Dagur - 24.04.1985, Side 3
24. apríl 1985 - DAGUR - 3
Akureyringar:
m EIGNAMIÐSTÖÐIN
- Nú erum við alveg að gefast
upp. Um síðustu helgi voru
tvær rúður brotnar í símaklef-
anum í göngugötunni og sím-
tólinu stolið, líklega í sjöunda
eða áttunda skiptið í vetur.
Símnotendur eru búnir að
greiða tugþúsundir króna
vegna þessara skemmdarverka
og það er alveg á mörkunum
að þetta gangi lengur. Akur-
eyringar virðast því miður ekki
kunna að umgangast síma-
klefa.
Þetta sagði Gísli Eyland hjá
Pósti og síma á Akureyri er við
ræddum við hann um síendurtek-
in skemmdarverk á símaklefan-
um í göngugötunni.
Að sögn Gfsla er umgengnin
um símaklefann með ólíkindum.
Símaskrár endast þar ekki daginn
og um helgar er símtólinu nær
undantekningarlaust stolið. Gísli
minntist á að á sínum tíma hefði
neyðarsími sem komið var fyrir í
Glerárhverfi, verið rústaður og
svo virtist sem bæjarbúar kynnu
ekki að nota né meta slíka síma-
klefa.
- Eina ráðið virðist vera að
taka klefann niður en á það ber
hins vegar að líta að nú fara
ferðamennirnir sem kunna að
ganga um símaklefa að koma og
við ætlum því að gera eina tilraun
enn, sagði Gísli Eyland.
Gísli vildi jafnframt koma því
á framfæri að Póstur og sími eða
lögreglan væri látin vita ef fólk
yrði vart við skemmdarvargana
sem lagst hafa á símaklefann.
- ESE
Flugkynning
á Akureyri
um helgina
Félög flugáhugamanna á Ak-
ureyri gangast fyrir flugkynn-
ingardegi nk. laugardag og
verður mikið um dýrðir á
þeirra vegum.
Kynningin hefst strax kl. 9 um
morguninn með hópflugi yfir
bæinn, og taka þátt í því allar
flugvélar Akureyringa sem flug-
hæfar eru.
Á sama tíma hefst opið hús í
Dynheimum. Þar verða til sýnis
ýmsir munir er tengjast fluginu
og öllu er að því lýtur, og mynda-
sýningar verða í gangi allan
daginn.
Fallhlífarstökk verður kl. 10
um morguninn og aftur kl. 15 og
munu fjölmargir stökkvarar
mæta þar til leiks. Kl. 13.30 lend-
ir flugvél á túninu neðan við
Samkomuhúsið og hálftíma síðar
sviffluga. Þá verður módelflug á
dagskrá og að lokum má geta
þess að í Dynheimum verður
hægt að fá upplýsingar um allt er
tengist flugi, flugvirkjastörf
o.þ.h.
Náttúrulækn-
ingafélagið
fær stórgjöf
Náttúrulækningafélaginu á
Akureyri hefur aftur borist
stórgjöf frá velunnara félags-
ins, að upphæð tvær milljónir
króna og skal þeim varið til
bygg^garframkvæmda við
heilsuhæli félagsins í Kjarna-
skógi.
Er þetta í annað sinn sem fé-
lagið verður aðnjótandi svo
stórrar peningagjafar, og mun
þessi gjöf vera afleiðing af hinni
fyrri.
Að sögn Laufeyjar Tryggva-
dóttur ganga framkvæmdir vel,
nú í sumar á að Ijúka þaki,
glerja glugga og klæða húsið
innan að hluta og er þá stórum
áfanga náð. - mþþ
Seljahlíð:
3ja herb. raðhúsíbúð á einni hæð.
Laus eftir samkomulagi.
Kjalarsíða:
4ra herb. ibúð á 2. hæð í enda í svala-
blokk. Verð kr. 1.570.000.
Borgarhlíð:
4ra herb. endaíbúð á 1. hæð i svala-
blokk. Laus strax. Verð kr. 1.450.000.
Tjarnarlundur:
3ja herb. ibúð á 4. hæð í fjölbýlishúsi
ca. 84 fm. Laus eftir samkomulagi.
Verð kr. 1.300.000.
Lerkilundur:
147 fm einbýlishús ásamt 32 fm
bilskúr. Skipti á raðhúsibúð á
Brekkunni möguleg. Verð kr.
3.500.
Hrísalundur:
3ja herb. ibúð á 3. hæð í svalablokk.
Laus eftir samkomulagi. Verð kr.
1.260.000.
Dalsgerði:
5 herb. raðhúsíbúð á tveim hæðum.
Möguleiki að hafa litla íbúð í kjallara.
Verð kr. 2.000.000.
Heiðarlundur:
5 herb. íbúð á tveim hæðum ca. 137
fm. Bílskúrsréttur. Verð kr. 2.400.000.
Heiðarlundur:
4ra herb. raðhúsibúð ca. 140 fm á
tveim hæðum til afhendingar eftir
samkomulagi. Verð kr. 2.400.000.
Grundargerði:
4ra herb. raðhúsíbúð á tveim hæðum.
Laus eftir samkomulagi. Verð kr.
2.000.000.
Lyngholt:
5 herb. einbýlishús ca. 143 fm ásamt
50 fm tvöföldum bilskúr og geymslum
i kjallara.
Grænamýri:
150 fm einbýlishús ásamt 30 fm
bílskúr. Verð kr. 2.600.000.
Brattahlíð:
135 fm einbylishus á einni hæð ásamt
grunni undir bílskúr. Verð kr.
2.800.000.
Munkaþverárstræti:
6 herb. einbýlishús á tveim hæðum
ásamt bilskúr. Töluvert endurnýjað.
Verð kr. 2.300.000.
Þingvallastræti:
5 herb. einbýlishús á einni hæð ca.
110 fm. Þarfnast lagfæringar. Verð kr.
1.550.000.
Gilsbakkavegur:
114 fm eldra einbýlishús, hæð og
ris. Verð kr. 1.500.000.
Bakkahlíð:
351 fm einbýlishús á tveim hæðum.
N.h. fullfrágengin, en e.h. tilbúin undir
tréverk. Bilskur ca. 32 fm.
Stapasíða:
279 fm einbýlishús á tveim hæðum.
N.h. fullfrágengin, en e.h. rúmlega til-
búin undir tréverk. Bílskúr ca. 32 fm.
Laus eftir samkomulagi.
Iðnaðarhúsnæði:
Ýmsar stærðir af iðnaðarhúsnæði
undir hvers konar iðnað og þjónustu.
Upplýsingar á skrifstofunni.
Bakkasíða:
Fokhelt einbýlishus ca. 156 fm ásamt
36 fm bílskúr og plássi í kjallara. Ýmis
skipti. Verð kr. 1.900.000.
Opið allan daginn.
Síminn er 24606.
Sölustjóri:
Björn Kristjánsson.
Heimasími: 21776.
Lögmaður.
Ólafur Birgir Árnason.
Stálvík gerir við
Bjama „heitinn“
Á stjórnarfundi í Útgerðarfé-
lagi Akureyringa á mánudag
var ákveðið að taka tilboði
Stálvíkur hf. í Garðabæ í við-
gerðina og endurbæturnar á
togaranum Bjarna Herjólfs-
syni, sem fyrirtækið keypti fyr-
ir nokkru af Landsbankanum
og ákveðið hefur verið að skíra
Hrímbak.
Tilboð Stálvíkur hljóðaði upp
á rúmar 17 milljónir króna og er
reiknað með að viðgerðin og
endurbæturnar taki átta vikur.
Þrjú tilboð bárust í verkið en auk
Stálvíkur buðu norskt og þýskt
fyrirtæki.
Það vekur athygli að aðeins
eitt innlent tilboð barst. Talsvert
atvinnuleysi hefur verið hjá
skipasmíðastöðvunum í vetur en
nú virðist sem svo að eitthvað sé
að birta til. Að sögn Gísla Konr-
áðssonar, framkvæmdastjóra ÚA
mun það hafa ráðið mestu að
fyrirtæki eins og Slippstöðin
buðu ekki í verkið að það þurfti
að vinna á mjög skömmum tíma
og framkvæmdir þurfa að hefjast
fljótlega. -ESE
Heimsmetstil-
raun a
Nákvæmlega kl. 24 aðfaranótt
laugardags hefst skringileg
uppákoma í gamla íþróttahús-
inu við Menntaskólann. Þá
munu 18 krakkar úr 6. bekk í
Barnaskóla Akureyrar hefja
heimsmetstilraun í því sem
kallað hefur verið „að verpa
eggjum“.
Að sögn krakkanna hafa þau
tekið við áheitum að undanförnu
en allur ágóði rennur til Hjálpar-
Akureyrí
stofnunar kirkjunnar. Krakkarn-
ir hafa skuldbundið sig til að vera
að í 24 til 30 tíma og á þriðjudag
höfðu þau þegar safnað 18 þús-
und kr. í áheitum.
Þess má geta að leikurinn „að
verpa eggjum“ er boltaleikur þar
sem þátttakendur kasta bolta í
vegg og hoppa yfir hann einn af
öðrum. Það verður því mikið
hoppað og skoppað í þessari
heimsmetstilraun. -ESE
Nýtt • Nýtt
Vorum að taka upp nýjar tegundir
af húsgögnum
Hrísalundi 5,
kjallara.
sImi
(96)21400
Kunna ekki að um-
gangast símaklefa
að Skipagötu 14
3. hæð
(Verkalýðshúsið).
OPIÐ ALLAN
DAGINN