Dagur - 24.04.1985, Qupperneq 20
Pakkningaefni
korkur, skinn og hercules.
sími 96-22700
§
a
s
£
n
Akureyrarbær sparar
3,5-4 milljónir á ári
- vegna aðgerða Fjórðungssambandsins í skólakostnaðarmálum
segir Sturla Kristjánsson fræðslustjóri
„Sú mikla samstaða sem
skapaðist fyrir forgöngu Fjórð-
ungssambands Norðlendinga
veitti þann stuðning sem þurfti
til að stöðva auknar tilfærslur
á skólakostnaði til sveitarfé-
laga. Hér er um að ræða viku-
lega fjölgun kennslustunda um
350-400, eða 10-13 stöðugildi
á Akureyri. Það má því segja
að málafylgja Fjórðungssam-
bandsins hafí sparað Akureyr-
arbæ 3,5-4 milljónir á ári,“
sagði Sturla Kristjánsson,
fræðslustjóri í viðtali við Dag.
Að sögn Sturlu er þessi leið-
rétting á skólakostnaði árangur
af þátttöku í starfi Fjórðungs-
sambandsins. Þessi sparnaður
svari til rúmlega tvöfalds fram-
lags Akureyrarbæjar til sam-
bandsins, en sem kunnugt er hafa
bæði Akureyrarbær og Húsavík-
Ákveðið hefur verið að selja
vélbúnað Haga hf. svo og fram-
leiðsluréttinn á Haga-eining-
unum til Egilsstaða. Viöræður
um málið eru á lokastigi og fátt
annað eftir en að skrifa undir
samninga.
Að sögn Hafþórs Helgasonar,
fjármála- og skrifstofustjóra
Haga hf, var áhugi fyrir því að
fyrirtækið yrði áfram á Akureyri,
en hins vegar virtist raunveruleg-
an vilja eða getu til að koma því
í kring vanta. Kaupandi á Egils-
stöðum er fyrirtækið Brúnás,
stöndugt fyrirtæki sem rekur
byggingastarfsemi. Meðal annars
fær kaupandinn betri nýtingu á
húsnæði, með þessum kaupum.
„Það er enginn vafi að fram-
leiðsla þessara eininga ei
urkaupstaður ákveðið að endur-
skoða aðild sína að sambandinu
og láta athuga hver hagur sé af
þátttöku í því. Hafa þessar hug-
myndir fengið misjafnan
hljómgrunn og orðið til þess að
menn hafa sest niður til að skoða
þessi mál.
Skólakostnaðarmálið sem
Sturla nefndi hófst með því að
Fjórðungssambandið boðaði til
fundar um málefni dreifbýlis-
sveitarfélaganna í júní í fyrra.
Skólamálin voru skoðuð sérstak-
lega og í ljós kom að skólakostn-
aðurinn er orðinn meginhluti út-
gjalda minni sveitarfélaga. Enn-
fremur kom í ljós að þéttbýlis-
sveitarfélögin sátu ekki við sama
borð og tíðkast hefur í Reykja-
vík.
„Vegna þeirrar umræðu sem
starf Fjórðungssambandsins leiddi
arðsöm, en áfallinn fjármagns-
kostnaður Haga hf. varð fyrir-
tækinu ofviða og stöðvaði frekari
rekstur þess við óbreyttar að-
stæður. Fyrirtækið hefði þurft
15-20 milljónir króna til að
byggja upp nauðsynlegan lager
og hefja 2-3 ára útflutnings-
athuganir á framleiðsluvörunni.
Við teljum okkur vera búna að
reyna bókstaflega allar möguleg-
ar og ómögulegar leiðir til að
halda fyrirtækinu gangandi hér,
en höfum einfaldlega ekki efni á
að standa í því lengur," sagði
Hafþór Helgason.
Ákveðið hefur verið að halda
sérstaka sölusýningu á Akureyri,
þar sem boðið verður upp á sér-
stök kjör á Hagaeiningum, á
morgun, sumardaginn fyrsta,
föstudag og laugardag. HS
af sér verður framvegis óskað eft-
ir því að Akureyri sitji við sama
borð og Reykjavík, þegar úthlut-
að er kennslustundum til grunn-
skóla bæjarins. í hlut Akureyrar-
bæjar hefur komið að greiða
hundruð kennslustunda vikulega
úr bæjarsjóði, en hér eftir kemur
vonandi ekki til þess. Ástæðan
fyrir þessu misrétti var sú að
varðandi Reykjavík hefur verið
tekið tillit til byggðabreytinga
milli skóla, en ekki á Akureyri.
Þetta væri allt við það sama ef
þessi málaflokkur hefði ekki
fengið þessa málsmeðferð á veg-
um Fjórðungssambandsins. Það
er líka ljóst að önnur landshluta-
samtök eða sveitarfélög hafa ekki
beitt sér með sömu málafylgju til
að leiðrétta hlut sveitarfélaga í
skiptingu skólakostnaðar. Mér er
ekki kunnugt um að fræðslustjór-
ar í öðrum landshlutum hafi
fengið jafn eindrægan stuðning til
að fylgja slíkum málum eftir.
Þessa niðurstöðu má þakka því
að Fjórðungssamband Norðlend-
inga eru öflug samtök sem tekið
er tillit til,“ sagði Sturla
Kristjánsson, fræðslustjóri í
Norðurlandsumdæmi eystra. HS
Hrim-
bakur
skal
hann
heita
Hrímbakur skal hann heita.
Þetta er ákvörðun stjórnar
Útgerðarfélags Akureyringa
um nýtt nafn á togarann
Bjarna Herjólfsson sem ÚA
keypti nýverið.
Að sögn Gísla Konráðsson-
ar, framkvæmdastjóra ÚA var
úr vöndu að ráða varðandi
nafngiftina ' en Hrímbakur
varð síðan ofan á. Fyrirtækið
átti eitt sinn togara með þessu
nafni en sá hét áður Norðlénd-
ingur og var sameign nokkurra
útgerðaáNorðurlandi. -ESE
Dalvík:
Innbrot
hjá KEA
upp-
lýst
Rannsóknarlögreglan á Akur-
eyri hefur upplýst nokkur inn-
brot sem framin voru í útibú
Kaupfélags Eyfírðinga á Dal-
vík í þessum mánuði.
Farið hafði verið nokkrum
sinnum inn í hið nýja útibú kaup-
félagsins þar, og stolið alls um 40
þúsund krónum í peningum og
einnig talsverðu magni af tóbaki
og sælgæti.
Þetta mál upplýstist um helg-
ina. Sökudólgarnir reyndust vera
tveir 14 ára Dalvíkingar, og sá
þriðji hafði verið með þeim í inn-
brotunum að einhverju leyti.
Piltarnir gátu skilað aftur hluta
þýfisins.
Á sunnudaginn frumsýnir LA leikritið „Kötturinn sem fer sínar eigin leiðir“,
eftir Ólaf Hauk Símonarson. Hér eru þau í hlutverkum sínum, Theodór Júl-
íusson sem leikur köttinn og Þórey Aðalsteinsdóttir sem leikur konuna.
Mynd: KGA
Haga-einingar
til Egilsstaöa
- Sölusýning á Akureyri
Dagur þarf ekki að óska les-
endum sínum gleðilegs sumars
á kafí í snjó. Sumar og vetur
frjósa að vísu saman en sam-
kvæmt upplýsingum veður-
fræðinga er útlit fyrir að það
verði úrkomulaust inn til
landsins þó él verði e.t.v. á
annesjum.
Það verður hæg norðan- og
norðaustanátt og kalt í veðri,
a.m.k. fram á sunnudag.
Gleðilegt sumar!
# Laxveiði er
lúxus
Það þarf engum blöðum um
það að fletta að fyrirsögnin
hér að ofan er rótt. Oft hefur
verið slegist harkalega um
laxveiðiárnar og útlendingar
hafa verið sakaðir um að
sprengja verðið upp en nú
hefur komið á daginn að
stangaveiðifélögin og fyrir-
tœkin hér heima eru litlu
betri.
Það er alkunn staðreynd að
mörg fyrirtækí taka heilu árn-
ar á leígu eða kaupa upp
bestu dagana. Kostnaðurinn
er settur á risnu og er því
frádráttarbær frá skatti. Stór-
laxarnlr og viðskiptamenn
þeirra veiða síðan á kostnað
skattborgara.
• SVFR
sprengir
verðið upp
Með þessu móti hafa fyrir-
tækin sprengt upp verð á
góðum sem lélegum iaxveiði-
ám. Helsti keppinautur fyrlr-
tækjanna er Stangaveiðifélag
Reykjavíkur og nú er svo
komið að mörgum er farið að
blöskra hve míkil umsvif það
félag hefur. Sagt er að SVFR
bjóði ( allar ár sem eru á
lausu enda ekkl vanþörf á
því félagsmenn eru eitthvað
á annað þúsundíð. Nýttdæmi
um þetta er Miðá ( Dölum
sem í fyrra var leigð á 350
þúsund. í þessa á mun SVFR
hafa boðið eina milljón króna
i ár en mörg önnur tilboð frá
stangaveiðifélögum og fyrir-
tækjum voru á bilinu 700-000
þúsund krónur.
• 2.500 kr.
ktlóið
En hvað veiddist svo í Miðá í
fyrra og hvað mega menn
búast við að fá fyrir veiðlleyf-
ið. Jú, tæplega 130 laxar
veiddust í ánni í fyrra og tölu-
vert af bleikju. 270 stangar-
dagar eru í ánni sem þýðir að
SVFR verður að fá um 4.000
kr. fyrlr stöng pr. dag til að
hafa upp í kostnað. Hóflega
áætlað verður dagurinn þá
seldur á 5.000 krónur og mið-
að við að hálfur lax veiðist á
stöng á dag, kostar stykkið
t(u þúsund krónur. Meðal-
þyngdin var í fyrra rúm fjögur
k(ló, þannig að kilóið af Mið-
árlaxinum kostar litlar 2.500
krónur ef einungís er miðað
við veiðileyfi. Miðá er bara
eitt dæmið um á þar sem
veiðin hefur farið minnkandl
en verðið hækkandi. Það geta
stangaveiðimenn þakkað
brölti fyrirtækja, útlendinga
og SVFR. Með þessu áfram-
haldi endar þetta með því að
flestir veiðimenn neyðast til
að kaupa sér leyfi í „ódýrum“
fjallavötnum.