Dagur - 24.04.1985, Blaðsíða 6
6 - DAGUR - 24. apríl 1985
Hrafnhildur
H<$m
Pað er sumardagurinn
fyrsti á morgun.
Gaman, gaman.
í tilefni af honum
fengum við nýkjörna
„Ungfrú Akureyri"
til liðs við okkur
og tókum af
henni nokkrar myndir.
Árangurinn birtist
hér í opnunni.
Við gerðum víðreist
um bæinn, fylgdumst
með starfsmönnum
Slippstöðvarinnar sem
voru að vinna við skrúfu
í aflaskipinu Guðbjarti frá
ísafirði, á Útgerðar-
félaginu var verið að skera
fisk, í Mjólkursamlaginu voru starfs-
menn að störfum við skilvindu og á
saumastofu Sambandsins saumuðu konur
saman peysur í erg og gríð. Á þessum
stöðum klæddist Hrafnhildur fötum frá
Lotto í Sunnuhlíð, Básnum í
Vöruhúsi KEA, Amaro og Tískuverslun Steinunnar.
Hrafnhildur er snyrt hjá Snyrtistofu Nönnu í Strandgötu.
Dagur þakkar Hrafnhiidi, verslunum er lánuðu föt og
fyrirtækjum sem heimsótt voru og við vonum
að lesendur hafi einhverja ánægju af þessu uppátæki okkar.
sagt
að grípa
tœkifœrið“
©
*© e
£ a s
J*J
'SÉ£
** -c ©
Is'®
S1 a 3
»o
o c
to
„Það var þannig að Alice Jó-
hanns bað mig að vera með í
keppninni og ég sló til eftir
nokkra umhugsun,“ sagði
„Ungfrú Akureyri“ Hrafnhild-
ur Hafberg, en hún var kosin
fegurðardrottning á mikilli
hátíð sem haldin var í Sjallan-
um fyrir skömmu. Og það var
ekki allt og sumt, heldur var
Hrafnhildur einnig kjörin
Ijósmyndafyrirsæta, og stúlk-
urnar sem þátt tóku í keppn-
inni kusu hana vinsælustu
stúlkuna í sínum hópi. Sem sé
þrefaldur sigur. Hrafnhildur er
17 ára og stundar nám í
Menntaskólanum á Akureyri.
Hún segir okkur fyrst hvernig
undirbúningi fyrir keppnina
var háttað.
„Við hittumst allar í vikunni á
undan keppninni og þá var
ákveðin leið sem við áttum að
ganga og einnig æfðum við viss
spor og fórum yfir nokkur atriði
sem við þurftum að standa klárar
á.“
Það var allt á útopnu á Heklu er
Hrafnhildi bar að garði,
saumavélarnar komu saman hverri
flíkinni á fætur annarri. Ungfrú
Akureyri klæðist fötum frá Amaro,
jakka og buxum í grænum sumarlit
og verðið er 5.670 krónur,
eyrnalokka ber Hrafnhildur og
kosta þeir 250 krónur, en taskan er
á 865 krónur.