Dagur - 23.12.1985, Síða 16
Ritstjórn • Auglýsingar • Afgreiðsla
Síminn er 24222
Samgöngur:
Annríki hjá
Flugleiðum
- allar helstu leiðir ruddar í dag
Mikid annríki var hjá Flugleið-
um um helgina. Slæmt veður
kom í veg fyrir flug á laugar-
daginn en um miðnætti slotaði
veðrinu og komu fjórar vélar
norður um nóttina, fullbókað-
ar. Sú síðasta lenti á Akureyri
klukkan hálf fjögur um nóttina
og var komin suður aftur á
sjötta tímanum.
í gær gekk flugið vel og komu
vélarnar jafnt og þétt allan dag-
inn og þegar upp var staðið laust
fyrir miðnætti höfðu 10 vélar
komið að sunnan og þeir hjá
Flugleiðum töldu sig þá nokkurn
veginn hafa annað eftirspurn.
að halda áætlun að Magnús í
Staðarskála í Hrútafirði sagði að
stilla mætti klukkuna eftir þeim.
Síðasta ferð hjá Norðurleið fyrir
jól er í dag en næsta ferð verður
síðan farin annan í jólum. BB.
Hafspil hf:
Margar
pantanir
borisl
A föstudaginn útskrifuðust 15 nemendur frá Vgrkmenntaskólanum á Akureyri. Þar af voru 10 vélstjórar sem luku
svokölluðu undanþágunámskeiði, en það var fyrsta og eina námskeið sinnar tegundar á Akureyrí. Þrír nemendur
luku 2. stigi vélstjórnar og einn lauk námi í rafvirkjun. Þá var einn stúdent útskrifaður af viðskiptasviði og mun þetta
vera í fyrsta sinn sem vetrarstúdent er útskrífaður á Akureyrí. Myndin hér að ofan var tekin við athöfnina í VMA.
Bemharð Haraldsson skólameistarí er lengst til vinstrí á myndinni. Mynd: - KGA.
í dag er áætlað að fara fjórar
ferðir norður og suður og tvær
ferðir á aðfangadag. Ekkert flug
verður á jóladag en alla aðra
daga til áramóta, ef veður leyfir.
Þungfært var víða á vegum í
gær en allar helstu leiðir verða
væntalega ruddar í dag.
Leiðin til Reykjavíkur var
greiðfær í gær og komu fjórar
fullar rútur frá Norðurleið til Ak-
ureyrar þann dag, en ein fór
suður. Bílstjórunum gekk svo vel
Móttökuskermur
í Sunnuhlíð
KFUM og K á Akureyri eru að
setja upp móttökuskerm fyrir
gervihnattasendingu. Verður
honum komið fyrir í verslunar-
miðstöðinni Sunnuhlíð, en þar
er félagsheimili KFLJM og K.
Fyrirhugað er að taka á móti
sendingum frá Explo ’85 en
það er útsending sem ýmis
kristin trúfélög standa að.
Það eru um 100 borgir víðs
vegar um heiminn sem taka á
móti þessum sendingum og er tal-
ið að um eða yfir hálf milljón
manna muni fylgjast með send-
ingunum.
Útsendingin samanstendur af
kristilegu efni og má þar nefna að
predikarinn Billy Graham mun
koma fram ásamt fleirum. Talið
er að um sé að ræða víðtækustu
gervihnattasendingu í heiminum.
„Það tók nokkuð langan tíma
að fá leyfið frá Pósti og síma, en
það gekk upp. Við fáum lánaðan
skerm sem Vídeólundur á og
erum að vinna að því að setja
hann upp,“ sagði Jón Oddgeir
Guðmundsson í samtali við Dag.
Útsendingin stendur í 4 daga,
hefst þann 28. og stendur fram til
31. og er á milli klukkan 15 og 17.
Er öllum sem áhuga hafa heimilt
að líta inn í Sunnuhlíðina og
fylgjast með. Á kvöldin þessa
sömu daga, utan gamlárskvölds,
verða samkomur í tengslum við
útsendinguna þar sem unnið
verður úr því efni sem sýnt hefur
verið. -mþþ
Þann 17. desember s.l. var
stofnað nýtt fyrirtæki á Akur-
eri og hlaut það nafnið Hafspil
hf.
Hafspil er stofnað með það fyr-
ir augum að framleiða og selja
vökvadrifinn búnað fyrir fisk-
veiðiskip. Framleiðslan byggir á
þróun Hreins Elliðasonar á spil-
um fyrir neta- og línuveiðar, en
hann hefur verið með þessi spil í
þróun í ein þrjú ár. Tæki frá hon-
um hafa þegar verið reynd um
borð í nokkrum bátum á tveim
vertíðum og hafa þau reynst vel.
Nú verður framleiðslan sett í full-
an gang og hafa margar pantanir
þegar borist í spil frá Hafspili hf.
Hluthafar í fyrirtækinu eru
Hreinn Elliðason sem á 50%,
Samherji sem á 20%, Iðnþróunar-
félag Eyjafjarðar á 20% og tveir
starfsmenn fyrirtækisins eiga 5%
hvor. Hafspil hf. er til húsa að
Draupnisgötu 7. -yk.
Jóhann Sigurjónsson:
Settur skólameistari
- við MA til fjögurra ára
Jóhann Sigurjónsson aðstoðar-
skólameistari Menntaskólans á
Akureyri hefur verið settur
skólameistari sama skóla frá
og með 1. júlí n.k.
Svo segir í bréfi frá Sverri
Hermannssyni menntamálaráð-
herra sem blaðinu barst á föstu-
dag. Tekið er fram að Jóhann sé
settur til að gegna skólameistara-
embættinu til fjögurra ára.
Svo sem fram hefur komið í
fréttum hefur Tryggvi Gíslason
skólameistari fengið leyfi til að
gegna störfum deildarstjóra í
skrifstofu Norrænu ráðherra-
nefndarinnar í Kaupmannahöfn
Akureyri:
Atta árekstrar
og nokkur ölvun
- annars rólegt hjá lögreglu
á Norðurlandi um helgina
Rólegt var hjá lögreglu víðast
hvar á Norðurlandi um helg-
ina. Veðrið var frekar slæmt
á föstudagskvöld og mikil
hálka á vegum.
Á Akureyri urðu tveir
árekstrar á föstudag og sex á
laugardag en allir smávægilegir
og engin meiðsl urðu á fólki.
Þrir ökumenn voru teknir
fyrir meinta ölvun við akstur á
Ákureyri um helgina og á laug-
ardagsnóttina voru tveir fluttir
á sjúkrahús eftir að til átaka
kom þeirra á milli í Sjallanum.
Meiðsli þeirra reyndust smá-
vægileg.
Á Dalvík var einn tekinn fyr-
ir meintan ölvunarakstur og
víða á Norðurlandi þurfti lög-
regla að aðstoða ökumenn sem
voru í vandræðum vegna þungr-
ar færðar.
Á Húsvík fór vinnuskúr við
blokkarbyggingu í stutt föstu-
dagsfcrðalag með Kára og hafn-
aði ofan í grunni nokkuð
skemmdur.
Annars átti lögreglan á Norð-
urlandi nokkuð náðuga helgi að
þessu sinni. BB.
allt að fjögur ár. Tryggvi hafði
áður sagt að hann teldi eðlilegt
og skylt að aðstoðarskólameistari
væri staðgengill skólameistara og
því teldi hann sjálfgefið að Jó-
hann yrði settur í embættið þessi
fjögur ár.
Og nú hefur menntamálaráð-
herra sem sagt staðfest þessa
skipan mála. BB.
16 nauðungaruppboð
Mikil aukning hefur orðið á
nauðungaruppboðum á síðast
Iiðnum tveimur árum. Margir
ná að „koma eignum sínum
undan hamrinum“ áður en til
iokauppboðs kemur, en ekki
allir.
Á þessu ári voru 16 fasteignir
seldar á uppboði í umdæmi sýslu-
manns Eyjafjarðarsýslu, sem
jafnframt er bæjarfógeti á Akur-
eyri og Dalvfk. Af þessum 16
fasteignum, var í 5 tilfellum um
atvinnuhúsnæði að ræða en 11
sinnum var íbúðarhúsnæði selt á
uppboði, ýmist hús ellegar íbúð-
ir.
í fyrra voru 14 eignir seldar á
nauðungaruppboði, 1983 voru
tvær seldar en 7 fasteignir voru
seldar nauðungarsölu árið 1982.
Af þessu má sjá að nauðungar-
sölum hefur stórlega fjölgað á s.i.
tveimur árum. BB.
Breyttar snjómokstursreglur:
Múlinn mokaður
tvisvar í viku
Við gildistöku nýrra reglna um
snjómokstur á vegum, mun
hagur Ólafsfirðinga í sam-
göngumálum vænkast stór-
lega. í þessum nýju reglum er
gert ráð fyrir að Ólafsíjarðar-
múli verði ruddur tvisvar í viku
í stað vikulega áður.
Reglur um snjómokstur á land-
inu hafi verið í endurskoðun hjá
samgönguráðuneytinu svo og
Vegagerð ríkisins í nokkurn tíma
og þessa dagana er unnið að
lokafrágangi nýrra reglna um
snjómokstur. Samgönguráðherra
þarf að staðfesta reglurnar áður
en þær taka gildi.
Reglurnar hafa ekki tekið
miklum breytingum við þessa
endurskoðun en snjómoksturs-
dögum mun þó fjölga á nokkrum
stöðum á landinu.
Að sögn yfirverkfræðings hjá
Vegagerðinni eru helstu breyt-
ingar á Norðurlandi eystra þær,
að auk Ólafsfjarðarmúla verður
leiðin frá Húsavík til Raufarhafn-
ar rudd tvisvar í viku, þó aðeins
þegar snjólétt er. Annars einu
sinni í viku. Það sama gildir um
Kísilveginn svo kallaða í Mý-
vatnssveit. Ekki reyndist unnt að
fá upplýsingar um snjómokstur-
inn á Norðurlandi vestra en vænt-
anlega verður hægt að greina
nánar frá þessum málum á allra
næstu dögum. BB.