Dagur - 24.04.1985, Side 1
FERMINGAR-
GJAFIR
í MIKLU
ÚRVALI
GULLSMKMR
SIGTRYGGUR & PÉTUR
AKUREVRI
AKUREYBI
68. árgangur
Akureyri, miðvikudagur 24. aprfl 1985
46. tölublað
Atvinnulevsi
- en samt
vantar fólk!
Menn greinir á um hvort raun-
hæft sé að tala um að atvinnu-
leysi sé að einhverju marki á
Akureyri. Bent er á tölur frá
Vinnumiðlunarskrifstofunni í
því sambandi, en þær sýndu
t.d. um síðustu mánaðamót að
á atvinnuleysisskrá voru 81
karl og 35 konur. - Aðrir
benda á að það vanti fólk til
starfa í mörgum fyrirtækjum
og á meðan svo sé, sé ekki um
raunverulegt atvinnuleysi að
ræða.
„Eins og staðan er í dag getum
við bætt við okkur 40-50 konum
Ávísana-
falsari
á ferð
Eftir að aðkomumaður sem
var að skemmta sér á Akureyri
um helgina hafði komist yfír
veski með ávísanahefti í, hóf
hann að falsa ávísanir og tókst
honum á skömmum tíma að
verða sér á þann hátt úti um 21
þúsund krónur.
Þetta var maður af Reykjavík-
ursvæðinu, og þegar honum
fundust „afrek“ sín vera orðin
nóg á Akureyri hélt hann austur
á Eskifjörð. Pá var lögreglan hins
vegar komin á slóð hans og þar
var hann handtekinn og úti um
skemmtiferð hans um landið að
sinni a.m.k.
í fiskvinnslu," sagði Gunnar Asp-
ar hjá Útgerðarfélagi Akureyr-
inga er við ræddum atvinnu-
ástandið hjá því fyrirtæki við
hann. Gunnar sagði að æskilegt
væri að þessar konur hefðu
reynslu af störfum við fiskvinnslu
en það væri ekki skilyrði. Við
spurðum hann hvort ekki væri
hægt að fá konur til fiskvinnslu
hjá Vinnumiðlunarskrifstofunni.
„Við höfum fengið talsvert af
fólki hingað frá vinnumiðlun-
inni,“ sagði Gunnar. „í vetur
höfum við fengið a.m.k. þrjá
hópa þaðan og þetta hafa oftast
verið konur sem hafa verið búnar
að fá þær atvinnuleysisbætur sem
þær eiga rétt á. Ég get hins vegar
sagt að það er engin af þessum
konum í vinnu hjá okkur í dag,
þetta er fólk sem kærir sig ekki
um að vinna svona vinnu.“
Haukur Torfason hjá Vinnu-
miðlunarskrifstofunni varð fyrir
svörum þar, og við spurðum
hann hvort sumt af því fólki sem
væri þar á atvinnuleysisskrá væri
fólk sem ekki hefði áhuga á að
vinna.
„Ég get hreinlega ekki svarað
þessari spurningu,“ sagði Hauk-
ur. „Allir þeir sem koma hér inn
og láta skrá sig eru að sækjast eft-
ir atvinnu, annað get ég ekki
sagt. Það er hins vegar þannig að
margt af þessu fólki hefur læknis-
vottorð um að það megi ekki
stunda hvaða vinnu sem er, t.d.
ekki erfiðisvinnu eða vinnu þar
sem um kulda og vosbúð er að
ræöa. Af þeim 35 konum sem
voru hér á skrá um síðustu mán-
aðamót voru 18 sem höfðu slíkt
vottorð undir höndum." gk-.
Slippstöðina vantar 25 menn:
„Engir jámiðnaðar-
menn til í bænum“
- segir Gunnar Skarphéöinsson starfsmannastjóri
„Okkur vantar tilfínnanlega
járniðnadarmenn til starfa,“
sagði Gunnar Skarphéðinsson
starfsmannastjóri hjá Slipp-
stöðinni á Akureyri í samtali
við Dag.
„Við gætum tekið á móti
a.m.k. 15 plötusmiðum. Einnig
vantar okkur vélvirkja og raf-
suðumenn þannig að það er ekki
fjarri lagi að ætla að okkur vanti
um þessar mundir 25 iðnaðar-
menn.“
- Er vandræðaástand?
„Ég veit ekki hvað á að segja.
Það vantar þessa járniðnaðar-
menn í bæinn, þeir eru einfald-
lega ekki til hér. Þeir járniðnað-
armenn sem hafa t.d. hætt störf-
um hjá okkur hafa flutt burt úr
bænum. Við höfum bjargað okk-
ur á þann hátt að hafa samvinnu
við verkstæði hér í bænum og það
er af hinu góða, þótt auðvitað
vildum við heldur hafa yfir okkar
eigin mannskap að ráða hverju
sinni.“
Mynd: KGA
Verður hluti afl-
ans tvífiystur?
- SH og Rannsóknastofnun fiskiðnaðarins gera tilraunir
með endurþíðingu - ÚA fylgist grannt með framvindu mála
Sölumiðstöð hraðfrystihús-
anna vinnur nú að merkilegum
tiiraunum á tvífrystingu sjávar-
afla í samráði við Rannsókna-
stofnun fískiðnaðarins. Hefur
Akureyrin lagt upp frystan afla
hjá SH í þessu skyni en niður-
stöður tilraunanna ættu að
liggja fyrir eftir u.þ.b. mánuð.
Samkvæmt íslenskum lögum er
bannað að tvífrysta fisk en Norð-
menn og Bretar hafa náð góðum
árangri í að frysta fisk og endur-
þíða til vinnslu áður en fiskurinn
er svo frystur að nýju. Samkvæmt
upplýsingum Hjalta Einarssonar,
framkvæmdastjóra SH hefur
komiði ljós í tilraunum þeirra að
það er síst lakara að tvífrysta
fiskinn en geyma hann í ís í sex til
tíu daga. Hjalti sagði ljóst að vel
væri hægt að nota tvífrystan fisk
í blokk en hvort hægt væri að
nota hann í bestu umbúðir væri
of snemmt að segja til um á þessu
stigi.
- Ég tel það Ijóst að ef við
náum að sýna fram á hagkvæmni
þessarar tvífrystingar þá muni
ekki standa á ráðuneytinu og
fiskeftirliti að gefa leyfi, sagði
Hjalti Einarsson.
Forráðamenn Útgerðarfélags
Akureyringa hafa fylgst náið með
þessum rannsóknum og að sögn
Gísla Konráðssonar, fram-
kvæmdastjóra hafa þeir velt þeim
möguleikum fyrir sér að ef leyfi
verður veitt til tvífrystingar, að
láta togarana frysta aflann fyrstu
þrjá til fjóra dagana í hverri
veiðiferð.
- Með þessu móti geta skipin
haldið sínum veiðitíma. Ef við
ætlum hins vegar að ná öllu hrá-
efninu í bestu flokka án frysting-
ar þá styttist úthaldstíminn
mikið, sagði Gísli Konráðsson.
Að sögn Gísla er það alrangt
sem haldið var fram í Þjóðviljan-
um á dögunum að Akureyrin
myndi leggja upp frystan fisk hjá
fyrirtækinu. Ef tvífrysting reynist
hagkvæm og ef leyfi fást myndu
togarar ÚA sjá um hráefnisöflun-
ina sem fyrr.