Dagur - 20.07.1984, Page 8
20. júlí 1984 - DAGUR - 9
8 - DAGUR - 20. júlí 1984
yíy all£l
0
— Spjallað við Sigríði
Vigfúsdóttur tjaldvörð
Blaðamenn Dags
komu við á tjaldstœð-
inu einn daginn í vik-
unni. Pað var rjóma-
logn og blíðskaparveð-
ur eins og vera ber um
miðjan júlí. Við leitum
uppi tjaldstœðisvörð
sem reyndist vera Sig-
ríður Vigfúsdóttir.
Hún sagði okkur að
mjög margir hefðu
heimsótt tjaldstæðið í
sumar, og það væri
áberandi hversu ís-
lendingarnir væru
orðnir stór hluti gesta.
„Þeim finnst Akureyri vera al-
gjör paradís, hitabelti. Þeir koma
hingað og spyrja um veðurspána
og ég segi: Sól, sól, bara sól og
þá verða allir í góðu skapi. Það er
voða gott, þá kvartar enginn, það
nennir enginn að kvarta í góðu
veðri, fólk vill bara liggja í
móki.“ Við spurðum hvort yfir
einhverju væri að kvarta. „Nei,
fólk er upp til hópa mjög ánægt
hérna. Aðstaðan er alveg ágæt,
það mættu að vísu vera sturtur
hérna, en það stendur til að gera
heilmiklar breytingar á næstunni
og þá batnar aðstaðan til muna.
Það á að planta hér í rjóður og
gera voða fínt.“
Texti: mþþ
Tjaldstæðisvörðurínn Sigga segir útlendingana svelgja í sig sólarlagið.
- Er einhver munur á íslend-
ingum og útlendingum?
„Útlendingar, sem að stærstum
hluta eru Þjóðverjar og Frakkar,
koma hingað fyrst og fremst til að
ferðast og skoða sig um. Þeir eru
allir í „The midnight sun“ þeir
setja sig í stellingar um miðnættið
og svelgja í sig sólarlagið. Maður
verður heillaður af að horfa á þá.
íslendingarnir eru misjafnir eins
og gengur, það er mikið um fjöl-
skyldur sem eru á hringveginum
eða á ferðalögum almennt og þær
gista fáar nætur, oft bara eina.
Það er rólyndisfólk. Svo er alltaf
eitthvað um fólk sem kemur
hingað til Akureyrar til að sækj-
ast eftir skemmtunum og það er
í partíhugleiðingum og vill rabba
fram eftir nóttu. Það hefur ekki
verið ónæði hérna þrátt fyrir
það.“
Sigríður sagði að oftast væru
um 150-200 tjöld á tjaldstæðinu
yfir nóttina, þó komst fjöldinn
upp í 300 eina nótt fyrir
skemmstu. En hvaða tungumál
talar Sigríður aðallega við fólk
frá hinum ýmsu þjóðum?
„Ég bjarga mér mest á ensku.
Ég hlusta á þýskuna, en reyni að
segja sem stystar setningar, svo
babla ég skandinavísku. Annars
er ég ansi sterk í ítölskunni!“
mþþ
Æ, hvað þessi blessuð
sól getur gert mann-
skepnuna ánœgða. Það
verða allir eitthvað svo
léttir og skemmtilegir,
jafnvel þótt þeir séu
leiðinlegir að upplagi.
Reyna að segja brand-
ara og það má alltaf
hlæja, bara afþvíþessi
guli hlýi hringur hangir
þarna uppi í festing-
unni. Og mennirnir
brosa. íssala rýkur upp
úr öllu valdi, það er
enginn maður með
mönnum nema hann
sleiki ís um leið og
hann virðir fyrir sér
aðra menn sem líka eru
sleikjandi ís.
Einn af þessum margumtöluðu
góðviðrisdögum brugðu blaða-
menn sér niður á torg, aðallega
til að sýna sig, en líka til að sjá
aðra. Það var bara margt um
manninn og aliir ósköp glaðir og
sáttir við tilveruna. Af ávöxtun-
um mátti þekkja Cosimo og
sannast þar hið fornkveðna að
sjaldan fellur Cosimo langt frá
eplunum né heldur torginu. Það
er nú meiri blessuð himnasend-
,Jndœlt fólk í kringum okkur
Hjónin Valgeir Emilsson og LJnnur Kristinsdóttir
Á vappi okkar um hjón í sólbaði og fannst trufla þau augnablik. sögðu þau Valgeir
tjaldstœðið sáum við alveg gráupplagt að Það var nú allt í lagi,
Sunnanvindur svaraðu mér . . . Trallala. Unnur og Valgeir fylgjast með ferðum sunnangolunnar góðu.
Emilsson og Unnur
Kristinsdóttir, sem
sögðust upphaflega
koma frá Reykjavík.
Hugðust þau fara vest-
ur á firði, en þoka og
leiðindaveður kom í
veg fyrir það. Þá ák-
váðu þau að skreppa
hingað til Akureyrar
og sjá til hvað yrði úr.
Þau hjón hafa dvalist hér í
nokkra daga og líkaði dvölin vel.
„Við höfum gengið töluvert um
og skoðað. Við reynum alltaf að
sjá sem mest þegar við erum að
ferðast. Við höfum tekið eftir
því að hér á Akureyri eru ákaf-
lega vel hirtir garðar. Við höfum
bara séð einn garð, sem ekki er
vel hirtur.“ (Það skiptir svo sem
engu máli hvar hann er, eða
þannig.)
Allt bara tiltölulega rólegt?
„Já, það er mjög rólegt hérna,
enginn hávaði á tjaldstæðinu,
það er helst að heyrist í fuglum.
Annars fórum við í Sjallann um
helgina og þar var nú meiri há-
vaðinn. Það er kannski ekkert að
marka, við erum orðin svo
gömul.“ Ekki vildum við blaða-
snápar taka undir það og spurð-
um hvort menn kynntust eitthvað
er þeir byggju á tjaldstæðum?
„Já, við gerum það yfirleitt og
það hefur verið indælt fólk í
kringum okkur þessa daga. Þau
sögðu okkur af Frakka sem var
einn í agnarlitlu tjaldi rétt hjá
þeim. „Við bjóðum honum
stundum í kaffi, hann er eitthvað
svo einmannalegur, eins og hann
sé að bíða eftir einhverjum.“
„Maður verður að vera með já-
kvætt hugarfar á tjaldstæðum þá
gengur allt miklu betur fyrir sig.“
Þið eruð ekkert farin að hugsa
um að yfirgefa okkur?
„Hún er nú komin með heim-
þrá,“ sagði Valgeir. „Ég á lengra
frí. Við sjáum bara til.
Við þökkum spjallið og hverf-
um á braut, þau leggja sig aftur í
sólbaðsstellingarnar.
„Það var suddi fyrir sunnan.“
ingin og þvílíkar breytingar sem
við afdalamennirnir höfum orðið
aðnjótandi. Ömmur okkar og
afar sem fengu hálft epli á hverj-
um jólum - en einkum þó epla-
lykt - skilja varla blessuð barna-
börnin þegar þau tala um kiwi og
avocado og ég bara veit ekki
hvað og hvað. En sem sagt
Cosimo var hress, sagði þó að
það væri lítið úrval hjá sér núna.
Hann væri að bíða eftir ávaxta-
sendingu. Það vill bara taka svo
langan tíma.
Við fikruðum okkur áfram upp
að göngugötu og hittum hann
Örn, hann sagði allt gott. „Ég er
búinn að hjóla langleiðina til
Dalvíkur í morgun,“ sagði hann
og var hreykinn af afrekinu. Það
eru nú meiri ósköpin sem hlaupa
í menn þegar sólin skín.
Við stöldruðum ögn fyrir utan
verslun og fylgdumst með mann-
Að hita vatn í kaffísopa. Kolbrún og Helena bíða eftir að suðan komi upp.
,fiér er fín aðstaða“
- segja þær stöllur Kolbrún og Helena
Þær stöllur Helena og
Kolbrún höfðu það
ósköp rólegt fyrir utan
tjaldið sitt, voru að hita
vatn á gastœki. Eflaust
í dulítinn kaffisopa.
Þœr kváðust hafa kom-
ið með rútufrá Reykja-
vík og ætluðu að dvelja
á tjaldstœðinu í viku,
en þáfæru þær til baka
aftur.
Þetta er bara sumarfrí, þær eru
báðar í vinnu í höfuðborginni og
þá þýðir víst lítið annað en mæta
á réttum tíma. „Þetta er voðalega
fallegur staður. Við erum búnar
að skoða okkur töluvert um.
Lystigarðurinn er alveg ofsalega
fallegur. Og það er líka fallegt í
Kjarnaskógi."
Hvernig er að búa á tjaldstæði?
„Það er ekki yfir neinu að
kvarta, hér er fín aðstaða og okk-
ur líkar mjög vel.
Af hverju komuð þið til Akur-
evrar?
„Ætli það sé ekki aðallega út af
veðrinu. Maður heyrir alltaf góða
veðurspá héðan.“
Og gætuð þið hugsað ykkur að
koma aftur?
„Já, það verður áreiðanlega."
mþþ
Myndir: KGA
Af ávöxtunum þekktum við
Cosimo.
lífi, en það heitir mannlíf þegar
fólk er á ferli fram og til baka án
sýnilegs tilgangs og takmarks.
Lítill gutti sat í kerru og beið
móður sinnar er hafði skroppið
inn í búð. Eitthvað fór honum að
leiðast biðin, því sá stutti stökk
úr kerru sinni og myndaðist við
að aka af stað. Komst þó ekki
langt, því enginn keyrir lengi á
bremsunni einni saman, jafnvel
þó í stuttbuxum sé og bara
tveggja ára.
En hvað ég vildi sagt hafa,
kemur ekki maður gangandi yfir
sjó og land í stökum jakka og
terelynebuxum. Hann var svaka-
lega vígalegur, með sólgleraugu
og fyrrverandi herraklippingu.
Stressarinn í hægri hendi gaf
manninum smá virðuleikablæ,
annars var maðurinn eins og
köttur úti í mýri því annað fólk á
ferli var svo litskrúðugt, gult og
hvítt og hvað þeir heita þessir
tískulitir í ár. Víkingurinn góði
sem nýlega hefur sest að í göngu-
götunni var heldur ekki í tískulit-
unum. „Nei, ég eltist ekkert við
tískuna og hef aldrei gert,“ sagði
víkingurinn í stuttu spjalli við
Dag. „Ég er eitthvað um 1.100
ára gamall og man nú marga fal-
lega fíflana. Það held ég nú, það
hefur mikið vatn runnið til
sjávar. Ég man þá tíð er . . . . ,“
sagði víkingurinn í lok samtals-
ins. Það var mjög stutt samtal.
Eftir svart/hvítar lopasögur val-
hoppuðum við niður Hafnar-
stræti og hver kemur þá ekki á
móti okkur nema hann Stein-
grímur Óli. Hann er lesendum
blaðsins að góðu kunnur. Eða
það hlýtur að vera. Jæja, Steini,
þú kemur að sunnan?
„Ojú, ætli það ekki.“
Og hvað er títt hjá sunnan-
mönnum?
„Ætli það sé nokkuð!"
Nema það væru rigningar?
„Mikil ósköp, ætli það sé ekki
suddi fyrir sunnan.“
Jæja, Steini, farnist þér vel og
vertu þá sæll.
„Já, ætli ég sé ekki að flýta
mér. Verið þið sæl,“ og þar með
var hann rokinn og við ákváðum
í sameiningu að rjúka bara líka.
en fólkið hélt áfram að vera í
góðu skapi í góðu veðri í góðum
bæ. Það er nú gott og blessað.
mþþ
Hann Örn ætlar að hjóla til Reykja-
víkur.
með rabarbara
so®
JOGURT
JÓGÚRT
g ” ; I' ■
Æ
' i’ (/ ■
RABARBARI RABARBARI RABARBARI RABARBARI
0g nú er jógúrt komið
með rabarbara
' Mjólkursamlag KEA
Akureyri Simi 96-21400