Dagur - 23.12.1985, Blaðsíða 5
23. desember 1985 - DAGUR - 5
Að skjóta upp
„þingmönnum"
um áramót
Hjálparsveit skáta á Akureyri
kemur til með að selja Akur-
eyringum og nærsveitamönn-
um um 2,5 tonn af flugeldum
og öðru skrauti til að lífga upp
á áramótin. Þegar komið var í
bækistöðvar sveitarinnar í
Lundi kvöld eitt fyrir stuttu var
fríður hópur sveina og meyja
við pökkun á skrauteldum.
Það sem einkenndi þetta fólk
var Ijör og ánægja. Þarna voru
allir í sjálfboðastarfi.
Smári Sigurðsson fyrrverandi
formaður sveitarinnar og for-
maður flugeldanefndar, (það þarf
að hafa allt í nefndum og ráðum
hjá sveitinni eins og í stjórnkerf-
inu) sagði að það væru ófáar
stundir sem þetta fólk legði á sig
í vinnu fyrir sveitina. Enda voru
það mörg handtökin sem hópur-
inn vann þessa stund sem stansað
var í Lundi. Allir flugeldar og
annað tilheyrandi kom í vandlega
gerðum umbúðum. Allt þurfti að
taka upp og setja í bakka sem
voru á langborðinu sem sést á
einni myndinni. Síðan var færi-
bandakerfi á pökkuninni. Hver
maður hafði tiltekna tegund sem
hann setti í kassa sem gekk milli
Smári Sigurðsson flugeldaformaður með sýnishorn af þingmannaúrvalinu sem luegl er
að skjóta upp á stjörnuhimininn.
Svandis Tryggvadóttir og Ragnheiður
Jónsdóttir sáu uin að alltaf væri nóg á
pökkunarborðinu.
Framleiðslan í fullum gangi og hver maður með sitt verkefm.
manna þar til allar tegundir voru
komnar á sinn stað. Þetta kal'.a
hjálparsveitarmenn fjölskyldu-
pakka og hafa pakkarnir notið
mikilla vinsælda hjá skrautelda-
áhugamönnum. Ekki eru allir
pakkar af sömu stærð, heldur eru
þeir ntisjafnlega vel útbúnir, allt
eftir óskum viðskiptavina. í þess-
um pökkurn er allt frá litlum
stjörnublysum, upp í stóra og
kraftmikla flugelda. Þar er sem
sagt eitthvað fyrir alla. Verð á
fjölskyldupökkum er frá 890
krónum upp í 3500. í þeim stóru
má segja að alit sé til að skreyta
himinhvolfið langan tíma yfir
áramótin. Smári sagði að verð á
fjölskyldupökkum væri 20%
lægra en ef menn keyptu sam-
bærilegt rnagn í stykkjatölu.
Tívolíbombur eru kallaðir stórir
fallegir flugeldar. ..Alvöru tlug-
eldar," eins og Smári orðaði það
og sagði jafnframt að góð kaup
væru í þeim. Ekki má gleynta
þingmannaflugeldum. sem
hefðu verið svo vinsælir að færri
fengu en vildu, ef marka má sölu
á síðasta ári. Þá seldist hver ein-
asti ..þingmaður." Með kaupunt á
slíkum tlugeldum getur hver og
einn skotið sínum manni hærra
upp á stjörnuhiminn stjórnmála.
eða skotið andstæðingnunt burtu
af sama hiinni. Þessir flugeldar
eru íslenskir. Aðrir eru keyptir
inn frá Kína. Bretlandi, Þýska-
landi og fleiri löndum. Alls eru til
sölu um 250 mismunandi tegund-
ir af blýsurn, tlugeldum og öðrum
skrauteldum.
Sala Hjálparsveitarinnar á þess-
unt vörunt stendur undir kostnaði
við reksturinn og er þessi flug-
eldasala því ntikilvæg fyrir
alla aðila. Eins og kom fram
áður, eru stúlkur líka í sveitinni.
„Það væri ekki gantan að standa í
þessu ef stelpur væru ekki," sagði
Smári flugeldaforntaður. Hann
sagði líka að stelpur væru engir
eftirbátar stráka í starfinu og
færu í öll útköll eins og þeir.
Jafnrétti í raun hjá Hjálparsveit-
inni. gej-