Dagur - 23.12.1985, Síða 8
8 - DAGUR - 23. desember 1985
Ingibjörg Arnljótsdóttir.
Nú í miðjum jólaundirbúningnum skrapp heimildamaður Alls til
Reykjavíkur til að gefa unglingum þar dálítinn gaum. Veðrið hér
hefur verið ágætt en dálítið brothætt vegna hvassviðris og mikill-
ar hálku. Hér er mikið stress í fólki - vegna jólanna - og allt á
fuilu. Reykvíkingum er mishlýtt til Akureyrar og fólk er hér voða-
lega linmælt. Öllu lék forvitni á að vita, hvernig unglingum finnst
að búa hér og hvað þeir gera um helgar, á jólunum, í skólanum,
í frístundum, á ári æskunnar, í sumar, næsta sumar og í framtíð-
inni, og hvort dóp og brennivín sé hér eins mikið vandamál og
margir vilja halda fram. Allt fór niður í bæ og tók tali nokkra ung-
linga.
Á Austurvelli hitti Allt tvær
hláturmildar stelpur, Hrönn
Steingrímsdóttur og Sigrúnu Sig-
ursteinsdóttur í 8. bekk Digra-
nesskóla í Kópavogi.
- Stelpur, hvernig finnst ykkur
að búa í Kópavogi og hvar vilduð
þið helst búa?
„Helst í Kópavogi, þar er þott-
þétt að búa."
- Hvar vilduð þið helst búa úti
á landi?
„Á Akureyri, þar er æðislega
gaman að koma,“ segir Hrönn.
- Hvaö gerið þið í frístund-
um?
„Við förum á böll flestar helgar.
I skólanum annan hvern föstu-
dag og annan hvern föstudag í
félagsmiðstöðinni. Þar er ágætt
félagslíf, borðtennis, klúbbar ofl.“
- Finnst ykkur mikil drykkja
eða dóþ hér á meðal unglinga?
„Nei, nei, ekkert mjög.“
- Finnst ykkur ekki gott bíó-
úrval hér?“
„Jú, ágætt en við förum ekki
mikið í bíó."
- Hvað er uppáhaldsmaturinn
ykkar?
„Kjúklingur og franskar."
- Hvað gerðuð þið í sumar?
„Ég var að vinna í heildsölu,"
segir Sigrún - „og ég var að
passa," segir Hrönn.
- Gott kaup?
„Já, já, ágætt.“
- Hvað ætlið þið að gera í
framtíöinni? f
„Fara í framhaldsskóla og
læra eitthvað."
- Eitthvað að lokum?
„Kópavogur er bestur!"
Friðleifur Friðleifsson var að
kaupa sér pulsu í Austurstræti.
- í hvaða skóla ertu?
„9. Ab í Valhúsaskóla á Sel-
tjarnarnesi."
- Hvað gerir þú í frístundum?
„Það er mjög gott félagslíf í
skólanum, ball á hverjum mið-
vikudegi og svo fer maður
kannski út að skemmta sér aðra
hverja helgi. Ég fer töluvert í bíó
enda góðar myndir hér en það
vantar hins vegar skemmtistað
fyrir minn aldurshóp. Ég spila
líka handbolta og á trommur og
hlusta mikið á plötur.“
- Hvernig finnst þér að búa
hér?
„Það er fínt. Nei ég vildi ekki
búa á landsbyggðinni þar er ekk-
ert sérstakt."
- Er dóp og drykkja mikið
vandamál hér?
„Nei, frekar lítið.“
- Hvað er uppáhaldsmaturinn
þinn?
„Nautasteik með kartöflum,
hrísgrjónum og béarnaise sósu.“
- Hvað varstu að gera í
sumar?
„Ég var að vinna í frystihúsi á
Kirkjusandi og verð þar senni-
lega næsta sumar líka, það er ^
gott kaup þar. Síðan fer ég út í
lönd næsta sumar."
- Hvað ætlar þú að gera eftir
9. bekk?
„Ætli ég fari ekki í einhvern
menntaskólann hérna og læri
eitthvað skemmtilegt."
Ingibjörg Arnljótsdóttir sat á
bekk í biðskýli og beið.
- í hvaða skóla ertu?
„8. bekk Æfingadeildinni.'1
- Er gott félagslíf þar?
„Nei alveg glatað."
- Hvað gerirðu þá í frístund-
um?
„Ég fer mikið út að skemmta
mér. Stundum í Tónabæ en oftar
reyni ég þó að fara í Sigtún, en
það vantar alveg skemmtistað
eins og Villta tryllta Villa, hann
var frábær."
- Verður þú mikið vör við
drykkju og dóp hér?
„Ekki dóp en drykkjan er dálít-
ið mikil."
- Finnst þér það allt í lagi?
Ekkert of ungir krakkar í þessu?
„Nei, nei, mér finnst það allt í
lagi, skipti mér ekki af því.“
- Hvað gerir þú annars þegar
enginn skemmtistaður er fyrir
ykkur?
„Það eru partí, já og dálítið
drukkið og svo fer maður í heim-
sóknireða í bæinn í frístundum."
- Hvernig finnst þér að búa í
borginni?
„Bara æðislega gaman.“
- Hvað varstu að gera í
sumar?
„Ég var að vinna á Háskóla-
lóðinni."
- Ertu búin að fá vinnu um
jólin?
„Já, ég vinn á Ijósastofu núna
og fæ kannski vinnu þar aftur
næsta sumar. Þar er ágætis
kaup.“
- Ferðu mikið í bíó eða horfir á
vídeó?
„Ég fer mikið í bíó en horfi ekki
mikið á vídeó.“
- Hvað er uppáhaldsmaturinn
þinn?
„Kjúklingur og franskar."
- Ertu búin að kauþa jólagjaf-
irnar?
Spilling í höfuðborginni.
„Nei, það verður gaman að
byrja á því.“
- Finnst þér ár æskunnar eitt-
hvað öðruvísi en önnur ár?
„Nei, ég hef ekki tekið eftir
því.“
- Hvað ætlar þú að gera eftir
9. bekk?
„Ég ætla í Versló."
Á förnum vegi náðist tal af
Benedikt Erlingssyni sem var að
koma úr vinnunni.
- Hvar ertu að vinna?
„Ég fékk vinnu sem sviðsmað-
ur í Þjóðleikhúsinu nú um jólin."
- Hvað varstu að gera í
sumar?
Benedikt Erllngsson.
9999
■ ■ ■ ■
ALLT
spyr
Allt spyr gamlan karl með
derhúfu sem hvorki vildi láta
nafns síns getið né festast á
filmu.
„Frá Degi? Nei ekkert svo-
leiðis hér, enga Framsókn
takk, ja nema KEA borgi. Þeir
hafa víst nóga peninga þar.
í sambandi við unglinga? Já
ekki er það skárra. Ég þekki
þó lítið til þar en þeir eru
varla verri hér en á Akureyri.
Þeir eru ábyggilega röskir og
bráðmyndarlegir. Dóp og
brennivín? Ég veit það ekki.
Ekki eins mikið og þeir segja,
já ég held frekar lítið og þá
helst á Hlemmi eða hvað?
Munur? Ja það er varla verra
á Akureyri í þessu veseni.
Unglingaskemmtistaðir? Það
er áreiðanlega þolanlegt fyrir
þá. Já bíóið er ágætt og
vídeóið meðan sjónvarpið er
svona lélegt bara dálítið dýrt.
En þeir líta sjálfsagt ekki í
bók. Það hlýtur að vera nóg
að gera í fóboltanum, körfu-
boltanum og auðvitað hand-
boltanum. það hefði átt að
senda þá á móti Þjóðverjun-
um í unglingahandbolta, þeir
hefðu unnið þá.“
Hrönn Steingrímsdóttir og Sigrún Sigursteinsdóttir.