Dagur - 15.11.1985, Page 10
10 - DAGUR - 15. nóvember 1985
----------------------------------------------------------------------popps/'ðan
Flestir Akureyringar og eflaust
allmargir Norðlendingar kannast
við hljómsveitina Art. Nafn henn-
ar hefur jafnvel borist víðar, en
ekki mun það vera í það miklu
magni að það taki að tíunda.
Þessi hljómsveit, Art er til um-
fjöllunar á poppsíðu Dags í dag.
Art er skipuð þeim Jakobi Jó-
hannssyni (gítarsynth + raddir),
Hermanni Ingólfssyni (synthesiz-
er), Sigurði Kristinssyni (synthes-
izer + trommuheili), Viðari
Sveinbjörnssyni (synthesizer +
raddir) og Tómasi Guðmunds-
syni (söngur). Rétt er að geta
einnig Trausta Ingólfssonar, sem
hefur leikið með hljómsveitinni
sem gestur, Trausti leikur á
ásláttarhljóðfæri.
Skipan hljómsveitarinnar hefur
verið nokkuð óbreytt frá stofnun
hennar í september 1982. Allir
meðlimir hafa verið með frá
byrjun, en svolítil hreyfing hefur
verið á gestaleikurunum.
Eins og áður sagði er hljóm-
sveitin næsta óþekkt utan Akur-
eyrar, enda hefur hún hvergi flutt
efni sitt utan höfuðstaðar Norður-
lands. Haldnir hafa verið þó
nokkrir tónleikar fyrir bæjarbúa
og hefur mæting verið all misjöfn,
í eitt skipti voru áhorfendur orðnir
frekar óþolinmóðir þegar aðeins
tveir hljómsveitarmeðlimir voru
mættir til leiks og klukkan dálítið
yfir auglýstan tíma. Þar höfðu
drengirnir lent í bensínleysi, en
slíkt kemur ekki fyrir aftur, enda
eru þeir orðnir vanari í að með-
höndla bíla en var á þessum
tíma.
Eins og með líkum má telja
hefur tónlistin breyst mikið á rúm-
um þremur árum. Aðspurðir
sögðu Artarar, að breytingin lægi
í hraðari takti og breyttu sándi
(sletta, sem lesendur verða að
sætta sig við í þetta sinn), sándið
væri orðið grófara, ef það mætti
orða það svo. Sögðu þeir að
þessar breytingar virtust falla vel
í mannskapinn.
Því til stuðnings, nefndu þeir
suðurferð sína, en höfuðborgin
var heimsótt og tekin voru upp
nokkur lög f stúdíóinu Mjöt, undir
stjórn Jóns Gústafssonar. Út á
þessar upptökur hefur hljóm-
sveitinni verið boðnir tveir plötu-
samningar. Var öðrum þeirra
hafnað samstundis svo óað-
gengilegur þótti hann en hinn er í
athugun. Vonast er til að út úr
honum gæti komið plata fyrri
partinn á næsta ári.
í leiðinni minntust þeir á að nú
væri vonlaust að komast í stúdíó
hér norðan heiða og háði það ak-
ureyrsku tónlistarlífi. Mikill kostn-
aður væri því samfara að þurfa
alltaf að fara til Reykjavíkur fyrir
upptökur.
Þeir kváðust vera nokkuð
ánægðir með íslenskt tónlistarlíf.
Komnar væru fram hljómsveitir
á svipaðri línu og Art. Þar nefndu
þeir Cosa Nostra og Rikshaw,
hins vegar töldu þeir akureyrskt
tónlistarlíf með allra daufasta
móti.
En fimmtudaginn 21. nóvem-
ber næstkomandi, heldur Art tón-
leika í Samkomuhúsinu kl. 21
stundvíslega. Þá hafa þeir ekki
spilað opinberlega síðan í febrú-
ar. Og þá er um 11/2 ár síðan þeir
spiluðu síðast í Samkomuhús-
inu. Mikið hefur verið lagt í til að
gera hljómleika þessa sem
skemmtilegasta, sviðsmynd og
Ijós munu verða mjög skemmti-
leg, líklegast mun Jón Gústafs-
son, sá hinn sami og stjórnaði
upptökunum í sumar koma norð-
ur og sitja við mixerinn.
Tónlist Art hefur löngum verið
kennd við tölvupopp. Varla er
hægt að neita þeirri skilgrein-
ingu, enda engin ástæða til.
Umsjón:
Tómas
Gunnarsson
Helstu áhrif sín sækja þeir til ný-
rómantíkur, en síðan koma áhrif-
in úr ýmsum áttum, þannig að
ekki er hægt að tala um hreint
tölvupopp. Mest af tónlistinni er
danshæf og er hún eins og áður
sagði orðin heldur hraðari, svona
rétt í takt við tíðarandann.
Poppsíða Dags vill hvetja sem
flesta til að skunda í Samkomu-
húsið næsta fimmtudag og Ijá
eyra því sem er að gerast í akur-
eyrskri tónlist. Hljómleikarnir
byrja kl. 21.
Framtíðaráform hljómsveitar-
innar eru að gefa út plötuna og
fylgja henni eftir með góðu
myndbandi.
Dynheimar:
Topp 10
1 (4) White Wedding
Billy Idol
2 (-) Nikita
Elton John
3 (7) Cherish
Kool And The Gang
4 (3) Eaten Alive
Diana Ross
5 (2) She’s So Beautiful
Cliff Richards
6 (5) If I Was
Midge Ure
7 (-) Running Up That Hill
Kate Bush
8 (-) Living In Japan
Fun Fun
9 (7) This Is The Night
Mezzoforte
10 (8) Lean On Me
Red Box
'1 -
Helena
Jónsdóttir
(slandsmeistari
í diskódansi
og fulltrúi íslands
í Malibukeppninni
sýnir dans í H-100
föstudags- og
laugardagskvöld.
Stórlækkad
(A) svín í Vi og Vi úrbeinað
og reykt, 485 kr.-
Bayonerskinka, 530 kr.-
Kambur, reyktur og úrb., 485 kr.-
Hamborgarhryggur, 525 kr,-
Bacon, niðursneitt, 260 kr.-
Bógur, reyktur og úrb., 468 kr.
Svínarif, 145 kr.-
Svínaskankar, 55 kr.-
Erum irið alla daga frá morgni til kvölds
Úrbeining:
Úrbeinum Hökkum
Útbúum snitzel
Hamborgarmótum
Vacumpökkum
Frystum
Meðal annars:
Mínútusteik
Nautasnitzel
Nautagúllash
Nautahakk
Erum ávallt með
vel hangið:(UN1)
Nautakjöt
Kjötvinnsla Sími 22080
e^iDGT+
v/Hvannavelli