Dagur - 23.12.1985, Blaðsíða 11
_bækuL
Baneitrað
samband á
Njálsgötunni
„Ja, undir einhverjum áhrifum er
hann“ þrefaði lögginn.
„KONNráð“, gaggaði kellingin,
„hefurðu verið að þefa af sokkunum
þínum?“ „Nei, ég er hættur því eins
og ég lofaði" tautaði ég. „Herra lög-
regluþjónn" sagði mamma við hann
í trúnaðartón, „ég hélt hann væri
heima hjá prestssyninum að lita í
litabókina sína.“ Ég starði á þá
gömlu. Með hverjum hélt hún eigin-
lega? Mér?
Þannig hljómar örstuttur útdráttur
úr nýrri unglingabók eftir Auði Har-
alds sem nefnist Baneitrað samband
á Njálsgötunni.
Bókin fjallar um unglinginn
Konráð og samskipti hans við heim-
inn í kringum sig. Mætir Konráð
skilningi hjá móður sinni? Nei.
Hann finnur það nú bara best þegar
hún rífur græjurnar hans úr samb-
andi á næturnar.
Svo hittir Konráð huggulega
stelpu úr Hafnarfirði. En skánar líf-
ið við það? Nei, því Lillu finnst ólík-
legt að heimsendir komi fyrir jól og
svo heldur mamma hans að Land-
leiðir gefi henni gullúr fyrir það eitt
að fjármagna Konráð í strætó.
Heimurinn stendur sameinaður
gegn Konráði, meira að segja lögg-
an fer með hann heim, alsaklausan,
grunaðan um ölvun á Hallærisplan-
inu.
Auður Haralds hefur sýnt með
bókum sínum Hvunndagshetjunni,
Læknamafíunni og bókunum um
Elías að hún er engum öðrurn lík
hvort sem um er að ræða bækur fyrir
fullorðna eða börn. Og nú snýr hún
sér að unglingunum. Þetta er bók
sem mun gera unglingana geggjaða!
Bókaútgáfan Iðunn gefur út. Oddi
hf. prentaði. Kápa er hönnuð á
Auglýsingastofunni Octavo.
Orð skulu standa
- saga manns sem var
dæmalaus
Iðunn hefur gefið út að nýju bók
Jóns Helgasonar, Orð skulu standa,
en fjórtán ár eru nú liðin frá frumút-
gáfu hennar. Útgefandi kynnir bók-
ina með svofelldum orðum:
„Þetta er saga vegfræðings sem
fæddist fyrir sunnan og dó fyrir
norðan. I bernsku kenndi gömul
kona honum ellefta boðorðið: Orð
skulu standa. Hann gat aldrei
kvænst vegna þess að hann hafði
heitið sjálfum sér því að eiga stúlku,
sem hann sá í svip á kirkjustétt í
Noregi, eða enga ella. Hann Var
vegfræðingur í tvennum skilningi:
Hann vegaði heiðar og sveitir og
hann var sjaldgæfur vegfræðingur í
lífi sínu og hugsunarhætti. Spakvit-
ur íslendingur kailaði hann mestan
jafnaðarmann á fslandi. Það var
hann aðeins af eðlisávísun því að
stjórnmálum hafði hann aldrei gefið
gaum. Stærðfræði var yndi hans og
eftirlæti, og einu sinni auðnaðist
honum að bjarga heilli skipshöfn úr
hafvillu með glöggskyggni sinni. En
hann sagði, að það hefði verið stýri-
manninum að þakka, að hann skyldi
trúa sér. Tvisvar gaf hann aleigu
sína. Fimmtugur gerðist hann fyrir-
vinna barnmargrar ekkju í Biskups-
tungum, því að maður hennar
drukknaði við ferjustað, sem hann
hafði valið. Henni vann hann
kauplaust í níu ár. Áttræður sendi
hann ríkisstjórninni árskaup sitt
óskert, svo að hún gæti grynnt á
skuldum í kreppunni. Hann var
dæmalaus. En sjálfum fannst hon-
um ofurauðvelt að rata rétta leið:
Einungis að vera haldinorður við
sjálfan sig og vilja heldur það sem
betra var.“
Orð skulu standa er þriðja ritverk
Jóns Helgasonar sem Iðunn gefur út
að nýju í vandaðri samstæðri út-
gáfu. Áður eru komin út Tyrkjarán-
ið og íslenskt mannlíf I-IV. Bókin
er að öllu leyti unnin í Prentsmiðj-
unni Odda hf. en Auglýsingastofan
Octavo hannaði kápu.
Gunnhildur og
Glói
Ný bók eftir
Guðrúnu Helgadóttur
Komin er út ný bók eftir Guð-
rúnu Helgadóttur rithöfund og
alþingismann. Guðrúnu þarf ekki
að kynna mörgum orðum svo
vinsæl sem hún er orðin fyrir
barnabækur sínar. Þær hafa ekki
einungis náð mikilli útbreiðslu
hér á landi heldur hafa Ástarsaga
úr fjöllunum og fyrsta bókin um
Jón Odd og Jón Bjarna verið
gefnar út á öðrum tungumálum
t.d. Norðurlandamálunum,
þýsku og ensku.
Þessi nýja bók Guðrúnar heitir
Gunnhildur og Glói og er prýdd
fallegum litmyndum eftir kunnan
breskan teiknara Terry Burton
og Úlfar Örn Valdimarsson. Sag-
an segir frá Gunnhildi og Glóa
álfastrák og því sem gerist þegar
Gunnhildur litla fær geislastein í
lófann á einkar dapurlegum degi.
Guðrún fjallar hér um sorg og
gleði, fegurð og ljótleika á þann
hátt að það örvar hugarflugið og
gleður hjartað, segir ennfremur
í fréttatilkynningu forlagsins.
Þeir sem þekkja Jón Odd og Jón
Bjarna, Pál Vilhjálmsson, krakk-
ana í afahúsi, fólkið í Sitji guðs
englar, Flumbru tröllskessu og
strákana átta og alla óvitana í
leikriti Þjóðleikhússins, þeir
þekkja Guðrúnu Helgadóttur.
Með þessari fallegu bók kemur
hún enn á óvart.
Bókaútgáfan Iðunn gefur út.
Auglýsingastofan Octavo hann-
aði útlit kápu og bókar. Oddi hf.
prentaði.
Eldvígslan
söguleg skáldsaga
eftir dr. Jónas
Kristjánsson
Bókaklúbbur Arnar og Örlygs hefur
sent á almennan bókamarkað bók-
ina Eldvígslan eftir dr. Jónas Krist-
jánsson forstöðumann Stofnunar
Árna Magnússonar. Sagan er frum-
raun Jónasar á sviði skáldsagna-
gerðar. Hinn kunni bókmennta-
gagnrýnandi, Andrés Kristjánsson,
komst m.a. svo að orði um söguna:
„Þetta er söguleg skáldsaga í bestu
merkingu þess gamla orðs. Hún er í
senn byggð á mikilli söguþekkingu,
fræðilegri trúmennsku og ntannleg-
um skilningi. Hún opnar almennum
lesanda víkingasöguna með nýjum
hætti, lýsir undir brynjuna."
Þór Magnússon þjóðminjavörður
sagði um Eldvígsluna: „Jónasi Krist-;
jjánssyni hefur tekist snilldarlega að
smíða úr brotafrásögnum og skapa
skemmtilega og heilsteypta frásögn
í sögunni Eldvígslunni. Ragnar kon-
ungur loðbrók og fólk hans, einkum
þó sonurinn Ubbi, sem hér segir frá
ævi sinni, stígur sem ljóslifandi fram
úr hálfrökkri sögunnar. Lýsingar á
háttum fólks og umhverfi, athöfn-
um, búskaparsýsli, sæförum og
hernaði, allt er hér af miklunt hag-
leik gert og heldur sá á penna, sem
er bæði margfróður um sögusvið sitt
og menningarsögu þess tíma. Frá-
sögninni er líkt og brugðið upp á
tjald, hrífandi og æsilegar svip-
myndir, og er þá ekki minnst um
vert, að sagan er rituð á fáguðu máli
og þeirri eitilhörðu íslensku, sem
höfundur er kunnur fyrir, þannig að
unun er að lesa.
Bókin Eldvígslan er sett og prent-
uð í Prentstofu G. Benediktssonar
en bundin í Arnarfelli. Sigurþór
Jakobsson gerði kápuna.
Hejur þvt séð mju
23. desember 1985 - DAGUR - 11
\
n
Óskum landsmönnum öllum
gleðilegra jóla
og farsældar á komandi ári.
Bæjarstjórn Ólafsfjarðar.
>
4
^5/
Skipagötu 12.
Gleðilegjól,
farsælt komandi ár.
Þökkum viðskiptin
á árinu sem er að líða
<r
u
Óskum viðskiptamönnum okkar
svo og öllum landsmönnum
gleðilegra jóla
og farsældar á komandi ári
Nuddstofa Brynjólfs sf.
Sími 96-25610.
Glerárgötu 26, gengið inn að austan • Akureyri.
Nudd * Gufa * Hitageislar * Ljós *
Krystal therapy ★ Akronudd.
Sjúkraliðar
Sjúkraliða vantar á dvalar- og sjúkradeild Horn-
brekku Ólafsfirði.
Umsóknarfrestur til 5. janúar 1986.
Upplýsingar gefur forstöðumaðurinn í síma
96-62480.
Húsavík -
Blaðberar
Dagur óskar eftir blaðberum frá áramótum í
norðurbæ og miðbæ á Húsavík.
Upplýsingar gefur umboðsmaður.
Skrifstofusímar 96-41225 og 41585,
heimasími 41529.
ítetrcufeiWiw*
Sjón er sögu ríkari.
fierradeiíd 2. ficeð, sími 21730.