Dagur - 23.12.1985, Page 7
23. desember 1985 - DAGUR - 7
Stefanía fæddist árið 1912 þann
15. maí að Brekku í Svarfaðar-
dal. Hún var dóttir hjónanna
Jóhanns K. Sveinbjörnssonar
bónda þar og síðar tollþjóns á
Siglufirði og konu hans Sesselíu
Jónsdóttur frá Skeiði. Stefanía
átti sex systkini og er nú eitt
þeirra á lífi, Tómas sem lengst af
bjó hér í Siglufirði en er fyrir
nokkrum árum fluttur til Reykja-
víkur.
Stefanía giftist Maroni Einars-
syni sjómanni, og eignuðust þau
tvær dætur, Nönnu sem búsett er
í Bandaríkjunum, hennar maður
er Georg Scarles sem er af grísk-
um ættum, eiga þau tvö börn
Jimmy og Stefaníu Ólöfu. Hin
dóttirin Hanna býr í Ólafsfirði
gift Árna Sæmundssyni. í>au eiga
fimm börn, Nönnu, Agnar, Jón,
Sæmund og Maron. Stefanía
missti mann sinn árið 1941 þegar
togarinn Gullfoss fórst, bjó hún
þá í Reykjavík.
Árið 1947 gekk hún að eiga
eftirlifandi mann sinn Jón Ander-
sen vélstjóra við Skeiðsfossvirkj-
un, en Jón hóf störf þar haustið
1946. Jón var ekkjumaður og ólu
þau Stefanía upp börn hennar.
Einnig var Maron sonur Hönnu
hjá þeim þar til hann fór til for-
eldra sinna í Ólafsfirði til að fara
í gagnfræðaskóla, en hann er nú
skipstjóri á m/b Guðmundi Ólafi
ÓF, 91, og er hann einn af eig-
endum bátsins.
Ég kynntist Stefaníu fyrir
tuttugu árum þegar ég tók við
starfi rafveitustjóra í Siglufirði.
Hagaði þannig til við Skeiðsfoss-
virkjun að ekki var rekið mötu-
neyti þegar unnið var við viðhald
og endurbætur á mannvirkjum.
Kom það í hlut Jóns og Stebbu
eins og við oftast nefndum hana
daglega að taka menn í fæði,
minnist ég þess að oft voru hjá
henni í fæði allt að tuttugu menn
auk heimilisfólks. Engar aðstæð-
ur voru á heimilinu til þessarar
þjónustu, en Stebbu tókst að
framkvæma þetta á sinn hljóðláta
hátt án þess að heimilisbragurinn
raskaðist. Eignaðist hún marga
góða vini í hópi verka- og iðnað-
armanna sem dvöldu við virkjun-
ina á þessum árum. Er mér bæði
ljúft og skylt að þakka henni
þessi störf að leiðarlokum.
Þegar að því kom að Jón hætti
störfum við virkjunina árið 1978
sökum aldurs, var ekki um að
ræða annað en þau flyttu til
Siglufjarðar, festu þau kaup á
Eyrargötu 9, og bjuggu þau sér
þar hlýlegt og notalegt heimili
þar sem þau hafa búið síðan.
Ég minnist þess að þegar á
flutningi þeirra stóð þá trúði
Stebba mér fyrir því að hún hefði
eiginlega aldrei fest rætur í Fljót-
unum þrátt fyrir að hún átti þar
heimili yfir 30 ár. Vissulega var
einangrunin mikil og færri tæki-
færi til afþreyingar, og samgöng-
ur verri en nú er. Engu að síður
eignaðist hún góða vini í sveitinni
svo sem þessi kveðja ber með sér
sem barst við útför hennar.
Hinsta kveðja frá vinkonu:
Er leidir skiljast þakka vil ég þér
þína tryggð á mínum raunastundum.
Afeigin reynslu miðlaðir þú mér
og margt við ræddum oft á þessum stundum.
Nú Ijóssins englar lýsi veginn þinn
þeir leiði þig í nýrri og betri heima.
Ég minnist þín með þökk ísérhvert sinn
og seint ég okkar vináttu mun gleyma.
Ég óskaði þess að þau Jón og
Stefanía mættu eiga saman sem
flest ár hér í Siglufirði eftir að
þau fluttu hingað, en heilsu
hennar fór að hraka og síðastlið-
ið ár dvaldi hún á Sjúkrahúsi
Siglufjarðar. Engu að síður von-
aðist hún til þess að geta komið
heim um jólin, af því varð ekki.
Útför hennar var gerð frá Siglu-
fjarðarkirkju þriðjudaginn 17.
þ.m. við mikið fjölmenni og
blómahaf.
Um leið og ég votta Jóni
Andersen dætrum hennar
tengdasonum, börnum þeirra og
ættingjum mínar innilegustu
samúðarkveðjur, vil ég færa
þakkir Rafveitu Siglufjarðar og
starfsmanna fyrir óeigingjörn
störf og vináttu.
Blessuð veri minning hennar.
Sverrir Sveinsson.
Húsvflángar -
Þingeyingar
Dagur hefur fastráðið starfsmann á Húsavík. Það er Ingibjörg
Magnúsdóttir, sem auk blaðamannsstarfa mun sjá um dreif-
ingu og auglýsingamóttöku fyrir blaðið.
Við hvetjum lesendur blaðsins til að hafa samband við Ingi-
björgu varðandi ábendingar um fréttir og efnisval.
Einnig bendum við lesendum á, að Ingibjörg tekur á móti smá
auglýsingum og tilkynningum í dagbók, t.d. varðandi stór-
afmæli og dánarfregnir (mynd má fylgja) svo eitthvað sé
nefnt. Sú þjónusta er lesendum að kostnaðarlausu.
Ingibjörg hefur aðsetur í Garðarsbraut 5, II hæð, sími 41225.
Fastur skrifstofutími kl. 9-11, en er auk þess við á skrifstof-
unni á öðrum tímum.
Heima: Sólbrekka 5, sími 41529.
Vefnaðarvörudeild:
/
Urval af sængurverasettum
Baðhandklæði margir litir.
Matar- og kaffidúkar
hvítir og mislitir.
Jóladúkar og jóladúkaefni.
Tilbúin eldhúsgluggatjöld í úrvali.
Stórglæsilegt úrval af fataefnum
fyrir alla aldurshópa.
Nýkomin efni
í ungbarna- og skírnarkjóla.
Varmalökin
margeftirspurðu eru komin.
Pantanir óskast sóttar.
Opið til ki. 23.00 í kvöld.
W
Eyfjörð
Hjalteyrargötu 4 - sími 22275
FÉLAGSMIÐSTÖÐ í GLERÁRSKÓLA
Opið hús
í Félagsmiðstöðinni Glerárskóla
mánudaginn 30. des. kl. 20.00 til 22.30.
Árgangur 73 velkominn.
Það kemst
tilshilaíDegi
Áskrift og auglýsingar S (96) 24222*^^
IggBliniiiiiiBaiÉiB
Sólarsalur
20. des. diskótek
frá kl. 23-03
21. des. diskótek
frá kl. 22-03
27.-28. des. dsnsleikir
frá ki. 20.00
matur framreiddur
til kl. 22.00
Dansað til kl. 03.
26. des. stórdansleikur
frá kl. 21-02
Hljómsveitin Áning
og diskótek.
29. des. diskótek
frá kl. 22-01