Dagur - 23.11.1984, Síða 10
10 - DAGUR - 23. nóvember 1984
Erfitt að gera
upp á milli
Axel Stefánsson er aðeins 14 ára þó hæð
hans gefi annað til kynna. Hann er 185
cm á sokkaleistunum, eins og sagt er á
körfuboltamáli.
- Ég er búinn að vera í körfunni í ein
fjögur ár og ætli ég verði ekki þetta ár og
a.m.k. annað til. Við verðum með sterkt
lið í 4. flokknum á næsta ári þannig að
það freistar mín að vera með þá, segir
Axel en hann á í mestu vandræðum með
að gera upp á milli körfuboltans, hand-
boltans og fótboltans.
Rosalega gaman
- Það eru ein sex ár síðan ég byrjaði í
minni boltanum og auðvitað hef ég alltaf
verið í Þór, sagði Birgir Karlsson, 15
ára.
- Þetta er alveg rosalega gaman og ég
spila körfubolta hvenær sem færi gefst.
Úti meðan hægt er að koma því við en
annars inni.
Að sögn Birgis er 4. flokkurinn alveg
þokkalegur um þessar mundir. Liðið sé
þó lakara en í fyrra þar sem tveir af
bestu mönnunum hafi gengið upp í
þriðja flokk.
- En þetta kemur allt saman, sagði
Birgir Karlsson.
Stí'ÁKílLoÆ™
í 4. flokki, Jóhann Sigurðsson
- Petta eru bráðefnilegir
strákar og það er lítið að
marka úrslitin í keppninni
þarna um helgina. Strákarnir
höfðu enga œfingu fengið af
viti fyrir þessa keppni vegna
verkfallsins en liðin fyrir
sunnan höfðu öll œfingaað-
stöðu eftir því sem ég veit
best.
Það er Jóhann Sigurðsson,
þjálfari 4. flokks Þórs í körfu-
knattleik sem hefur orðið.
Keppnin sem Jóhann vitnar til
fór fram um fyrri helgi en
Þórsarar áttu þá í höggi við lið
jafnaldra sinna í Tindastóli
frá Sauðárkróki, KR og Vals.
- Það voru margir ljósir
punktar í þessum leikjum og
t.a.m. töpuðum við fyrir Val
með aðeins þriggja stiga mun.
Við höfum æft vel frá því að
verkfallið leystist og þó strák-
arnir fái aðeins tvær æfingar í
viku þá er þetta allt að koma
og þeir eru til alls líklegir.
A.m.k. munu þeir fylla vel í
skörðin hjá meistaraflokki í
framtíðinni, sagði Jóhann Sig-
urðsson. - ESE
Fótboltinn heillar mest
Annar körfuknattleiksmaður úr 4.
flokknum á einnig erfitt með að gera
upp á milli íþróttagreina. Hann heitir
Kjartan Guðmundsson, 14 ára og er
einnig i Þór í handbolta og fótbolta.
- Ég myndi líklcga velja fótboltann ef
ég ætti aö velja á milli, segir Kjartan sem
leikið hefur körfuknattleik síðan hann
var átta eða níu ára gamall.
- Við vorum þrír í fimmta flokki í
fyrra sem lékum með fjórða flokki en
fimmti flokkurinn sendi þá ekki lið á ís-
landsmótið. Við erum með sæmilegt lið
nú en það ætti að geta orðið mjög gott
næsta ár, segir Kjartan Guðmundsson.
Jóhann Sigurðssun
þjálfari.
Axel, Birgir
og Kjartan.
Myndir: KGA
'5.