Dagur - 21.12.1984, Page 9
21. desember 1984 - DAGUR - 9
Prím-ANNALL
/ •
arsins
Samantekt: Gylfi Kristjánsson og Eiríkur St. Eiríksson
Janúar:
Þegar Dagur hafði samband við lög-
regluna á Akureyri 2. dag ársins
fengust þær upplýsingar að áramótin
hjá lögreglu bæjarins hefðu verið
með allra rólegasta móti. Ekkert
meiriháttar verkefni kom þar upp á
borð þegar árið 1984 tók völdin og
voru áramótin ekkert frábrugðin
venjulegri helgi að sögn lögreglu.
í þessu rólegheita umhverfi fædd-
ist fyrsta barn ársins á Akureyri.
Þeim hjónum Agnesi Eyfjörð og
Elíasi Óskarssyni fæddist stúlkubarn
kl. 12.22 á nýársdag og var stúlkan
2970 g og 50 cm löng.
Þrátt fyrir að áramótin á Akureyri
hafi farið vel fram sátu menn ekki
þurrbrjósta. Samkvæmt upplýsingum
frá ÁTVR á Akureyri nam verslunin
þar á bæ 1.4 milljónum króna daginn
fyrir gamlársdag svo einhver hefur
„fengið sér tesopa" er gamla árið var
kvatt.
Ekki vanræktu menn þó að borga
opinber gjöld því um áramótin höfðu
92,2% af þeirri upphæð sem Bæjar-
sjóður Akureyrar hafði til innheimtu
á árinu 1983 skilað sér í peningakassa
bæjarins.
Menn höfðu hins vegar miklar
áhyggjur af atvinnuleysi og ekki að
ástæðulausu. Aukning atvinnuleysis
á milli áranna 1982 og 1983 á Akur-
eyri nam 70,3% og um áramótin
voru 250 bæjarbúar á atvinnuleysis-
skrá.
Getspakur Húsvíkingur datt í
lukkupottinn er hann tók þátt í
knattspyrnugetraunum. Hann var
einn allra þátttakenda með alla 12
leiki getraunaseðilsins rétta og hafði
fyrir það 384 þúsund krónur. Góð
búbót það í ársbyrjun.
„Leyniútvarpsstöð“ sem fékk
nafnið „Helgarrásin" var starfrækt í
Glerárhverfi. Ekki lengi þó því að-
standendur hennar fóru að tilmælum
yfirmanna Pósts og síma og hættu út-
sendingum. Þessi mál áttu eftir að
verða í sviðsljósinu áður en árið var
allt.
„Útburðarmálið" svokallaða hafði
lengi verið í sviðsljósinu á Akureyri.
Þriðjudaginn 17. janúar lét lögreglan
með fulltrúa fógeta til skarar skríða
og var íbúum í Þingvallastræti 22 gert
að rýma íbúð sína sem þeir og gerðu.
„Æskilegt er að næsta stóriðja rísi
í Eyjafirði" sagði í ályktun Atvinnu-
málanefndar Akureyrar. Nefndin
tók það fram að þetta væri æskilegt,
svo framarlega sem sýnt yrði að stór-
iðjan stofnaði ekki lífríki fjarðarins í
hættu. Bæjarstjórn samþykkti síðan
ályktun nefndarinnar með atkvæðum
framsóknar-, sjálfstæðis- og alþýðu-
flokksmanna.
Upp komst um símahlerun í
Hjallalundi á Akureyri. Kom í ljós
að segulbandstæki hafði verið komið
fyrir við símainntakið í húsið og var
það síðan tengt við eitt númer í hús-
inu. Rannsóknarlögreglan vann að
rannsókn málsins en það hefur ekki
verið upplýst hver þarna var að
verki.
Á Árskógsströnd var stofnað fyrir-
tækið Árver og voru komnir hátt í
200 hluthafar er stofnfundurinn var
haldinn. Tilgangur fyrirtækisins var
að koma af stað rækjuvinnslu í
hreppnum og tók fyrirtækið til starfa
síðla sumars.
ALCAN, kanadískt fyrirtæki,
sýndi áhuga á að byggja og reka álver
við Eyjafjörð. Sendinefnd frá fyrir-
tækinu kom svo til Akureyrar í sum-
ar og í haust héldu fjölmargir aðilar
til Kanada í boði fyrirtækisins og
kynntu sér rekstur ALCAN á álver-
um þar.
„Rauðku“, einni flugvél Flugfélags
Norðurlands, hlekktist á í lendingu
á Ólafsfjarðarflugvelli. Fór flugvélin
út af brautarendanum og skemmdist
nokkuð en engan sakaði.
Febrúar:
Sverrir Hermannsson iðnaðarráð-
herra kvaðst ætla að leggja til að Út-
gerðarfélagi Akureyringa yrði heim-
ilað að láta smíða nýtt skip í stað Sól-
baks og að Slippstöðin á Akureyri
fengi það verkefni.
„Ég veit ekki hvað maðurinn er að
fara, við þurfum stærri kvóta en ekki
nýtt skip,“ sagði hins vegar Gísli
Konráðsson framkvæmdastjóri ÚA.
Halldór Ásgrímsson sjávarútvegs-
ráðherra sagði hins vegar um þetta
mál í Degi: „Óverjandi að bæta við
nýjum togara, ÚA fær ekki kvóta út
á Sólbak."
Dalvíkingar eignuðust fyrirtækið
Sæplast hf. sem starfrækt hafði verið
í Garðabæ. Var fyrirtækið síðar á ár-
inu flutt til Dalvíkur og hóf þar fram-
leiðslu á fiskkörum, línubölum og
brettum undir fiskkassa.
Síðustu sveitasímarnir voru af-
lagðir í Eyjafirði innan Akureyrar og
innstu bæirnir í Saurbæjarhreppi
tengdir sjálfvirku stöðinni á Hrafna-
gili.
Sverrir Leósson útgerðarmaður
sagðist bjartsýnn á aukinn loðnu-
kvóta og nú var rætt um það hvort
ÚA myndi kaupa raðsmíðabáta
Slippstöðvarinnar á Akureyri. „Þau
skip eiga ekki rétt á kvóta" sagði
Halldór Ásgrímsson sjávarútvegs-
ráðherra.
Og umræðan hélt áfram. „Þessir
raðsmíðabátar eru óseljanlegir ef
þeir fá ekki kvóta og ef þannig fer er
best fyrir okkur að hætta þessu alveg.
Þá verður engin endurráðning 1.
mars, öllum verður sagt upp og
starfseminni hætt,“ sagði Gunnar
Ragnars forstjóri Slippstöðvarinnar.
Mikil söluaukning varð hjá Plast-
einangrun hf. á Akureyri. Riðuveiki
varð enn vart í Kelduhverfi og Sjöfn
gerði samning um sölu á málningu til
Sovétríkjanna fyrir 40 milljónir
króna. Vélaverkstæði Gunnars og
Kjartans á Egilsstöðum var með
lægsta tilboðið í 1. áfanga Leiruveg-
arins og vann fyrirtækið verkið í
sumar.
Eftir mikið stapp fékk Alþýðu-
bankinn loksins leyfi til reksturs úti-
bús á Akureyri og var það opnað
með pomp og prakt í lok febrúar.
„Við viljum ekki afskrifa rnálið,"
sagði Bjarni Aðalgeirsson bæjar-
stjóri á Húsavík er rætt var um trjá-
kvoðuverksmiðju þá sem fyrirhugað
var að reisa á Húsavík en ekkert varð
úr. Grímseyingar voru að videóvæð-
ast og voru 5 videótæki komin í eyj-
una er þarna var komið sögu.
Mars:
Vart varð sullaveiki í manni sem var
til meðferðar á Fjórðungssjúkrahús-
inu á Akureyri. Var sullurinn fjar-
lægður úr manninum með skurðað-
gerð og heilsaðist honum vel á eftir.
Jón V. Ólafsson hjá fiskmóttöku
KEA upplýsti þegar hér var komið
sögu að Eyjafjörður væri fisklaus.
„Það eru hreinar línur með þetta og
einnig hitt að fjörðurinn er nú fullur
af sel,“ sagði Jón.
Iðnaðardeild Sambandsins á Ak-
ureyri gerði samning við sovéska
samvinnusambandið um sölu á 250
þúsund peysum. Samningurinn
hljóðaði upp á ríflega 100 milljónir
króna. Fleira var um að vera hjá Iðn-
aðardeildinni því stór samningur var
gerður við bandaríska aðila um sölu
á mokkaskinnum til þeirra að verð-
mæti um 23 milljónir króna.
Ný sundlaug var tekin í notkun á
Raufarhöfn. Var greinilegt að bæjar-
búar kunnu vel að meta því um 200
manns mættu í laugina fyrsta daginn
sem hún var opin.
„Heimsklassahótel í Kjarna-
skógi?" -sagði í fyrirsögn Dags. Var
þar rætt um bréf Úlfs Ragnarssonar
læknis til Bæjarráðs Akureyrar en í
því bréfi sagði Úlfur m.a.: „Áhersla
skal lögð á að ekki er fyrirhuguð nein
meinlætastofnun, hversu vel gestir
vilja nýta sér þá aðstöðu sem boðin
verður er undir þeim sjálfum komið
og ekki er ætlast til strangari reglna
en almennt velsæmi býður, svo sem
á öðrurn gististöðum."
í flennistórri fyrirsögn á forsíðu
Dags þann 21. mars var þeirri spurn-
ingu varpað fram hvort kennsla á
háskólastigi myndi hefjast á Akur-
eyri í haust. Ekkert varð af því eins
og öllum ætti að vera kunnugt og
ekki séð hvenær slík starfsemi hefst í
höfuðstað Norðurlands.
Framkvæmdir hófust við stækkun
Hótels KEA á Akureyri og standa
þær yfir. Hótelið mun stækka um 30
herbergi en fyrir stækkunina gat
hótelið boðið upp á gistingu í 28 her-
bergjum. Gistirými tvöfaldast því
rúmlega þegar verkinu verður lokið.
Framleiðsla hófst á sterkum bjór
hjá Sana á Akureyri. Voru í fyrstu
atrennu framleiddar bjórflöskur í
þúsund kassa og fóru þær til sölu í
Fríhöfninni á Keflavíkurflugvelli og
til sendiráða erlendra ríkja á íslandi.
Styrkleiki bjórsins var 5,2% og er
það meiri styrkleiki en selja má ís-
lendingum á almennum markaði.
Trillukarlar og fleiri á Akureyri
komust heldur betur í feitt. Óvenju
mikil loðna gekk nefnilega inn á Ak-
ureyrarpoll og þar veiddu karlarnir
grimmt. Fengu þeir um 700 krónur
fyrir tunnuna sem var fryst í beitu. I
kjölfar loðnunnar fylgdi svo mikið af
öðrum fiski og var t.d. mjög mikil
rauðmagaveiði. Eyjafjörðurinn var
því ekki alveg dauður eins og gefið
hafði verið í skyn nokkru áður og
vitnað var til hér að framan.
Aprfl:
Hraðfrystihús Þórshafnar festi kaup
á öðrum raðsmíðabáti Slippstöðvar-
innar á Akureyri. Kaupverðið var
um 100 milljónir króna. Rætt hefur
verið um að báturinn verði afhentur
í árslok. Báturinn verður notaður til
bolfiskveiða en hann er einnig útbú-
inn til rækjuveiða. í desember bárust
fréttir af því að raðsmíðabátar Slipp-
stöðvarinnar væru óseldir þannig að
kaupin hafa gengið til baka.
Um 100 manns voru á stofnfundi
Búseta á Akureyri og var Jón Arn-
þórsson kosinn formaður samtak-
anna. „Það er mjög brýnt fyrir þær
þúsundir fólks sem gengið hafa í
húsnæðissamvinnufélögin að þegar
verði sett sérstök löggjöf um hús-
næðissamvinnufélög og búseturétt,”
sagði m.a. í áskorun sem samþykkt
var á stofnfundinum.
Gylfi Þórhallsson varð skákmeist-
ari Norðurlands en Skákþing Norð-
lendinga var haldið á Blönduósi.
Gylfi hlaut 6 vinninga af 7 mögu-
legum eða heilum vinningi meira en
næstu menn.
Vélsleðaeigendur fjölmenntu á
mót sem haldið var í Nýja-Jökuldal.
Mótið fór vel fram en er halda skyldi
heim á leið var skollið á aftakaveður.
Lentu margir mótsgesta í hrakning-
um á heimleið, leitarflokkar voru
kallaðir út en allir komust heilir til
byggða. Bárðdælingur nokkur hrap-
aði þó í Þvergil á Sprengisandi og
meiddist nokkuð og var hann fluttur
á sjúkrahúsið á Húsavík.
Samtök áhugamanna um jafnrétti
milli landshluta kærðu fréttastofu
Sjónvarps fyrir hlutdrægni í frétta-
flutningi. Jafnréttismenn sögðu að
fréttastofan hefði lofað þeim að
fréttamaður yrði viðstaddur er sam-
tökin aflientu Steingrími Hermanns-
syni mótmæli í anddyri Alþingishúss-
ins en það var svikið. Hins vegar
mætti sjónvarpið á vettvang er
áhugamenn um jafnan kosningarétt
hittu forsætisráðherra þar til að af-
henda honum plögg sín.
„Pöbbamenningin" svokallaða
hélt irtnreið sína á Akureyri. „Bikar-
inn" og „Baukurinn" voru þau nöfn
sem „pöbbar" Sjallans og H-100
fengu og hafa gestir þessara staða
síðan getað svolgrað þar í sig bjór-
líki.
Innbrot í verslunina Hljómver á
Akureyri um mitt ár 1982 var
upplýst. Kom í Ijós að þjófurinn sem
þarna hafði verið að verki var ný-
græðingur og ekki í kunningjahópi
lögreglunnar.
Samtök rétthafa á myndböndum
gerðu „rassíu" á myndbandaleigum
á Akureyri. Þeir fundu á annað hundr-
að ólöglegar myndir á leigum bæjar-
ins og sögðu að Fálkinn hf. hefði t.d.
átt einkarétt á 42 þessara mynda.
Leikfélag Akureyrar ákvað að
taka til sýninga söngleikinn um ævi
söngkonunnar Edith Piaff. Síðar var
ákveðið að aðalhlutverkið vrði i
höndum leikkonunnar Eddu Þórar-
insdóttur.
Vel voraði á Norðurlandi. „Menn
Sjá næstu síöu