Dagur - 23.12.1985, Blaðsíða 7

Dagur - 23.12.1985, Blaðsíða 7
23. desember 1985 - DAGUR - 7 Stefanía fæddist árið 1912 þann 15. maí að Brekku í Svarfaðar- dal. Hún var dóttir hjónanna Jóhanns K. Sveinbjörnssonar bónda þar og síðar tollþjóns á Siglufirði og konu hans Sesselíu Jónsdóttur frá Skeiði. Stefanía átti sex systkini og er nú eitt þeirra á lífi, Tómas sem lengst af bjó hér í Siglufirði en er fyrir nokkrum árum fluttur til Reykja- víkur. Stefanía giftist Maroni Einars- syni sjómanni, og eignuðust þau tvær dætur, Nönnu sem búsett er í Bandaríkjunum, hennar maður er Georg Scarles sem er af grísk- um ættum, eiga þau tvö börn Jimmy og Stefaníu Ólöfu. Hin dóttirin Hanna býr í Ólafsfirði gift Árna Sæmundssyni. í>au eiga fimm börn, Nönnu, Agnar, Jón, Sæmund og Maron. Stefanía missti mann sinn árið 1941 þegar togarinn Gullfoss fórst, bjó hún þá í Reykjavík. Árið 1947 gekk hún að eiga eftirlifandi mann sinn Jón Ander- sen vélstjóra við Skeiðsfossvirkj- un, en Jón hóf störf þar haustið 1946. Jón var ekkjumaður og ólu þau Stefanía upp börn hennar. Einnig var Maron sonur Hönnu hjá þeim þar til hann fór til for- eldra sinna í Ólafsfirði til að fara í gagnfræðaskóla, en hann er nú skipstjóri á m/b Guðmundi Ólafi ÓF, 91, og er hann einn af eig- endum bátsins. Ég kynntist Stefaníu fyrir tuttugu árum þegar ég tók við starfi rafveitustjóra í Siglufirði. Hagaði þannig til við Skeiðsfoss- virkjun að ekki var rekið mötu- neyti þegar unnið var við viðhald og endurbætur á mannvirkjum. Kom það í hlut Jóns og Stebbu eins og við oftast nefndum hana daglega að taka menn í fæði, minnist ég þess að oft voru hjá henni í fæði allt að tuttugu menn auk heimilisfólks. Engar aðstæð- ur voru á heimilinu til þessarar þjónustu, en Stebbu tókst að framkvæma þetta á sinn hljóðláta hátt án þess að heimilisbragurinn raskaðist. Eignaðist hún marga góða vini í hópi verka- og iðnað- armanna sem dvöldu við virkjun- ina á þessum árum. Er mér bæði ljúft og skylt að þakka henni þessi störf að leiðarlokum. Þegar að því kom að Jón hætti störfum við virkjunina árið 1978 sökum aldurs, var ekki um að ræða annað en þau flyttu til Siglufjarðar, festu þau kaup á Eyrargötu 9, og bjuggu þau sér þar hlýlegt og notalegt heimili þar sem þau hafa búið síðan. Ég minnist þess að þegar á flutningi þeirra stóð þá trúði Stebba mér fyrir því að hún hefði eiginlega aldrei fest rætur í Fljót- unum þrátt fyrir að hún átti þar heimili yfir 30 ár. Vissulega var einangrunin mikil og færri tæki- færi til afþreyingar, og samgöng- ur verri en nú er. Engu að síður eignaðist hún góða vini í sveitinni svo sem þessi kveðja ber með sér sem barst við útför hennar. Hinsta kveðja frá vinkonu: Er leidir skiljast þakka vil ég þér þína tryggð á mínum raunastundum. Afeigin reynslu miðlaðir þú mér og margt við ræddum oft á þessum stundum. Nú Ijóssins englar lýsi veginn þinn þeir leiði þig í nýrri og betri heima. Ég minnist þín með þökk ísérhvert sinn og seint ég okkar vináttu mun gleyma. Ég óskaði þess að þau Jón og Stefanía mættu eiga saman sem flest ár hér í Siglufirði eftir að þau fluttu hingað, en heilsu hennar fór að hraka og síðastlið- ið ár dvaldi hún á Sjúkrahúsi Siglufjarðar. Engu að síður von- aðist hún til þess að geta komið heim um jólin, af því varð ekki. Útför hennar var gerð frá Siglu- fjarðarkirkju þriðjudaginn 17. þ.m. við mikið fjölmenni og blómahaf. Um leið og ég votta Jóni Andersen dætrum hennar tengdasonum, börnum þeirra og ættingjum mínar innilegustu samúðarkveðjur, vil ég færa þakkir Rafveitu Siglufjarðar og starfsmanna fyrir óeigingjörn störf og vináttu. Blessuð veri minning hennar. Sverrir Sveinsson. Húsvflángar - Þingeyingar Dagur hefur fastráðið starfsmann á Húsavík. Það er Ingibjörg Magnúsdóttir, sem auk blaðamannsstarfa mun sjá um dreif- ingu og auglýsingamóttöku fyrir blaðið. Við hvetjum lesendur blaðsins til að hafa samband við Ingi- björgu varðandi ábendingar um fréttir og efnisval. Einnig bendum við lesendum á, að Ingibjörg tekur á móti smá auglýsingum og tilkynningum í dagbók, t.d. varðandi stór- afmæli og dánarfregnir (mynd má fylgja) svo eitthvað sé nefnt. Sú þjónusta er lesendum að kostnaðarlausu. Ingibjörg hefur aðsetur í Garðarsbraut 5, II hæð, sími 41225. Fastur skrifstofutími kl. 9-11, en er auk þess við á skrifstof- unni á öðrum tímum. Heima: Sólbrekka 5, sími 41529. Vefnaðarvörudeild: / Urval af sængurverasettum Baðhandklæði margir litir. Matar- og kaffidúkar hvítir og mislitir. Jóladúkar og jóladúkaefni. Tilbúin eldhúsgluggatjöld í úrvali. Stórglæsilegt úrval af fataefnum fyrir alla aldurshópa. Nýkomin efni í ungbarna- og skírnarkjóla. Varmalökin margeftirspurðu eru komin. Pantanir óskast sóttar. Opið til ki. 23.00 í kvöld. W Eyfjörð Hjalteyrargötu 4 - sími 22275 FÉLAGSMIÐSTÖÐ í GLERÁRSKÓLA Opið hús í Félagsmiðstöðinni Glerárskóla mánudaginn 30. des. kl. 20.00 til 22.30. Árgangur 73 velkominn. Það kemst tilshilaíDegi Áskrift og auglýsingar S (96) 24222*^^ IggBliniiiiiiBaiÉiB Sólarsalur 20. des. diskótek frá kl. 23-03 21. des. diskótek frá kl. 22-03 27.-28. des. dsnsleikir frá ki. 20.00 matur framreiddur til kl. 22.00 Dansað til kl. 03. 26. des. stórdansleikur frá kl. 21-02 Hljómsveitin Áning og diskótek. 29. des. diskótek frá kl. 22-01

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.