Dagur - 24.04.1985, Side 7
24. apríl 1985 - DAGUR - 7
02 sumartískan ’85
Á frystihúsi ÚA voru allir í hvínandi
bónus, nema hvað Ungfrú Akureyri
tók því fremur rólega. Hún gekk um
vinnusalinn og kynnti sér
undirstöðuatvinnuveg þjóðarinnar í
fötum frá Tískuversiun Steinunnar.
Dressið kostar 5.970 krónur og
blússan sem er tvílit kostar 1.650
krónur, festin er á 360 kr.
- Var þetta ekki erilsamur
dagur hjá ykkur?
„Jú, það er óhætt að segja það.
Við mættum klukkan 2 í hár-
greiðslu og það tók dálítinn tíma,
síðan fórum við beint í snyrtingu,
þar sem við vorum málaðar og
svoleiðis. Þá var dagskrá í Sjall-
anum sem stóð eitthvað frameft-
ir. Ég var orðin ansi þreytt undir
það síðasta."
- Var ekkert erfitt að taka þátt
í þessari keppni?
„Óneitanlega var dálítið
óþægilegt að standa uppi á sviði
og vita að dómarar væru að
dæma mann, en nei, mér fannst
þetta ekkert erfitt. Það hjálpaði -
mér mikið að ég er vön að koma
fram, ég hef tekið þátt í danssýn-
ingum og tískusýningum í Sjall-
anum og því vön að koma fram.
Ég hef líka dansað í My Fair
Lady og Kardemommubænum,
svo að þetta var ekki mikið mál
þegar á allt er litið.“
- Hvernig var andrúmsloftið
áður en tilkynnt var hver yrði fyr-
ir valinu?
„Við vorum allar mjög
spenntar, það var alltaf verið að
spá í hver okkar myndi sigra.
Ókkur fannst það svo óraunveru-
legt að ein okkar yrði kosin feg-
urðardrottning, við vorum búnar
að vera saman allan daginn og
það var alltaf verið að tala um
þessa keppni, þetta var orðið
hálffjarlægt. En það var mikil
spenna að vita hver yrði fyrir val-
inu.“
- Kom þetta þér á óvart?
„Já, ég var mjög hissa á þessu,
átti alls ekki von á þessu. Nei,
nei, þær urðu ekkert reiðar þó að
ég ynni alla titlana, það var engin
innbyrðiskeppni hjá okkur. Við
stóðum allar saman og þekkj-
umst sumar og það kom aldrei til
greina að vera neitt að móðgast."
- Hvað skiptir mestu máli þeg-
ar velja á fegurðardrottningu?
„Hæðin skiptir máli og auðvit-
að útlitið, bæði vöxturinn og and-
litið. Einnig skiptir máli að hafa
góða framkomu, þetta er nú það
sem ég veit, annars er ég ekki
mikið inni í þessum málum.“
- Andstæðingar fegurðarsam-
keppna vilja halda því fram að
um nautgripasýningu sé að ræða,
hvað finnst þér um það?
„Mér fannst það líka fyrst og
var á móti svona keppnum. En
eftir að hafa tekið þátt í keppni
sjálf þá finnst mér hún allt öðru-
vísi en ég átti von á að hún væri.
Þetta er ný reynsla og mér fannst
alveg sjálfsagt að prófa. Mér
finnst að þeir sem fá tækifæri
á borð við þetta eigi alls ekki
að kasta því frá sér.“
- Ert þú kannski að hugsa um
að fara út í eitthvað svoleiðis,
t.d. að reyna fyrir þér sem Ijós-
myndafyrirsæta?
„Það er nógur tími til að hugsa
út í það, ég er enn ekkert farin að
pæla í því. Ég ætla að ljúka við
menntaskólann fyrst en þar á ég
eftir tvö ár. En ef mér býðst tæki-
færi eftir það þá getur verið að ég
slái til, það er allt í lagi að prófa.
Hins vegar held ég að það sé
ekkert spennandi að vera lengi f
þessum bransa því ég held hann
sé dálítið erfiður."
- Við endum spjallið á að
spyrja hvað þú gerir í frístund-
um.
„Það er alveg nóg að gera í
skólanum og hann tekur mikinn
tíma, en ég stunda nám á máia-
braut. Þegar ég er ekki að læra,
þá stunda ég jazzdans, en ég hef
mikinn áhuga á honum. Ég fór
einu sinni með vinkonu minni í
tíma og þá langaði mig rosalega
að prófa sjálf og gerði það og hef
verið í jazzdansi síðan.“ - mþþ
S s
S i
m®
5 g
oj ca .= o
■2 ^ O 13
JS J2 c
ííg’Sss
"Efgíá
3 u |S * £ Q-
•- .tr£ s — s =
£ ‘S "■ <2 '§ 'O
E "§ L. ■* •*
wC1/)
* £ W "“t
r. M .Si8'3
E ® « ._ — i 'ct
■p B •= '= 8 S 5
•a s S s £ “
II
3
*2 C s t 3 ^ *
tmm 3 ‘2 E 3
•5 3 2
S .2 ‘ "
'cS c
g "X
ðí
® ©