Dagur - 20.07.1984, Page 15
20. júlí 1984 - DAGUR - 15
Þjóðdansarar frá öllum
Norðurlöndunum sýna
á Akureyri í kvöld
Á föstudagskvöldið munu
góðir gestir heimsækja Akur-
eyri, það eru þjóðdansarar frá
öllum Norðurlöndunum sem
halda munu sýningu í Skemm-
unni þá um kvöldið.
Þessa viku hefur staðið yfir
Norðurlandamót í þjóð-
dönsum, ísleik ’84. Var það
sett í Reykjavík laugardaginn
14. júlí, þátttakendur eru 240
frá öltum Norðurlöndunum.
Á miðvikudag var lagt upp frá
Reykjavík og skiptist hópur-
inn, annar hópurinn fór þá yfir
Kjöl og hinn fór vestur fyrir og
var með sýningu á Húnavöllum
miðvikudagskvöld. A Akur-
eyri hittust svo báðir hóparnir
á fimmtudag og verða hér
fram á laugardag. í dag verður
farið í Mývatnssveit og eins og
áður segir verður sýning í
Skemmunni í kvöld kl. 20.30.
í hópnum eru pör úr Þjóð-
dansafélagi Reykjavíkur sem
stofnað var 17. júní 1951.
Meginhlutverk félagsins er að
kanna og kynna þær menning-
arerfðir sem þjóðin á í þjóð-
dönsum og öllu sem að þeim
lýtur. Félagið átti hlut að út-
gáfu bókarinnar Þjóðdansar I
og Gamlir dansar og mikil
alúð og vinna hefur verið lögð
í að gera búninga eftir fyrir-
myndum fyrri tíma. Hér
heima hefur félagið haft þjóð-
dansasýningu fyrir styrktarfé-
laga og almenning á hverju
ári, auk fjölda smásýninga í
samkvæmum, ennfremur fyrir
sjónvarp nokkurra landa. Þá
hafa erlendir þjóðdansahópar
gist félagið og sýnt á vegum
þess.
Auk þessarar starfsemi sýn-
ingarflokks félagsins eru fjöl-
mennar deildir barna, ungl-
inga og fullorðinna á öllum
aldri, þar sem kenndir eru hin-
ir sígildu „görnlu" dansar og
þjóðdansar, sem raunar er
skammt á milli og álitamál
hvort heldur er.
Hér á Akureyri er starfandi
„gömlu" dansa klúbbur og sl.
vetur var hópur hér í bæ sem
æfði þjóðdansa einu sinni í
viku og væntanlega verður
þeirri starfsemi haldið áfram
næsta vetur.
Hallbjöm og flein
góðir á „Kántryhátíð
Helgina 20.-22. júlí verður
haldin kántrýhátíð á Skaga-
strönd. Pálmi „Bimbó“ Guð-
mundsson heldur þetta mót og
hefur á sínum snærum allar
þekktustu kántrýstjörnur
landsins.
Kl. 14.00 á föstudeginum
verður svæðið opnað fyrir al-
menning. Kl. 20.00 verða
kvikmyndasýningar í
Fellsborg. Kl. 23.00 verður
svo opnunarhátíð þar sem
Hallbjörn Hjartarson og
Johnny King munu skemmta.
Hljómsveitin Gautar frá Siglu-
firði mun einnig leika kántrý-
lög undir berum himni ef
veður leyfir.
Á laugardeginum verður
margt um að vera. Hópreið
með Hallbjörn í fararbroddi.
Það verður bílasýning og
fallegasti bíllinn fær verðlaun.
Það verða kvikmyndasýning-
ar, hestaíþróttir, kálfasnörun
og fleira. Um kvöldið verður
svo aðalhátíð. Þá verður hæfi-
leikakeppni, Dalton bræður
skemmta, Hallbjörn og
Johnny King taka saman lagið.
Gestur kvöldsins verður Siggi
Helgi og hljómsveitin Týról
frá Sauðárkróki leikur til kl.
4.00.
Á sunnudeginum verður úti-
messa þar sem Þorvaldur Hall-
dórsson mun syngja og þá
verður einnig kveðjustund
með Hallbirni. Það má geta
þess að útvarpstöð verður
rekin, hestaleiga og hestvagn
verður í föstum áætlunarferð-
um um svæðið.
Meistaramót
ífrjálsum
Meistaramót íslands í frjálsum
íþróttum 15-18 ára unglinga
verður haldið á Akureyrarvelli
um helgina. Hefst mótið kl. 10
f.h. báða dagana. Keppt er í 4
flokkum í öllum frjáls-
íþróttagreinum. 17 félög taka
þátt í mótinu og eru þau alls
staðar af landinu. Keppend-
ur verða alls um 200 og er
það UMSE sem stendur fyrir
mótshaldinu.
Moto-
cross á
morgun
Nú fáum við að sjá motocross
á morgun. Klukkan tvö hefst
keppni í þessari íþrótt og fer
fram í bæjarkrúsunum (hjá
öskuhaugunum). Keppnin ber
titilinn HÆNCO-motocross
og er vænst 10-15 keppenda úr
Reykjavík, auk þess verða að
líkindum 5 Akureyringarmeð.
Keppt verður í 3x15 mínútur.
I hléum verður keppt á 50 cc
hjólum og eru áhugasamir eig-
endur slíkra hjóla hvattir til að
mæta og taka þátt. Þeir þurfa
ekki að vera sérstaklega „græj-
aðir“, hjálmurinn á að duga
því að keppnisbraut þeirra er
ekki eins erfið og sú sem stærri
hjólin keppa á. Sem sé: Moto-
cross á morgun klukkan tvö.
Hljómsveit Ingimars
Eydal fer til Malbrka
Hljómsveit Ingimars Eydal
hefur nú í sumar skemmt
dansglöðum Sjallagestum.
Sjallinn hefur verið fjölsóttur
og hefur þar verið margt
ferðamanna, enda veður með
eindæmum gott á Akureyri í
sumar. Auk þess að spila í
Sjallanum hefur hljómsveitin
komið fram á Sumarsæluviku
Skagfirðinga og á skemmtun
Ómars Ragnarssonar í Veit-
ingahúsinu Broadway. Þann
25. júlí heldur hljómsveitin til
Mallorka á vegum ferðaskrif-
stofunnar Atlantik. Þar mun
Þórsarar œtla
að sigra Þrótt
Um helgina fer fram 12. um-
ferð í 1. deild íslandsmótsins í
knattspyrnu. KA fer suður og
leikur gegn Víkingum á
sunnudagskvöldið kl. 20.00 og
á sama tíma fer fram á Akur-
eyrarvelli leikur Þórs og
Þróttar. Eftir erfiða bikarleiki
í vikunni þar sem bæði liðin
urðu að lúta í lægra haldi, er
mikilvægt að þau nái að rífa
sig upp og krækja í stig í þess-
um leikjum. Staða þeirra í 1.
deildinni er ekki sterk, Þór er
neðstur ásamt KR, Breiðabliki
og Fram með 11 stig, en þar
fyrir ofan er KA ásamt Val og
Víkingi með 13 stig. Af þessu
má sjá að bæði liðin eru í fall-
baráttu eins og er og mega
ekki við því að tapa í þessum
leikjum.
Á Húsavík leika í 2. deild
Völsungur og Víðir og verða
heimamenn að sigra í þeim
leik ætli þeir sér upp í 1. deild-
ina. Það á því við um öll þessi
lið að þau verða að gleyma
vonbrigðum bikarleikjanna í
vikunni, því þau þurfa á öllu
sínu að halda í deildakeppn-
inni.
hún leika fyrir Islendinga og
aðra sumarleyfisgesti á hótel-
unum Royal Playa del Palma
og Jardin del mar. Einnig mun
hljómsveitin leika í grísaveislu
á herragarðinum Son Amar.
Hljómsveit Ingimars Eydal
skipa þau Þorleifur Jóhanns-
son sem leikur á trommur,
Grímur Sigurðsson sem leikur
á bassa og syngur, Inga Eydal
s< igkona og Brynleifur Halls-
son sem leikur á gítar og
syngur, auk Ingimars sem
leikur á hljómborð. Að lokum
má geta þess að í bígerð er
hljómplata með hljómsveit-
inni.
Gamalt hús
fœr mal“
Um helgina verður opnuð
myndlistarsýning í Laxdals-
húsi. Þar sýna þær Þóra Sig-
urðardóttir og Sólveig Aðal-
steinsdóttir. Þóra sýnir grafík-
verk og fleira og Sólveig teikn-
ingar, grafík og vatnslita-
myndir. Þá verður komið nýtt
borðljóð, höfundur að þessu
sinni er Kristján frá Djúpalæk
og er ljóð hans tileinkað Lax-
dalshúsi og ber titilinn: Gam-
alt hús fær mál. Laugardags-
uppákoman er enn á huldu, en
Örn Ingi sagði að ef Leiruvegi
miðaði áfram vonaðist hann til
að huldumenn kæmust í
málið, þannig að á öllu væri
von. Og svo er auðvitað alltaf
heitt á könnunni í Laxdals-
húsi.