Dagur - 15.11.1985, Side 12
12 - DAGUR - 15. nóvember 1985
tíðarandinn
Barnapeysur
stærðir 104-164.
Hin margeftirspurðu
Viking barnastígvél komin aftur.
Stærðir 21-33.
Vinylstígvél karlmanna,
stærðir 41-47. Verð aðeins kr. 625,-
Opið laugardaga milli kl. 10 og 12.
®Eyfjörö S5
Hjalteyrargötu 4 • sími 22275 *■■»
TONLEIKAR
í AKUREYRARKIRKJU
laugardaginn 16. nóv. kl. 18.00.
Hörður Áskelsson organisti og Rut Ingólfsdóttir fiðluleik-
ari flytja verk eftir Bach og Handel.
Aðgöngumiðar við innganginn.
Áskriftarkort vetrarins verða einnig seld þar.
Tónlistarfélag Akureyrar.
jjl EHGIN HÚS ÁH HITA
sphinx
Hvít hreinlætistæki.
Borð- og
vegghandlaugar.
Hvít WC frá
kr. 7.977,-
m/harðri setu.
Verslið við
fagmann.
DRAUPNISGÖTU 2 AKUREYRI
SÍMI (96)22360
HREINLÆTISTÆKI
STURTUKLEFAR 0G HURÐIR
BLÖNDUNARTÆKI
ALLT EFNI TIL PÍPULAGNA
JAFNAN FYRIRLIGGJANDI
Málarar
Vandvirkirog áreiöanlegir málarar með réttindi og
reynslu viö veggfóörun, teppa- og dúkalagnir
óskast til starfa í Noregi.
Uppl. í síma 02-869069 eftir kl. 20 aö íslenskum
tíma.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 1., 27. og 33. tbl. Lögbirtingablaðsins 1985
á fasteigninni Öldugötu 12, Dalvík, þingl. eign Harðar Gígju,
fer fram eftir kröfu Ólafs B. Árnasonar hdl. og Gunnars Sólnes
hrl. á eigninni sjálfri miðvikudaginn 20. nóvember 1985 kl.
14.30.
Bæjarfógetinn á Akureyri.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 84., 85. og 86. tbl. Lögbirtingablaðsins 1981
á fasteigninni Hafnarbraut 13-14, Dalvík, þingl. eign Söltunar-
félags Dalvíkur hf., ferfram eftir kröfu Björns J. Arnviðarsonar
hdl. á eigninni sjálfri miðvikudaginn 20. nóvember 1985 kl
15.00.
Sigríður
Pétursdóttir
skrifar
Gluggar
Stórir gluggar - litlir gluggar,
gamlir og nýir, með mörgum
rúðum eða fáum, allir þjóna þeir
sama tilgangi. Þeir bera birtu
inn í húsin, og auðvelda íbúum
þeirra að fylgjast með því sem
gerist úti fyrir.
Hús án glugga eru Ifka eins
og andlit án augna - sviplaus -
enda eru gluggarnir oft kallaðir
augu húsanna.
Að augun séu spegill sálar-
innar, segir málsháttur. E.t.v. er
hægt að heimfæra það yfir á
gluggana, þeir segja okkur
stundum ýmislegt um íbúa hús-
anna.
Bastgardínur, kaktusar í
leirpottum - ungt fólk, nýlega
farið að búa, gæti verið að í eld-
húsglugganum leyndist lítill
peli.
Stórir gluggar með þykkum
velúrgluggatjöldum og stóris,
kristal og postulín í gluggakist-
unum. - íbúarnir gætu verið á
miöjum aldri, og eiga sennilega
rúmlega fyrir salti í grautinn.
Gluggatjöldin, dálítið farin að
gulna, blómstrandi blóm standa
keik í gluggakistunum. - Allar
líkur á að íbúarnir séu eldri
borgarar. Á þennan hátt væri
hægt að halda áfram lengi.
Að sjálfsögðu er fáránlegt að
alhæfa um þessa hluti, ekkert
mælir á móti því að eldra fólk
eigi kaktusa. Hér er aðeins rætt
um væntingar og fordóma (orð-
ið þarf ekki að hafa neikvæða
merkingu).
Gluggar geta verið listaverk,
svo fallegir að undrun sætir, út-
skornir gluggapóstar, glugga-
hlerar, steint gler.
Það er ekkert skrítið að hægt
skuli vera að gleyma sér við að
skoða þá.
Lesandi góður, ég vona að
næst þegar þú gengur um göt-
urnar, sleppir þú því að hugsa
um fallandi víxla með hausinn
ofan í bringu, en horfir þess í
stað á alla þá mörgu og mis-
jöfnu glugga sem eru hluti af
umhverfi þínu.
Góða skemmtun.
Glugginn
Um mig léku
í óþoli kvöldsins
hin sæla birta
og hinn svali skuggi.
Unz þeim fagnaði
opinn gluggi.
Og allir hrópuðu:
Opinn gluggi -
Þorsteinn frá Hamri.
Bæjarfógetinn á Akureyri.