Dagur - 15.11.1985, Síða 5
15. nóvember 1985 - DAGUR - 5
Jijátrú eða hvaðZ
Haraldur Ingi
Haraldsson
skrifar
Úr Gambanteinum
Það að spá í veður er líkast til frá
fornu fari þjóðaríþrótt íslendinga.
Og líkja má því við skákiðkun þar
sem hvort tveggja er íþrótt hugans.
Þess vegna er nauðsynlegt að vera
vel að sér í ýmsum leiðbeiningum
náttúrunnar og var það að sjálfsögðu
brýn nauðsyn áður fyrr þegar engir
veðurfræðingar voru til og enn nauð-
synlegra í dag þar sem ekkert er að marka þá. Hér á eftir fara
nokkrar leiðbeiningar um að spá í veðrið úr Gambanteinum.
Ef skær bjarmi sést á hnífsblaði í óþurrkatíð veit það á sólskin
en ef rauðbláum lit slær á eld er vísast að hörð tíð sé í vændum.
Ef þoka er á sunnudaginn fyrsta í sumri verður sumarið allt
þokusamt. Sé venju fremur fagurt hljóð í hröfnum, veit það á
góða tíð, en ef þeir eru bæði rámir og raddljótir þá má búast við
harðindum. Úr Barðastrandarsýslu er það komið að ef hrafnarnir
krunka eins og sé vatn í goggi þeirra þá veit það á vætu en sé
krunk þeirra hreint þá er þurrkatíð í nánd.
Sé jólafastan góð, bera hinar fösturnar keim af henni. Sé jóla-
fastan vond, verður hið gagnstæða.
Blóðnasir o.fl.
Þeim sem þykir hárkarl góður og éta
ótæpilega af honum er hætt við blóð-
nösum, þá er hægt að grípa til þess-
ara ráða: í fyrsta lagi er gott að leggj-
ast á bakið og hafa brýni rnilli herða-
blaðanna. Dugi það ekki er rétt að
binda fast um litlafingur með bandi
og best er að það sé rautt á litinn.
Dugi ekkert af þessu er óbrigðult ráð
að taka mikið í nefið og batna blóðnasirnar við það þó að líklegt
megi teljast að eitthvað annað taki að renna í staðinn.
Ef það er fingurmein sem hrjáir þig þá skaltu stinga fingrinum
í moldarvegg og segja:
„Sting ég þér í vegg
eftir skil ég mein
aftur tek ég bein“.
Missi barn tönn, skal vefja ullarlagði utan um hana og stinga
henni í moldarvegg og segja:
Sjómennska
Hjátrú er algeng á sjónum og væri
gaman ef að lesendur úr sjómanna-
stétt upplýstu þáttinn um hvernig
ástand þeirra mála er í dag. Hér áður
fyrr var það siður á skipum frá Bol-
ungarvík að kasta einum fiski í hafið
í upphafi vertíðar og segja: „Þetta
átt þú Ölver“. En Olver þessi var
fornmaður og dysjaður skammt frá
bænum. Ef sá sem er að beita hnerrar niður í bjóðið, er von á
góðum afla í þeirri veiðiferð sem fyrir hendi er. Sama er uppi á
teningnum hjá sjómanni ef hann dettur fram fyrir sig á leið til
skips, hann má eiga von á góðum hlut.
Ef menn eru sólgnir í harðfisk þá er það þjóðráð að hafa alltaf
hertan ufsa uppi á skemmulofti (eða því lofti sem tiltækt er) og þá
er næsta víst að ekki þrýtur harðfiskinn.
Sjódraugar eru að sjálfsögðu til og ekki grunlaust um að þeir
séu að minnsta kosti einn á skip. Ef þess verður vart að sjódraug-
urinn yfirgefi skipið þá er það örugg vísbending til þess að skipið
er feigt.
Hrafnamál
Viljir þú skilja hrafnamál, þá náðu
þér í lifandi hrafn. Þegar það hefur
tekist er mikilvægt að kryfja hann á
sem allra skemmstum tíma og taka
úr honum hjartað. Hafi þetta gerst
svo hratt að hrafninn geti flögrað
nokkur fet hjartalaus þá munt þú
skilja hrafnamál. Hjartað verður að
geyma í íláti sem ekkert annað hefur
verið geymt í áður. Hafi krummi ekki getað flögið er allt til
einskis unnið.
Þyki þér þetta of mikið umstang er önnur aðferð til þess að ná
árangri en hún er einfaldlega sú að taka spora af hægra fæti
hrafnsins og bera í vasa sér.
Hrafnar hafa oft verið tengdir fjölkyngi og galdri. Til að fría sig
frá slíku er gott að taka himnu af dauðs manns auga, brenna hana
í eldi úti á víðavangi, teppi eða eitthvað slíkt þarf að hafa við
hendina. Þegar himnan tekur að brenna skalt þú steypa yfir þig
og eldinn klæðinu þannig að reykurinn leiki um þig. Þetta er ör-
ugg vernd gegn öllum aðsóknum, galdri og formælingum.
„Geymi sá sem gaf
og gefi mér aðra nýja“.
Sigfús Þór Baldvinssun
Garðarsbraut 67, Húsavík
áður til heimilis að Sandhólum á
Tjörnesi verður sjötugur laugar-
daginn 16. nóv. Hann tekur á móti
gestum á heimili dóttur sinnar og
' tengdasonar að Baughóli 19,
Húsávík.
Sextugur var í gær, fimmtudaginn
14. nóvember, Haukur Tryggva-
son, Sæbóli, Dalvík. Hann tekur
á móti gestum á heimiii sínu föstu-
daginn 15. nóvember.
Jeg söger pennevenner pá Island.
Mit navn er Inger Elisabeth
Hansen, 50 ár. Hobbies: frimærk-
er, broderi, gamle ting.
Skriv til Inger Elisabeth Hansen,
Ida Tesdorpfsvej 4B II TH,
3050 Humlebæk
Danmark.
5:24119/24170
Pajero diesel árg. ’83.
Ekinn 52 þús.
Suzuki Fox árg. ’83.
Ekinn 18 þús.
Ford Bronco árg. 78.
Ekinn 70 þús.
MMC Sapporo 1600 árg. ’82.
Ekinn 57 þús.
MMC Cordia 1600 árg. ’83.
Ekinn 22 þús.
Opið frá kl. 9-19 daglega.
^Laugardaga kl. 10-17.
Sfattúut
Laugardagur
Opnað kl. 19.00
Matur framreiddur til kl. 22.00
hljómsveitin
Fiction
leikur fyrir dansi ásamt diskóteki
Sólarsalur: Sunnudagur
v
JAZZ ÐAQUR*
\\a ^ hljómsveitir
4$ w Stjórnandi Paul Weeden
Fjölskylduskemmtun kl. 15.00-17.00
Kaffihlaðborö, aðeins kr. 180.-
12 ára og yngri fá frítt inn.
$
Tilboð:
Rækjubikar
m/ristuðu brauði M
Fylltur lambahryggu
m/myntusósu
Vanilluís
m/jarðarberjum
kr. 640,-
JAZZ
tónleikar
kl. 20.00
Geislagata 14 22970 - 22770
Aðalfundur
knattspyrnudeildar KA
verður í KA-miðstöðinni Lundarsk
miðvikudaginn 20. nóv.
Venjuleg aðalfundarstörf. Stjomin
Arshátíð
Árroðans, Öldunnar-Voröld og
Leikfélags Öngulsstaðahrepps verður í Freyvangi
laugardaginn 23. nóv. kl. 20.30.
Matur, skemmtiatriði.
Miðaverð ca. 550 kr,-
Pantanir í símum 31175 og 21351
fyrir kl. 20.00 á mánudagskvöldið 18. nóv. Nefndin.
14
LAUT
RESTAURANT
Helgin 15. og 16. nóvember:
Réttir dagsins:
Pönnustéiktur hörpuskelfiskur garlic með ristuðu brauði.
Agnes Sorel súpa.
Steiktur karfi nteð vínberjum og humri.
Grísasneiðar með Róbertsósu og bakaðri kartöflu.
Heilsteiktur nautahryggvöðvi með choronsósu og grænmeti.
Ferskjukaka.
Kaffi og konfekt innifalið.
Sunnudagur 17. nóvember. Tilboð:
Rjómalöguð sveppasúpa bætt með sherry.
Heilsteikt lambalæri.
Súkkulaðiís með peru.
Kr. 350,- Frítt fyrir 10 ára og yngri.
Borðapantanir í simum 22525 og 22527.
RESTAURANTLAUT HÓTELAKUREYRI
HAFNARSTRÆTI 98