir“ í
Samkomuhúsinu
- Fjallar um líf og kjör vangefinna
og aðstandenda þeirra
Mánudaginn 28. maí sýnir
Leikfélag Sólheima látbragðs-
leikinn „Lífmyndir" í Sam-
komuhúsinu kl. 20.30.
„Lífmyndir“ er látbragðs-
leikur í 14 atriðum sem saminn
er af starfsfólki Sólheima.
Verkið fjallar um líf og kjör
vangefinna einstaklinga og að-
standenda þeirra.
Á Sólheimum í Grímsnesi
dveljast nú um 40 vangefnir
einstaklingar, en heimilið var
stofnað af Sesselju Sigmunds-
dóttur árið 1930 og er því elsta
starfandi stofnunin fyrir
þroskahefta hér á landi. Leik-
list hefur löngum verið snar
þáttur í starfi Sólheima. Flutn-
ingur þýskra helgileikja var ár-
viss viðburður á Sólheimum
áður fyrr. Á sl. ári voru sett
upp tvö frumsamin leikverk og
annað þeirra sýnt í Reykjavík.
Leiklist er á margan hátt öfl-
i ugt meðferðartæki í starfi
með þroskahefta einstaklinga.
Ráðgert er að sýna verkið á
Egilsstöðum 30. maí en síðan
verður farið í leikferð um
Norðurlönd. Verkið hefur
einnig verið sýnt á ísafirði og
Seltjarnarnesi.
„Lífmyndir'1 höfða sérstak-
lega til aðstandenda þroska-
heftra og þeirra sem starfa
með þroskaheftum eða láta sér
annt um kjör þeirra og aðbún-
að. Öll hutverk eru í höndum
vistmanna Sólheima. 13
leikarar taka þátt í sýningunni.
Leikstjóri er Magnús J. Magn-
ússon, en Mist Þorkelsdóttir
samdi tónlist.
Hér á Akureyri munu félag-
ar úr Styrktarfélagi vangefinna
vera Sólheimahópnum til að-
stoðar. Auk þess hefur Baut-
inn boðið leikhópnum upp á
veitingar í Smiðjunni eftir sýn-
inguna á mánudag.
HÉjp
LIFMYNDIR
Sveitanmkaður
á haustdögum
Nokkrir áhugamenn hafa í
hyggju að efna til sveita-
markaðar við Eyjafjörð vest-
anverðan um miðjan ágúst-
mánuð. Er gert ráð fyrir að
menn komi þar með vörur sín-
ar og selji þær sjálfir, en til
þess fái þeir borðpláss undir
berum himni eða bílastæði ef
þeir vilja selja úr bíl sínum.
Menn verðleggja vöru sína
sjálfir. Varan getur verið hvað
sem er, helst eitthvað sem
menn framleiða sjálfir, skraut-
munir svo sem fallegir steinar,
skeljar eða smtðagripir eða
eitthvað gagnlegt, matvara svo
sem nýjar kartöflur, heima-
ræktað grænmeti, rabarbara-
sulta, fiskur, nýr eða siginn
eða hvað sem mönnum dettur
í hug. Einnig geta menn tekið
til á háaloftinu eða kjallaran-
um og reynt að selja eitthvað
af skraninu, sem þar er að
finna. Öðrum getur þótt feng-
ur í því sem einn ætlar að
fleygja.
Á markaðsdaginn verður
ýmislegt gert til að stytta fólki
stundirnar og gera daginn sem
eftirminnilegastan.
Þeir sem áhuga hafa á að
selja eitthvað á markaðnum
éru beðnir að tilkynna það hið
fyrsta til Bjarna E. Guðleifs-
sonar, vinnusími 24477 eða
Jósavins Helgasonar, Litla-
Dunhaga, sími 23100. Þess er
vænst að sem flestir sýni þessu
áhuga og bjóði fram vörur sín-
ar og hefji undirbúning og
framleiðslu strax. Þetta er
kjörið tækifæri fyrir alla til að
drýgja tekjur sínar, svo sem
auralitla unglinga, hugvitsama
einstaklinga og iðna öldunga.
Afinœlishátíð
Bílaklúbbsins
Elías sýnir
í Gkrár-
götu34
„Ég hef stundum sagt, að
Elías sé eini listamaðurinn
utan Reykjavíkur, sem hefur
lífsviðurværi af list sinni,“
sagði Bárður Halldórsson í
samtali við Dag, þegar hann
kynnti málverkasýningu Elías-
ar B. Halldórssonar. Sýningin
hefst laugardaginn 26. maí,
sem sé á morgun, og hún er í
listsýningarsalnum að Glerár-
götu 34. Sýningin verður opin
alla virka daga frá 20-22, en
laugardaga og sunnudaga frá
14-20. Sýningunni lýkur
sunnudaginn 3. júní. Allar
myndirnar eru til sölu.
- Mikið um að vera hjá Bílaklúbbi Akureyrar
Þetta verður vegleg hátfð í til-
efni af tíu ára afniæli klúbbsins
og við vonumst til að sent tlest-
ir af stofnfélögunum og heið-
ursfélögunum verði viðstadd-
ir, sagði Kristján Kristinsson,
formaður Bílaklúbbs Akur-
eyrar er blaðamaður Dags
ræddi við hann uin afmælishóf
félagsins sem haldið verður að
Gránufélagsgötu 49 (Kiwanis-
húsinu) annað kvöld.
- Þetta hóf cr opið öllum
núverandi og fyrrvcrandi fé-
lögum og ég vil nota tækifærið
til að skora á sem flesta að
mæta. Dagskráin verður í
grófunt dráttum sú að saga fé-
lagsins verður rakin en síðan
skemmta menn sér sem rncst
þeir njega, sagði Kristján en
veislan hefst kl. 21. Afmælis-
árið vcrður annars annasamt
hjá Bílaklúbbi Akureyrar.
Fyrirhuguð er sandspyrnu-
keppni í byrjun næsta mánað-
ar en torfærukeppni er Irestáð
eitthvað fram á sumarið.
- Það er erfitt að fá kepp-
endur i torfæruna. Göntlu
jaxlarnir cru allir að hætta og
það tckur tíma fyrir þá ungu
að koma upp. Ég vona þó að
jeppaleiknin bæti úr því og við
verðum með harðsnúið lið inn-
an nokkurra ára, sagði Krist-
ján Kristinsson.
Annað sem er á dagskráinni
í sumar er bílasýningin við
Oddeyrarskóla á 17. júni en
þar veröur sérstök áhersla
lögð á glæsilega fornbíla. Af
öðrum viðburðum má nefna
torfærukeppni í sumar, rally
cross og hugsanlega moto-
cross en auk þess munu félagar
í BA rcyna að vinna að upp-
byggingu keppnissvæðis síns í
Glerárdal.
- Það er bara þessi eilífa
barátta við öskuhaugana. Á
mcðan þeir eru á sínum stað cr
lítið hægt að gcra, sagði for-
maöurinn.
Vegleg
hársýning
hddin í
SjaUmum
Mikil hársýning verður í Sjall-
anum nk. laugardag. Það er
Klúbbur CVS á Norðurlandi
sem stendur að sýningunni en
kynnt verður vor- og sumar-
tíska í hárgreiðslu fyrir dömur
og herra.
Sýningin hefst kl. 21.30 í
Sjallanum og ef að líkum lætur
verður ýmislegt skemmtilegt
á boðstólum. Kynnir á hátíð-
inni verður Torfi Geirmunds-
son, hársnyrtir úr Reykjavík.
Sýning
Helga í
Swmuhlíð
að Ijúka
Á sunnudagskvöldið lýkur
sýningu Helga Björnssonar á
leirmunum, sem staðið hefur í
Gallerí Sunnuhlíð síðan um
síðustu helgi. Að sögn Helga
hefur sýningin verið vel sótt
það sem af er, en hún er opin
daglega frá 14-22.
Sýningá
handavinnu
íHlíð
Árleg handavinnusýning
vistmanna á Dvalarheimilinu
Hlíð verður á morgun, laugar-
daginn 26. maí og stendur hún
frá 14-17. Á sýningunni verða
prjónaðir, heklaðir og saum-
aðir munir, sem allir eru til
sölu. Auk þess verða kaffiveit-
ingar á boðstólum.
Sigfús Halldórsson verður „aðalnúmerið" á Vorvöku á Dalvík. Hér er hann á góðri stund
með Guðjóni Pálssyni, píanóleikara. Mynd: GS.
Vorkoma
á Dalvík
„Vorkoma" Lionsklúbbs Dal-
víkur verður um helgina og
hefst með málverkasýningu
Sigfúsar Halldórssonar í Dal-
víkurskóla í dag. Þar verða
jafnframt sýndir safnmunir,
annars vegar úr safni Hafsteins
Pálssonar sem á um 700
hljómplötur, en hins vegar úr
safni Birnu Kristjánsdóttur,
sem hefur safnað yfir 200 gerð-
um af gleraugum. Sýr
verða opnar fram a sunnudag
frá 10 - 22. Á laugardaginn kl.
15 og 17 verða bíósýningar fyr-
ir börn og unglinga, þar sem
sýnd verður myndin „Rúntur-
inn“. „Vorkomunni" lýkur
síðan með tónleikum í Víkur-
röst kl. 15. Þar syngja Elín
Sigurvinsdóttir og Friðbjörn
G. Jónsson við undirleik Sig-
fúsar Halldórssonar - og þau
flytja eingöngu lög eftir Fúsa.
Samkór Dalvíkur kemur einn-
ig fram á tónleikunum. Menn-
ingardagar sem þessir eru ár-
legur viðburður á vegum
Lionsklúbbs Dalvíkur og er
öllum heimill ókeypis að-
gangur. Að sögn Lionsmanna
er þetta þakklætisvottur þeirra
til heimamanna fyrir veittan
stuðning fyrr og síðar. - GS.