Dagur - 15.11.1985, Side 16
MttVR
Akureyri, föstudagur 15. nóvember 1985
—I tilefiii af sýningu L.A. á Jólaævintýri—
býður Smiðjan leikhúsgestum eftirfarandi:
Sæsníglasúpa, bætt með koníaki
og
lambahnetusteik með fjallajurtasósu.
Verð kr. 600,-
Opnum kl. 18.00 þau kvöld sem sýnt er.
Yerði ykkur að góðu og góða skemmtun í leikhúsinu.
Sandfangarinn á Sauðárkróki:
Eitt tilboð
stóð eftir
- Tvö dæmd ógild og einn aðili
féll frá tiiboði sínu
Nýlega opnaði Hafnarnefnd
Sauðárkróks tilboð í flutninga
á grjóti í svonefndan sandfang-
ara sem hvarf næstum í óveðri
í nóvember 1982.
Fjögur tilboð bárust og var það
hæsta þeirra frá Vörubílstjórafé-
lagi Skagafjarðar en það hljóðaði
upp á kr. 8.400.000 sem er
183.7% af kostnaðaráætlun. Ann-
að tilboðið var frá Króksverki hf,
kr. 3.935.000, sem er 86.06% af
kostnaðaráætlun. Þriðja tilboðið
var frá Pálma Friðrikssyni, kr.
2.983.850 eða 65.25% af kostn-
aðaráætlun og fjórða tilboðið var
frá Lyfti hf. sem bauð kr.
2.238.600 eða 48.96% af kostn-
aðaráætlun.
Þar sem formgallar voru á til-
boðum Vörubílstjórafélagsins og
Lyftis hf. var samþykkt að ganga
til samninga við Pálma Friðriks-
son en hann féll síðan frá tilboði
sínu og er nú verið að leita eftir
samningum við Króksverk á
grundvelli tilboðs þess, að sögn
Þóröar Þórðarsonar bæjarstjóra
á Sauðárkróki. -yk.
Umferð á Norðurlandi í október:
67 óhöpp
Samkvæmt bráðabirgðaskýrslu
Umferðarráðs urðu 564 um-
ferðarslys á landinu í október
s.l. í október 1984 urðu 617
umferðarslys á landinu.
I 514 tilfellum var einungis um
eignatjón að ræða (553 ’84), slys
með meiðslum urðu 46 og fjöldi
slasaðra 67 (62 slys, 84 slasaðir
’84), og dauðaslys urðu 4 (2 í
október í fyrra).
Ef litið er á Norðurland sér-
staklega kemur í ljós að alls urðu
þar 67 umferðarslys í október,
þar af 64 með eignatjóni ein-
göngu en þrjú með meiðslum,
þar af eitt banaslys.
Á Akureyri urðu 29 umferð-
arslys en engin meiðsli á fólki.
Á Húsavík urðu 5 umferðar-
óhöpp, þar af eitt með meiðslum.
Á Dalvík urðu tvö umferðar-
óhöpp en engin meiðsli á fólki.
I Ólafsfirði urðu fjögur um-
ferðaróhöpp, engin meiðsli á
fólki.
Á Siglufirði varð ekkert um-
ferðaróhapp í október.
í Húnavatnssýslum urðu 6 um-
ferðarslys, öll án meiðsla.
í Skagafjarðarsýslu urðu 14
umferðarslys, þar af eitt bana-
slys.
í Þingeyjarsýslum urðu fjögur
umferðarslys, þar af eitt með
meiðslum.
í Eyjafjarðarsýslu urðu þrjú
umferðarslys, öll án meiðsla.
BB.
Aðflug. Skömmu fyrir lendingu á Akureyrarflugvelli í gær.
Mynd: KGA
Atvinnuástandið í Ólafsfirði oft verra á þessum árstíma:
„Gráturinn í haust að
sumu leyti óþarfur"
- segir Valtýr Sigurbjarnarson bæjarstjóri
„Það má fullyrða að atvinnu-
ástandið hér á staðnum er ekki
verra en það hefur verið áður
á þessum árstíma og t.d. hjá
iðnaðarmönnum hefur verið
yfirdrifið nóg að gera,“ sagði
Valtýr Sigurbjarnarson bæjar-
stjóri í Ólafsfirði er við rædd-
um við hann í gær.
„Þessi grátur sem var snemma
hausts var að sumu leyti óþarfur
að mínu mati þótt hann ætti að
Búmark:
Viðmiðunarreglurnar
verði endurskoðaðar
- segir í áskorun kjörmannafundar Eyjafjarðarsýslu
„Kjörmannafundur fyrir Eyja-
fjaröarsýslu, haldinn 13. nóv-
ember 1985 á Akureyri, skorar
á stjórn Stéttarsambands
bænda og Framleiðsluráð
landbúnaðarins að taka til
endurskoðunar fram komnar
viðmiðunarreglur tii skiptingar
framleiðslurétti milli héraða.
Verði við þá endurskoðun tek-
in viðmiðun að Vs við búmark
1980 en að % við framleiðslu
þriggja síðustu verðlagsára.
Varðandi skiptingu til ein-
stakra framleiðenda hafi bú-
mark fullt gildi.“
Ofangreind áskorun var sam-
þykkt samhljóða af öllum kjör-
mönnum búnaðarfélaga í Eyja-
fjarðarsýslu sem komu saman til
fundar að Hótel Varðborg í
fyrrakvöld til að ræða hugmyndir
þær sem þriggja manna nefnd
Stéttarsambands bænda hefur
lagt fram um skiptingu búmarks
milli héraða.
Á fundinn mætti Guðmundur
Stefánsson, hagfræðingur Stétt-
arsambands bænda og kynnti
hann fundarmönnum tillögur
Stéttarsambandsins. Þær gera ráð
fyrir að skipting búmarks milli
héraða verði miðuð að !/3 við bú-
mark ársins 1980, >/3 við þrjú síð-
astliðin verðlagsár og að ]A við
búmark 1985.
Kjörmannafundurinn telur að
af ýmsum ástæðum komi sam-
drátturinn í landbúnaðarfram-
leiðslu harðar niður á Eyfirðing-
um en mörgum öðrum ef farið
verður eftir þeim vinnureglum
sem Stéttarsambandið talar um í
sambandi við skiptinguna á milli
héraða og sá ójöfnuður myndi
síður koma fram ef farið yrði eft-
ir þeim kröfum sem koma fram í
upphafi fréttarinnar. -yk.
sumu leyti rétt á sér. Ég sagði þá
að mér fyndist fréttir héðan af
staðnum óþarflega neikvæðar og
í mörgum tilfellum væri bara birt
það sem miður fór en þess ekki
getið sem var í lagi, né heldur
þess sem væri framundan og
kæmi til með að bæta ástandið.
Það er búið að bræða mikið af
loðnu hér í haust og hefur verið
mikil atvinna í sambandi við það.
Þá hefur verið nokkur vinna í
fiski þótt fólkinu hafi verið sagt
upp á sínum tíma.“
- Hvað er að frétta af málefn-
um Óslax hf.?
„Það er að koma hingað starfs-
maður að fyrirtækinu í vikulokin,
Ólafur Björnsson fiskeldisfræð-
ingur og annar starfsmaður er
fyrir. Það var slátrað um 750 eld-
islöxum á dögunum og eitthvað á
annað hundrað löxum sem komu
úr hafbeit. Ég fagna því að þetta
fyrirtæki komst á legg, starfsemi
þess er ágæt og á eftir að verða
enn blómlegri. Félagið er að
byggja 600 fermetra hús fyrir
starfsemina og nánari ákvörðun
um framhaldið verður væntan-
lega tekin í samráði við hinn nýja
starfsmann þegar hann hefur
komið hingað og sett sig inn í
málin.“ gk-.